Tíminn - 10.06.1960, Side 8
8
TÍMINN, föstudaginn 10. júní 1960.
VETTVANGUR ÆSKUNNA1
RITSTJÓRI: GUTTORMUR SIGBJARNARSON
ÚTGEFANDi: SAMBAND UNGRA FRAMSOKNARMAN.NA
Séra Sigurður í Holti og Hendrik Ottósson sýndu dæmaf áa
þjónkun viö erlend stórveldi í ríkisútvarpinu s. I. mánudag
Andleg starblinda
Annan hvítasunnudag s. 1.
hófu tveir ungir menn, þeir
blaSamennirnit Heimir Hann
esson og Haraldur Hamar nýj
an þátt í dagskrá Ríkisút-
varpsins. Þáttinn nefndu
þei'r: Heima og að heiman.
MeSal annarra viðfangsefna,
sem þeir tóku til meðferðar
voru, njósnir stórveldanna og
heimspólitíkin í dag. Þeir fé-
lagar kynntu þessi mál nokk
uð, en fengu síðan tvo eldri
menn, þá séra Sigurð Einars-
son í Holti og HendriJc Ottós-
soji, fréttamann, til að segja
sitt álit á þeim málum. Ekki
get ég sakfellt þá ungu menn
ina, þó að þeim yrði það á að
lei'ta til sér eldri manna um
álit þeirra á viðhorfi í alþjóða
málum, og þvi siður get ég
áfellzt þá, þó að þeim yrði það
á að kynna þá sem reynda og
kunnuga menn á þessum svið
um. Hitt er svo annað mál,
að engum, sem á þá hlýddu,
gat dulizt það, að annað
hvort hefðu þeir eldri menn-
irnir ekki minnstu þekkingu
á heimspólitik, eða þá senni-
legar hitt, að þeir væru haldn
ir slíkri andlegri starblindu,
að eigin dómgreind væri úti-
lokuð. f stuttu máli sagt, þá
hefur varla nokkur fræðzt
hið minnsta ,um heimspólitík
af málflutningi þeirra félaga.
Því miður séra Sigurður. .
Að vísu kom það engum á
óvart, þó að Hendrik Ottós-
son sæi ekki nema eina hlið
á alþjóðamálum, því að það
hefur verið þjóð kunnugt um
árabil, að hann setur jafnan
upp rauö gleraugu, áður en
hann lítur í kringum sig.
Öðru máli gegnir um séra
Sigurð í Holti. Hann var hér
áður fyrr þekktur fyrir skil-
merkilega fyrirlestra um al-
þjóðamálefni, svo að það
hefði verið hægt að gera sér
vonir um nokkurn fróðleik
úr þeirri átt. Því miður, þá
brugðust þær vonir algerlega,
því að allur málflutningur
hans einkenndist af þröng-
sýni og algeru skilningsleysi
á gangi alþjóðamála.
Þeir báðir félagar, séra
Sigurður og Hendrik, sáu
aðeins aöra hliðina, annar
austur en hinn vesturhlið-
ina. Sigurður virtist mjög
lirifinn af öllum aðgerðum
Bandarikamanna og sá þar
hvergi hina minnstu veilu,
en Hendrik taldi allt gott og
blessað, ef þafi var œttað
frá Rússum, og taldi allar
að.gerðir þeirra sanngjarnar
og réttlátar. Það getur eng
an veginn talizt þekking á
heims'póliták að sjá aðeins
eina hlið á þeim málum, tll
þess eru þau alltof flókin.
Því miður, séra Sigurður,
pólitísk glöggsýni þín hefur
förlast.
Sökin er sjaldnast
á einni hendi
Þegar tveir deila, þá er
það mjög sjaldgæft að annar
aðilinn beri alla sökina, og
það á ekki síður við þegar
stórveldin eiga hlut að máli,
því að engir hlúa betur að sér
og sínum, heldur en einmitt
þau. Það er alveg óhætt að
slá því föstu, að hvort sem
fulltrúar stórveldanna sitji
við samningaborðið eða eiga
í öðrum viðskiptum, þá hugsa
þeir fyrst og fremst um hags
muni þjóðar sinnar. Enginn
skyldi láta sér til hugar koma
að nokkuð stórveldi fórni
hagsmunum sínum eða að-
stöðu á altari smáþjóðanna.
