Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 1
Við áramót velta
fimm blaðamenn
Morgunblaðsins fyrir
sér straumum og
stefnum á liðnu ári,
hver á sínu sviði,
og leitast við að
skoða hvert stefni
á nýja árinu.
MORGUNBLAÐIÐ 30. DESEMBER 2001
301. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Við áramót
ÞÚSUNDIR reiðra Argentínumanna
efndu til götumótmæla í höfuðborg-
inni Buenos Aires í gærmorgun
vegna efnahagsóreiðunnar í landinu
og kröfðust afsagnar embættis-
manna. Kveikt var í sporvögnum og
gengið í skrokk á lögreglumanni, síð-
ar var ráðist inn í þinghúsið, kveikt
þar í gluggatjöldum og húsgögn
skemmd. Óeirðalögregla, sem var á
verði við forsetahöllina, beitti tára-
gasi, gúmmíkúlum og háþrýstivatns-
byssum til að dreifa mannfjöldanum.
Múgurinn réðst einnig inn í banka í
grennd við miðborgina og McDon-
alds-skyndibitastað. Nýr forseti,
Adolfo Rodriguez Saa, tók við til
bráðabirgða fyrir rúmri viku en for-
setakosningar verða haldnar í mars.
Einn af helstu ráðgjöfum Saa, Carlos
Grosso, sagði af sér í gærmorgun eftir
að mótmælendur fóru að safnast sam-
an við forsetahöllina við Plaza del
Mayo í miðborginni. En mannfjöldinn
var ekki ánægður og vildi fleiri af-
sagnir, sagði ráðamenn ekki hafa skil-
ið hvers almenningur hefði verið að
krefjast þegar fyrrverandi forseti
landsins, Fernando de la Rua, var
hrakinn frá. Efnahagur Argentínu er
að hruni kominn vegna erlendrar
skuldabyrði og fjárlagahalla sem ekk-
ert hefur ráðist við. Búist er við
fjöldagjaldþrotum á næstu vikum og
mánuðum.
„Skilaboðin voru að við vildum nýtt
kerfi án spillingar og þá skipa þeir
alla þessa spilltu stjórnmálamenn í
nýju stjórnina,“ sagði einn mótmæl-
enda í gær, Diego Fumagalli. Áður-
nefndur Grosso var sakaður um spill-
ingu er hann var á sínum tíma
borgarstjóri Buenos Aires.
Hörð mót-
mæli í
Argentínu
Æstur múgur réðst
inn í þinghúsið
Buenos Aires. AP, AFP.
VETURINN hefur minnt á sig víða um land
undanfarna daga og vindar hafa blásið kröft-
uglega við Kotstrandarkirkju sem og annars
staðar. En sól er þegar tekin að hækka á lofti
eftir vetrarsólstöður 21. desember, daginn
sem birtan bar sigur úr býtum í baráttunni
við myrkrið. Hún hefur þó ekki enn náð yfir-
höndinni og nú, níu dögum eftir vetrar-
sólstöður, hefur daginn aðeins lengt um 12
mínútur. Þegar sól fer að hækka á lofti eftir
vetrarsólstöður og daginn að lengja er stund-
um sagt að munurinn nemi hænufeti á dag.
Maðurinn á myndinni gengur mót hækkandi
sól, en þar sem hann fær hríðina í fangið fer
hann aðeins hænufet í senn.
Morgunblaðið/RAX
Snjófok við sólarupprás
Gleðilegt nýár!
INDVERJAR segjast munu leggja
sig fram um að komast hjá styrjöld
við Pakistana en þeir séu reiðubúnir
ef öll önnur ráð þrjóti. Mikill viðbún-
aður er á landamærum ríkjanna og
hafa Indverjar flutt um 20.000
óbreytta borgara, er búa við landa-
mærin í Kasmír, á brott. Stjórnvöld í
Indlandi saka Pakistana um að
styðja hópa aðskilnaðarsinna sem
berjast gegn yfirráðum Indverja í
Kasmír en hóparnir hafa beitt
hryðjuverkum í baráttu sinni. Ráða-
menn annarra ríkja hafa miklar
áhyggjur af ástandinu, ekki síst
vegna þess að bæði Indverjar og
Pakistanar eiga kjarnorkuvopn.
Haldinn verður fundur leiðtoga
Suður-Asíuríkja í Nepal í næstu viku
en ekki er víst að takist að koma á
fundi með fulltrúum Indverja og
Pakistana á þeim vettvangi. Bæði
ríkin hafa bannað flug gagnaðilans
yfir sínu landi en Indverjar gerðu þó
eina undantekningu: þeir hyggjast
leyfa Pervez Musharraf, forseta Pak-
istans, að fljúga yfir landið til Nepals.
Vajpayee ávarpaði í gær fund
flokks þjóðernissinnaðra hindúa
(BJP) sem hann veitir forystu. „Á
trú á réttmæti baráttu okkar,“ sagði
hann. „Öllum ráðum verður beitt en
við munum gera allt sem í okkar valdi
stendur til að komast hjá stríði við
Pakistan,“ sagði Vajpayee.
Talið er að 19 indverskir hermenn
hafi farist í sprengingu í sam-
bandsríkinu Rajasthan á föstudag er
þeir voru að leggja jarðsprengjur við
landamærin. Liðsflutningar hafa
verið miklir af beggja hálfu og ýmiss
konar viðbúnaður í gangi, meðal ann-
ars hyggjast Indverjar verja graf-
hýsið fræga, Taj Mahal, fyrir loft-
árásum með dúkum í felulitum.
Indverjar segjast vilja
komast hjá styrjöld
Nýju-Delhí, Islamabad, Kalkútta. AP, AFP.
Síðasta rútan frá Nýju-Delhí
kemur til Pakistans í gær.
þessari stundu hvet ég landa mína til
að vera viðbúnir öllu og standa þétt
saman, vera hugrakkir og hafa fulla
AP