Vikan


Vikan - 11.01.1990, Síða 46

Vikan - 11.01.1990, Síða 46
DRAUMUR Afa þínum hefur þótt hann þurfa að minna þig á þetta Kæri draumráðandi! Fyrir u.þ.b. viku dreymdi mig draum sem ég tel að hafl einhverja merkingu. Áður en að draumnum kemur verð ég að láta nokkur atriði koma í ljós. Þetta er það sem gerðist í raun og veru. Ég átti afa og ömmu í Hafn- arfirði en nú eru þau bæði dáin. Afi dó á undan ömmu eða árið 1983 en amma dó 1985. Áður en mig dreymdi drauminn hafði ég ekki nýlega hugsað um þau þannig að þau voru mér ekki ofarlega í huga. Hér kemur draumurinn: Ég kom hjólandi að húsi afa og ömmu og eiginlega ætlaði ég ekki í heimsókn en þar sem ég sá afa í glugganum fór ég inn. Mér fannst eins og hann væri einn eftir í kotinu og amma væri dáin. Þegar ég kem inn segir hann við mig: „Ég hef svolítið handa þér sem ég ætla að biðja þig um að máta.“ Hann fann hlutinn og reyndist það vera gömul skyrta af ömmu (notuð en ekki illa farin). Mér fannst eins og hann væri að reyna að selja okkur ættingjunum fötin af ömmu. Skyrtan, sem afi kom með, var bleik- og hvítköflótt með brúnum teinum eða strikum á milli. Ég tók mest eftir bleika litnum. Ég man ekki alveg hvort ég mátaði hana eða ekki en ég tók eftir því að skyrtan var af grannri manneskju (amma var frekar feit í lifanda Iífi). Næst segir afi við mig: „Ég skal selja þér hana á 1500 krónur." Mér fannst þetta of hátt verð þar sem mér líkaði ekki blússan allt of vel. Ég sagði því við afa: „Ég skal kaupa hana af þér á 600 krónur.“ Þá finnst mér eins og tengdadóttir afa sé stödd þarna líka og hún segir: „Hvað heldur þú að þú kaupir ekki skyrtuna af afa þínum á 1500 krónur." Stuttu eftir þetta vaknaði ég. Draumurinn er mér enn mjög skýr og greinilegur. En það er margt sem mér finnst skrítið í honum og ég held að hafi ein- hverja merkingu. Með von um draumráðn- ingu. Stefanía Sæmundsdóttir. Það er augljóst að afi þinn hafði samband við þig meðan þú svafst. Lögmálin eru önnur á andlega sviðinu þangað sem við förum á nóttunni og verð- um við því að reyna að ráða gátumar sem draumamir leggja fyrir okkur. Pú minnist því miður ekki á hvort þetta séu foður- eða móðurforeldrar þínir. Ef þetta er móðuramma tril ég benda á að móðurömmur taka gjam- an á sig hlutverk vemdara dótturdóttur, sérstaklega þeirr- ar elstu. Hvað sem því líður átt þú að þiggja frá ömmu þinni eitt- hvað sem þérþykirþú þwfa að fóma of miklu fyrir. Honum afa þmum hefur þótt hann þutfa að minna þig á þetta. Par sem blússan var bleik og hvít að mestu og þú tókst mest eftir bleika litnum ráðlegg ég þér að biðja fyrir hetmi ömtnu þinni og senda henni. hlýjar kveðjur á hverju kvöldi áður en þú ferð að sofa. Pað hjálþar því sem koma skal að verða. Tengsl milli kvenna innan fjölskyldu KÆRI DRAUMRÁÐANDI Fyrir þremur árum, þegar ég gekk með eldri dóttur mína, dreymdi móður mína að hún hefði alið sveinbarn. Kom ég þá til hennar og sagði henni að hún skyldi láta skíra drenginn Egil. RÁÐNING Hér er gott dœmi um tengsl milli kvenna innan fjölskyldu. Pað er algengt og eðlilegt að móður dreymi að hún hafi fcett bam sem dóttir hennar gengur með í vökulífinu. Þar sem móðir þín veit ekki kyn bamsins, sem þú getigur með, hefur hún það son og lengir það þér með því að í draumn- um vilt þú ákveða nafnið á haminu. GINSENG Frh. af bls. 41 stærð og vera að minnsta kosti sex ára gamlar. Rautt eðalginseng er aðeins unnið úr bestu rótunum og lögin segja til uni hvernig vinnslu á rótinni skuli háttað. Þá er beitt háþróaðri aðferð sem tryggir