Tíminn - 10.06.1960, Síða 11
1!
TÍMINN, föstudaginn 10. júní 1960.
Unga fólkið gefur því
gamla ekkert eftir
Skömmu fyrir hvíta-
sunnu hitti fréttamaður frá
blaðinu Guðmund Finn-
björnsson, en hann stjórn-
ar einhverri vinsælustu
gömludansahljómsveit bæj
arins í Þórskaffi. Þar sem
lítið er minnzt á gömlu
dansana í blöðunum datt
fréttamanni í hug að rabba
eilítið við Guðmund.
— Segðu mér svona til að
byrja með, Guðmundur, hvað
hefur þú fengizt lengi við hljóð
færaleik?
— Ég hef spilað meira eða
minna í 20 ára.
— Byrjaðir þú hér í Reykja-
vík?
— Nei, ég byrjaði heima á
ísafirði, og hélt áfram eftir að
ég fluttist hingað suður, og
stunda þetta með skrifstofu-
starfi mínu í Landssmiðjunni.
— Þú ert með hljómsveit
í Þórskaffi um þessar mundir,
hefur þú verið lengi þar?
Hér er hljómsveit Guðmunndar
ásamt söngvara og dansstjóra.
— Ég hef leikið í Þórskaffi
síðan í haust, tvö kvöld í viku,
fimmtudaga og laugardaga,
K.K. er hin kvöldin. Annars lék
ég oft í gamla kaffinu.
Unga fólkið gefur því
gamla ekkert eftir
— Segðu mér eitt Guðmund-
ur„ finnst þér unga fólkið vera
farið að sækja gömlu dansana
meira en það hefur gert undan
farin ár?
— Já, það siekir gömlu dans-
ana miklu meira en það hefur
gert og gefur því gamla ekkert
eftir. Svo get ég sagt þér ann-
að það fólk, sem sækir gömlu
dansana kemur með það eítt
fyrir augum að dansa, og er
áberndi hvað minna er um ölv-
un heldur en á böllum þar sem
nýju dansarnir eru, fólkið, sem
kemur til okkar hefur ekki
tíma til að drekka. Dömufríin
hafa líka sitt að segja, þær
geta boðið upp hvaða herra
sem er, og þeir, sem eru ófram-
færnir, komast ekki hjá að
dansa. Þannig skapast stemmn-
ing, og ég held að óhætt sé að
segja, að enginn fari heim án
þess að hafa dansað minnst
eina syrpu. Dansstjórinn hefur
líka sitt að segja, hann „start-
ar“ dansinum og kemur stemmn
ingunni í fólkið.
— Hvernig er hljómsveitin
þín skipuð?
— Við erum sex með: píanó,
gítar, trommur, tvær harmon-
ikur og ég leik á saxófón og
bassa. Söngvari er Gunnar Ein-
arsson, en dansstjóri er Baldur
Gunnarsson.
Við eigum marga
góða höfunda
— Hvernig er það, eru ekki
alltaf að bætast við ný og ný
lög, eða eru gömlu lögin alltaf
vinsælust?
— Að vísu eru mörg af þess-
um gömlu lögum orðin sígild,
en stöðugt bætast ný við. Við
eigum líka góða höfunda, og
má þar fyrst og fremst nefna
Jan Morávek, Meðan ég man,
þá ætla ég að segja þér um
þessar mundir á Þórskaffi 15
ára afmæli, ég meina fyrirtæk-
ið sjálft, ekki staðurinn. Það
eru 15 ár síðan kaffið var opn-
að á gamla staðnum við Hlemm
torg, og ég vildi segja, að allan
þennan tíma hafi kaffið verið
einhver vinsælasti almennings-
dansstaður bæjarins. Og ég
hugsa að þú hafir líka gaman
af að fara niður í útvarp núna,
K.K. er að leika inn á nýjar
flötur með þeim Elly og Óðni.
upptökusal útvarpsins
skömmu síðar
Fréttamaður hefði að vísu
mátt vera fyrr kominn niður í
útvarp þar sem upptökunni var
lokið er hann kom á vettvang.
f sárabætur bauð Kristján upp á
kaffi í kaffistofu útvarpsins.
— Er þetta ekki í fyrsta sinn
sem Ellý syngur inn á plötu?