Það ættum við íslendingar
að þekka af biturri reynslu.
Þrjú öfl ráðandi
í heiminum
Síðan í styrjaldarlok hefur
heimurinn skipzt að miklu
leyti í tvær ólikar „blokkir”,
austur og vestur. Þar fyrir
utan stendur svo þriðji aðil-
inn, sem eru nokkur ríki, sem
hvorugum hópnum tilheyra.
Oftast eru þau nefnd hlut-
j lausu ríkin eða smáríkin, þó
1 að hvorugt geti talizt rétt-
i nefni. Þessum ríkjum fer
' fjölgandi, og þau hafa nú á
, síðustu árum gerzt æ áhrifa-
meiri í alþjóðamálum, þó að
J deilur austurs og vesturs setji
í ennþá mestan svip á alþjóð-
i leg viðskipti.
^Stvrjöld er csennileg
| Markalínan milli austurs
og vesturs er orðin svo stað-
bundin, að þar verða engar
breytingar á næst komandi
ár. Ef annar hvor aðilinn
vildi knýja fram breytingar,
þá mundi það kosta heim-
styrjöld, en hvorki Banda-
ríkjamenn eða Rússar óska
eftir heimsstyrjöld, þvi að
þeir gera sér fulla grein fyrir
því, að hún mundi kosta ger- j
eyðingu eftir tilkomu kjarn-,
orkuvopnanna. Hinu má ekki
gleyma, að þeir mundu tapa
stöðu sinni sem verndarar
fylgiþjóða sinna, ef öll styrj-
aldarhætta væri liðin hjá-
Mikið af þeirri styrjaldar-
hættu, sem stórveldin eru sí
og æ að stagast á, er aðeins
áróðursbragð til að sverta
andstæðinginn.
En austur og vestur heyja
styrjöld á öðrum vígstöðv-
um, það er að segja á sviði
efnahagsmála, menningar-
mála og í þjóðfélagsuppbygg
ingu. Á þeim sviðum er öll-
um tiltœkilegum ráðum
beitt til að knésetja and-
stæðinginn, og framtíð
mannkynsins á nœstunni
veltur á því, hvor aðilinn
verði þar ofan á. Baráttan
snýst aðallega um það, hvor
ir eigi að \era leiðandi afl
fyrir smáþjóðirnar.
Kjarnorkuveldin vilja ekki
tapa forréttindum sínum
Á 'S. 1. ári gerðu Bandaríkin
og Sovétríkin mikið til að
draga >úr spennu í alþjóðamál
um og varð þeim allmikið
ágengt í þeim efnum. Báðir
aðilar töldu sér það hentugt
að draga úr hergagnafram-
leiðslunni til að geta beitt sér
af alefli að hinum þáttum
baráttunnar. Þó mun sú stað-
reynd vera þyngst á metun-
um, eð báðir aðilar vilja
bann við kjarnorkuvopnum,
enda höfuðáherzian lögð á
þá hlið málsins. Hvers vegna
bann við kjarnorkuvopnum?
kann margur að spyrja. Því
er til að svara: Ef framleiðsla
kjarnorkuvopna verður ekki
stöðvuð, þá mun á nœstu 5—
10 árum bœíast um tuttugu
nýjar þjóðir við, sem geta
framleitt kjarnorkuvopn, en
við það míssa núverandi
kjarnorkuveldi megnið af
þeim forréttindum, sem þau
nú ha-fa í heíminum.
Áhrif njósnaflugsins
Þessi viðleitni þeirra virtist
ætla að bera góðan árangur,
og bundu menn því miklar
vonir við stórveldafundinn í
París. Þetta fór þó á aðra leið,
eins og flestum er í fersku
minni. Vesturveldin kenndu
Rússum um það, hvernig fór,
en Rússar báru við njósnar-
flugi Bandaríkjamanna.
En var þá njósnarflugið
svona mikilvægt mál, að það
eitt nægði til slikra endaloka
á leiðtogafundinum í París?
