Vikan


Vikan - 11.01.1990, Síða 41

Vikan - 11.01.1990, Síða 41
5MA5AC5A Silvia Seidel - „Anna“ Mörg ykkar dreymir um að verða leikari eða dansari. Þessi draumur rættist hjá Silviu Seidel sem þá var sautján ára og fékk aðalhlut- verkið í þáttunum um Önnu. Silvia býr í gömlu leiguhúsnæði í Harlach- ing hverfinu í Múnchen ásamt fjölskyldu sinni. Foreldrar hennar eru Wolfgang og Hannelore Seidel. Þau hafa stutt dóttur sína í list hennar og höfðu ekkert á móti því að hún hætti í skóla fimmtán ára til að geta snúið sér óskipt að dansinum. Núna er hún tvítug. Hún á afmæli 23. september og er því í stjörnu- merkinu mitt á milli meyju og vogar. Hún er á fúllu í að byggja sig upp sem dansara. Þrátt fyrir þessa ástríðu sína er hún bara venjuleg lífsglöð ung stúlka. Eftir að gerð þáttanna lauk fékk Silvia aðdá- endabréf í þúsunda tali, hundruð viðtala, mjög oft þátttöku í aliskyns sjónvarpssýning- um auk verðlaunanna sem áður var getið, brons Bravo-Ottoinn. Afit í einu var ballettskólastúlkan orðin þekkt persóna, sem fólk lagði ýmsar spurning- ar fyrir. Um þessar mundir fór Silvia að halda dagbók. Þar skrifaði hún um reynslu sína í ballettskóianum, við töku þáttanna og ýmis- iegt annað. Með samtölum við rithöfúndinn Marieluise Múller og með hjálp dagbókarinn- ar er orðin til bók með fjölda mynda, sem heitir„Silvia Seidel-Anna og ég“ og mun verða gefin út af Loewe forlaginu, í byrjun febrúar. „Frumdrög að dagbókinni gerði ég aðeins að gamni mínu,“ segir Silvia. „En mér finnst að aðdáendur mínir eigi það inni hjá mér að fá í þessari bók svör við ýmsum spurningum, sem þeir hafa spurt mig í bréfúm sínum, en ég ekki haft tíma til að svara. Það myndi gleðja mig mikið ef dagbókin mín veitti öðru ungu fólki kjark.“ Þrátt fýrir mikla vinnu við að læra handritið og æfa tökurnar fyrir þættina um Önnu og standa í fjóra mánuði bæði í París og Múnc- hen fyrir framan kvikmyndatökuvélarnar þurfti hún að æfa dansinn til að halda sér í formi. f París æfði hún með hóp sem saman stóð af fólki ffá öllum heimshornum. Þau dönsuðu mikið jassbaliett sem var mikil tilbreyting ffá þeim klassíska. Sifvia steffiir að því að ná langt í dansinum og gæti eflaust hugsað sér að leika í fleiri kvik- myndum. □ Frh. af bls. 37 stóð við hornið og beið. Eftir stundarkorn kom litli, hrörlegi sporvagninn skröltandi og stansaði við biðstöðina. Yst á einum bekknum sat hún. Hún var í nýrri dragt og ef nokkuð var hægt að segja þá var hún ennþá fallegri en sú sem hún hafði verið í áður. Á fótunum hafði hún skó með mjög háum, mjóum hælum, sem örugglega höfðu kostað að minnsta kosti fjörutíu dollara, og á hnjánum var fína leðurtaskan. — Sæl vertu, sagði ég og settist við hlið hennar. - Góðan daginn, sagði hún á þann hátt sem alltaf reitti mig til reiði. Fleiri orð fóru ekki á milli okkar. Nú var ég reiðubúin. Þegar sporvagninn rann niður að brekkunni, nálguðumst við hana ffá tveim hliðum. En ennþá var stundin ekki runnin upp. Við tókum beygj- una og héldum áfram niður aðra brekku og þegar sporvagninn hægði á sér stóð hún upp til að stíga niður. Hún hafði tösk- una undir vinstri handlegg og hélt fast í stöngina með þeirri hægri. Það var dálítið hvasst og ég varð að halda báðum höndum undir logann meðan ég kveikti t sígarett- unni. Stór vörubíll kom á móti okkur. Nú stóð ég líka upp og þóttist hrasa en þrýsti um leið sígarettuglóðinni á hægri hönd hennar. Hún hljóðaði upp en þá sparkaði ég af alefli í fjörutíu dollara skóna. Hún fálmaði út í loftið og datt niður á götuna. Það ískraði og hvein í