Litli Bergþór - 01.08.2015, Blaðsíða 18

Litli Bergþór - 01.08.2015, Blaðsíða 18
18 Litli-Bergþór Ég er nú enginn fýlupúki!“ sagði afmælis-barnið þegar ég hafði orð á því hve hress og kátur hann var á 100 ára afmælinu sínu og á heimleiðinni valt upp úr mér að vera kynni að fæðingardagurinn gæti hafa misreiknast um 10 ár. Guðmundur Indriðason bauð sem sagt til veislu á afmælisdaginn, ásamt fjölskyldu sinni í Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu. Þar hafa þau Jóna nú alið manninn að undanförnu og ekki annað að sjá en vel fari um þau. Fyrir utan börnin fjögur, maka og afkomendur var þarna margt fólk sem Laugarás og nágrenni gisti á uppvaxtarárum mínum og gistir enn, sumir auðvitað orðnir talsvert þroskaðri, en báru samt með sér að hafa andað að sér heilnæmu og langlífishvetjandi loftinu í Laugarási.Það var vel veitt og glatt á hjalla á Lundi, kveðskapur fluttur og kveðjur, söngvar sungnir og leikið á hljóðfæri meðan veisluföng voru innbyrt og skálað fyrir afmæliskarlinum. Páll Magnús Skúlason. „Ég er nú enginn fýlupúki!“ Guðmundur Indriðason á Lindarbrekku fagnaði aldarafmæli þann 15. maí Við borðið nær, f.v. Magnús og Sigurlaug í Hveratúni, Kaja og Sævar frá Heiðmörk. Við borðið fjær má sjá Indriða frá Lindarbrekku og Birgi Stefánsson frá Laugarási (Helgahúsi). Fremst Renata og Gunnlaugur, Brekkugerði, Kristín frá Skálholti, Ágústa frá Heiði, Sigurður á Heiði og Sr. Egill í Skálholti. Fólk tók lagið. Maja í Skálholti og Jóna á Lindarbrekku. Að baki Jónu er Dröfn í Kvistholti. Börn Lindarbrekkuhjónanna, f.v. Grímur, Katrín Gróa, Jón Pétur og Indriði. Hjónakornin, Guðmundur og Jóna.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.