Kiwanisfréttir - 01.04.2009, Page 19
19
Kiwanisklúbburinn Keilir
hefur í rúman áratug haldið
barnapáskabingó í vikunni
fyrir páska. Þar koma saman
Kiwanisfélagar, makar, börn
og barnabörn og spila bingó
þar sem páskaegg eru í
vinning. Boðið er upp á prins
póló og kók og síðan fá öll
börn lítið páskaegg, þannig að
enginn fer egglaus heim.
Bingóspjaldið kostar aðeins
100 krónur en tveir félagar í
Keili, þeir Andrés K. Hjaltason
og Björn H. Guðbjörnsson og
fyrirtæki þeirra skiptast á
annað hvert ár að bjóða upp á
vinningana.
Barnapáskabingó hjá Keili
Vinningshafar í barnapáskabingói Keilis.
Starfið í vetur hefur yfirleitt verið í góðu lagi í klúbbunum,
nokkur fjölgun hefur verið en okkur ekki gengið nógu vel að loka
bakdyrunum og halda félögum inni.
Kiwanisfélagar eru í dag 904 og þarf því að fjölga um 100 til
að ná lágmarksfjölda til að vera fullgilt umdæmi, við viljum ekki
vera umdæmi í aðlögun.
Heimsstjórn og Evrópustjórn hafa stutt fjölgun með því að
kalla fulltrúa úr öllum umdæmum á sérstaka fjölgunarrástefnu
til að aðstoða við fjölgun félaga.
Við í umdæminu Ísland-Færeyjar segjum stoltir frá því að við
eigum fjölmennasta klúbb í Evrópu þ.e.a.s Helgafell í Vest-
mannaeyjum með 95 félaga og 3 félaga í aðlögun.
Framundan er ánægjulegt verkefni allra klúbba, það er
afhending reiðhjólahjálma til allra 6 ára barna á landinu.
Vegna ástandsins í landinu varðandi fjármögnun vorum við
hræddir um að samningurinn sem gerður var við Eimskip væri í
uppnámi, en svo reyndist ekki vera og höfum við tryggt okkur
greiðslu frá þeim fyrir hjálmunum.
Eimskip er mjög ánægt með samstarfið við Kiwanis-
hreyfinguna varðandi hjálmaverkefnið og er mjög stolt af því.
Evrópuþing í Ghent verður í byrjum júní og er ágæt þátttaka
félaga frá Íslandi, enda frábær skemmtun og og góð leið til að
kynnast Kiwanisfélögum frá öðrum Evrópulöndum. Andrés
Hjaltason fyrrverandi umdæmisstjóri og félagi í Keili gefur kost á
sér til forseta Evrópustjórnar og væri gaman að sjá hann fá
glæsilega kosningu, 2 aðrir gefa kost á sér til starfans. Þeir
Kiwanisfélagar sem fóru á síðasta Evrópuþing voru allir sam-
mála að það væri hin besta skemmtun samanber grein í síðasta
Kiwanisblaði. Heimsþing verður í lok júní í Tennesee í
Bandaríkjunum
Það er ánægjulegt að sjá hin fjölmörgu verkefni sem
klúbbarnir eru að vinna að til góðra mála.
Góðir Kiwanisfélagar gleymum ekki markmiðum Kiwanis að
aðstoða þá sem minna mega sín.
Með Kiwaniskveðju,
Matthías Guðm. Pétursson.
ÁGÆTU KIWANISFÉLAGAR GLEÐILEGT
SUMAR OG ÞAKKIR FYRIR GÓÐAN VETUR
Óskar kjörumdæmisstjóri og Matthías umdæmisstjóri.