Vikan


Vikan - 11.01.1990, Side 8

Vikan - 11.01.1990, Side 8
5KILMAÐIR SIGRÚN JÚLÍUSDÓHIR FÉLAGSRÁÐGJAFI: „Vanfar heilsteypta fjelskyldumálastefnu" Sigrún Júlíusdóttir félagsréðgjafi hefur sérhæft sig í hjónaráðgjöf og fjölskyldumeðferð og rekur ráðgjafarþjónustuna Tengsl ásamt öðrum félags- ráðgjafa, Nönnu K. Sigurðardóttur. Blaðamaður Vikunnar fór þess á leit við Sigrúnu að hún svar- aði nokkrum spurningum varðandi hjónaband og skilnaði og varð hún við þeirri bón þar sem hún sagði þörf fyrir þessa umræðu. Leitar fólk til félagsráðgjafa með vandamál sín áður en það er komið í þrot eða þegar of seint er orðið að bjarga hjónabandinu? „Það er mjög misjafnt hvenær fólk leitar til okkar. Því miður leitar það oft til okkar of seint en sem betur fer stundum áður en það er farið að huga að skilnaði og ég myndi segja í auknum mæli. Ég held að það sé vegna aukinnar vitundar fólks um að hægt er að vinna úr erfiðleikum og koma í veg fyrir óheillaþróun." Hver er algengasta orsökin fyrir því að illa gengur í hjónabandi? „Það geta auðvitað legið margar ástæður að baki og erfitt að alhæfa um það en oft ríkir mikið sambandsleysi milli hjóna. Það þarf á hjálp að halda til að tala saman og ná betra tilfinningasambandi. Svo er fólk oft að glíma við drauga úr fortíðinni, hluti sem það er ekki búið að gera upp — úr uppeldi eða fyrra hjónabandi. Ytri álagsþættir hafa líka mikið að segja þegar við tölum um gott samband milli hjóna. Hinn íslenski veruleiki er þannig að fólk gerir miklar kröfur um efnisleg gæði. Það þarf að eignast sitt eigið húsnæði, a.m.k. eins og húsnæðismálastefna hér á landi hefur verið fram til þessa. Ótæpileg vinna gerir það að verkum að fólk hefur lítinn tíma til að vera saman. Ungar fjöl- skyldur eru undir gífurlegu álagi og þá skiptir miklu máli að sambandið sé sterkt til að það þoli þetta mikla álag. Sem betur fer gerist það oft að sambandið styrkist þegar illa gengur en oft fer það líka úr skorðum. Annar ytri þáttur, sem skiptir gífurlega miklu máli, eru skólamálin. Þau eru ekki síður í algjörum ólestri að mínu mati. Margir foreldrar vilja búa börnum sínum gott heimili og sinna efhislegum þörfúm þeirra og til þess þarf fólk líka að vinna mikið, en skólakerfið kemur engan veginn til móts við það. Ég tel að við höf- um ekki bitið úr nálinni með þau mál, þ.e. afleiðingar þessa í framtíðinni." Þetta gengur í bylgjum Skilnaðartölur hafa farið síhækk- andi til þessa dags. Er hjónabandið að verða úrelt fyrirbæri? Skilnaðartölur hafa aðeins lækkað að undanförnu en við höfum ekki tölur yfir sambúðarslit. Ég tel að fjölskyldan sé frekar að styrkj- ast heldur en að hún sé í hættu. Það væri gott ef fólk gerði meira að því að leita sér ffæðslu og hjálpar en það gerir nú. Það er heldur ekki um svo auðugan garð að gresja í þeim efnum. Auk heilsugæslu- stöðvanna eru aðeins geðdeildir og félags- málastofnanir en þangað leitar fólk frekar ef það er veikt eða þegar fokið er í flest skjól. Fólk er líka viðkvæmt. Það vill vernda persónuhelgi sína og leitar því síð- ur á þessa staði. Svo er það einkageirinn en það eru bara ekki svo