Tíminn - 24.07.1962, Page 9
Jóhannes stundaði nám við Gagn1
fræðaskólann á Akureyri og lauk
síðan teiknikennaraprófi frá Hand-1
íðaskólanum. Starfaði hann eftir!
það um skeið sem teiknikennari í ;
Reykjavík. Síðan vann hann nokk-1
ur ár á skrifstofu Sambands ís-1
lenzkra samvinnufélaga, unz hann
var ráðinn skrifstofustjóri full-
trúarráðs Ffamsóknarfélaganna í
Reykjavík. Því starfi sagði hann
lausu 1960, er hann gerðist auglýs-'
ingastjóri Vikunnar, og gegndi
hann því starfi til dauðadags.
Jóhannes Jörundsson var bráð-
greindur maður og atorkusamur
starfsmaður að hverju sem hann
gekk.
Á unglingsárum sínum stundaði
Jöhannes sjó á vélbátum. Minntist
hann þeirra starfa jafnan með mik-
illi ánægju, og leyndi það sér ekki,
að hugur hans stóð mjög til sjó-
sóknar og útgerðar. Átti hann
raunar ekki langt að sækja þann ^
áhuga, þar sem hann átti ættir'
að rekja til landsfrægra sjósókn-
ara og útgerðarmanna við Eyja-
fjörð.
Skrifstofustörf voru of þröngur
stakkur fyrir þá miklu athafna-
þrá, er Jóhannes bjó yfir. Störf,
er enn meira reyndu á persónulegt
framtak, áttu betur við hann. Hann
vildi hafa viðfangsefni, sem hann
þurfti að takast á við.
Jóhannes Jörundsson var einn
af forustumönnum í hópi ungra
Framsóknarmanna. Hann var kjör-
inn í stjórn Sambands ungra Fram-
sóknarmanna árið 1956 og átti
þar sæti síðan. Sem stjórnarmaður
í þessum samtökum og sem starfs-
maður Framsóknarfélaganna hér
f Reykjavík vann Jóhannes þýðing-
armikið starf fyrir Framsóknar-
flokkinn, sem seint mun verða
fullþakkað.
Jóhannes var listfengur og unni
fögrum listum, einkum þó málara-
list og tónlist. Sjálfur var hann á-
gætur teiknari, en hafði of lít-
inn tíma aflögu frá daglegum störf
um til þess að sinna þeim hugðar-
efnum sínum sem skyldi.
Enn er þó ótalinn mestur og
beztur mannkostur Jóhannesar
Jörundssonar, en það var góðvilji
hans og rík löngun til að veita öðr-
um liðsinni. Eg hef fáum mönn-
um kynnzt, sem höfðu jafn mikla
ánægju af því að greiða götu ann-
arra og Jóhannes, enda veit ég með
vissu, að þeir eru margir vanda-
lausir sem kveðja hann með sárum
söknuði.
söknuði, þótt söknuðurinn sé sár-
astur hjá þeim nánustu.
Jóhannes var kjarkmaður, og
lét ógjarnan undan síga fyrir erfið
leikum, sem á vegi hans urðu. Það j
er til marks um kjark hans og;
manndóm, að þótt honum væri
fullljóst ^lt frá unglingsárum, að
læknar spaðu honum ekki langlífi,
einsetti hann sér að bera þá byrði
einn og hlífa ástvinum sínum við
því að fylgjast með heilsufari sínu.
eins og það raunverulega var
Hanu fylgdist hins vegar sjálf-
ur með framþróun læknavísind-.
anna á sviði hjartasjúkdóma og i
var ákveðinn til hinztu stundar
að ganga undir skurðaðgerð erlend !
is, þegar þess yrði kostur. Fór
hann til Danmerkur fyrir nokkr-
um árum til rannsóknar.
Jóhannes var góður heimilis-1
faðir, og var einnig ánægjulegt að j
heyra, hve mikla umhyggju hann
bar fyrir móður sinni og systkin- j
um, en þar á milli var innilegt j
s-amband, eins og bezt má verða. !
Jóhannes lagðist í sjúkrahús 1.
maí sl. og átti þaðan ekki aftur-
kvæmt. Kjarkur hans bilaði aldrei
í hinni erfiðu sjúkdómslegu.
Við fráfaii Jóhannesar Jörunds-
sonar er einum færra af ungum
mannkostamönnum meðal okkar.
Sjálfur trúði Jóhannes því, að fram
hald væri á lífi manna, þótt þeir
hyrfu héðan. og hafði reynsla hans
fært honum sannanir í þeim efn-
um, sem hann treysti.
Jóhannes kvæntist árið 1952 Þór-
eyju Skúladóttur, ágætri konu, og
eiga þau fjögur börn. Heimili
þeirra er með myndarbrag, og þar
var gott að koma.
Við hjónin þökkum Jóhannesi
Jörundssyni góðvild hans og vin-
áttu, sem aldrei bar skugga á. Konu
hans og öðrum ástvinum vottum
við dýpstu samúð.
