Litli Bergþór - 01.08.2015, Blaðsíða 9

Litli Bergþór - 01.08.2015, Blaðsíða 9
Litli-Bergþór 9 Sigurðarstaðir. sinn við Ólaf H. Einarsson (sjá gamla læknishús), sem þá var héraðslæknir, jafnframt því sem hann hafði yfirráð yfir Laugarásjörðinni, og mikið sjálfdæmi um ráðstöfun hennar. Lóðinni fylgdi nýtingarréttur af Sigurðarhver. Árið 2002, þegar erfðafestusamningurinn rann út, var samið um að breyta landinu í 4 lóðir og er hver þeirra um hálfur hektari. Með þessu var upphafleg lóð skert verulega. Efst í þessu landi er sumarbústaður sem Sigurður reisti og er enn í eigu afkomenda hans og Ragnheiðar Bryndísar Ásgeirsdóttur (f. 04. 02. 1905, d. 03. 07. 1980). Í litlu dalverpi í suðaustur frá bústaðnum reisti Sigurður 300m² gróðurhús, sem mun hafa verið fyrsta járngrindargróðurhúsið sem byggt var á landinu. Nálægt gróðurhúsinu byggðu Jón Vilhelm Ásgeirsson, bróðir Bryndísar og kona hans, Sigríður Friðfinnsdóttir síðan lítið sumarhús, þar sem þau dvöldu í nokkur sumur, en síðan tók Sigurður við því. Í þessu húsi bjuggu garðyrkjumenn sem sáu um ræktunina, sem fólst meðal annars í útiræktun. Meðal þeirra voru tvíburabræðurnir Þór og Njáll Þóroddssynir, en Njáll bjó síðar í Friðheimum í Reykholti. Þarna starfaði einnig um tíma Hansen nokkur, danskur garðyrkjumaður. Síðar tóku garð- yrkjubændur, t.d. Skúli Magnússon í Hveratúni, gróðurhúsið á leigu í lengri eða skemmri tíma. Gróður- húsið var rifið og grindin flutt að Lindarbrekku 1976. Litli bústaðurinn nýttist um tíma sem bráða- birgðahúsnæði fyrir nýjar fjölskyldur í Laugarási, sem þar bjuggu um skamman tíma, t.d. bjuggu Óttar Guðmundsson og Gíslunn Jóhannsdóttir (sjá Teigur) þar í nokkra mánuði 1967 áður en þau fluttu í gamla bæinn í Hveratúni og síðan á Teig. Helgi J. Kúld og Guðrún Skúladóttir (sjá Asparlundur) voru í húsinu sumarið 1968, en fluttu síðan í gamla bæinn í Hveratúni. Loks nýttu þau Guðný Guðmundsdóttir og Helgi Indriðason (sjá Helgahús) húsið sem sumarbústað í einhver ár eftir að þau fluttu úr Laugarási. Hann var rifinn fyrir um 10 árum. Sigurður og Bryndís eignuðust 3 dætur: Sigrúnu Erlu, Svanhildi og Guðrúnu. Sumarhúsið er nú sameign Sigrúnar og Svanhildar, og tveggja barna Guðrúnar, en hún er látin.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.