Tíminn - 10.06.1960, Síða 3
TÍ MI'N N, föstudaginn 10. jóní 1960.
3
Eins og á8ur hefur verið frá sagf í blaðinu, gengust Dráttarvélar h.f. fyrir
því að fá sérfróðan mann frá Massey-Ferguson verksmiðjunum [ Engiandi
hingað til lands, til þess að líta eftir dráttarvélum bænda hér, en eins og
kunnugt er, eru fleiri vélar til af Ferguson-gerð hérlendis en nokkurri
annarri gerð. Hér er mynd af manninum, Stanley Wllllams, ásamt aðstoðar-
manni hans, Kristjáni Hannessyni.
Tilfinninga
líf tvíbura
| Feguröarsam-
keppnin 1960
Fegurðarsamkeppnin 1960
verður háð í Tívolí-garðinum
laugardags- og sunnudags-
kvöld 11. og 12. iúní n.k Eins
og kunnugt er, verður þetta
10 ára afmæliskeppni, og verð
ur vel til hennar vandað í hví-
vetna.
, Þátttaikendur í keppninni verða
10 að tölu, eins og undanfarið, og
hafa þegar verið ákveðnir. Að
þessu sinni verða fjórar stúl’kn-
ar.na utan af landi, eða frá Kefla-
vík, Þorlákshöfn, úr Dalasýslu og
Áinessýs-lu, en hinar sex úr
Reykjavík.
Fyrri daginn koma þær allar
fram í kjólum, sem keppnin lætur
þeim í té, en síðari daginn koma
þær fimm stúlkurnar fram, sem
til úrslita hafa verið valdar, og
klæðast þá baðfötum. Dönsk hár-
greiðsludama frá Hárgreiðslustof-
unni Perlu sér um hárgreiðslu
stúlknanna, en Remedia, sem hef-
ur umboð fyrir Max Factor, sér
um snyrtinguna.
Sá háttur verður hafður á, eins
eg undanfarið, með val stúlkn-
anna, að áhorfendur fá atkvæða-
seðil með inngangsmiðanum og
velja þá þær fimm, sem til úr-
slita koma, og síðari daginn velja
áhorfendur cinnig fegurðardrottn
inguna úr hópi þessara fimm, og
ákveða röð hinna.
Fréttamenn ræddu í gær
við Arvo Lehtovaara, sálfræð-
ing frá Finnlandi, en hann
er einn þekktasti sálfræðing-
ur Norðurlanda og eru sér-
greinar hans erfðasálfræði,
greindarrannsóknir og barna-
sálfræði.
Prófessor Lehtovaara er
fæddur árið 1905. Hann tók
doktorsgráðu í sálfræði 1938
og fjallaði doktorsritgerð
Kjólaþjófur
Tvö innbrot voru framin í
fyrrinótt, en heldur lítil til-
þrif í þeim báðum. Brotizt
var inn í frímerkjaverzlunina
í Lækjargötu 6, og stolið 500
krónum í peningum. Þá var
farið inn í dömubúðina Lauf-
ið, Aðalstræti 18, og stolið
þar nokkrum kvenkjólum að
verðmæti nokkur þúsund
ltrónur, og fáeinum hálsfest-
um. Sennilega hefur þar frem
ur verið kvenhollur karlmað-
ur á ferð en kjólafíkinn kven
maður.
220 þúsund tunnur
(Framh. af 1 síðu).
ar saltsíldar, en óvíst er ennþá
um árangur af þeim tilraun-
um.
Samkvæmt framansögðu
má gera ráð fyrir samningum
um allt að 224 þúsund tunn-
ur af Norðurlandssíld eða sem
svarar rúml. 230 þúsund tunn
um uppsöltuðum. Á s. I. ári
voru saltaðar norðanlands og
austan samtals um 215 þús-
und tunnur.
hans um tviburarannsóknir.
Hann varð docent í sálfræði
við Helsingfors háskóla 1938,
prófessor við háskólann í Jy-
vaskyla 1939 en 1952 gerðist
hann prófessor við Helsing-
fors háskóla.
Prófessor Lethovaara hef-
ur ritað fjölda bóka um sál-
fræði. Hann hefur gegnt
fjölda trúnaðarstarfa i heima
landi sínu, m. a. verið dag-
skrárstjóri útvarpsins í Jy-
vaskyla, ritstýrt tímaritinu
„Uppeldi og skóli“ og er nú
formaður Norræna félagsins
í Jyvaskyla.
