Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 35
✝ Páll Guðmunds-son fæddist á
Krossanesi í Helgu-
staðahreppi 6. mars
1917. Hann lést á
Líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
24. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Ingveldur
Erasmusdóttir frá
Efri-Ey í Meðallandi,
f. 21.5. 1875, d. 10.10.
1957, og Guðmundur
Jónsson frá Viðborði
á Mýrum, bóndi í
Krossanesi, f. 9.11.
1874, d. 9.1. 1921. Ingveldur og
Guðmundur eignuðust fjögur
börn, tvær dætur sem dóu í æsku,
Pál, og Guðna, f. 1919, d. 1993. Á
jóladag árið 1942 kvæntist Páll
Jónu Ólafsdóttur frá Miðvogi, f.
1917. Þau bjuggu alla tíð í Skipa-
sundi 11 í Reykjavík. Jóna og Páll
eignuðust fimm börn. 1) Drengur,
f. í júní 1944, d. í júní 1944. 2) Guð-
mundur, f. 24. mars 1946, kvænt-
ur Guðbjörgu Maríu Jóelsdóttur,
f. 1. apríl 1947. Dóttir þeirra er
Arnfríður María, f. 27. júní 1967.
3) Kristín, f. 14. júlí
1949, gift Magnúsi
Ingvarssyni, f. 7.
júní 1941. Synir
þeirra eru a) Ingvar,
f. 23. febrúar 1974,
b) Ólafur Páll, f. 14.
nóvember 1975, c)
Agnar, f. 23. febrúar
1980. 4) Stúlka, f. í
febrúar 1958, d. í
febrúar 1958. 5)
Gissur, f. 24. október
1960. Börn hans eru
a) Þórður Daði, f. 1.
febrúar 1984, b)
Matthías Páll, f. 4.
september 1991, c) Elísabet Ásdís,
f. 6. mars 1996.
Páll starfaði sem vélvirki, fyrst
í Steðja þar sem hann nam iðn
sína, en síðan í vélsmiðjunni
Tækni hf. sem hann stofnsetti ár-
ið 1942 og rak framan af í sam-
vinnu við bróður sinn og fleiri.
Hann vann að iðn sinni til ársins
1990 eða í 55 ár.
Útför Páls fer fram frá Ás-
kirkju í Reykjavík nk. miðviku-
dag, 2. janúar 2002, og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Nú er kvaddur Páll Guðmunds-
son. Palli (eins og við kölluðum
hann alltaf) var fæddur og uppalinn
á Krossanesi við Reyðarfjörð.
Hann var föðurbróðir okkar og auk
þess bjuggum við í sama húsi öll
okkar uppvaxtarár. Hann er því ná-
tengdur öllum okkar æskuminning-
um. Þeir bræður fluttust með for-
eldrum sínum til Reykjavíkur á
fjórða áratug síðustu aldar og
bjuggu þar mestan tímann undir
sama þaki, lengst af í Skipasundi
11, sem þeir bræður byggðu.
Bjuggu þeir hvor á sinni hæð og
voru foreldrarnir til heimilis hjá
þeim til skiptis, eitt ár í senn.
Vegna þessa nána sambýlis urðu
samskiptin milli fjölskyldnanna
mjög mikil og við krakkarnir nut-
um einnig góðs af samverunni við
afa og ömmu.
Á Krossanesi, bernskuslóðum
Palla, er bæði landlítið og hrjóstr-
ugt og varla byggilegt í augum okk-
ar nútímafólks. Einhvern veginn
tókst þeim bræðrum þó að byggja
upp söguna í vitund okkar sem
yngri erum þannig, að Krossanes
skipar ávallt sérstakan sess í huga
okkar og þangað finnst okkur alltaf
alveg sérstakt að koma. Palli hafði
miklar taugar til heimahaganna og
fyrir hans tilstilli eru nú til skráðar
heimildir um örnefni á jörðinni hjá
Örnefnastofnun Íslands. Hann var
mikill áhugamaður um félagsstörf
og var lengi í stjórn Félags Esk- og
Reyðfirðinga í Reykjavík og átti
það félag hug hans allan meðan
heilsan leyfði. Sjálfstæðisflokkur-
inn og Járnsmiðafélagið nutu einn-
ig krafta hans árum saman.
Á löngum tíma er ýmislegt brall-
að. Við eigum margar góðar minn-
ingar um Palla og okkar samveru
við hann. Kleppsholtinu, sem við
bjuggum í, mátti að mörgu leyti
líkja við þorp út á landi. Þarna
höfðum við allt til alls og þurftum
lítið að sækja út fyrir hverfið. Feð-
urnir unnu úti, en mæðurnar voru
heima og sinntu börnum og búi.
Allir vissu allt um alla og þannig
lærðist manni líka að þykja vænt
um náungann. Ótal minningar
sækja á nú þegar við kveðjum góð-
an frænda, t.d. þegar við fórum í
veiðiferðina inn að Hítarvatni, þeg-
ar Palli setti upp kosningaskrifstof-
urnar á neðri hæðinni, sameigin-
legar stundir í skúrnum (bílskúr
sem þeir bræður leigðu saman inn-
ar í götunni) og Esk- og Reyðfirð-
ingamótin. Að upplifa það að koma
með þeim bræðrum báðum austur í
Vaðlavíkina var líka ógleymanlegt.
Þannig mætti lengi telja þær minn-
ingar sem við geymum í hugum
okkar.
Eiginkonu Páls, Jónu Ólafsdótt-
ur, börnum þeirra Guðmundi,
Kristínu og Gissuri og fjölskyldum
þeirra færum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Palla frænda
þökkum við samfylgdina og kveðj-
um hann með virðingu og þökk.
Blessuð sé minning hans.
Ingvar, Gunnar
og Haukur Geir.
PÁLL
GUÐMUNDSSON
!
" #!
! $#%
!
#
!
#!
!
&
#!
!
#!
! '(!)
#!
! *!
+ $
!
$!
!$%
!"
#
$
%
&'((
!
"#$% & '
( &
% ) * %+ !
!
!%" "$ ,
! "# $#%&
! " #
$ % &
&
%
' #()
)) *)))
!
!! " ! #
!
$ % & ' '(
!
"
"
#
$
%
!""
!" # $!
#% & '! $!
'! $!
( !
! !$ ! )) !*
!
""
# $%&
' (
) "
*
+
! "
!" #$%$%
& '
( )* +
, % -' ./'
/##0
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892
www.utfararstofa.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður, í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.