Nei, það getur engan veg-
inn talizt það, því að það er
á allra vitorði, sem nokkuð til
þekka, að njósnir eru stund-
aðar á báða bóga, eins og
frekast er unnt.
Samt sem áður er það
harla fátítt á sögunnar
spjöldum, að stjórnarvöld
viðurkenni það opinberlega,
að þau reki njósnir, og því
siður, að þau hafi talið þær
rét'tlœtanlegar og jafnvel
nauðsynlegar vegna varna
heimalandsins, eins og
Bandaríkjamenn gerðu. Slík
opinber tortryggni rétt fyrir
leiðtogafundinn og þverbrot
á sögulegum hefðum voru
mjög móðgandi i garð Sovét
ríkjanna, og gáfu þeim
ágœtt tœkifœri til að vera
dýrkeyptir, þegar til fundar
ins kom, enda notuð.u þeir
sér það til að valda ágrein-
ingi.
Þráti fyrir það munu allt
aðrar ástœður liggja til
grundvallar fyrir því, hvern
ig leiðtogafundinum Ivktaði,
enda voru þaS Rússar, sem
hófu úlfaþytinn um njósnar
flugið til þess eins að reita
Bandaríkjamenn til reiði.
Hvers veqna fór þá leiðtoqa-
fundurinn út um búfur?
Hinar raunverulegu ástæð
ur fyrir því, að leiðtogafund-
urinn fór sem fór eru vafa-
Iaust margar, og þeirra er að
leita jafnt austan tjalds sem
vestan.
Bæði i Sovétríkjunum og
Bandaríkjunum eru ríkjandi
sterk öfl, sem ekki æskja
þess að slakað sé á í alþjóða
málum. Stalinistar í Sovétríkj
unum og hergagnaframleið-
endur í Bandaríkjunum óska
ekki eftir bættri sambúð
þjóða í milli.
Höfuðástœðan fyrir þvi,
hvernig leiðtogafundurinn
fór, hygg ég þó vera þá,
hvort Kína ætti að fá aðild
að alþjóðasamtökum, svo
sem Sameinuðu þjóðunum.
Rússar hafa œtíð krafizt inn
töku þeírra í Sameinuðu
þjóðimar, og hafa sett það
að skilyrði fyrir afvopnunar
samningum. Allar líkur
benda- til þess, að Banda-
ríkjamenn hafi verið búnir
að fallast á aðild þeirra.
Þrátt fyrir það reyndust
þeir jafn ósveigjanlegir síð-
ast liðinn vetur á allsherjar
þinginu. Þessu svöruðu Rúss
ar með þvl að gera leiðtoga-
fundinn verri en árángurs-
lausan.
Aðild Kínverja aS
alþjóðasamtökum
Afvopnunarsamningar verða
aldrei gerðir án þátttöku Kín
verja, enda koma slíkir samn
ingar ekki til greina án aðild
ar fjölmennasta ríki verald-
ar, þar sem þeir eru ennfrem
ur eitt mesta herveldið. Jafn
framt má ekki gleyma því, að
Sovétríkin ráða ekki yfir
Kína, og þeir óttast Kínver.ia
jafnvel meira en Bandaríkin
Þeir eru heimsfriðnum
hættulegastir
Að lokum vildi ég minnast
lítið eitt á málflutning þeirra
séra Sigurðar og Hendriks.
Eins og ég hef áöur drepið á,
áttu þeir það sammerkt, að
telja annan deiluaðila bera
alla sök á deilunni en hinn
alsýknan, og ekki bætti Morg
unblaðið úr skák með þvi, sem
það birti úr umræðum þeirra
s. 1. miðvikudag. Málflutning
ur þeirra félaga var alveg
talandi tákn þess, hvernig
stórveldin óska sér, að fólkið
hugsi, því að slíka menn er
hægt að leiða i blindni út í
hvaða gerræði sem er. Það er
einmitt þetta, sem þau éru
að berjast um, að fá sem flest
ar auðtrúa sálir til að hylla
sig gagnrýnislaust.
Það eru einmit-t þanni'
hugsanagangur, sem ei
heimsfriðnum hœttulegast ■
ur ,þvi að skynsamleg gagn-
rýni er það, sem stórveldi og
(Framhald á 15. síðu).
/