Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                             !   "       "  #        $  BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Í nútímanum gengur allt svo hratt fyrir sig. Bílar þjóta eftir hraðbrautum og heilu borgar- hverfin eru byggð upp á örfáum ár- um. Ein öld er óralangur tími og enginn virðist hafa tíma til þess að hugsa um framtíðina – hvað þá for- tíðina. Í allri þessari samfélagslegu hring- iðu og ringulreið vill margt mikilvægt gleymast. Náttúran sem samfélagið lifir í virðist oft ekki vera til nema út frá sjónarhóli samfélagsins og þá sem auðlind sem maðurinn á að nýta sér til hagsbóta. Náttúran hefur í þessu sambandi enga rödd, ekkert atkvæði – en hvernig skyldi náttúran vera í raun og veru? Í fyrsta lagi ber að nefna, að tíma- skyn náttúrunnar er öðruvísi en tíma- skyn samfélagsins. Jörðin er um 4,6 milljarða ára gömul og elstu ummerki um líf eru um 3,8 milljarða ára gömul. Lífið hefur þannig þróast á jörðinni í milljarða ára og tekið miklum breyt- ingum. Einu sinni syntu brynfiskar og ammónítar um heimshöfin og eitt sinn voru risaeðlur á jörðinni. Nýjar lífverur hafa alltaf komið fram á sjón- arsviðið og dáið út, en aldrei hefur til- veru lífsins á jörðinni verið jafnmikið ógnað og eftir að maðurinn (Homo sapiens sapiensis) kom fram á sjón- arsviðið. Nútímamaðurinn, sem er um 100.000 ára gamall, er tiltölulega nýtt fyrirbæri í jarðsögunni. Engin lífvera hefur þó haft eins mikil áhrif á umhverfi sitt, og er nú svo komið, að mannkynið ógnar tilveru margra annarra lífvera sem lifa hér á jörðinni. Á nokkrum árum geta athafnir mannsins eytt náttúrufyrirbærum sem hefur tekið þúsundir ára að skapa. Þannig er auðvelt að ráðast á gróið hraun með jarðýtu og jafna það út, en þá gleymist að það hefur tekið gróðurinn í hrauninu um 1000 ár að myndast og gróa upp. „Sjálfsagðir hlutir“ eins og grasflatir eru bara alls ekki „sjálfsagðir hlutir“. Gras kom ekki fram á sjónarsviðið fyrr en til- tölulega seint í þróunarsögunni eða á olígósen og telst samkvæmt niður- stöðum náttúruvísindanna vera „til- tölulega ný uppfinning“. Menn ættu stundum að nema staðar og gera sér í hugarlund heiminn án grass, til þess að skilja hvað það þýðir í raun og veru að eyðileggja náttúruna. Á sama hátt getur sár í gróður- þekju varað í mörg ár og jafnvel vald- ið uppblæstri. Það tekur þó ekki nema nokkrar mínútur að aka utan vegar og mynda slík djúp sár. Þannig er óhætt að segja, að í erli nútímans séu menn oft að flýta sér allt of mikið til þess að taka eftir þeim breytingum sem eiga sér stað í náttúrunni. Við mennirnir hugsum í áratugum á með- an náttúran hugsar í þúsundum ára. Sem betur fer hafa þó verið sett lög um mat á umhverfisáhrifum sem hægja örlítið á framkvæmdagleði at- hafnamanna og gera það að verkum að í dag þurfa menn að hugsa sig ör- lítið um áður en þeir hefja uppgröft og sprengingar. Ekki er þó hægt að segja annað, en að ennþá skorti sárlega kennslu í náttúrufræði og skilning á því, að það tekur náttúruna milljónir ára að skapa það sem við mennirnir í fáfræði okkar eyðileggjum á einni kvöld- stund. INGIBJÖRG ELSA BJÖRNSDÓTTIR, umhverfissérfræðingur, M.Sc. Línuhönnun hf., verkfræðistofa, Suðurlandsbraut 4a, Reykjavík. Að horfa í gegnum spegil tímans Frá Ingibjörgu Elsu Björnsdóttur: Ingibjörg E. Björnsdóttir Mörkinni 3, sími 588 0640 G læ si le g a r g ja fa vö ru r Mokkabollar kr. 1.890 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.