Helgarpósturinn - 26.03.1987, Qupperneq 21
FÓLK HELDUR AÐ MAÐUR
GANGI MEÐ
RÖNTGENGLERAUGU
— Er engin hœtta á því ad menn eins og þú,
sem eru med öll gedsjúkdómaeinkenni á takt-
einum, verdi „hysterískir" þegar þeir finna and-
legar breytingar hjá sjálfum sér?
„>að hafa allir iæknastúdentar upplifað. Mað-
ur hefur einkenni um alla mögulega sjúkdóma,
þegar maður er að lesa um þá í fyrsta sinn. Ég
held nú að þekkingin hjálpi manni hins vegar til
þess að geta greint þarna á milli. Ef ég vakna t.d.
illa upplagður einhvern morguninn, get ég gert
mér grein fyrir því af hverju það er og verð þar
af leiðandi síður „hysterískur". >ekkingin cetti
sem sagt að hjálpa mönnum mjög mikið og
margir þeirra, sem fást við geðræn málefni,
ganga í gegnum eigin meðferð á námsferlinum.
>etta gerir mönnum kleift að þekkja sjálfa sig
betur."
— Madur heyrir fólk oft segja að enginn hópur
iþjóðfélaginu sé jafnskrítinn ogsálfrœðingar og
qeðlœknar. Hefurðu fengið þetta framan í þig
um œvina?
„Já, blessuð vertu. >að eru líka margir í stétt
geðlækna og sálfræðinga, sem eru óvenjulegir
persónuleikar, þó ég hafi aldrei lagt mig eftir því
að hugleiða hvort það er meira en gerist og
gengur í öðrum hópum. Auðvitað er margt fólk
í þessum stéttum mjög upptekið af að hugsa um
sjálft sig og ýmislegt í eigin fari. Hins vegar ætti
enginn að leggja út í þessar atvinnugreinar til þess
að lækna sjálfan sig. Slíkt er ekki heillavænlegt!
>að er afskaplega mikil áreynsla fyrir mann
að vinna með geðtruflanir annarra og þurfa að
vera allan daginn útsettur fyrir ýmsu óvenjuiegu
í fari fólks. >að fylgir þessu mikið álag.“
— Þurfið þið sjálf kannski einhvers konar út-
rás eða að létta áykkur til þess að geta unnið við
þetta?
„>að er mikið um það í þessu starfi að fólk ieit-
ar handleiðslu hjá starfsfélögum sínum eða öðr-
um til að fá leiðbeiningar og ábendingar um eig-
in viðbrögð. >etta er mjög algengt og meðvit-
und okkar um þetta er vaxandi. Við verðum að
vera vakandi fyrir því að slíta fólki ekki upp til
agna, ef svo má að orði komast. Starfsfólkið þarf
sem sagt líka að fá tækifæri til þess að hvíla sig
og „lofta“ tilfinningar sínar og viðbrögð."
— Verður þú var við það á mannamótum, að
fólk hafi áhyggjur afþví að þú sért að sjúkdóms-
greina það?
„Já, já. Fólk heldur að maður gangi um með
einhver röntgenaugu og sjái þess leyndustu til-
finningar. >ess vegna getur það stundum verið
svolítið á varðbergi. Eg reyni náttúrulega að
eyða þessu eftir bestu getu, því ég hef alls engin
röntgenaugu og sé ekki hugsanir fólks nema
það skýri mér frá þeim!“
— Enlendirþú íþví eins og,,venjulegir“ lcekn-
ar að fólk tali mikið um sálrœna sjúkdóma við
þig í samkvœmum?
„Fóik ræðir oft töluvert um geðrænar trufian-
ir og orsakir þeirra, og finnst við geðiæknarnir
stundum fáfróðir og ómögulegir! En sjúkling-
arnir mínir koma ekki til mín og ræða sjúkdóma
sína, eins og sjúlingar kvensjúkdómalækna
koma og spjalla um hnúta í leginu eða tíðatrufl-
anir yfir glasi. >að gera mínir sjúklingar ekki,
enda er það afar eðlilegt."
FER Á SKÍÐI, Á SUMARDAGINN
FYRSTA
— Tekurðu áhyggjur úr vinnunni mikið með
þér heim, eða lcerist fljótt að skilja þarna á milli?
„>að lærist nú aldrei alveg.