Prófessor Lethovaara mun
flytja hér tvo fyrirlestra. Ann
an á fulltrúaþingi kennara-
samtakanna um „Stöðu hag-
nýtrar sálfræði á Finnlandi“
einkum um uppeldislegar ráð
gjafastofnanir og starfs-
fræðsluna í skólum.
Rannsóknir á tilfinningalífi
Þá flytur prófessorinn fyr-
irlestur í háskólanum kl.
20.30 á föstudaginn og talar
þar um rannsóknir, sem hann
hefur gert á tilfinningalífi
manna. Rannsóknirnar, sem
Lethovaara mun segja frá,
gerði hann á eineggja tvíbur
um.
Hann sýndi þeim alls kon
ar myndir og voru svipbrigði
tvíburanna kvikmynduð, er
þeir skoðuðu myndirnar. Kom
þá í ljós, að svipbiúgði tvíbur
anna voru líkari en gerist um
tvo aðra einstaklinga, sem
ekki eru eineggja tvíburar.
Ekki er að efa, að þeir, sem
áhuga hafa á þessum málum
muni nota þetta einstæða
tækifæri til að hlýða á fræði-
Tvanninn. —V.
Átta manna dómnefnd ver’ður
höfð og er verkefni hennar ein-
göngu það að skera úr um vafa-
atkvæði, og hefur úrslitavald ef
tvær stúlknanna verða mjög áþekk
ar að afkvæðatölu.
Dómnefndina skipa: Jón Eiríks-
son, læknir, sem er formaður
nefndarinnar, Ás'dís Alexanders-
dóttir, flugfreyja, Elin Ingvars-
dóttir, leikkona, Guðmutidur Karls
son, blaðamaður, Eggert Guð-
mundsson, listmálari, Jónas Jónas-
son, leikstjóri, Gestur Einarsson,
ljósmyndari og Pétur RÍögnvalds-
son, kvikmyndaleikari.
Rockefeller
(Framh. af 1. síðu).
aði Nixon. Kjarninn í gagn-
rýni hans var, að landvarnir
ríkisins væru i ólagi, einkum
væri vítavert hve Bandarík-
in hefðu dregizt aftur úr í
smíði eldflauga. Hann fór við
urkenningarorðum um Eisen
hower forseta persónulega,
en gaf þó ótvírætt i skyn gagn
rýni á utanríkisstefnu hans.
Með tilliti til þess, að Nix-
on varaforseti hefði átt bein
an þátt í mótun og stefnu
núverandi ríkisstjórnar,
vœri óþolandi fyrir Repu-
blikana, að vita ekki hver
vœri stefna hans l land-
varna og utanrikismálum.
Það vœri skylda hans að
gefa yfirlýsingu um afstöðu
sína., hvort hann fylgdi í
einu og öllu stefnu núver-
andi stjórnar. Ef hann gerði
það ekki, þá yrði hann að
koma með eigin stefnuyfir-
lýsingu.
í kvöld birtu nær allir full-
trúadeildarþingmenn Repu-
blikana í New York ríki yfir-
lýsingu, þar sem þeir sögðust
styðja Nixon, enda hefði
hann einn möguleika til sig-
urs.
Jón Skaftason spyr;
Hver er skýringin ?
Að undanförnu hefur mikið verið skrifað og rætt um ástæð-
urnar fyrir því, að fiskverðið hér á landi til bátanna er langtum
lægra en það er í Noregi. Á Alþingi var, siðustu daga þingsins,
borin fram tillaga um skipun sérstakrar nefndar,
er athuga skyldi ástæðurnar fyrlr hinu lága flsk-
verðl, en hún var felld af stuðningsiiði stlórnar-
innar.
Engar viðhlítandi skýringar hafa fengizt ennþá
hjá þeim aðilum, er annast verkun og sölu vetrar-
vertíðaraflans, á hinu lága fiskverði, og þó er hér
um málefni aö ræða, er alþjóð varðar, og sem
hún á rétt til að fá skýringu á.
