Vikan


Vikan - 11.01.1990, Qupperneq 39

Vikan - 11.01.1990, Qupperneq 39
5MÁ5AC5A áðan, ég held ég þyrði að bölva mér upp á að hún hefur einhvern sagnaranda. Þetta er í annað sinn sem hún kemur með ná- kvæmlega það efhi sem við erum að sækj- ast eftir. Marco virtist hálfskömmustulegur yfir því að geta ekki látið mig hafa það starf sem ég óskaði eftir en þannig gengur þetta svo ég sagði: — Þetta er allt í lagi, Marco, ég tek skartgripina. Þannig byrjaði martröðin, sem næstum var búin að ganga frá mér. Hún náði í óska- verkefrii mitt að teikna nýju tískuna fyrir vikublöðin. Hún rændi líka öðru verkefhi frá mér; að teikna auglýsingapésa fýrir nýja verslun, sem verslaði með kínverska skrautmuni, og var um það bil að hefja starfsemi sína. Og svo var það fleira og fleira. Smátt og smátt fór ég að efast um getu mína. Ég var ágætis auglýsingateiknari en ég hafði líka töluverða löngun til list- sköpunar, sem ég varð að fá útras fyrir. Þegar ég hafði tíma málaði ég, en það er dýrt að lifa, vera vel klædd og það kostaði líka heilmikið að kaupa efni til að vinna úr. í fimmtán ár hafði ég haft auglýsingateikn- un að atvinnu og seldi vinnu mína á frjáls- um markaði. Fyrst í stað fannst mér þetta bæði spennandi og skemmtilegt en svo fór glansinn að fara af því og þetta varð eins og hvert annað fast starf. Ég þurfti að ljúka verkefnum fyrir ákveðinn tíma, ég þurfti líka að eltast við geðvonda ffamkvæmda- stjóra, hlaupa eftir sporvögnum, sem ég stöðugt missti af, oft eyðilagði ég allt sem ég hafði gert, með því að hella niður teiknibleki í flaustrinu, — og svo bættist hún við. Að lokum kom að því eitt kvöldið að ég ákvað að gefa fjandann í þetta allt saman. Ég varð að viðurkenna að þessi stelpa hafði unnið kapphlaupið. En það var ekki þar með sagt að það væri úti um mig. Allt mitt líf hafði ég haft löngun til að skrifa. Ég hafði meira að segja einu sinni komist það langt að ég lauk við fýrsta kafla bókar. Og þegar ég nú stóð þarna við gluggann, sötr- aði viskíblönduna og svalaði mér með því að tuldra blótsyrði út yfir borgina, tók ég ákvörðun. Ég lét ekki þar við sitja, ég fór strax að taka saman föggur mínar. Daginn eftir borgaði ég skuldir mínar og fór svo til Marcos. Þegar ég sagði honum að mig hefði allt- af langað til að skrifa og nú væri komið að því að ég léti verða af því að reyna hvað ég gæti fékk hann allt að því æðiskast: — Nei, hrópaði hann. — Ekki þú líka! — Hvað meinarðu með því að segja líka? sagði ég og óttaðist nú hið versta. — Jú, keppinautur þinn, sem þú kallar svo, er líka farin að skrifa sögur. Ég galopnaði munninn, eins og asni, og hné niður í hægindastól. — Jahá, sagði Marco hæðnislega, — svo þú ætlar að fara að skrifa skáldsögur. Jæja, við höfum haft ágætis samvinnu, svo lengi sem það varði. Ég óska þér til hamingju, það veitir ekki af að biðja vel fyrir þér... Svo sneri hann alveg við blaðinu, varð fok- vondur og hvæsti: - Heyrðu, ég held þú sért orðin geggjuð. Skrifa! Ekki nema það þó! Á hverju ætlarðu að lifa? Mér kemur þetta auðvitað ekki við. En eitt get ég sagt þér. Hún svíkur okkur ekki. Hún vinnur allt sem við biðjum hana um og skrifar líka. Ef hún getur gert það ættir þú að geta skrifað í hjáverkum eins og hún. Hvers vegna geturðu það ekki? — Marco, sagði ég og nú gat ég ekki lengur kæft kjökrið. — Ég get hreinlega ekki haldið áffam. Ég er búin að fá nóg, skilurðu það, meira en nóg! Það er henni að kenna, norninni! Hún les hugsanir, hún nær í allar hugmyndir sem fæðast í mínum auma haus. Hún framkvæmir hugmyndir sem myndast í höfðinu á mér, gerir ffum- drætti og hraðar sér til þín með teikning- arnar áður en ég næ því að byrja á þeim. Hún tekur allar hugmyndir mínar, öll verkefhi mín, gerir þau miklu betur en ég get sjálf gert þau og... og ég held að ég sé að verða geggjuð! Marco, hún er hugles- ari, það varst þú sjálfur sem sagðir það. Hvernig á ég að berjast gegn þessu? Og nú fór ég að gráta fyrir alvöru. — Hamingjan hjálpi mér, hættu að gráta! Ég þoli ekki að sjá konur gráta. Ef þú hættir skal ég bjóða þér í hádegisverð. Næstu klukkutíma sötraði ég eina sjö eða átta kokkteila — fyrir hádegisverð. Ég man ekki til að við borðuðum nokkurn mat en við hesthúsuðum ein ósköp af vökva. Þessi þvali dagur og