varðveislu virku efnanna en þau ganga undir samheitinu ginsengósíðar. í vinnslunni er rótin meðal ann- ars gufúhituð við 80 gráður á Celsíus og við það breytist lit- ur rótarinnar og verður rauð- ur. Eins og fýrr segir hafa rækt- unarsvæðin einnig úrslitaáhrif hvað varðar gæði ginsengs en mismunandi jarðvegur, veðr- átta og vinnsluaðferðir valda gæðamun á ginsengafurðum. Utan Kóreu er ginseng ræktað í Kína, Japan, Sovétríkjunum, Bandaríkjunum og Kanada. Ginseng vinsælast í Húnavatnssýslu Eins og fýrr segir þá segja fornar heimildir að ginseng hafi bætandi áhrif á ýmsa þá kvilla sem þjá menn í amstri dagsins, en hvað segja nútíma- heimildir? Reyndar er stöðugt verið að rannsaka virkni gins- engs og eitthvað nýtt að koma í ljós, en í stuttu máli má segja að nútímarannsóknir styðji það sem ffam kemur í þeim fornu um áhrif ginsengs auk þess sem ýmis áhrif á aðra lík- amsstarfsemi en þar er nefnd hafa komið ffam. Eitt af því sem gamlar og nýjar heimildir eru sammála um er að ginseng hafi góð áhrif á kynkirtlastarf- semina en samkvæmt heimild- um ffá umboðsmanni rauða Kóreu-ginsengsins á íslandi, Sigurði Garðarssyni, selst gins- engið mjög vel en þó á fáum stöðum betur en í Húnavatns- sýslu og það gæti verið for- vitnilegt að vita hvort ginseng- ið hefur haft þau áhrif þar í sveit að barneignum hafi fjölg- að að undanförnu eða sé að fjölga ... Húnvetningar, við bíðum spennt eftir að heyra frá ykkur. (Heimildir: Ritröð Ginsengríkiseinkasölu lýðveldisins Kóreu. „Ginseng: Næringarrík rót eða náttúrulyf?" Grein e. Indriða Karlsson. „Ginsengjurtin: Upplýsingar og gagnáróður“ Grein e. Geir V. Vilhjálms- son.) Tafla: Hér er tafla sem sýnir mæling- ar í millígrömmum á virkefn- um í hverju grammi af gins- engtegundunum: Síberískt ginseng hylki.... 1,7 Ekta Panax ginseng G1000 ... 24.2 Kóreskt Panax ginseng 1000 . 19,2 Action rússnesk rót......... 14,2 Tai-ginseng................. 13,9 Gericomplex ................ 20,4 Ginsana G115 ................ 5,8 Gerimax..................... 37,6 Panax 600 ginseng............ 6,0 Kóreskt ginseng hylki....... 28,9 Hreint sterkt ginseng ...... 20,3 Rautt kóreskt ginseng...... 70,1 Rautt kóreskt ginseng extrakt. 167,0 STÓRBORGIR EVRÓPU SVÖR VIÐ SPURNINGUM Á BLAÐSÍÐU 40. l:a. 2:C. 3:a. 7:a. 8:a. 9:b. 13:a. I4:b. 15:C. 19:b. 20:C. Yfir 900 stig: Þekking þín á evrópskum stórborgum er að- dáunarverð. Þú kennir ef til vill landafærði? 800-890 stig: Þekking þín er töluvert meiri en í meðallagi. Þú hefur greinilega mikinn áhuga á sögu og landaffæði — eða hefúr ferðast óvenju víða. 700-790 stig: Yfir meðallagi. Ber vitni um góða almenna þekkingu. 600-690 stig: Góður árangur. Þú ert nokkuð vel að þér í stórborgum Evrópu. 500-590 stig: Aðeins undir meðallagi. Landaffæði og saga eru líklega ekki þín aðaláhuga- mál en eitthvað veistu þó. 4:b. 5:b. 6:b. 10:a. 11:C. 12:b. l6:b. 17:a. 18:a. 400-490 Stig: Ef þú ætlar í Evr- ópureisu máttu alls ekki gleyma kortum og ferðahand- bókum því borgirnar í Evrópu virðast vefjast nokkuð fýrir þér. 300-390 stig: í hreinskilni sagt var þetta ekki góð fram- mistaða — þú ert ekki sér- ffæðingur í borgum í Evrópu. 200-290 stig: Nú elti óheppn- in þig — eða veistu ef til vill næsta lítið um þetta efni? Ef þú ætlar til Evrópu, væri senni- lega góð hugmynd að afla sér upplýsinga um hvað borgirnar þar heita og hvar þær eru. Undir 200 stigum: Ótrúlegt! Þetta ætti ekki að vera hægt en þér hefúr tekist það. 44 VIKAN l.TBL. 1990

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.