Vikan


Vikan - 11.01.1990, Page 15

Vikan - 11.01.1990, Page 15
5KILNAÐIR HVAÐ SEGIR H/íSTARÉTTARLÖGMAÐURINN? MJÖG SKÝR LAGAÁKVÆÐI Yflrleitt er það svo að hjón, sem eru að skilja, leita aðstoðar lögCræðings til að ganga frá formsatriðum. Vikan hafði tal af hæstaréttarlögmanni og spurði hvemig þetta gengi fyrir sig á skrifstofu þeirri er hann rekur. „Málin eru mörg og þau eru hvert öðru ólík hvað viðkemur þeim persónum sem eiga í hlut í hverju tilviki. Hins vegar er það svo að það eru mjög skýr lagaákvæði varðandi skilnað. Um er að ræða búskipti, forræði barna, lífeyri og meðlagsgreiðslur. Ef ekki er um að ræða kaupmála skipta hjónin, sem eru að skilja, eignum sínum að jöfnu. Ef við tökum konuna sem dæmi þá á hún rétt á helmingi af nettóeign. í mörgum tilfellum kemur annað hjón- anna fyrst og spyrst fyrir um lagalegan rétt varðandi búskipti. Ég greini frá því sem lögin kveða á um og síðan koma þau bæði og ganga frá sínum málum. Án þess að fara út í málalengingar þá er það svo að sam- kvæmt lögum eru eignir hjóna hjúskapar- eign og ef hjúskap er slitið skiptast þessar eignir til helminga. Ég vil fullyrða að í 90% þeirra tilvika sem gengið hefur verið frá skilnaði á minni skrifstofú hefur náðst fúllt samkomulag beggja aðila. Ég svara því hiklaust neitandi að hjón, sem eru að skilja og búin að ákveða það, þurfi sinn hvorn lögmanninn. Það er að- eins aukakostnaður og tímaeyðsla. Þegar komið er til lögmannsins liggur yfirleitt ákvörðun fyrir og hann fer eingöngu eftir því sem lögin segja, tekur ekki afstöðu með eða móti konu eða manni. Þetta er eingöngu fagvinna lögfræðinga. Þótt deilt sé um stofúskápinn eða hnífaparasettið í upphafl, ef svo ber undir, þá er það ekkert sem ekki er hægt að ná samkomulagi um í rólegu spjalli. - Kemur aldrei til þess að hjón leita sátta hjá þér? „Vissulega kemur það fyrir að ég verð að bregða mér í hlutverk félagsráðgjafa. En áður en kemur að mér á fólk að vera búið að fara hina hefðbundnu leið og leita sátta hjá presti. Því miður verður að segjast eins og er að sumir prestar láta sér nægja að gefa út vottorð þess efhis að sáttaum- leitanir hafi reynst árangurslausar án þess að hafa gert nokkuð til að sannreyna hvort hægt er að ná sáttum. f slíkum tilvikum verður lögmaðurinn stundum að taka að sér hlutverk prestsins. Það hefúr komið fyrir að hjón hafl náð saman aftur hér við skrifborðið hjá mér, sem betur fer.“ w Prestur í Reykjavík: FLYTIÐ YKKUR HÆGT „Slit á hjónabandi er skipbrot. Stund- um er nauðsynlegt fyrir hjón að slíta hjúskap. í öðrum tilvikum er um að ræða stundarvandræði sem leiða til skilnaðar. En ef til skilnaðar kemur er mikilvægast að hjónin skilji sátt, ekki síst þegar böm em með í dæminu. Hins vegar verður að segjast eins og er að í jafnfjölmennri sókn eins og ég hef og flestir prestar í Reykjavík gefst því miður Sem betur fer er það svo að fólk, sem hef- ur lent í skilnaði, hittir annan lífsförunaut og þau ganga í hjónaband. En ef þau eiga bæði börn frá fyrra hjónabandi, eignast síðan barn eða börn saman, hvað gerist ef annað fellur frá? Koma þá ekki lögerfingj- ar, það er að segja börnin frá fyrri hjóna- böndum, og krefjast þess arfshluta sem þeim ber lögum samkvæmt? Dæmi eru um að eftirlifandi maki í tilvikum sem þessum hafi setið eftir sem öreigi. Það hlýtur að vera til einhver leið til að koma í veg fyrir að andlát maka bitni bæði á eftirlifandi afltof lítill tími til samræðna við fólk sem er í skilnaðarhugleiðingum. Staðreyndin er sú að allur sannleikur er sjaldnast sagð- ur í einu samtali. Frestur á skilnaði; tími til að leita að ástæðum getur bjargað mörg- um hjónaböndum þar sem hjón elska hvort annað í raun en ráða ekki við utan- aðkomandi áhrif sem í fljótræði geta splundrað annars ágætu hjónabandi. Mitt ráð er: Flýtið ykkur hægt í skilnaðarmál- um.“ maka og börnum frá fyrra hjónabandi. „Það er langeðlilegast að í slíkum tilfell- um kaupi hjón líftryggingu sem gangi til eftirlifandi maka. Þar með er tryggt að makinn standi ekki á nærskyrtunni eftir að lögbundinn arfur til barna hefúr verið greiddur út. Iðgjöld af slíkri tryggingu eru í raun smáræði á ári en geta komið í veg fyrir málaferli, vinslit og leiðindi þegar maki fellur frá.“ Þetta voru orð tryggingafræðings sem Vikan leitaði til gagnvart atriði sem alltof fáir hugsa um fyrr en í óefni er komið. Tryggingafrœðingur: KAUPIÐ LÍFTRYGGINGU 14 VIKAN 1. TBL. 1990 EINS KONAR ORKU SKORTUR Hvað áttu við með að þú hafir verið undir svo miklu álagi í vinnunni? Ertu búinn að gleyma að þú ert gigóló? líka! Fannst þér jörðin bifast? Halli, rúmið bifaðist ekki einu sinni.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.