Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 44
DAGBÓK 44 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Kyndill kemur í dag. Vilhelm Þorsteinsson, Kristrún og Brúarfoss koma á morgun. Hafnarfjarðarhöfn: Selfoss kemur á morgun. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sól- vallagötu 48,s. 551-4349, flóamarkaður, fataút- hlutun og fatamóttaka sími 552-5277 eru opin miðvikud. kl. 14–17. Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Svarað í síma Krabba- meinsráðgjafarinnar, 800 4040 miðvikudaga kl. 15–17. Mannamót Árskógar 4. Miðviku- daginn 2. janúar kl. 9– 12 baðþjónusta og opin handavinnustofan, kl. 13 spilað, kl. 13–16.30 opin smíðastofan. Allar uppl. í s. 535-2700. Bólstaðarhlíð 43. Mið- vikudaginn 2. janúar kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna, kl. 10–17 fótaaðgerð, kl. 10 banki, kl. 13 spiladagur, kl. 13–16 vefnaður, kl. 14 dans. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið í Hlaðhömrum verður lokað til 8. janúar. Ósk- um öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Mið- vikudaginn 2. janúar kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslu- og handavinnustofur opnar, kl. 10–10.45 leik- fimi, kl. 14.30 banki. Félag eldri borgara í Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka miðvikudag- inn 2. janúar kl. 15–16. Skrifstofan í Gullsmára 9 opin í dag kl 16.30– 18. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Miðviku- daginn 2. janúar kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrt- ing, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, byrjendur. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Línudans verður mið- vikudaginn 2. jan. 2002. kl 11. Nýir þátttak- endur velkomnir. Dagskráin í Hraunseli hefst aftur mánudaginn 7. jan. 2002 Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Miðvikudag- inn 2. janúar kl. 9–16.30 fótaaðgerð, opin vinnu- stofa, postulín, mósaik og gifsafsteypur, kl. 9– 13 hárgreiðsla, kl. 9–16 böðun. Opið alla sunnu- daga frá kl. 14–16 blöð- in og kaffi. Gerðuberg, félagsstarf. Starfsfólk óskar öllum þátttakendum og sam- starfsaðilum gleðilegs árs og friðar með þakk- læti fyrir stuðning og samstarf á árinu sem er að líða. Hlökkum til nýja ársins. Gjábakki, Fannborg 8. Miðvikudaginn 2. janúar, handa- vinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 10–17, kl. 10.30 boccia, kl. 13 félagsvist, kl. 17 bobb. Kynning- ardagur verður fimmtu- daginn 3. janúar kl. 14. Skráning á námskeið fer fram á sama tíma. Fólk er hvatt til að mæta og kynna sér þá starfsemi sem fyr- irhuguð er til vors og koma með tilllögur. Hraunbær 105. Mið- vikudaginn 2. janúar kl. 9 opin vinnustofa, handavinna, bútasaum- ur, kl. 9–12 útskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Mið- vikudaginn 2. janúar kl. 9 böðun, föndur, klippi- myndir, kl. 13.30, gönguferð, kl. 15 teikn- un og málun, kl. 15. dans. Fótsnyrting, hár- snyrting. Norðurbrún 1. Mið- vikudaginn 2. janúar kl. 9–16.45 opin vinnustofa, kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10 sögustund, kl. 13 banki, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Vesturgata 7. Miðviku- daginn 2. janúar kl. 8.25 sund, kl. 9–16 fóta- aðgerð og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 postulíns- málun og myndmennt, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tré- skurður. Vitatorg. Miðvikudag- inn 2. janúar kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerðir, morg- unstund, bókband og bútasaumur, kl. 12.30 verslunarferð, kl. 13 handmennt og kóræf- ing, kl. 13.30 bókband, kl. 15.30 kóræfing. Kvenfélagið Keðjan. Hinn árlega þrett- ándagleði kvenfélagsins Keðjuunnara verður haldin laugardaginn 12. janúar í tann- læknasalnum, Síðumúla 35. Húsið veður opnað kl. 19. Vinsamlega til- kynnið þátttöku í síma 557-6669, Oddný, 565- 3390, Níelsa, 587-2444, Unnur María. Kristniboðssambandið þiggur með þökkum alls konar notuð frí- merki, innlend og út- lend, ný og gömul, klippt af með spássíu í kring eða umslagið í heilu lagi (best þannig). Útlend smámynt kemur einnig að notum. Mót- taka í húsi KFUM&K, Holtavegi 28, Rvík og hjá Jóni Oddgeiri Guð- mundssyni, Glerárgötu 1, Akureyri. Minningarkort Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9–13, s. 562-5605, bréfsími 562- 5715. Minningarkort Krabba- meinsfélags Hafn- arfjarðar (KH) er hægt að fá í Bóka- búð Böðvars, Reykja- víkurvegi 64, 220 Hafn- arfirði s. 565-1630 og á skrifstofu KH, Suð- urgötu 44, II. hæð, sími á skrifstofu 544-5959. