Tíminn - 24.07.1962, Blaðsíða 3
Tugir manna fórust í
járnbrautarslysi í gær
NTB-Dijon, 23. júlí.
MikiS járnbrautarslys
varð í dag náiægt Dijon
í Austur*Frakklandi, er
hraðlestin milli Parísar
og Marseille rann af spor>
inu og niður í djúpt gil.
Slysið varð skömmu
eftir aö lestin kom út úr
löngum jarðgöngum og
var aö renna út á brúna
yfir Ouehe-á, um 12 km
Bretar á göngu
Framhald ai 16. síðu.
göngu hér í Reykjavík í gær,
upplýsti Landhelgisgæzlan,
að ckkcrt herskip væri hér
við land nema Palliser, sem
var hér í Reykjavík á föstu-
dag. Frekari eftirgrennslan
leiddi svo i ijós, að það
hafði vcrið á ferð við Hofs-
ós á fyrrgreindum tíma og
látið einn liðsforingja og
níu óbreytta sjóliða í land.
Þessir tíu menn áttu síðan
að þreyta tuttugu og fjög-
urra tíma göngu i æfinga-
skyni, en Palliser að taka
þá um obrð að henni lok-
inni.
Þessar æfingar fara fram
með leyfi íslcnzkra stjórnar
valda.
Landganga þessi vakti
sem sagt nokkra undrun á
Hofsósi, þar sem enginn
vissi hcnnar væri von, þar
sem cnginn hafði verið lát-
inn vita á staðnum.
Frægasta landganga enskra
manna á Höfðaströnd vcrð-
ur eftir sem áður sú, sem
cndaði við Mannskaðahól á
15. öld.
frá Dijon. Fréttir um dána
og særða voru mjög á
reiki og bar hjálparsveit-
um og opinberum aðilum
ekki saman, en seint í
gærkveldi var opinber-
lega tilkynnt, aö 47 hefðu
fundizt iátnir og 46 slas-
aöir, en búizt var við, aö
þessar tölur ættu eftir aö
hækka, þar sem björgun-
arstörf stóöu enn yflr í
gærkveldi.
Sex öftustu vagnar lestarinnar,
runnu af sporinu, en sjöundi vagn
inn féli út af brúnni, sem er um
50 metra há.
Kaupstaöarferð sfyttist
Fr-nihald al 16 síðu
var bundið að flytja efni til bygg-
ingarinnar, er. það er alls um 240
lestir. Þó var ákveðið að lokum
að flytja efnið landleiðis frá Höfn
í Hornafirði vestur að Jökulsá og
freista þess að koma brúarefninu j
þaðan yfir Jökulsá, er hún stæði
uppi að vetrarlagi. Mestan veg og
vanda af flutningunum hefur Haf-1
steinn Jónsson, verkstjóri á Höfn i
i Hornafirði haft og svo birgða-
vörður áhaldahússins í eRykjavík, I
Kristján Guðmundsson.
Mælingar og teikningar af brú ’
þessari hafa verkfræðingarnir Sig-
fús Örn Sigfússon og Björn Ólafs-I
son gert undir yfirumsjón Arna |
Pálssonar yfirverkfræðings. Jónas
Gislason hefur verið verkstjóri við
brúarsmíðina. en Þorsteinn Jó- j
hannsson á Svínafelli var verk-
stjóri við vegagerðina að og frá1
brúnm
Áætlað er að biúin kosti um 3
milljónir króna.
Tveir af starfsmönnum lestar-
innaT hlupu til næsta bæjar og
báðu um hjálp.
Umfangsmikil björgun
Slysið varð klukkan hálftólf í
morgun eftir íslenzkum tíma.
Með snarræði tókst að stöðva
tvaér hraðlestir, sem voru á leið
eftir sömu járnbrautarlínu, rétt
áður en þær voru komnar að slys
staðnum.
Brunalið, fjölmennt lögreglulið,
björgunarsveit járnbrautarinnar
og fjöldi annarra björgunar-
manna komu fljótlega á vettvang
og hófu björgunarstörf.
Allir tiltækir sjúkrabílar í ná-
grenninu voru sendir á slysstað-
inn, og umferð á þjóðveginum
Akiö sjáíf
nýjum bíl
Almenna bifreiðaleigan h.f.
Hriilgbrauf 106 — Simi 1513
ICeflavík
AKIf)
SJÁLF
NÝJUM íSÍL
ALM. ISIFREIHALFJGAN
Kte^ar?!ig 40
Sf Ml 13776
Síld á SiglufirSi
Framhald af 5. síðu.
þeir fara að vekja upp menn til
þess að útvega ís og annað. Kaup
endurnir keppast um beztu síld-
ina, jafnvel svo lengi, að síidin
er ekki lengur söltunarhæf, þeg-
ar niðurstaða er fengin.
Einn útgerðarmaðurinn flýtti
sér norður, þegar aflahrotan byrj-
aði þar, til þess að greiða fyrir
löndun báta sinna. Skipstjórarnir
hans voru orðnir hálfvitlausir af
taugaæsingi, og það endaði með
því, að útgerðarmaðurinn flúði
staðinn í fyrrakvöld, til þess að
forða sér frá taugaáfalli.