hemlum en vörubíll- inn gat ekki varist að aka á hana og þeyta henni utan í gangstéttina. í nokkrar mínút- ur var allt í uppnámi. Um stund horfði ég á alla óreiðuna en svo kastaði ég sígarett- unni kæruleysislega í göturæsið og gekk burt. Nú var ég þó laus við hana. Þetta slys orsakaði meiri blaðaskrif en nokkru sinni fyrr um það hve hættulegir þessir sporvagngarmar væru og ég ákvað að vera kyrr í borginni þrátt fyrir allt. Ég tók allt dótið mitt aftur upp úr töskunum en ritvélina læsti ég kyrfllega inni í skáp. Skáidskapargáfan varð að bíða þangað til ég væri búin að fá nóg af þeim verkefhum, sem nú hrúguðust upp í kringum mig. Ég hló við sjálfri mér í baðherbergisspeglin- um og nú var ég ákveðin í því að leggja fyrir svo mikla peninga að ég gæti tekið rriér ársfrí og farið til Mexíkó. Lánið blasti líka við mér ffá þessari stundu ... Ég breytti hárgreiðslunni og fór að grenna mig og um leið fékk ég meira sjálfs- traust. Til þess að spara ennþá meiri pen- inga keypti ég litla saumavél og saumaði fötin mín sjálf og ég var betur klædd en nokkru sinni fyrr. Ég keypti líka rándýra krókódílaskinnskó og skjalatösku úr leðri, sem ég var búin að mæna á í búðarglugg- anum í margar vikur. Eftir því sem ég varð öruggari því betri verkefrii fékk ég og Marco var stórlega glaður yfir verkum mínum. Loksins var ég búin að ná því sem ég ætlaði. Ég var laglegri, betur klædd en áður og frillkomlega róleg í allri fram- komu. Svo var það einn dag, fyrir nokkrum vikum, að þessi óþolandi stelpa settist við hliðina á mér í sporvagninum og mændi á mig mjóum augum. — En hvað þér eruð í fallegri dragt, sagði hún. - Takk fyrir, sagði ég og mér fannst ég vera að mala eins og köttur. Það leit út fyrir að hún væri líka á leið til teiknistof- unnar. Hún var í ósmekklegum kjól og skjalataskan hennar var úr ljótu gerviefni. Ég heyrði að hún kom á eftir mér upp stig- ann og að hún hrasaði í öðru hverju þrepi. Hún þyrfti að megra sig um nokkur kíló. Hvers vegna skyldu ungar stúlkur vera svona kærulausar um vaxtarlagið? Hún fylgdi líka á eftir mér inn í biðstofuna. Auðvitað gekk ég beint inn til Marcos en hún settist þarna frammi, ósköp óásjálegt telpukorn og bjálfaleg í ffamkomu. Ég er viss um' að hún nagaði á sér neglurnar og keðjureykti. Skrifborð Marcos var fúllt af teikningum eins og venjulega. Ég fleygði mínum teikn- ingum í hrúguna. - Guði sé lof fyrir þig, elskan, sagði Marco. — Stundvís eins og venjulega. Viltu borða með mér hádegisverð? Ég sendi honum fingurkoss, leit yfir öxl- ina og sigldi út um dyrnar. — Auðvitað, sagði ég, - sama stað og tíma! í biðstofunni beið stúlkutetrið illa greitt og illa snyrt að öllu leyti. Hún horfði eitt- hvað svo einkennilega á mig. Mér fannst það svo óþægilegt að ég fékk einhvern skjálfta í mig. Vesalingurinn. Nú sé ég hana í sporvagninum á hverjum morgni og allt- af skal hún setjast við hliðina á mér. Hún keðjureykir og lítur út fyrir að vera ákaf- lega taugaveikluð. Ég væri ekkert hissa þótt mér væri sagt að hún drykki líka. Það er mikil samkeppni á öllum sviðum nú til dags og það væri ekkert undarlegt að hún öfúndaði mig. Stundum fmnst mér sem ég hafi fengið eitthvert sjötta skilningarvit, að minnsta kosti næ ég því alltaf að komast inn á teiknistofuna á undan henni. Nú er ekki svo langt þangað til ég kemst til Mexíkó. Ég get varla beðið eftir síðasta degi mínum í borginni, síðustu máltíðinni með Marco, síðasta verkefriinu og síðustu sporvagnsferðinni. □ l.TBL. 1990 VIKAN 39

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.