Ef maður er að fást við erfitt mál og ekki geng-
ur nógu vel að hjálpa einhverjum, fer maður
óneitanlega heim með áhyggjur af því. >á veltir
maður því fyrir sér, hvað hægt sé að gera frekar
fyrir sjúklinginn og það er óskaplega sárt þegar
ekki tekst að lækna einhvern. Að ég tali ekki um
að verða fyrir því að sjúklingur stytti sér aldur.
>að er alltaf mikið áfall og mjög sárt.“
— Hvað gerirðu í tómstundum til þess að
dreifa huganum?
Prófessor Tómas
Helgason yfir-
læknir í HP-viðtali
„Ég fer á skíði á sumardaginn fyrsta", sagði
Tómas og skellihló, en ég botnaði ekki neitt í
neinu. >á kom skýringin.
„Sjáðu til, ég ætla mér alltaf að fara á skíði á
veturna, en kem því aldrei í verk fyrr en um
sumardaginn fyrsta. >á fer ég á skíði, svona rétt
til að koma nafni á það.
>að eina sem ég stunda af tómstundaiðju, er
garðurinn minn. Og sumarbústaður austur í
svéit, þar sem ég dunda mér á sumrin við að
planta trjám, laga girðingu og slíkt.
Ég verð hins vegar að játa það á mig, að ég er
haldinn vinnufíkn — líklega af því að ég er latur
að eðlisfari. Ég þori ekki að hætta að vinna, af
ótta við að gera þá ekki neitt!"
— Þú situr þá ekkiyfir vídeóinu á kvöldin eða
spilar bridge í laumi?
„Nei. Ég hef ekki spilað bridge síðan ég var í
5. bekk. >á afgreiddi ég það. Við spiluðum einu
sinni í viku, nokkrir góðir félagar og bekkjar-
bræður í menntaskóla, en síðan þá hef ég ekki
spilað bridge. Ég horfi þó auðvitað einstöku
sinnum á sjónvarp, þegar eitthvað skemmtilegt
er á dagskránni. Ég slappa þá af yfir því, eða
sofna jafnvel..."
SAGT AÐ VIÐ SYSTK IIN
BROSUM f TÍMA OG ÍMA
— Hefur þig aldrei langað til að taka þátt
í stjórnmálum?
„Ég tók eiginlega ákvörðun um það, eftir að
ég var orðinn iæknir, að það félii ekki saman að
stunda það starf og vera pólitískt virkur. >ess
vegna hef ég aldrei komið nálægt stjórnmálum.“
— En hvað finnst þér um pólitíkina á íslandi?
„Fólk, sem er í þessu, stefnir allt að sömu
markmiðum, sýnist mér, en heldur að leiðirnar
séu misgóðar eða misfærar. Raunin er sú, að það
hefur skipt afskapiega litlu máli síðan 1960 hver
er við völd. Utkoman hefur alltaf verið mjög
svipuð eftir að haftastefnan leið undir lok við
upphaf viðreisnarstjórnarinnar. Við höfum haft
mjög farsæla þróun, þrátt fyrir nokkur víxlspor
og vandræði eins og verðbólguna. En þetta litla
þjóðfélag á fslandi gerir stjórnmál erfið. Návígið
og nábýlið gerir það óskaplega erfitt."
— Þú hefur sem sagt aldrei lánað nafnið þitt
á framboðslista?
„>að hef ég ekki gert, nei. Svo verður líka að
segjast eins og er, að það er alveg kappnóg að
einn í fjölskyldunni sé í þessu!“
— Þykir þér gaman að lifa, Tómas?
„Já, mér þykir það. Mér hefur alltaf þótt
gaman — man raunar ekki eftir öðru.“
— Þú ert afar brosmildur maður og stutt í
glensið í augunum. Ertu mjög léttur í lund?
„>að er nú sjálfsagt misjafnt. >etta er einhver
kækur, sem okkur systkinunum er legið svolítið
á hálsi fyrir. >að er stundum sett út á þetta við
okkur... sagt að við brosu... i tíma og ótíma!"
Að þessu sögðu fóru 36 vöðvar í andliti Tómas-
ar Helgasonar í gang, samkvæmt kokkabókum
ljósmyndiii a HP. Öllu meira viðeigandi endi var
tæpasi hægt að hugsa sér á þetta samtal.