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félagsins eru afgreidd í síma 540 1990 og á skrifstofunni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upplýsingar í tölvupósti (minn- ing@krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, eru afgreidd í síma 551- 7868 á skrifstofutíma og í öllum helstu apó- tekum. Gíró- og kred- itkortagreiðslur. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu end- urhæfingardeildar Landspítalans, Kópa- vogi (fyrrverandi Kópa- vogshæli), sími 560- 2700 og skrifstofu Styrktarfélags vangef- inna, s. 551-5941 gegn heimsendingu gíróseð- ils. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565-5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Landssamtökin Þroskahjálp. Minningarsjóður Jó- hanns Guðmundssonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588-9390. Minningarsjóður Krabbameinslækninga- deildar Landspítalans. Tekið er við minning- argjöfum á skrifst. hjúkrunarforstjóra í síma 560-1300 alla virka daga milli kl. 8 og 16. Utan dagvinnutíma er tekið á móti minning- argjöfum á deild 11-E í síma 560-1225. Hrafnkelssjóður (stofn- aður 1931) minning- arkort afgreidd í símum 551-4156 og 864-0427. Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fáanleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561-4307/fax 561-4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557- 3333 og Sigurlaugu Halldórsdóttur, s. 552- 2526. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stangarhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysavarna- felagid@landsbjorg.is. Í dag er sunnudagur 30. desember, 364. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Takið því hver annan að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til dýrðar. (Rómv. 15, 7.) 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 farartæki, 8 málmi, 9 hakan, 10 hrúga, 11 rót- arskapur, 13 heimskingj- ar, 15 landabréf, 18 dreng, 21 auð, 22 vöggu, 23 kvenmannsnafns, 24 geðslag. LÓÐRÉTT: 2 sundurþykki, 3 skot, 4 gusta, 5 slagbrandurinn, 6 guðir, 7 flanar, 12 spil, 14 bekkur, 15 siga, 16 kyrru vatni, 17 þjófnað, 18 litlar, 19 rauða, 20 út- brot. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 kapps, 4 kosin, 7 fólin, 8 gulls, 9 dug, 11 rúmt, 13 árna, 14 áfall, 15 þorp, 17 leit, 20 ást, 22 rígur, 23 jánka, 24 kosts, 25 niðra. Lóðrétt: 1 káfar, 2 púlum, 3 synd, 4 kugg, 5 selur, 6 níska, 10 unaðs, 12 táp, 13 áll, 15 þorsk, 16 regns, 18 ennið, 19 trana, 20 árás, 21 tjón. K r o s s g á t a Víkverji skrifar... KJÖR Samtaka íþróttafrétta-manna á íþróttamanni ársins vekur jafnan mikla athygli. Sund- maðurinn Örn Arnarson varð fyrir valinu að þessu sinni og er það í þriðja skipti sem þessi tvítugi af- reksmaður hlýtur nafnbótina eftir- sóttu.Víkverji telur Örn vel að titl- inum kominn og ástæða er til þess að óska honum til hamingju. x x x VITASKULD eru margir kallað-ir, en aðeins einn útvalinn þeg- ar íþróttamaður ársins er kosinn. Það gefur augaleið, þegar fyrir- komulag kjörsins er með þeim hætti sem raun ber vitni. Sums staðar eru bæði íþróttakarl og íþróttakona árs- ins valin, og sums staðar einnig lið ársins. Hér á landi hafa íþrótta- fréttamenn hins vegar haldið sínu striki og kjósa aðeins einhvern einn sem þann besta, og fyrir því má færa rök að með því móti sé heiðurinn enn meiri en annars yrði, ef t.d. einn af- reksmaður af hvoru kyni yrði valinn. „Að sjálfsögðu eiga allir að hafa skoðun á því hver stendur fremstur hverju sinni – við íþróttafréttamenn höfum ekki einkarétt á því,“ sagði Adolf Ingi Erlingsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna, í ávarpi sínu við afhendinguna. Þetta er auðvitað hárrétt hjá formannin- um, og í gegnum árin hefur oft komið fram gagnrýni á niðurstöðuna. Við því er ekkert að segja, en auðvitað verður að fara fram á það við gagn- rýnendur að þeir leggi fram mál- efnaleg rök; dylgjur og upphrópanir einar og sér eru engum til góðs en því