Tíminn - 10.06.1960, Page 1
Norðmenn
unnu meö
4 gegn 0
Norðmenn höfðu nær al-
gjöra yfirburði í áttunda
landsleik Noregs og íslands,
sem fram fór í Oslc í gær.
Þeir sigruðu með fjórum
mörkum gegn engu og er
það mesti sigur Norðmanna
yfir íslendingum í landsleik
hingað til. Leikur íslenzka
liðsins var mjög sundurlaus
og varla brá fyrir fallegum
leik af þess hálfu, enda
komst norska markið ekki í
hættu allan leikinn, utan
einu sinni. Um 16 þúsund á-
horfendur sáu leikinn og var
völlurinn erfiður, en mikið
hafði rignt í Osló fyrir leik-
inn. íslenzka landsliðið kem-
ur heim í kvöld — því ekki
verða fleiri leikir en lands-
leikurinn í þessari för. —
Frásögn af leiknum er á bls.
12.
Hér sést þrennt, sem mörgum
þykir me8 því eftirsóknarverS-
asta i lífinu: Falleg stúlka, litrík
blóm og gljáandl bíll. Stúlkan er
tákn lífshamlngjunnar, blómln
merki fegurðarinnar og bíllinn
tákn velmegunarlnnar. Myndin
er tekin í Reykjavík I gaer. (Ljós-
mynd: Tíminn, K.M.)
Eyjólfur syndir á
Sjómannadaginn
220 þús. tunnur
af Noröurlands-
síld þegar seldar
Gerðir hafa verið fyrirfram
samningar um sölu á 120 þús-
und tunnum af saltaðri síld
til Sovétríkjanna, þar af er
heimilt að afgreiða frá Norð-
urlandi allt að 80 þús. tunnur.
Er það sama magn og endan-
lega var samið um s.l. ár.
Undirritaðir hafa verið
samningar um sölu á rúmlega
85 þúsund tunnum til Sví-
þjóðar. Er þetta um 25 þús-
und tunnum meira magn en
samið var um við Svía s.l. ár.
Finnar munu kaupa svipað
magn og s.l. ár eða um 51
þúsund tunnur.
Þá hefur tekizt að gera
fyrirframsamninga við Vest-
ur-Þjóðverja um sölu á 5.000
tunnum af Norðurlandssíld og
2.300 tunnum af Suðurlands-
síld, en þangað hefur sára-
lítið verið selt eftir styrjöld-
ina.
Gert er ráð fyrir að til Dan
merkur verði seldar um 3.000
tunnur, sem er svipað magn
og s.l. ár.
Undanfarið hafa samninga-
umleitanir farið fram við önn-
ur þau lönd, sem til greina
koma sem kaupendur íslenzkr
(Framhald á 3. síðu)
Rockefeller
steytir görn
Sjómannadagurinn er á
sunnudaginn kemur. Þá verð-
ur mikið um dýrðir að vanda,
en þó ekki eins mikið umleik
is og oft áður. T. d. verður
sleppt hópgöngu um bæinn og
útisamkomu við Hrafnistu,
sem stundum hefur verið.
HátíSahöldin hefjast kl. 8 með
þvlí að fánar verða dregnir að
hún á s'kipum í höfninni. Kl. 9
hefst sala á merkjum sjómanna-
dagsráðs og Sjómannadagsbláðinu,
og kl. 10 er hátíðamessa í Laugar-'
ásbíói.
Eftir hádegi
Eftir hádegi mun Lúðrasveit|
Reykjavíkur leika sjómanna og
ættjarðarlög á Austurvelti, og þar
verður einnig mynduð fánaborg
með fánum sjómannafélaganna og
íslenzka fánanum. Þá verða ræð-
ur og ávörp flutt af svölum Al-
þingishússins, m.a. mun sr. Óskar
J Þorláksson minnast drukknaðra
sjómanna, Kristinn Hallsson
syngja einsöng og Henrý Hálfdán-
arson, formaður fulltrúaráðs Sjó-
mannadagsms afhenda verðlaun
og Fjalar bikarinn. Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur milli atriða. j
Eyjólfur Syndir
Að loknum liátíðahöldum við
Austurvöll um kf. 15,45 hefst kapp
róður í Reykjavíkurhöfn. Meðan
á honum stendur mun Eyjólfur
Jónsson sundkappi koma synd-
andi frá Viðey og lenda við
róðrarvörina. Að þeirri athötn lok
inni verður hlé á hátíðahöldum,
þar til almennar skemmtanir
hefjast í danshúsum bæjarins um
(Framhald á 15. síðu)
NTB—New York og Wash-
ington, 9. júní. — Eisenhow-
er forseti hélt fund í dag með
foringjum þingflokkanna.
Eftir fundinn sögðu þeir, að
forsetinn hefði eindregið mót-
mælt þeirri skoðun Nelsons
Rockefellers, að varnir Banda
ríkjanna væru í ólestri Nix-
on hefur boðað fund með
; blaðamönnum í kvöld.
i í gærdag snæddu þeir sam
an Eisenhower forseti og Nel.
| son Rockefeller rikisstjóri í
New York. Eftir fundinn kom
Rockefeller með yfirlýsingar
og árásir á Nixon varaforseta
sem vakið hafa mikla athygli
bæði í Bandaríkjunum og
annars staðar.
Krefst yfirlýsingar
Rockefeller viðurkenndi að
hann væri enn fús til að verða
forsetaefni Republikana, ef
þeir óskuðu þess, en aftók að
verða varaforsti með Nixon.
Hann kvað að vísu nær eng-
ar líkur til að flokkurinn hafn
Framhald á 3. síðu.
I ,
Á skotspónum
V ★ ★ Heyrzt hefur aS dómsmálaráöherra viljl gjarnan breyta
um rannsóknardómara í máli því, sem hefur risiS út af lög-
regluþjónunum. GuSmundur Ingvi Sigurðsson hefur haft rann-
sókn málsins meS höndum. Lögreglustjórinn er miklll skjól-
stæSingur dómsmálaráSherra eins og kunnugt er.
Bætt meðíerð ullar
bls. 9