Vikan


Vikan - 11.01.1990, Page 44

Vikan - 11.01.1990, Page 44
GINSENG til heilsubótar í mörg þúsund ár TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR Ginseng er margra meina bót segja sumir, aðrir eru ekki jafntil- búnir að fallast é égæti þessarar austrænu jurt- ar, en hvað er ginseng og hvernig virkar það? þegar skipulögð ræktun hófst á stofninum — íyrir um 800 árum — hafði villta stofninum nærri því verið útrýmt. Nú eru bestu skipulögðu ræktunarsvæði ginsengs í Kór- eu á þessu svæði, en suður- kóreska ríkiseinkasalan er þar með ræktunina i eigin hönd- Talið er að heilsubótaráhrif ginsengs hafl fyrst uppgötvast í Kóreu og eru fyrstu sagnirnar um þessi áhrif taldar um 5000 ára gamlar Heimaslóðir upp- runalegu ginsengjurtarinnar eru í Kóreu en jurtin er sveip- jurt af svokallaðri umbelliflóru og er fjarskyldur ættingi æti- hvannarinnar íslensku og fleiri lækningajurta. f fornum kín- verskum lyfjaskrám, sem fyrst voru gefnar út 49-33 f.Kr., er umfjöllun um jákvæða eigin- leika ginsengs þar sem frani kemur að það sé talið geta komið fölki í andlegt jafnvægi, dregið úr spennu, bætt ntinni, skerpt sjón og örvað hugsun. Fyrsta kínverska kennslubókin í læknisfræði kom út um 200 árum síðar og þar eru ummæl- in um ginseng nokkuð á sama veg og ráðlagt að gefa ginseng viö einkennum sem mörg hver eiga nijög vel við ntennina í nútímaþjóðfélagi; einkennum 42 VIKAN l.TBL. 1990 eins og streitu, þreytu, rýrn- andi afköstum, skorti á einbeit- ingu, öldrunareinkennum og kyndeyfö, auk þess sem gins- eng á að styrkja líkamann og hafa fýrirbyggjandi áhrif gagn- vart ýmsum sjúkdómum. Þyngdar sinnar virði í gulli Hróður þessarar jurtar barst að vonum víða og varð hún mjög vinsæl. Sérstaklega var keisarinn af Kína sólginn í hana, en hann hafði sölsað Kóreu undir sig. Keisarinn og nánustu hirðmenn hans not- uðu besta ginsengið fyrir sig en keisarinn hafði jafnframt slegið eign sinni á allt ginseng í Kóreu og bannaði alla versl- un með það — að viðlagðri dauðarefsingu - enda var það talið þyngdar sinnar virði í gulli. Jurtin óx villt í um 800— 1000 metra hæð yflr sjávar- máli á miðhálendi Kóreu og um til þess að tryggt sé að far- ið sé eftir ströngustu gæða- kröfum við hvaðeina er lýtur að ræktun ginsengrótarinnar — en ræktunarskilyrðin og vinnsluaðferðin ráða miklu um gæði ginsengs. Bestu ræktun- arsvæðin eru frátekin fyrir rautt ginseng en það lieftir í sér niest magn af virkum efnum. í lögum um ræktunina segir meðal annars aö jarðt eg- urinn, þar sem ginseng er ræktað, verði að fá að ntinnsta kosti tíu ára hvíld að uppskeru lokinni vegna þess að rótin dregur í sig svo mikið af nær- ingarefnum úr jarðveginum að hún skilur hann eftir gjörsam- lega næringarefnasnauðan. Notkun tilbúins áburðar eða annarra aukaeftia í jarðvegin- um er stranglega bönnuð á ræktunartíma og þegar ræturn- ar eru handtíndar þurfa þær að liafa náð tilskilinni lágmarks- Frh. á næstu opnu

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.