Kristján Thorlacius
Þótt dauðinn sé það atrið'i hins
eilífa hringleiks tilverunnar, sem
flestum er hversdagslegra og meiri
nauðsyn á, er hann þó sá gesta
er sízt er velkominn og aldrei verð
ur vanizt; ævinlega eru veigar hans
jafn beiskar og svipuhöggin sár.
Aldrei þó sárari en „þegar öflgir
ungir falla“, þá er „sem sígi í ægi
sól á dagmálum.“
Jóhannes Jörundsson hlaut að
yfirgefa þennan heim í blóma lífs-
ins; hann var á þeim aldri er
eldur æskunnar enn brennur glatt
á arni sálar, en hugur og hönd
hafa jafnframt mótazt af marghátt-
aðri reynslu hins fullorðna manns.
Aldrei er maðurinn líklegri til af-
reka en á því æviskeiði.
Okkur, sem áttum því láni að
fagna að njóta félagsskapar og
samstarfs Jóhannesar heitins, mun
hann seint úr minni líða. Hann var
glæsimenni í sjón og raun, list-
fengur með ágætum og atorku-
maður til allra starfa. Hverjum
manni var hann betur máli farinn;
munum við félagar hans í samtök-
um ungra Framsóknarmanna lengi
minnar f rábærrar frammistöðu
hans á fundum og mannamótum.
Þar naut hann sfn vel, skýr í orði
og rökfastur og hreif áheyrendur
með þeirri heilbrigðu baráttugleði,
er einkennir hvern djarfan mann.
Hörð átök fyrir opnum tjöldum
an, sem eitruðum vopnum vegur
voru honum vel að skapi; atferli
þeirra, er halda þann dreng bezt-
úr skúmaskotum, fyrirleit hann
að verðleikum.
Ungur skipaði Jóhannes sér und-
ir merki Framsóknarflokksins og
starfaði síðan í þágu hans af frá-
bærum dugnaði og ósérhlífni. Var
hann um skeið erindreki flokksins
og gegndi einnig margvíslegum
störfum öðrum á vegum hans. Mun
varla ofmælt, að með honum hafi
flokkurinn misst eitt sinna glæsi-
legustu foringjaefna.
Hér skulu þó ekki raktar harma-
tölur, enda mundi slíkt sízt að
skapi Jóhannesar sjálfs; að hætti
sannra karlmenna veitti hann glað-
ur og reifur viðtöku gjöfum skapa
norna, hvort heldur þær voru góð-
ar eða illar. Með þeim hug mun
hann og hafa lagt upp í sína hinztu
ferð.
Jóhannes! Jafnframt því, að ég af
heilum hug tek þátt í harmi fjöl-
skyldu þinnar og frænda, sé ég
þeim huggun búna í þeirii full-
vissu, að maður sem þú verðir j
aldrei algert herfang dauðans.'
Áfram muntu lifa í hugum okkar
allra, sem þekktum þig, eiga hlut-
deild í sál okkar, verund okkar. Að
fullu verðurðu aldrei frá okkur
tekinn.
Far heill, vinur, til fegurri ver-
aldar.
Dagur Þorleifsson
Voru því kynni okkar allnáin
þann tíma, er hann starfaði hjá
fulltrúaráðinu. f því starfi nutu
sín vel frábærir skipulagshæfileik
ar Jóhannesar og framúrskarandi
dugnaður hans. Hann var ákafa-
maður mikill og gerði miklar
kröfur til okkar samherja sinna,
en þá ekki síður til sjálfs sín.
Hann vildi vinna verkið strax en
ekki fresta því til morguns, enda
hefur hann eflaust lengi grunað,
að honum væri ekki ætlaður lang-
ur vinnudagur { þessu lífi.
Eins og þeir vita bezt, sem
reynt hafa, kynnast menn náið í
stjórnmálabaráttu og þvi tel ég
mig hafa þekkt Jóhannes heitinn
vel, enda þótt kynnj okkar yrðu
ekki svo ýkja löng. Fyrir störf
hans á þessum vettvangi vil ég
hér með leyfa mér að þakka, jafn
framt því sem ég flyt honum að
leiðarlokum hugheilar þakkir mín
ar fyrir samstarf okkar og sam-
skipti.
Jóhannes var maður ákveðinn í
lund, geðríkur nokkuð og fylgdi
fast eftir þeim málkstað, er hann
taldi réttan. Því hlaut hann á
stundum að lenda á öndverðum
meið við ýmsa þá, er hann átti
skiptj við á stjórnmálasviðinu, og
er engin ástæða til að leyna því,
En hinu má þó heldur ekki
gleyma, að öll hans barátta var
hreinskiptin og heiðarleg. Enginn
þurftj nokkru sinni að vera í vafa
um það, hver afstaða hans var til
manna og málefna.
Jóhannes var baráttumaður og
kjarkmaður með afbrigðum, það
sýndi hann oft en þó aldrei svo;
glöggt sem í sínu síðasta stríði,'
því að veikindi sín bar hann af
yfirburðakarlmennsku. sem aldrei i
brást.