kvöld, því það var örugglega þó nokkuð rakt, endaði ekki fyrr en klukkan eitt um nóttina. Við kvöddumst, grátklökk, við dyrnar hjá mér og ég féll um sjálfa mig í svefnsófann þegar ég kom inn. Morgunhljóð borgarinnar vöktu mig næsta dag og aðra eins timburmenn hefur örugglega enginn haft, að minnsta kosti enginn sem hefur lifað það af. Eftir stund- arkorn gat ég þó dregist ffam úr og leit í spegil. Drottinn minn, þvílíkt útlit! En smám saman náði ég mér. Ég tók plasthettuna af ritvélinni, setti pappír í valsinn og byrjaði að skrifa upphafið að smásögu, sem hljóðaði þannig: — Ég sá hana aftur í dag ... Ég sat við allan daginn, n;fcrðist á kaffi og kökum með súkkulaðihjúp og reykti ein- hver ósköp af sígarettum. Þessi magnlausa reiði sem logaði innra með mér jókst eftir því sem ég skrifaði meira. Klukkan sex var sagan búin og mér fannst hún ágæt, þegar ég las hana yfir; söguþráður skýr og hæfi- legur biturleiki í frásögninni. Þetta var ein- mitt þess háttar smásaga sem vikublöðin sóttust eftir. Ég stakk handritinu í brúnt umslag, lokaði því og setti á það allt of mörg frímerki, svo hljóp ég niður stigann og æddi að næsta póstkassa. — Þarna, skömmin þín, reyndu bara að eyðileggja þetta... urraði ég við sjálfa mig. Lögregluþjónninn á horninu Ieit á mig hornauga. Reiðin þvarr, ég fann aðeins til þreytu og ákvað að fara snemma að sofa. Ég kom við í blaðaturni, keypti nokkur vikurit. Þegar ég kom upp í herbergið mitt bjó ég til súpu. Þegar ég hafði borðað hana teygði ég úr mér á svefnsófanum og fór að Iesa blöðin. Með þeirra hjálp var ég alltaf vön að komast inn í einhvern ævintýraheim þar sem allir höfðu það verra en ég. Ég las af kappi, þangað til ég kom að smásögu með yfirskriftinni Nemesis. Smásagan byrjaði á þessum orðum: - Ég sá hana aftur í dag... Meira þurfti ég ekki að lesa. Ég starði og starði, svo hentist ég upp af sófanum og fleygði blaðinu í gólfið. Sjóðandi vonska og bitur auðmýking flaug í gegnum mig og það komst ekkert annað að í þessari tilfinningaþvælu en ein hugsun - morð. Ég fór í kápu og flýtti mér á barinn sem næstur var. Þar tók ég upp- áhaldsbarþjóninn minn, Parnell, strax tali. — Sæll, Parnell. Skota og ís og vertu nú fljótur. Hafðu hann tvöfaldan. — Skal gert. Hvernig líður þér annars? - Prýðilega. Segðu mér eitt, hvað finnst þér um þetta með sporvagnana? Það eru uppi háværar raddir um að láta þá hverfa algerlega. En ég myndi sakna þeirra. — Ég líka. En fólk er orðið svo hrætt við þá. { gær datt einhver ferðamannsauli út úr einum þeirra. — Er það satt? Ég hef ekki lesið blöðin. En hvað um það, það er víst nóg af fólki í veröldinni. Allt of margt fólk. Ég hló með sjálffi mér, í fyrsta sinn í margar vikur. Heyrðu, Parnell, þú ert einn af bestu vin- um mínum, þú ert alltaf notalegur og legg- ur ekki í vana þinn að særa fólk. Hann hló glaðlega en hélt áfram að þurrka glösin. Við vorum ein í salnum. — Pamell, þú ert hygginn maður. Veistu það að stundum, þegar ég finn sárt til ein- manaleikans, hef ég það á tilfinningunni að það eigi fýrir mér að liggja að detta út úr sporvagni og verða undir vörubíl. Finnst þér þetta ekki kjánalegt. Þetta er vegna ár- ans háu hælanna, maður er svo óstöðugur á þeim. Kvenfólk klæðir sig líka svo heimskulega. Ég hef andstyggð á kven- fólki. Ég er sjálf kona en hef andstyggð á konum. Ég horfði þunglyndislega niður í glasið mitt. — Ég hef ekkert á móti konum, sagði Parnell og hló. - Þú ert eitthvað þunglynd núna. Viltu ekki aftur í glasið, ég býð? — Nei, takk, ég er bara þreytt. Ég hefði best af því að flýta mér heim í rúmið. Ég þarf að vinna á morgun. — Það var rétt, upp með höfuðið. Hann horfði hlæjandi á eftir mér þegar ég gekk út um dyrnar. Ég gekk hugsandi heim, rólegum skrefum. Það ætti ekki að vera svo erfitt að fá færi á henni. Hún fór alltaf með sama vagni og ég. Ég dró rúmfötin upp úr skúff- unni og eins og til að undirbúa frelsisstríð mitt sofnaði ég snemma. Ef ég ætlaði að ná góðum árangri var nauðsynlegt að vera út- hvíld og róleg. Þegar ég klæddi mig næsta morgun fór ég í lághæla skó og klæddi mig í þægilegt pils og peysu. Taugar mínar voru eins og hert stál og ég brann af hefndarþorsta. Ég Frh. á bls. 39 l.TBL.1990 VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.