Litli Bergþór - 01.08.2015, Síða 18
18 Litli-Bergþór
Ég er nú enginn fýlupúki!“ sagði afmælis-barnið þegar ég hafði orð á því hve hress og
kátur hann var á 100 ára afmælinu sínu og á
heimleiðinni valt upp úr mér að vera kynni að
fæðingardagurinn gæti hafa misreiknast um
10 ár. Guðmundur Indriðason bauð sem sagt
til veislu á afmælisdaginn, ásamt fjölskyldu
sinni í Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Lundi á Hellu. Þar hafa þau Jóna nú alið
manninn að undanförnu og ekki annað að
sjá en vel fari um þau. Fyrir utan börnin
fjögur, maka og afkomendur var þarna
margt fólk sem Laugarás og nágrenni gisti á
uppvaxtarárum mínum og gistir enn, sumir
auðvitað orðnir talsvert þroskaðri, en báru samt
með sér að hafa andað að sér heilnæmu og
langlífishvetjandi loftinu í Laugarási.Það var
vel veitt og glatt á hjalla á Lundi, kveðskapur
fluttur og kveðjur, söngvar sungnir og leikið
á hljóðfæri meðan veisluföng voru innbyrt og
skálað fyrir afmæliskarlinum.
Páll Magnús Skúlason.
„Ég er nú enginn fýlupúki!“
Guðmundur Indriðason á Lindarbrekku
fagnaði aldarafmæli þann 15. maí
Við borðið nær, f.v. Magnús og Sigurlaug í Hveratúni,
Kaja og Sævar frá Heiðmörk. Við borðið fjær má
sjá Indriða frá Lindarbrekku og Birgi Stefánsson frá
Laugarási (Helgahúsi).
Fremst Renata og Gunnlaugur, Brekkugerði, Kristín frá
Skálholti, Ágústa frá Heiði, Sigurður á Heiði og Sr. Egill
í Skálholti.
Fólk tók lagið. Maja í Skálholti og Jóna
á Lindarbrekku. Að baki Jónu er Dröfn
í Kvistholti. Börn Lindarbrekkuhjónanna, f.v. Grímur, Katrín Gróa, Jón Pétur og Indriði.
Hjónakornin, Guðmundur og Jóna.