Eintak

Tölublað

Eintak - 28.04.1994, Blaðsíða 33

Eintak - 28.04.1994, Blaðsíða 33
Joy Luck Club er mynd um konur sem er gerð fyrir konur og ef mað- ur tilheyrir ekki þeim reynsluheimi virkar hún full-tilþrifalaus. "Flest lögin á Acid Eaters virka þreytt og jafnvel lummó. Lík- legra er þó að í þetta skiptið hafi Ramones tekið pönkið aðeins of bókstaflega - nokkuð sem þeir hafa einmitt látið vera hingað til." "Ég var alveg hæst- ánægður með úrslitin. Söngkonan sem sigr- aði var bara mjög góð og hafði auk þess nokkuð séstakan radd- karakter. Ekki spillti það fyrir hve gullfalleg hún var, en það er orð- ið sjaldgæft meðal ís- lenskra söngkvenna." frjóan jarðveg vestra. Joy Luck Club er vel leikin og per- sónugerðirnar í myndinni eru sannfærandi en of einlitar til að halda áhuga áhorfenda vakandi. Möguleikar kvikmyndarinnar sem ffásagnarmiðils eru vannýttir og myndin fær á sig blæ langdregins stofudrama á köflum. Það er helst í þeim myndskeiðum sem gerast í Kína að hreyfanleiki kvikmynda- tækninnar fær að njóta sín. Joy Luck Club er mynd um konur sem er gerð fyrir konur og ef maður til- heyrir eldd þeim reynsluheimi virk- ar hún fúll-tilþrifalaus. Endirinn var einnig hlálega auðútreiknanleg- ur og ég var farinn að bíða eftir HvER? HV !AÐ? HveRNIG? Hvers VEGNA? H* rAÐAN? Hvept? Nafn: Ragnheiður Pétursdóttir Melsteð Fæðingardagur: 6. maí 1971 Hæð: 172 sm Þyngd:57 kg Háralitur: Dökkbrúnn Augnlitur: Grænn Sérkenni: Sítt hár Ragnheiður Péturs- dóttir Melsteð er unnusta Magnúsar Scheving er- óbikkmeistara, en hún er einnig umboðsmaður hans. Auk umboðsmennskunnar starfar hún sem hárgreiðslu- kona á rakarastofu föðurs síns Péturs Melsteð. Pétur gefur út tímaritið Hdr og feg- urð og Ragnheiður aðstoðar hann einnig við það. „Ég er mjög sátt við að vera konan á bak við manninn því þótt Magnús sé ákveðinn og segi það sem honum býr í brjósti er hann mjög ljúfur og góð- ur. Ég held að það sé ekki hægt að finna betri mann til að búa með,“ segir hún. „Starf umboðsmanns felst að mestu í alls konar redd- ingum því í mörg horn er að líta,“ segir Ragnheiður. „Samskipti við erlenda aðila eru stór hluti af starfinu því eins og alþjóð veit tekur Magnús oft þátt í eróbikk- mótum og sýningum úti. Það er verið að bjóða honum hingað og þangað og alls konar tilboð sem þarf að skoða vel eru stöðugt að ber- ast. Síðan eru það allar bók- anirnar hér heima sem hann getur að sjálfsögðu ekki sinnt þegar hann er að kenna eða sýna sjálfur." Eftirspurnin eftir Magnúsi hefur undið ótrúlega hratt upp á sig. „Þetta er miklu stærra batt- erí en við héldum að það yrði í fyrstu. Það skemmtilega við það er að þetta hefur komið af sjálfú sér og við höfúm aldrei auglýst eða sent neinar upplýsingar um Magnús án þess að það hafi verið beðið um þær áður. Orðspor hans virðist bara hafa borist manna á milli. Magnús datt óvart inn í það að fara að skemmta og ég fer stundum með honum þegar hann kemur fram til að aðstoða hann með búningana og alls konar dót sem hann notar í mismunandi atriðum.“ „Það var orðið svo mikið að gera hjá Magnúsi við alls konar skipulagningu í sam- bandi við eróbikkið að ég datt eiginlega inní umboðs- mennskuna fyrir hann,“ segir Ragnheiður. „Við erum ekki með neina umboðsskrifstofú heldur hringja þeir sem vilja bóka hann heim. Ég fór að gera það sem hann komst ekki yfir og þannig þróaðist þetta koll af kolli þangað til við ákváðum að umboðs- mennskan yrði í mínum höndum.“ „Við erum búin að vera í sambúð í fimm ár en við kynntumst þegar við vorum bæði að æfa á sömu líkams- ræktarstöðinni hér í Reykja- vík. Ég stunda sjálf eróbikk í Gallerí Sport þar sem Magn- ús kennir, en er ekkert í öðr- um íþróttum.“ „Það er ákveðin biðstaða hjá mér núna og nánasta framtíð ræðst mikið af því sem Magnús ætlar að gera. Það gæti verið að ég fari í há- skólann í haust að læra lög- fræði en við erum einnig að skoða spennandi tilboð sem Magnús fékk frá Bandaríkj- unum. Ég skil það ósköp vel ef hann vill hætta því þetta hefur verið erfitt og dýrt. Það er samt ýmislegt spennandi í gangi og margir sem þrýsta á Magnús að halda áfram þannig að ég á eftir að sjá hann láta alfarið verða af því að hætta keppni." MEDOLLU IV mm ég beið rólegur, einsog mér var sagt í síðasta bfaði að gera. eitthvað spennandi átti að gerast. eitthvað nýtt. ég beið... og fara úr buxunum, herra stóll? spurði ég. hann sagði nei. huxaðu, hvert viltu fara með líf þitt. komdu stóll, nú förum við í sund. nú loksins vita þessar óánægjuraddir hvert ég er að fara. í SUND. framhaid og ekkert gerðist. nema að stóllinn sagði prófaðu mig. sem ég gerði... og hvað svo. vertu frjáls, sagði stóllinn FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1994 33

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.