Morgunblaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 24
Köflótt Kvenlegt veski og mittisbelti, 3.290 kr.
hvort, rautt belti, 1.690 kr. Friis& Company.
Kerti og spil eða Sudoku handabarninu? Mjótt bindi, belti eða I-pod-veski handa unglingunum?Hitapoka handa unga, ástfangna
parinu? Gott rakkrem fyrir kærastann? Rauða
leðurhanska,veski eða leðurhulstur utan um
myndavélina handa kærustunni? Teketil og
bolla handa mömmu eða hreinsilínu fyrir húð-
ina? Fóðraða hanska eða kryddhristara frá Ja-
mie Oliver fyrir pabba? Rauða, geggjaða fót-
boltaskó handa íþróttagarpinum?
Það er Þorláksmessa og þú átt eftir að
kaupa síðustu gjafirnar, kannski allar! Biddu
Þorlák helga Skálholtsbiskup Þórhallsson dýr-
ling og allar góðar jólavættir að aðstoða þig
við valið. Það er stemning í verslunum og af
nógu að taka. Þetta verður gaman.
Þeir tímar eru liðnir að kerti úr sauðatólg
voru algengasti jólaglaðningurinn en seint á
19. öld voru þau allmikils virði. Ljós þeirra var
nefnilega mun bjartara en lýsiskolanna sem ís-
lenskur almúgi notaði venjulega. Um eiginlega
jólagjöf á milli fólks var samt ekki að ræða að
sögn Árna Björnssonar þjóðháttafræðings í
bók hans Sögu jólanna, en á jólunum fengu
meðlimir íslenskra heimila oft nýja flík eða skó
sem kom í góðar þarfir.
Með vaxandi velmegun þjóðarinnar á 20. öld
varð hinn veraldlegi undirbúningur jólanna sí-
fellt umfangsmeiri. Fólk fór að gefa sín á milli
og smám saman urðu gjafirnar íburðarmeiri.
Það er alveg rétt að í íslensku nútímasam-
félagi eiga margir margt og sumir nánast allt.
En það hafa samt langflestir gaman af því að
fá og gefa jólagjafir. Þeim fylgir nefnilega
galdur sem leysir úr læðingi mikla og jákvæða
orku hjá þjóðinni allri. Það er hugurinn sem
býr að baki hverri gjöf, tíminn sem fer í að
velja hana, pakka henni inn, skrifa á merki-
miðann og afhenda hana síðan hátíðlega þeim
sem hún er ætluð á Þorláksmessu eða aðfanga-
dag. Í dimmum desember er það m.a. þessi
orka sem lýsir upp myrkrið. Okkur þykir gam-
an að gefa jólagjafir, sama hversu hátt við
nöldrum yfir öllu veseninu. Það er órjúfan-
legur hluti af hátíðarhöldunum. Munið bara að
það er hugurinn sem gildir – ekki verðmiðinn.
Þú þarft ekki að örvænta. Þú munt finna fín-
ar gjafir fyrir jól. Þetta reddast alltaf. Hér eru
samt nokkur góð jólagjafabjargráð sem fínt er
að hafa í huga – ásamt því að heita á Þorlák
helga: Sumar gjafir, eins og bækur, geisla-
diskar og fatnaður henta öllum aldri og báðum
kynjum og þeim, eins og reyndar flestum jóla-
gjöfum, má skipta á milli jóla- og nýárs, falli
þær ekki að smekk þiggjandans. Skapandi
leikföng eru alltaf sígild fyrir börn. Unglingar
hafa gaman af og not fyrir tölvuforrit, tölvu-
leiki og fleira sem tengist tölvum og tónlist
eins og i-pod og útvörpum. Unga fólkið gæti
vantað eitt og annað í búið og foreldra og
maka eitthvað sem tengist áhugamálunum
Þeir síðarnefndu slá heldur ekki hendinni á
móti dekurgjöfum eins og nuddi eða andlits-
baði á snyrtistofu. Táknrænar gjafir og per-
sónulegar eins og þær sem búa til eða varð-
veita sameiginlegar minningar vekja líka
alltaf lukku.
uhj@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Jólalegt Rómantískt tveggja manna te- eða kaffisett, 2.990 kr. Ormsson.
Hlýtt Leðurhanskar eru sígild gjöf. Brúnir
herrahanskar, 5.490 kr. Debenhams. Rauðir
dömuhanskar, 12.600 kr. Leonard.
Sniðugt Kortin og i-podinn í einu og sama
veskinu, 4.590 kr. Apple IMC.
Fjölnota Leðurhulstur utan um myndavélar,
i-pod, síma og fleira, 3.990 kr, Apple IMC.
Hátíðleg Falleg skinntaska, www.kulusuk-
art.com, 19.900 kr. (sölubás í Kringlunni).
Notalegt Það er nú ekki amalegt að fá svona
hjartalegan hitapoka, 400 kr. Tiger.
Eldheitt Silkibindi, Breitt fyrir eldri herra,
mjótt fyrir þá yngri, 4.990 kr. Retro.
Jólagjafir á
síðustu stundu
Snyrtilegt Nærandi rakkrem fyrir karlmenn
frá Aveda, 1.470 kr., rakakrem 3.590 kr. og
maski 2.935 kr. fyrir bæði kyn. Aveda.
Kryddhristari Skemmtilegur hristari frá
Jamie Oliver þar sem hægt er að blanda sam-
an olíu og ýmsum kryddtegundum, 3.990 kr.,
Debenhams.
Fjölskylduspil Sudoku nýtur mikilla vin-
sælda en þetta er borðspil fyrir börn frá 8 ára
aldri, 3.490 kr. Penninn.
Hættulegir Rauði liturinn
virkar víst vel fyrir fótbolta-
fólk á skotskónum, 9.900 kr.
Adidas Concept Store.
tíska
24 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