Litli Bergþór - 01.08.2015, Blaðsíða 6

Litli Bergþór - 01.08.2015, Blaðsíða 6
6 Litli-Bergþór Húsin í Laugarási LINDARBREKKA 1942 Saga lóðarinnar sem síðar varð Lindarbrekka, hófst 1942 með því að Jóhann Sæmundsson (f. 09. 05. 1905, d. 06. 06. 1955), yfirlæknir og félagsmálaráðherra um nokkurra mánaða skeið, fékk hálfan hektara lands og byggði sér 29m² sumarhús á brekkubrúninni. Ein megin ástæða þessa mun hafa verið sú að hann vildi hafa möguleika á að hafa öruggt skjól í mögulegum loftárásum á landið. Eiginkona hans var Sigríður Sæmundsson, fædd Thorsteinson (f. 1908, d. 08. 04. 1998), dóttir Árna Thorsteinsonar, tónskálds. Sigurður Jónasson (f. 19. 08. 1896, d. 28. 10. 1965) keypti húsið 1948. Sigurður var alllengi forstjóri Tóbaks-einkasölu ríkisins, og var svokallaður athafnamaður. Hann keypti Geysi af erlendum manni og gaf íslensku þjóðinni. Þá keypti hann einnig Bessastaði og gaf þá undir aðsetur ríkisstjóra. Föst búseta á Lind- arbrekku hófst 1951 með núverandi eigendum en þeir eru, Guðmundur Indriðason (f. 15. 05. 1915) og Jónína Sigríður Jónsdóttir (Jóna) (f. 06. 02. 1926). 1958 var nafn býlisins staðfest og um leið var landið sem það stendur á stækkað um helming. Guðmundur og Jóna stækkuðu íbúðarhúsið 1961. Þau tóku sér ýmislegt fyrir hendur eftir að í Laugarás var komið, en segja má að allt þar til gróðurhúsið kom til sögunnar hafi þau bæði tekið þátt í uppbyggingunni sem var í Skálholti á sjötta áratugnum og fram á þann sjöunda og Guðmundur starfaði síðan töluvert við húsbyggingar þegar byggðin í Laugarási tók vaxtarkipp í kringum 1970. Höfundur: Páll M. Skúlason Lindarbrekka. Jóhann Sæmundsson. Sigurður Jónasson. 1976 byggðu þau gróðurhús og notuðu til þess efni úr gróðurhúsi sem hafði staðið á Sigurðarstöðum. Árið eftir byggðu þau pökkunarhús eða vélageymslu og loks íbúðarhús 1980. Í það minnsta tveir aðilar fengu að búa í gamla húsinu í einhvern tíma eftir að eigendurnir fluttu í nýja húsið: Magnús Skúlason og Sigurlaug

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.