Vikan


Vikan - 11.01.1990, Side 5

Vikan - 11.01.1990, Side 5
Trésmiður í Garðabæ fékk Renault 19 GTS í áskriftargetraun SAM-útgáfunnar Áskrifl sem borgaði sig Hjónin Jóhann Hlöðvers- son og Alda Jörundsdóttir voru meðal fjölmargra skuldlausra áskrifenda Vik- unnar og H&H, sem fylgd- ust af athygli með því er dregið var um Renault 19 GTS í beinni útsendingu á Bylgjunni klukkan þrjú á Þorláksmessudag. „Þegar Pétur Steinn hafði dregið út nafn vinningshafans og sagði að símanúmerið byrj- aði á 6 jókst hjartslátturinn stórlega,“ segir Jóhann. „Síðan heyrðist Pétur Steinn gera tvær tilraunir til að ná símasambandi við hinn heppna — en það var á tali. Þá töldum við bílinn tapaðan. Það gat ekki verið um okkar símanúm- er að ræða. Við vorum ekki að nota okkar síma,“ heldur Jó- hann áfrarn frásögn sinni. „En svo heyrðum við Pétur Stein gera þriðju tilraunina og segja frá því að nú hringdi í númerinu. Og um leið hringdi hjá okkur. Það var eins og það kæmi ekki annað til greina en að það væri Pétur Steinn sem væri að hringja. Alda fór í sím- ann og það var spurt eftir mér. Það var yndisleg tilfmning að Pétur Steinn Guðmundsson aðstoðarframkvæmdastjóri SAM-útgáfunnar hefúr hér náð simasambandi við Jóhann í beinni útsendingu á Bylgjunni í þætti hjá Valdísi Gunnarsdóttur. Valdís fylgist með og sömuleiðis þeir Asgeir Eiriksson framkvæmdastjóri Bílaumboðsins og Jón Ragnarsson sem rekur Bílaryðvöm hf. í Skeifúnni og dró vinningsbílinn fagurlega skreyttan á vagni heim að dyrum hjá vinningshafanum. svara því símtali. Þó get ég ekki neitað því, að á leiðinni í símann tók ég að efast óþægi- lega um að ég myndi rétt nafri bílaumboðsins. Óþægilegur efi, sem sótti eðlilega að mér af því að ég vissi að ef ég svaraði spurningunni vitlaust yrði ég af milljón króna bifreið. Það mátti ekki gerast." En Jóhann svaraði spurning- unni rétt og örstuttu síðar var spegilgjáandi Reunault 19 GTS ekið heim að dyrum hjá hon- um að Markarflöt 35 í Garða- bæ. Jón Ragnarsson, eigandi Bílaryðvarnar hf. í Skeifúnni dró vinningsbifreiðina á hvít- um vagni og tilkynnti Jóhanni við afhendinguna að hann gæfl honum ókeypis ryðvörn fyrir bílinn. Og Jón gerði meira. Hann hafði samband við félaga sína í Hjólbarðahöllinni við Fellsmúla í Reykjavík og fékk þá til að gefa umgang af vetrar- hjólbörðum undir nýja bílinn. „Þá get ég hætt að leita mér að bíl,“ sagði Jóhann þegar hann hafði veitt bíllyklunum viðtöku úr hendi Þórarins Jóns Magnússonar ritstjóra og út- gefanda. „Ég er búinn að vera eins og grár köttur á bílasölum borgarinnar í meira en tvær vikur í leit að notuðum bíl. Ég er bíllaus, en konan á gamlan bíl, sem okkur langar til að selja núna til að eiga fyrir park- eti á gólf hússins sem við flutt- um í fyrir ári.“ Húsið byggði Jóhann mikið til eigin hendi, en hann er tré- smiður. „Við erum búin að vera áskrifendur að Húsum & híbýlum í nokkur ár og alltaf skoðað það vandlega til að leita hugmynda sem að gagni gætu komið við húsbygging- una. Það verður ekki annað sagt en að áskriftin hafi marg borgað sig að meira en einu leyti. Jóhann Hlöðversson, þrítugur trésmiður í Garðabæ, veitir hér viðtöku lyklunum að Renault 19 GTS úr hendi Þórarins Jóns Magnússonar rit- stjóra og útgefanda. Aldís kona Jóhanns og böm þeirra tvö fylgdust áhugasöm með — sem og reyndar fjöldi nágranna, sem greinilega höfðu verið að hlusta á Bylgjuna þegar tilkynnt var hvert billinn færi... 1, TBL. 1990 VIKAN 5

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.