í norska blaðinu „Fiskaren", sem út kom 24.
maí s.l., er athyglisverðar upplýslngar að finna um bræðslusildar-
verðið í Noregi á þessu sumri. Þær upplýsingar benda til hins
sama og áður er upplýst um flskverðið í Noregi og á íslandi, sem
sé þess, að ÍSLENZKIR ÚTGERÐARMENN OG SJÓMENN FÁ
LANGTUM LÆGRA VERÐ FYRIR BRÆÐSLUSÍLDINA, EN NORSK-
IR STÉTTARBRÆÐUR ÞEIRRA.
Skv. upplýsingum „Fiskarens" skipta Norðmenn veiðitímabilinu
í tvennt og greiða misjafnt verð eftir því, á hvoru tímabilinu síldin
er veidd. Fyrra veiðltimabilið er frá 15. júní og til og með 7. júli,
en sfðara veiðitímabilið stendur frá og með 8. júií og tll og með 30.
september. Verð það, sem Norðmenn greiða á hektoliter á fyrra tíma
bilinu er þetta:
a) Sild landað í Noregi pr. hektólíter, ísl. kr. 189.57
b) Síld afhent á miðunum [ fiskmóttöku-
skip en mæld í Neregi — — — — 136.17
c) Síld afhent á veiðisvæðinu
og mæld þar — — — — 122.95
Á siðara veðitímabilinu er verðið þetta:
a) Síld landað í Noregi pr. hektóliter, ísl. kr. 205.59
b) Síld afhent á miðunum í fiskmóttöku-
skip en mæld í Neregi — — — — 162.87
c) Síld afhent á veiðisvæðinu
og mæld þar — — — — 146.58
Á báðum veiðitfmabilunum eru 10% dregin frá magni þelrrar
síldar, sem landað er og mæld úti á sveiöisvæðinu.
Verð bræðslusíldar á fslandi er hins vegar eitt og það sama fyrir
allt næsta veiðltímabil kr. 110 á mál EÐA KR. 7<3.33 Á HEKTOLITER.
Hvernig stendur á þessum mikla verðmun?
Jón Skaftason.
V------------------------------------------------------- l
Vinargjöf Norðurlanda
til Eisenhowers forseta
NTB—Washington, 9. júní.
Sendiherrar Norðurlanda í
Washington afhentu í dag Eis
enhower forseta að gjöf bók-
ina: Norðurlönd fyrr og nú
(Scandinavian past and pres-
ent). Vegna anna gat forset-
inn ekki veitt verkinu mót-
töku sjálfur, en það gerði siða
meistari Hvíta hússins, Wiley
T. Buchanan.
Buehanan sagði, að forsetinn vissi
um athöfn þessa og þætti mjög
miður að geta ekki sjálfur veitt
henni móttöku. Hann mæti mikils
menningarlegt framlag Norður-
landa til Bandaríkja Norður-Ame-
ríku,
Thor Thors sendiherra íslands
hafði orð fyrir sendiherrunum
fimim, er bókin var afhent. Hann
mælti m. a. á þessa leið: „Þessi
bók er í þrem bindum, samtals
2150 síður og í henni eru um 1500
myndir. Hún er rituð af færustu
fræðimönnum í hverju hinna
fimm Norðurlanda. Markmið út-
gáfunnar er að kynna sem bezt
sögu, menningu og félagsskipun
Norðurlandanna fimm í Banda-
ríkjunum“.
Þá sagði hann, að bókin væri
gjöf til Bandaríkjaforseta sem
þakklætis- og viðurkenningarvott-
ur Norðurlandaþjóðanna til Banda
ríkjanna fyrir framlag þeirra í
þágu frelsis í heiminum í og eftir
•seinustu heimsstyrjöld. Þá óskaði
hann bandarísku þjóðinni alls
góðs og færði forsetanum persónu
legar árnaðaróskir.
2700 eintök af bókinni hafa ver-
ið send bóka söfnum í Bandarfkj-
unum.
Almennur stjórnmálafundur á Akur-
eyri á mánudagskvöldið
Framsóknarfélögin á Akureyri og í Eyjafirði efna til
almenns stjórnmálafundar í Landsbankasainum næst
komandi mánudagskvöld kl. 8,30. Frummælendur verSa
Ingvar Gíslason, lögfr. Garðar Halldórsson alþm. og
Karl Kristjánsson alþm Akureyringar og Eyfirðingar
eru hvattir til að mæta