Tíminn - 11.03.1960, Síða 4
4
T í M I N N, föstudaginn 11. marz 1960,
Kvennasala arabískra
fursta blómstrar enn
Fyrir nokkrum dögum stóð
ung, arabísk kona fyrir rétti í
Kairó. Það var fátt í réttar-
salnum, og enginn bjóst við,
eð þar væri neitt óvenjulegt á
ferðinni — aðeins ofur hvers-
dagslegt hjónabandsmál, þar
sem konan sótti um skilnað, og
flestir munu hafa búizt við, að
rétturinn mundi neita henni
um hann, því að menn eru
ekki allt of áfjáðir i hjóna-
skilnaði austur þar, og telja
ekki allar sakir, sem eiginkona
ber á eiginmann gildar til
skilnaðar.
En unga konan, sem svaraði
spurningum rólega og alvarlega,
hafði svolitla segulbandsspólu í
tösku sinni — og þegar dómararnir
höfðu hlustað á það, sem hún hafði
að geyma, varð blátt áfram fjaðra-
fok í salnum, óg í einu vetfangi
hafði þetta hversdagslega mál
breytzt í aiþjóðlegt hneykslismál,
sem vakti athygli um alla Evrópu
og Ameríku. Unga konan fékk
skilnaðinn viðurkenndan og var
r.ieira að segja dæmd fjárhæð, sem
nemur um 200 þús. ísl. kr. í skaða-
bætur frá manni hennar. Hver var
þá forsaga þessa kynlega máls:
Metí ferföldum gróía
Unga konan heitir Raga Yassin,
og saga hennar staðfesti, að enn á
sér stað í hinum arabíska heimi
kvennasala Um þetta hafði verið
hvíslað og 1alað manna á milli, og
iaunar vissu menn, að þetta var
eins konar „opinbert leyndarmál'
en á þessu var ekki unnt að henda
:eiður, hvað þá staðfesta sem lög-
brot. Samkvæmt egypzkum lögum
má faðir taka verulegar fjárhæðir
sem brúðargjald, er hann giftir
dætur sínar, en eiginmanni — sem
má eiga fjórar konur — er ekki
leyfilegt að selja eiginkonu sína.
En frásögn Raga Yassin staðfesti,
sð enn ganga fagrar arabískar kon-
ur kaupum og sölum milli ríkra
1
B
Segulbandið Ijóstraði upp viðskiptunum
Raga Yassin — unga, egypzka konan, sem eiginmaSurinn ætlaSi að
selja fyrir upphæð sem jafngildir 200 þús. isl. kr. Verðið var tvöfallt
,,markaðsverð" af því að hún líktist Sorayu fyrrv. keisaradrottningu.
fursta, og margir hagnast vel á
þessari verziun.
! — Fyrir hálfu ári var ég enn
' unglingur í skóla, sagði Raga Yass-
in fyrir réttinum. Þá bar svo við,
að auðugur sheik frá Saudi-Arabíu,
Gmar Yassin að nafni bað föður
rninm um hönd mína og bauð hon-
um mikla íjárhæð (um 50 þús. ísl.
' ki .) í brúðargjald fyrir mig.
Ég féllsí á þetta af frjálsum
vilja, hélt unga konan áfram, —
því að ég hafði aldrei lifað í auð-
ævum eða allsnægtum, og lét mig
dreyma um hamingju þess að eiga
mína eigin skrautbifreið En þegar
v.ð höfðum verið gift einn mánuð.
sagði eiginmaðurinn mér að hann
♦
I
'd
Á
,Það er allt jafnbandvit-
laust í þessum bókum ykkar ’ ’
500
bílar til sölu á sama staS.
Skipti. og hagkvæmir
greiðsluskilmálar alltaf fyr-
ir hendi
BÍLAMIÐSTÖÐIN VAGN
Amtmarmsstíg 2 C
Símar 16289 og 23757.
Sala er örugg hiá okkur.
Símar 19092 og 18966
Bifreiðasalan
Ingólfsstræti 9
Innkaupatöskur
íþróttatöskur
íþróttabúningar
fyrir börn og fullorðna.
frá kr. 84,75.
Austurstræti 1
Kjörgarður — Laugav 59
væri búinn að selja mig auðugum
emír frá Quatar.
Quatar er lítið arabísk* fursta-
dæmi, og emírinn er vellríkur eins
og margir aðrir aabískir furstar
'%griáblíunnar.
Haf'Öi seU 65 á'Sur
— Maðurinn minn sagði mér
enn fremur að söluveiðð væri
ferfalt brúðargjaldið (um 200 þús, 1
ísi kr.) og emírinn frá Qatar vildi
gefa svo mikið fyrir mig - af því
að ég líktist mjög Soraya fyrrver-
andi keisaradrottningu i Persíu.
Figinmaður minn bauð mér hins
vegar að greiða mér sjálfri sömu
(Framhald á 13. síðu).
Framsóknar-
vistarkort
fást á skrifstofu þramsókn-
arflokksins í Edriuhúsinu.
