Vikan


Vikan - 11.01.1990, Síða 13

Vikan - 11.01.1990, Síða 13
5KILMAÐIR TVEGGJA BARNA MÓÐIR: „Vorum beitt andlegu ofbeldi" „Ég krafðist skilnaðar eftir flmmtán ára hjónaband. Sé mest eftir því að hafa ekki gert það fyrir löngu. Tilfinn- ingin eftir að skilnaðurinn var afstað- inn er fyrst og fremst feginleiki," sagði tveggja bama móðir í samtali við Vikuna. En hver var ástaeða skilnaðar- ins og hvemig gekk hann fyrir sig í framkvæmd? „Ástæðan var fyrst og fremst sú að hann beitti mig og börnin andlegu ofbeldi. Við þurftum að sitja og standa eins og honum þóknaðist. Hann drakk að vísu töluvert en það var ekki aðalástæðan og hann lagði aldrei hendur á okkur, hvorki drukkinn eða ódrukkinn. En hvorki ég né börnin átt- um sjálfstætt líf ef svo má segja. Hann réð öllu. Ég var búin að missa allt sjálfstraust og fannst að það væri ég sem væri ómögu- leg og gæti hvorki eitt né neitt. Eftir að ég herti mig upp í að krefjast skilnaðar gengu málin fljótt og vel fyrir sig og hann sam- þykkti skilnaðinn." - Hvemig hefur gengið að vera einstæð með tvö böm? „Það hefúr gengið vef en að vísu með mikilli vinnu. Ég henti krítarkortinu um leið og skilnaðurinn var genginn í gegn og ákvað að lifa á þeim tekjum sem ég aflaði og þeim bótum sem ég fæ úr Tryggingun- um. Maðurinn hefur ekki staðið við sínar skuldbindingar hvað varðar greiðslu á líf- eyri. En ég kemst af án þess. Það sem heimilishaldi, kaupa föt á drenginn, hvað ætti að vera í matinn og hvaða reikninga ætti að greiða um næstu mánaðamót. Út á við vorum við þessu „typisku" hjón sem allt gekk í haginn. Sem það og gerði nema það vantaði ástina. Eftir á finnst mér eins og við höfum verið sameigendur í ein- hverju fyrirtæki. Nú, svo skildum við að borði og sæng eins og lög gera ráð fyrir og eins og ég sagði var allt í sátt og samlyndi þótt viss söknuður fylgdi. Við fengum öll þau vott- orð sem til þurfti, meðal annars vottorð frá presti um árangurslausa tilraun til sátta. En þegar til lögskilnaðar kom einu ári seinna þótti mér einkennilegt að við þurft- um að ganga í gegnum allt kerfið aftur, fá ný vottorð frá sömu aðilum og ég verð að segja eins og er að mér þótti þetta á vissan hátt niðurlægjandi. Af hverju geta ekki hjón, sem eru ásátt um að skilja í góðu, gengið ffá sínum málum í eitt skipti fyrir öll varðandi skilnaðinn?" 28 ÁRA GÖMUL KONA: ÞAÐ VANTAÐIEKKERT - NEMA ÁSTINA „Mín skilnaðarsaga er í raun ósköp fábrotin. Engir dramatískir atburðir áttu sér stað. Við vorum búin að vera gift í átta ár þegar við komumst bæði að raun um að við áttum ekkert sam- eiginlegt. Kannski áttum við aldrei að giftast. Þetta var svona skyndiást sem endaði í hjónabandi í fljótheitum, ef til vill vegna þess að það voru allir okkar vinir og skólafélagar að ganga í hjónaband,“ sagði 28 ára gömul kona. í hennar tilfelli var ekki um að ræða sársauka, deilur eða rifrildi um eignir eða annað. Gengið var ffá öllum formsatriðum varðandi umgengnisrétt gagnvart sjö ára gömlum syni og hann getur valsað á milli þeirra eins og honum sýnist og er ánægð- ur með að foreldrar hans eru hinir bestu kunningjar þótt þau búi ekki saman. En engin er rós án þyrna: ,Auðvitað voru mér það vonbrigði að þetta gekk ekki upp hjá okkur. Og líka vonbrigði hjá honum. En við vorum í nokkur ár búin að vera saman nær ein- göngu sem félagar en ekki hjón. Kynlífið var nánast eitthvað sem átti sér stað tvisv- ar í mánuði eða svo. Samræður okkar sner- ust nær eingöngu um það sem við kom „Astæðan var fyrst og fremst sú að hann beitti mig og bömin andlegu ofbeldi. Við þurftum að sitja og standa eins og honum þóknaðist.“ (Sviösett mynd.) kannski gleður mig mest er að sjá breyt- inguna á börnunum. Þau hafa öðlast lífs- gleði og sjálfstraust eins og ég. Þrátt fyrir að mitt hjónaband hafi farið svona veit ég um mörg hjónabönd sem ganga vel og hamingjan situr í fýrirrúmi og því hef ég ekki misst trúna á hjónabandið sem slíkt.