— Já og nei, að vísu er þetta
fyrsta platan hennar sem hún
syngur einsöng á, en hún hefur
nokkrum sinnum áður sungið
með á plötum. Lögin sem hún
söng hér áðan, heita: „Við haf-
ið“, ítalskt lag með íslenzkum
texta eftir Pálmar Ólason, og
annað ítalskt „CeraseIIa“, með
texta eftir Jón Sigurðsson. Óð-
inn söng hér líka inn á plötu
áðan og lögin voru: „Ég er kom
inn heim“ þýzkt lag, og „14
ára“ heitir hitt, og er lagið
amerískt og .heitir á frummál-
inu: „Rin—a—Iing—a—lario“,
og hefur Jón Sigurðsson einnig
samið við það textann.
— Þú lékst með á plötunni,
sem Ragnar Bjarnason .söng
inn á í Höfn.
— Já, önnur af tveim er kom
in hér á markaðinn. Ég hafði
mjög gaman af að fá tækifæri
að leika með kollegum mínum
þar, og einnig að sjá hvernig
þeir leika inn á plötur. Ég verð
að segja það, að ég er töluvert
spenntur að heyra hvernig hin
platan hefur tekizt. Þú hefur
kannski gaman af að vita
hvernig við tókum þessi lög
upp hér áðan, þar sem upptak-
an er öðruvísi en vanalega.
Fyrst tókum við upp hljóm-
sveitina, síðan gítarleikinn eða
effect, síðan tökum við upp
samsönginn og allra síðast ein-
sönginn. Þetta gerum við af
Þessi mynd er af félögum úr K.K.-
sextettinum, tekin á upptökunni í
útvarpinu, talið frá v.: Krlstján, Jón
Páll, Óðinn, Jón Sig. og Ellý.
tæknilegum ástæðum, sem yrði
of langt mál hér, en þó er hægt
að segja að með þessu móti ná-
ist betri árangur. Það var
Knútur Skeggjason, magnara-
vörður, sem annaðist upptök-
una okkar nú.
Á laugardögum út
á land
— Guðmundur Finnbjarnar-
son var að segja mér áðan að
um þessar mundir sé Þórskaffi
15 ára. Segðu mér 1 því sam-
bandi, hefur þú leikið þar
lengi?^
— Ég kom fyrst í Þórskaffi
með sextettinn 1954, ári seinna
fórum við til Þýzkalands, og
þegar við komum heim, byrj-
uðum við aftur þar, og höfum
leikið þar mikið síðan. Eitt
verð ég þó að segja, að þó að
gaman hafi verið að spila í
gamla kaffinu, þá er ólíkt betra
að vera í því nýja, þar eru
vinnuskilyrði mun betri. í
betra hús kemur betra fólk.
— Er búið að skipuleggja
sumarið?
— Já, við munum leika fimm
kvöld í viku í Þórskaffi, en á
laugardögum förum við í .sveit-
ina, og er ætlunin að heim-
sækja nýja staði og ný sam-
komuhús eins og t.d. Snæfells-
nes og einhvern hluta af Norð-
urlandi og jafnvel heimsækja
heimabæ Óðins, Akureyri.
jhm.
Fimm herbergja íbúð
til leigu í Grafarholti, Mosfeilssveit. Upplýsingar',
í síma 35270 alla virka daga frá kl. 10—4,30.
Hestamannafeiagið Neisti
AKRANESI
Val á góShestum til þátttöku í fjórðungsmóti að
Ferjukoti 16.—17 júní n. k fer fram á skeið-
velli félagsins laugardaginn 11. júní k:. 8,30 síðd.
Mætið allir á hestunum.
Stjórnin.
KIAPPARSTIG 40 --- SlMI 194 41
9 ára drengur
óskar eftir að komast á gott
sveitaheimili í sumar — Upp-
lýsingar • síma 18920.
AugSýsing
um veitingu gjaldeyris- og innflutningsleyfa
fyrir bifreiðum —
Ákveðið hefur verið í samráð? við viðskiptamála-
ráðuneytið, að fyrst um sinn verði leyfi fyrir bif-
reiðum frá Sovétríkjunum og Tékkóslóvakíu veitt
án takmarkana. Gildir þetta um allar tegundir bif-
reiða, sem háðar eru leyfum þar á meðal jeppa.
Þeir, sem vilja flytja inn bifreiðir frá þessum lönd-
um. geta því sniuð sér beint tii undirritaðra banka
og fengið leyfi.
Reykjavík, 7. júní 1960.
Landsbanki Islands, Viðskiptabanki,
Útvegsbanki íslands