Sími 1R066
Kennsia
í pýzku ensku frönsku
sænskn dönsku bókfærslu
og reikningi
Harry Vilhelmsson
Kjartanspötu 5 Sími 18128
Pússningasandur
Aðeins úrvals pússmnga-
sandur
Gunnar G-nðmundsson
Sími 23220
Lítið herbergi
óskast til leigu nú þegar.
Tilboð sendist blaðinu fvrir
laugardag, merkt „Her-
bergi“.
Hjartans þakkir færi ég öllum þeim, er sýndu mér
vinsemd og glöddu mig með heimsóknum gjöfum
og heillaóskum á 80 ára afmæli mínu þ 21. febr. s.l
Elías Þórðarson,
frá Saurbæ.
Alúðar þakkir og kveðjur eru hér með færðar
öllum þeim, sem sýndu samúð og réttu hjálpar-
hönd með fjárframlögum aðstandendum þeirra,
er fórust með vélbátnum Svan við Hofsós 9. nóv.
síðast liðinn.
Guð blessi ykkur öll.
F. h. söfnunarnefndar
Árni SigurSsson
I
Innan veggja Safnahússins
ríkir kyrrð og ró- Þar sjást
sjaldan gárar rísa á yfirborði.
Samt geta einnig þar speglazt
skrýtnir fletir lífsins eins og
við lifum því í dag. Hér á dög
um var sagt hér í blaðinu frá
tveimur atvikum, sem gerðust
í Þjóðskjalasafninu. í dag get-
um við sagt frá tveim atvikum
af svipuðu tagi.
Kona nokkur kom á fund
safnvarða og bað um fæðingar
vottorð. Hún kvaðst vera fædd
1897 og vísaði til fæðingarstað
ar síns. En svo brá við, að
safnvörðurinn fann ekki nafn
hennar í prestsþjónustubók-
inni, svo að hann tók það ráð
að. biðja konuna að koma aftur
næsta dag, því að hann yrði
að fá ráðrúm til þess að leita
betur í bókum sínum. Þegar
konan var farin, datt honum
í hug, að kannske kæmi hér
til misheyrn — konan kynni
að hafa sagzt vera fædd 1892.
Ifann sló aftur upp í bókinni:
Og hvað annað — þar var fæð
ing konunnar skráð.
Konan vitjaði vottorðsins
næsta dag eins og um liafði
verið talað. En þegar hún sá
ártalið, mótmælti hún og ítrek
aði, að hún væri fædd 1897.
Til frekari áherzlu sagði hún,
að faðir sinn hefði dáið
skömmu eftir að hún fæddist.
„Þér þurfið ekki annað en
að líta á mig til þess að sjá,
að ég er ekki svona gömul“,
bætti hún við.
Safnvörður var fljótur að
sjá, að hér þurfti ekki fleiri
vitna við. Hann bauðst til að
fletta upp í prestsþjónustubók
inni og huga að því, hvenær
faðir hennar hefði dáið. Hefði
andlát hans borið að gat
honum ekki fæðst dótíu 1897.
n
Þá sagði konan og var fljót
til svars:
„Nei — við skulum sleppa
því. Það er allt jafn bandvit-
laust í þessum bókum ykkar“.
Hin sagan er um mann, sem
bað um aldursvottorð handa
sér og konu sinni vegna elli-
launa, er þau áttu að öðlast.
Hann sagði, að þau hjónin
væru bæði jafngömul, 67 ára.
Það kom þegar í ljós, að mað
urinn var sjálfur fæddur það
ár, er hann sagði. En það varð
bið á því að nafn konunnar ,a
fyndist. Loks koVn það þó í lí
leitirnar. Hún var átta árum
eldri en maður hennar hélt
hana vera.
Maðurinn mælti ekki orð frá
vörum, er hann heyrði þessi
tíðindi, enda var þetta sannast
sagna ckk gott viðgerðar eftir
öll þessi áx. S
__________________ ö
ÚHör
Árna Magnússonar
frá Iðunnarstöðum,
fer fram frá Akraneskirkju laugard. 12. marz kl. 14. — Blóm eru
vinsamlegast afbeðin, en þeim sem vildu minnast hans, er bent á að
láta Sjúkrahús Akraness njóta þess.
Systurnar.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og
vlnarhug vlð andlát og jarðarför eiginmanns mins, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Sigurjóns Þ. Gunnarssonar,
Bakkavelli.
Signý Magnúsdóttir
Guðni H. Sigurjónsson Jónína G. Sigurjónsdóttir
Magnús G. Sigurjónsson Viktoría Þorvaldsdóttir
og börnin.
Innilegar þakklr færum vlð þeim fjölmörgu nær og fjær, ser
sýndu okkur samúð og vináftu og veittu okkur hjálp vegna hin
sviplega fráfalls litla drengsins okkar, bróður og dóttursonar,
Baldvins Rúnars.
Guð blessi ykkur öll.
Valgerður Baldvinsdóttir Gunnar Jóhannsson
Loftsína G. Pálsdóttir Baldvin Jónsson.
og systkini.