“ 12 VIKAN l.TBL. 1990 5KILMAÐIR YFIR10.000 BORN HJA EINSTÆÐUM FORELDRUM - OG ÞÁ í LANGFLESTUM TILFELLUM HJÁ MÓÐURINNI Eins og fram hefur komið í þessari umfjöllun um hjónaskilnaði eru það ekki bara tveir einstaklingar sem slíta sínu samlífi eða hjónabandi. í mjög mörgum ef ekki flestum tilfellum eru böm í dæminu. Samkvæmt upplýsingum Hagstofu ís- lands voru þann 1. desember 1989 sam- tals 10.300 börn hjá einstæðum foreldr- um. Þetta segir hins vegar alls ekki hversu mörg þessara barna eru skilnaðarbörn. Eins og allir vita geta börn orðið til án þess að til sambúðar eða hjónabands sé stofnað. Þó má ætla að stór hluti þessara barna sé tengdur við hjónaskilnað eða sambúðarslit. í samantekt Vikunnar um hjónaskilnaði er ekki nema að litlu leyti komið inn á hlutskipti barnanna. En það er hætt við að margir hafi ekki gert sér grein fyrir að um þessar mundir eru 10.300 börn á íslandi sem alast upp hjá öðru for- eldra sinna og þá í langflestum tilfellum hjá móðurinni. LÖGREGLAN: FÁ TILFELLI „Það er í mjög fáum tilfellum sem við erum kallaðir út vegna deilna milli fráskil- inna hjóna. Þó kemur það fyrir og þá yfir- leitt í þeim tilvikum að ffáskilinn eigin- maður kemur drukkinn að heimili fyrrver- andi konu sinnar og vill hefja samræður um eitthvað sem betur hefði mátt fara varðandi skilnaðinn. Stundum er um að ræða eftirþanka varðandi eignaskipti eða forræði yfir börnum. En þessi tilfelli eru fá,“ sagði einn af yfirmönnum lögreglunn- ar í samtali við Vikuna þegar spurt var hvort lögreglan þyrfti oft að hafa afskipti af hjónum er hefðu skilið í vonsku — eða góðu. HEFUR SKILNUÐUM EKKIFJÖLGAÐ? — Það eru allir að skilja. Þetta er al- geng setning sem heyrist nú. En er það svo? Fer hjónaskilnuðum í raun fjölgandi? Ef maðurinn á götunni er spurður svarar hann í 99% tilvika ját- andi. Ástæðan er ef til vill sú að hjóna- skilnaðir eru meira til umfjöllunar um þessar mundir en áður. Það eru ekki svo mörg ár frá því hjónaskilnað- ur var nokkuð sem var hvíslað um manna á meðal en óviðeigandi þótti að fjalla um svo viðkvæmt mál á opin- berum vettvangi. Hagstofa íslands gaf Víkunni þær upp- lýsingar að á árinu 1988 hefðu átt sér stað 459 lögskilnaðir. Það sem er mjög athygli vert varðandi þá tölu er að þriðjungur af þessum lögskilnuðum fór ffam án þess að hjón hefðu skilið að borði og sæng áður. Um ástæðu þessa skal ekki fjölyrt hér en þó rétt að glugga aðeins í lögin hvað þetta varðar. Helstu ástæður þess að hjón geti fengið lögskilnað án þess að hafa áður skilið að borði og sæng eru í mjög stuttu máli þessar: Hafi maki horfið að heiman í tvö ár get- ur sá sem eftir situr fengið tafarlausan lög- skilnað, jafnvel þótt þau hafi til dæmis haft símasamband á þessum tíma. Ef annað hjóna hverfur gjörsamlega og ekkert hefur til þess spurst í þrjú ár getur sá er eftir sit- ur fengið lögskilnað. Þá er tvíkvæni næg ástæða til lögskilnaðar. Síðan kemur það til að ef annað hjónanna játar á sig hjúskapar- brot getur hitt krafist lögskilnaðar sam- stundis. Ennfremur koma þarna við sögu misþyrmingar og hótanir um líflát, refsi- vist vegna glæpa og síðast geðveiki annars aðilans. Eftir því sem Vikan kemst næst mun í flestum þeim tilfellum þar sem lög- skilnaður er veittur samstundis vera um að ræða að annað hjóna játi á sig hjú- skaparbrot. Fyrir utan þá 459 lögskilnaði sem gengu í gegn árið 1988 var um að ræða 457 skiln- aði að borði og sæng. Upplýsingar eru ekki fyrir hendi enn sem komið er varðandi það í hve mörgum tilfellum það leiddi til lögskilnaðar. Árið 1968 fóru fram 210 lögskilnaðir hér á landi. Með tilliti til mannfjölgunar á þessum rúmum tuttugu árum verður að draga ,í efa að skilnuðum hafi fjölgað á þessum tíma. Þá er eingöngu átt við slit á hjónaböndum en ekki sambúð. l.TBL.1990 VIKAN 13

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.