' Skipulagsleysið er einkennandi
fyrir síldaráthafnasvæðið á Siglu-
fifði. Söltunarstöðvarnar, eru yfir
22, hver ofan i annarri, og verk-
smiðjurnar eru greinilega reistar
eftir hendinni á einni nóttu. Þann
ig ber Siglufjörður að vissu leyti
svip gullgrafarabæjar, og stund-
um finnst manni, að vélarnar
hljóti að bræða úr sér á hverju
augnabliki, þær séu ekki nógu
sterkar fyrir þessa stanzlausu
toppkeyrslu. En ef eitthvað bilar,
þá eru snarir viðgerðarmenn fljót-
ir að kippa í liðinn.
íbnðarliúsið Jaðar í Dalvík
ásamt útihúsum til sölu.
Tilboðum sé skilað fyrir 15 ágúst til Sveins Jó-
hannessonar, Karlsrauðatorgi 16, Dalvík er gefur
nánari upplýsingax*.
HAFNSÖGUMADUR
Starf hafnsögumanns í Hornafirði er laust til um-
sóknar frá 15. september 1962
Umsóknir, ásamt launakröfum og upplýsingum um
fyrri störf, sendist undirrituðum fyrir 31. ágúst n.k.
Sveitarstjóri Hafnarhrepps
Sigurður Pálsson
milli Parísar og Dijon var stöðv-
uð til þess að koma í veg fyrir
tafir sjúkrabíla. Öll sjúkrarúm á
héraðssjúkrahúsinu í Dijon fyllt-
ust af slösuðu fólki á skammri
'Stundu, en þeim, sem minna voru
meiddir, var komið fyrir á sjúkra
húsum í nágrannahéruðum.
27MANNS
FARAST I
FLUGSLYSI
NTB-Honululu, 23. júlí
Kanadísk Turbo-Prop farþega-
flugvél af gerðinni Britannía, hrap
aði scint á sunnudagskvöldið til
jarðar, skannnt frá flugvellinum í
Honululu og að minnsta kosti 27
af 40 farþegum létu lífið. Slysið
varð klukkan kortér yfir níu eftir
íslenzkum tíma, um 40 mínútum
eftir að flugvélin hafði lagt af
stað til Sidney í Ástralíu.
Sjónarvottar skýra svo frá, að
flugvélin hafi snúið við, og er hún
var rétt í þann mund að lenda,
mun hún hafa rekizt á skurðgröfu,
eða annað jarðvinnslutæki við
flugbrautina. Sprenging hvað við,
og flugvélin steyptist brennandi til
jarðar um 150 metra frá flug-
braut, sem ætluð er herflugvélum.
Hjálparsveitir komu fljótt á vett-
vang og fluttu látna og slasaða á
sjúkrahús í Honululu.
200 komin vestur
Ag endingu fórum við upp í
gamla bústað Bjarna Þorsteins-
. sonar, þar sem síldarleitin er til
húsa. Þar hittum við Lúðvíg Vil-
hjálmsson, fyrrverandi togaraskip
stjóra, við senditækin. Við setj-
umst niður og hlustum á. Jón
Finnsson er að kasta á Skaga-
grunni. Köstin eru mjög stór. —
Flestir bátarnir eru á Skagagrunni j
eða út af því, en færri nú orðið j
við Kolbeinsey. Þangað er miklu '
lengra. Stóra síldin er utar, en
sú smærri innar og með meiri
rauðátu. — Það eru yfir 200 skip !
komin á vestursvæðið, segir j
Lúðvíg.
Við förum út á hól, eftir hálfs
annars tíma dvöl. Sveinn tekur
vélina á loft, hnitar nokkra hringi
yfir Siglufirði, og síðan er flogið
vestur. Þótt bátarnir séu margir,
er mikið bil á milli þeirra úr lofti
séð. Sumir stíma en aðrir að veið í
um.
Gengur varla inn
Sigurður, á Hrafni Sveinbjarn-
arsyni hafði verið spurður að því,
hvort hann héldi, að fyrir norðan I
mundi gerast hið sama og fyrir.
austan, síldin gengi inn firðina 1
— Það efast ég um, sagði hann,
— það er öðruvísi botngróðnr
hérna, — og síldarleitin efast um
það líka. j.kr. I
Laosdeðan
úr sögunni
NTB-Genf, 23. júlí !
í morgun l.auk 14-ríkja ráðstefn-
unni i Genf um Laos, sem alls hef-j
ur starfað 1 14 mánuði, með því!
aðutanríkisráðherrar þátttökuríkj- ■
anna rituðu undir endanlegt sam-j
komulag um hlutleysi hins fyrr-j
verandi indókínverska konungs-:
dæmis, Laos, og tekur nú þingræð j
isstjórn við ''öldum í landinu, und j
ir forystu Souvanna Phouma, j
prins og foringja hlutlausra í Laos. j
Lifðu af veturinn
Fyrra laugardag fór Sæmund
ur Úlfarsson bóndi að Heylæk
í Fljótshlíð að smala fé inn á
Fljótshlíðarafr.étti. Fann hann
þar á meðal gemsa, sem geng-
ið hafði úti I vetur. Voru kind-
urnar I ótrúlega góðu ásig-
komulagi.
