Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 53
JAMES BOND: BEYOND THE ICE Pierce Brosnan er mættur aftur í hlutverki njósnarans heimsfræga í frábærri spennumynd sem gerist m.a. á Íslandi! Flottar Bond-píur, nýr Aston Martin sportbíll og ægileg áhættuatriði einkenna nýjustu Bond-myndina sem er hlaðin ævintýralegri spennu og glæsileika. STAR WARS EPISODE 2: ATTACK OF THE CLONES Annars hluta vinsælustu kvikmyndaseríu allra tíma er beðið með mikilli óþreyju um allan heim. Episode 1 var vinsælasta mynd ársins 1999 og þessi verður enn vinsælli því meistari George Lucas lofar enn betri mynd! MIB2 Tommy Lee Jones og Will Smith eru mættir aftur í svörtu og svalari en nokkru sinni fyrr. Tvöfalt betri en fyrsta myndin, stútfull af spennu, gríni, geggjuðum geimverum og pottþéttri tónlist. THE LORD OF THE RINGS: THE TWO TOWERS Stórkostlegasta ævintýri allra tíma heldur áfram næstu jól. Fróði og félagar halda áfram leið sinni inn í óvinalandið Mordor og hætturnar leynast alls staðar því Saurón svífst einskis til að endurheimta Hringinn Eina. Einstök upplifun! AUSTIN POWERS: GOLDMEMBER Uppáhaldsnjósnari allra er mættur í þriðja sinn og hefur aldrei verið betri! Mike Meyers fer á kostum ásamt Michael Caine, Heather Graham, og Beyoncé Knowles úr Destiny´s Child og að sjálfsögðu Dr. Evil og Fat Bastard. Fyndnasta mynd ársins 2002! SPIDER-MAN Eftir áratuga bið 40 milljóna aðdáenda um heim allan er hann loksins mættur á hvíta tjaldið. Tobey Maguire, Willem Dafoe og Kirsten Dunst fara með aðalhlutverkin í ótrúlegri stórmynd. Miklum hæfi- leikum fylgir mikil ábyrgð. Búðu þig undir svölustu súperhetjuna! ROAD TO PERDITION (LEIÐIN TIL GLÖTUNAR) Stórkostleg glæpamynd í leikstjórn Óskarsverðlaunahafans Sam Mendes sem gerði American Beauty. Óskarsverðlaunahafinn Tom Hanks fer með aðalhlutverkið ásamt stór- leikurunum Paul Newman og Jude. WINDTALKERS Frábær stríðsmynd byggð á sannsögulegum atburðum úr seinni heimsstyrjöldinni með Óskarsverðlaunahafanum Nicolas Cage í leikstjórn John Woo (Mission Impossible 2). ICE AGE (ÍSÖLD) Bráðskemmtileg teiknimynd fyrir alla fjölskyld- una. Myndin gerist á ísöld og við sláumst í för með súrum loðfíl, dularfullu letidýri og svaka- legum sverðketti sem bjarga ungbarni og lenda í hinum ýmsu ævintýrum og hrakförum! Með íslensku og ensku tali. K-19: THE WIDOWMAKER Nýjasta stórmynd Harrison Ford með Ingvari Sigurðssyni í einu aðalhlutverkanna. Sannsöguleg stórmynd um óhapp í jómfrúrferð rússnesks kjarnorkukafbáts árið 1961. Rafmagnaður spennutryllir! MINORITY REPORT Stórstjarnan Tom Cruise er fulltrúi í sérstökum lögregluhóp framtíðarinnar sem handtekur fólk áður en þau fremja glæpina. Æsispennandi vísindatryllir í mynd eftir vinsælasta leikstjóra heims, Steven Spielberg. STÚART LITLI 2 Músin sem allir elska lendir í endalausum ævintýrum með fuglinum Margalo, flýgur flugvél, spilar fótbolta og margt fleira. Fjölskyldumynd eins og þær gerast bestar! Sýnd með íslensku og ensku tali. PANIC ROOM Meistari David Fincher (Seven, Fight Club) færir okkur einn magnaðasta spennutrylli síðari ára með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster í aðalhlutverki. Eltingaleikur upp á líf og dauða sem fær hárin til að rísa. BLACK HAWK DOWN Ridley Scott, leikstjóri Gladiator, og Jerry Bruckheimer, framleiðandi The Rock og Pearl Harbor, færa okkur magnaða stríðsmynd sem byggð er á sannsögulegum atburðum. Ewan McGregor, Josh Hartnett og Tom Sizemore fara með aðalhlutverk í stórkostlegri kvikmynd. BLADE 2 Wesley Snipes er mættur aftur sem brjálæðislega svali vampíruveiðimaðurinn Blade sem er í ofsaham að þessu sinni! Mögnuð spenna, tæknibrellur og tónlist. 51ST STATE Samuel L. Jackson hefur aldrei verið svalari enda í skotapilsi í þessum fantaflotta spennutrylli þar sem Robert Carlyle aðstoðar kappann. REIGN OF FIRE Eldspúandi drekar ná yfirráðum á jörðinni með eyðileggingu og skelfingu í ótrúlegri spennu- mynd með Matthew McConaughey og Christian Bale í aðalhlutverkum. DRAGONFLY Yfirnáttúrulegur tryllir í anda Sixth Sense, What Lies Beneath og The Others með Óskars- verðlaunahafanum Kevin Costner í aðalhlutverki. Magnþrungin spennumynd sem kemur á óvart. KATE & LEOPOLD Yndisleg rómantísk gamanmynd með Meg Ryan og Hugh Jackmann í aðalhlutverkum. Ef þau hefðu lifað á sömu öld, væru þau fullkomin hvort fyrir annað! WE WERE SOLDIERS Frá fólkinu sem stóð að Braveheart kemur stórmynd með Óskarsverðlaunahafanum Mel Gibson í aðalhlutverki. Byggð á sannsögulegum atburðum úr Víetnamstríðinu og blóðugri orrustunni í Dauðadalnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.