margir sem hafa þá sérþekkingu sem til þarf og geta boðið upp á þessa þjónustu. Ekki hafa heldur all- ir efni á að notfæra sér hana. Það vantar að mínu mati alla heilsteypta fjölskyldumálastefnu hjá okkur. Það þarf að starffækja almenna fjölskylduráðgjöf á vegum hins opinbera, þar sem veitt er meðferð, ráðgjöf og ekki síst ffæðsla. Það er slæmt að hún sé rekin af einkaaðilum. Hér er ég t.d. að tala um námskeið fyrir stjúpforeldra, uppeldis- og foreldra- fræðslu, skilnaðar- og hjónabandsffæðslu. Það þarf að gera miklu meira að því að fyrirbyggja. Þá á ég við fjölskylduffæðslu íýrst og fremst. Henni er stórkostlega ábótavant hjá okkur og henni er lítið sem ekkert sinnt í skólakerfinu. Það er reyndar háð viðhorfi og hæfni kennarans hverju sinni." „Börn alttof oft bítbein foreldra" „Hjón, sem vilja skilja, geta alltaf búist við að ná einhverjum árangri ef þau leita skilnaðarráðgjafar. Þó svo að fólk hætti ekki alltaf við að skilja er hægt að hjálpa því að leysa úr sínum málum og það gerir þeim kleiff að þekkjast og vera foreldrar áfram, svo ég tali ekki um að þau verða betur búin undir annað hjónaband. Fólk, sem á börn, þarf að hugsa um að geta unn- ið saman eftir skilnaðinn. Börnin gleymast alltof oft. Þau fara líka í gegnum sína skilnaðarkreppu. Það er samt ekki skilnaðurinn sem skiptir mestu máli fyrir barnið heldur hvernig að honum er staðið. Þó svo að börnin séu ung þegar skilnaður á sér stað finna þau hvað er að gerast. Þau lenda of oft í því að vera bit- bein foreldranna. Og þarna kemur skilnað- arráðgjöfin t.d. inn í. Hún miðar m.a. að því að hjálpa fólki að semja í stað þess að fara í heitt eða kalt stríð, t.d. með því að deila um forræði barnanna. Það er forsjár- deilan sem er oft hvað erfiðust og fer verst með fólk.“ „Of sterkar væntingar í hjónabandi" „Hjónaband reynir mikið á samskipta- hæfni fólks. Það þarf sífellt að vera að endurskoða. Nú giftir fólk sig töluvert seinna en áður og ég tel að því lengur sem fólk er búið að þroska sig verði hjóna- bandið síður það sem á að bæta allt upp. Þó er það nú svo að fólk fer oft í hjóna- band með of miklar væntinngar. Hjóna- bandið á að uppfylla dýpstu tilfinninga- legar þarfir og vonbrigðin verða auðvitað meiri ef það bregst. Við verðum líka að athuga að hjónabandið hefur breyst gífúr- lega á stuttum tíma. Hér áður var miklu fleira sem batt fólk saman í hjónabandi. Þar má nefna ýmsar ytri aðstæður, t.d. landfræðilegar. Fólk vann að sameigin- legum verkefnum sem búskapurinn var og það átti fleiri börn. Fólk átti ekki eins mikið val enda voru skilnaðir þá ekki eins tíðir. Nú hefur þessum sameiginlegu verk- efnum fækkað og nánast eingöngu tilfinn- ingar sem binda fólk saman. Fólk áttar sig oft ekki á því hvað samstaða og samvinna í hjónabandi krefst mikils en margt bendir til að jöfhuður fari vaxandi í hjónabandi þó það gangi hægt. Þar hef ég í huga aukna menntun og umsvif kvenna og breytt við- horf karla til uppeldis, tilfinninga og fjöl- skyldumála. Það breytir miklu,“ sagði Sigrún að lokum. □ 8 VIKAN 1.TBL. 1990

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.