Ærin er frá Guðjóni á Uxahrygg
á Rangárvöllum, og mun hafa ver-
ið rekin inn á Rangárvallaafrétt i,
fyrravor, ?n síðan runnið yfir á
Grænaf jal) og gengið þar úti i vet- j
ur. Kindurnar voru í öllu reifi og
mjög vel útiítandi. að sögn Sæ-
mundar.
Veturinn var mjög kaldur og
snjóasamur til fjalla og þykir því
furðu sæta, að kindurnar skyldu.
Síldarskipin sökkhlaöin
Framhald, ai 1. síðu
og var ekki hægt að salta nema
cfstu lögin úr skipunum.
í gærmorgun var vitað um
92 skip, sem fengið höfðu 80.000
mál og tunnur, þar af höfðu 18
skip með 10.500 mál og tn. til-
kynnt síldarleltinni á Seyðisfirði
um afla sinn.
Sildarbræðslan á Skagaströnd
hefur nú tekið til starfa. Þar hef
ur verið tekið á móti 24 þúsund
málum, en enn þá eru óbrædd 10
þúsund mál. Alls taka þrær verk
smiðjunnar á móti 28 þúsund
málum.
Stöðug löndun var á Siglufirði
í gær, og um kl. 18,30 biðu enn
þá 10 skip löndunar. Þar var salt
að í 7938 tunnur í gær, og saltað
á öllum söltunarstöðvum.
í gær komu 9 skip til Dalvík-
ur með samtals 5880 mál og tunn
ur, þar hefur nú verið saltað í
6290 tunnur.
Söltun hefur gengið vel á
Húsavík fram til þessa. Þar var
saltað í 1500 tunnur á sunnudag-
inn, en i gær var alls búið að
salta í rúmlega 7800 tunnur. Ver
ið hefur að stækka síldarbræðsl-
una á Húsavík. Þar eru nú allar
þrær fullar, og verður ekki hægt
að halda áfram söltun fyrr en
bræðslan er kominn í gang, en
gert var ráð fyrir að hún verði
reynd í dag.
í gærkvöldi voru bátarnir farn
ir að kalla til síldarleitarinnar á
Raufarhöfn og tilkynna komu sína
til lands. Síldar hafði orðið vart
á geysi stóru svæði og búizt við
| miklum afla þegar líða tæki á
, nóttina. Óhemju mikið hefur ver
ið unnið á Raufarhöfn undan-
farna daga, og mun þar hafa ver
ið saltað í um 4000 tunnur í gær,
og var heildarsöltunin komin í
um 60 þúsund. Er það meira
magn en heildarsöltunin á öllu
síðasta sumri. Síldin er( yfirleitt
svo feit, að ekki er hægt að salta
nema efstu lögin í hverju skipi,
því síldin er yfirleitt orðin nokk
uð kramin þegar neðar dregur.
Menn eru að verða búnir að
losa höfnina á Vopnafirði. Nóg
er um síld út af Austfjörðum, og
skipstjórum, sem komið hafa til
Vopnafjarðar virðist bera saman
um það, að þeir hafi aldrei séð
jafnmikla síld og verið hefur þar
undanfarna sólarhringa. Unnið
hefur verið stanzlaust undanfar-
in dægur, og virðist ekkert lát
vera á.
Saltað var úr nokkrum bátum
á Seyðisfirði í gær. Þangað voru
komnir togararnir Freyr, Geir og
Pétur Halldórsson og biðu eftir
að taka síld til flutnings til hafna
fyrir norðan. Verið var að lesta
í síldarflutningaskipið Unu, en
gekk fremur hægt, þar eð lítil
síld barst að. Ekki er sildarbræðsl
an enn komin í gang.
í gær var sólarhrings löndunar-
bið á Neskaupstað, þar hafði ver-
ið tekið á móti 5000 málum í
bræðslu síðasta sólarhringinn. Þar
segja menn, að aldrei hafi verið
jafn mikið af síld jafn nálægt
landi og í þessari siðustu síldar-
j hrotu. Ekki er venja að síld veið-
ist á þessu svæði fyrr en í ágúst,
j þegar síldin fer að ganga af mið-
unum fyrir norðan land, svo að
menn búast við að síldin eigi eftir
að vaða fyrir Austufjörðum aftur
í sumar.
ekki vera verr á sig komnar, en
Sæmundur sagði, að þær hlytu að
hafa komizt i gott einhvers stað-
ar
í þessari sömu ferð urðu menn
varu við tófugreni, og var það
tinnið. í greninu voru 4 yðlingar
og eitt fullorðið dýr. Nokkuð mik-
ið hefur verið um tófu I Fljóts-
hlið undanfarin tvö ár, og kemur
hún í heimahaga og gengur heim-
undir bæi á veturna.
Einnfg urðu menn varir við
riúpu með unga. en það hefur ekki
sézt að kalla nokkur undanfarin
ár.
T í M LN N, þriðjudagurinn 24. júlí 1962. —
3