miður hefur Víkverja þótt bera of mikið á slíku nú í kjölfar kjörsins, á að minnsta kosti einni spjallsíðu á Netinu. Því er haldið fram að spilling sé hér á ferðinni og þar fram eftir götunum og á einum stað eru íþróttafréttamenn sakaðir um að hafa keppst við það í gegnum tíðina að kjósa keppendur í „jaðargrein- um“, eins og það er orðað, íþrótta- menn ársins. Auðvitað eru íþróttagreinar mis- vinsælar en bréfritari ætti að reyna að segja t.d. Finnum og Tékkum að spjótkast sé „jaðarsport“ eða Áströl- um og Bandaríkjamönnum, svo ein- hverjir séu nefndir, að sund sé „jað- arsport“. Slíkt er auðvitað hin mesta firra. Íslendingar hafa, svo dæmi sé tekið, lengi haft geysilega gaman af handknattleik en íþróttamenn ársins eru röðum handboltmanna eru þó ekki óeðlilega margir/fáir. Og því má ekki gleyma að margir frábærir íþróttamenn, sem vel hefðu verið að nafnbótinni komnir, hafa aldrei hampað styttunni stóru sem hinn út- valdi fær afhenta til varðveislu í eitt ár. Kristján Arason, sem margir töldu besta handboltamenn heims á sínum tíma, og Pétur Guðmundsson, fyrsti Evrópubúinn til að komast inn í NBA-deildina í körfubolta, urðu til dæmis aldrei fyrir valinu. Margir eru nefnilega kallaðir á ári hverju, eins og fyrr sagði, en aðeins einn út- valinn. Og allt veltur á því hvernig menn hafa staðið sig það ár. Enginn er valinn árið X vegna frábærrar frammistöðu ársins á undan, þrátt fyrir að afrek ársins X séu ef til vill ekki ýkja merkileg. Þá er sá valinn sem íþróttafréttamönnum fannst skara fram úr það ár. x x x VÍKVERJI óskar landsmönnumöllum farsældar á nýju ári. VIÐ viljum koma á fram- færi síðbúnu þakklæti til björgunarmanna úr björg- unarsveitum skáta á höfuð- borgarsvæðinu sem aðstoð- uðu okkur við mjög erfiðar aðstæður í veðurofsa fyrir fáeinum vikum. Skátarnir eru nú að selja flugelda starfi sínu til upp- byggingar. Stuðningur við björgunarsveitirnar er hið mesta þjóðþrifamál. Agnar Þórðarson og Hildigunnur Hjálmarsdóttir, Sólheimum 23. Það kalla ég góðverk Á ÞESSUM tíma árs er oft ríkt í hugum manna að styðja við bakið á þeim sem minna mega sín. Bæði er um einstaklinga að ræða og svo eru það hópar eins og Mæðrastyrksnefnd sem vinnur aðdáunarvert starf. Hér á landi er stór hópur af fólki sem hvorki á í sig né á og oftast eru það börnin sem verða fyrir barðinu á slíkum aðstæðum. Á sama tíma er sjón- varpsstöðin Omega að hamast í því að sanka að sér tugum milljóna sem ætlað- ar eru til uppbyggingar á gervihnattasendingum á dagskrá stöðvarinnar. Þeir sem þar ráða ríkjum stæra sig jafnvel af því að öryrkj- ar sendi þeim aleigu sína til styrktar átakinu. Væri ekki nær að þessir öryrkjar fengju aurana sína til baka og að það sem eftir sæti færi til fátækra. Það kalla ég góðverk en gervi- hnattasendingardæmið kalla ég mikilmennsku- brjálæði. Guðlaug. Jólamyndir í sjónvarpi ÍSLENSKU myndirnar 101 Reykjavík og Englar alheimsins, sem sjónvarpið bauð þjóðinni að horfa á á jóladag og annan í jólum, samanstóðu af klámi, rugli og geðveiki. Þessar myndir eiga ekkert erindi í sjón- varp. Ég spyr er þetta hollt efni fyrir börn og unglinga að horfa á? Ég vona að ein- hverjir láti heyra frá sér og mótmæli þessum sýning- um. Ein hneyksluð. Dýrahald Gúndi er týndur GÚNDI er dökkgrár fress með hvítar loppur og hvítur undir höku. Hann er merktur og með bláa ól. Hann týndist frá Bugðulæk 17 á aðfangadagskvöld. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 553 3460 eða 697 6848. Hvítur fress í óskilum AÐ kvöldi jóladags villtist hvítur fressköttur inn í íbúð við Hringbraut í Reykjavík. Á heimilinu eru fyrir tveir kettir sem eru ekkert sér- lega ánægðir með gestinn. Þetta virðist fremur ungur köttur, blíður og kelinn. Þeir sem sakna hans geta hringt í síma 552 1039 eða 694 8686. Einnig í Kattholt í síma 567 2909 en þangað fer hann fljótlega eftir ára- mót. Tapað/fundið Skoda-lykill fannst í Álftamýri LYKILL með fjarstýribún- aði að Skoda- bifreið fannst nýverið á bílastæðinu við íþróttahús Álftamýrar- skóla. Eigandi getur vitjað hans á Lögregluvarðstof- una við Hverfisgötu eða hjá óskilamunadeild. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Þakkir til björgunar- sveitarmanna Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.