Mikill sjónarsviptir er a^ frá-
falli slíkra manna og sárt að horfa
á þá kallaða héðan á svo ungum j
aldri. Um slíkt þýðir að sjálf-1
sögðu ekki að tala, enda skal það I
ekki gert. Fullvíst er líka, að
harmatölur voru hjnum látna sízt,
að .skajpí/Ejfj&hjákvæmilega veld-j
ur dauði hans mikilli sorg hjá
kunningjum hans og vinum. Mest t
ur harmur er þó kveðinn að hinni
ungu eiginkonu hans og litíu börn
unum. Sendj ég þeim hér með |
mínar innilegustu samúðarkveðj-;
ur og einnig móður hans og systk-
inum, tengdamóður og öðrum'
frændum og venzlafólki. Fátækleg j
(Framhald á 15 síðu)
SEXTUGUR:
Hannes Jónasson
verkstjórl, Akranesl
Hannes í Norðtungu, eins og
hann er venjulega nefndur á
Akranesí — verkstjóri í Röra-
steypu Akraneskaupstaðar — er
sextugur í dag.
Hann er fæddur 24. júlí 1902
í Fagradal á Hólsfjöllum. Faðir
hans Jónas Fr. Kristjánsson var
ættaður af Fjöllunum, en móðir
hans Sigríður Jóhannesdóttir frá
Akureyri. Hún var seinni kona
Jónasar. Þegar Hannes er 8 ára
flytur fjölskyldan til Vopnafjarð-
ar og þremur árum síðar deyr
móðir hans. Voru bræðurnir 5,
allir ungir að árum. Af fyrra
hjónabandi Jónasar eru tvær syst
ur á lífi. Við þetta áfall hætti fað
ir Hannesar búskap og fjölskyld-
an dreifðist. Eftir það ólst Hann-
es upp á ýmsum stöðum við mis-
jöfn kjör. Var hann síðan um
hríð vinnumaður í Vopnafirði og
víðar nyrðra. Sumarið 1928 ræðst
hann sem plægingarmaður til
Búnaðarsambands Borgarfjarðar
og er þar viðloðandi til 1932 að
hann flytur á Akranes, þar -sem
hann hefur átt heima síðan.
Hannes hóf vinnu hjá Akranes-
kaupstað við röragerð 1946 og hef
ur hann síðan starfað við hana
og verið verkstjóri síðustu 8 ár-
in. Vaxandi kaupstaður þarf að
halda á miklu magnj af rörum
og gangstéttarhellum. Jaf'nframt
hefur mikið af framleiðsluvörum
röragerðarinnar verið selt víðs
vegar um Vesturland. Það var
mikið happ fyrir Akraneskaupstað
að Hannes skyldi taka að sér röra
steypu bæjarins. Undir hans
stjórn hefur hagur hennar reynzt
góður. Árlega nokkur tekjuaf-
gangur og miklar endurbætur ver
ið gerðar á húsakynnum og tækj-
um, svo að betri árangri yrði náð.
Hefur Hannes hugsað um þetta
bæjarfyrirtæki, eins og hann
ætti það sjálfux, af einstakrj ár-
vekni og samvizkusemi, enda ár-
angurinn í samræmi við það.
Sjálfur er hann víkingur til allr-
ar vinnu og varð því snemma eft
irsóttuj- verkmaður. Hann er
kröfuharður við aðra en gerir þó
jafnan mestar kröfur til sín, svo
sem siður er góðra drengja.
Hannes kvæntist 1932 Ástríði
Torfadóttur frá Deildartungu, mik
illj ágætis konu. Eiga þau 3 mann
vænlega syni: Sigurður, vélvirki,
búsettur á Akranesi, kvæntur
Svölu ívarsdóttur frá Stykkis-
hólmi, Birgir og Jón enn í for-
eldrahúsum, enda á æskuskeiði.
Þau hjónin eru jafnan j nánum
tengslum vifi Borgfirðinga, sem
dvelja þar tíðum,-er leið liggur
um Akranes. Gestrisni þeirra
hjóna er viðbrugðið. Hún er ein-
læg og sönn og hafa óvenjulega
margir notið hennar Eg veit, að
sá fjölmennj hópur tekur í dag
undir innilegar hamingjuóskir til
Hannesar við þessi tímamót í lífi
hans og sendir fjölskyldunni
kveðjur sínar. Jafnframt eru
þakkaðar margar glaðar stundir,
góðvild og tryggð, sem aldrei
bregzt.
Dan. Ágústínusson.
Sextugur:
Sigurður Thoroddsen
verkfræðingur
Sigurður S. Thoroddsen, verk-
fræðingur, er fæddur 24. júlí 1902
á Bessastöðum á Álftanesi, sonur
hjónanna Skúla Thoroddsen, rit-
stjóra og alþingismanns, og Theo-
dóru Thoroddsen, skáldkonu. Sig-
urður er með öðrum orðum sex-
tugur í dag. Sigurður lauk prófi
frá Verkfræðiháskólanum í Kaup-
Imannahöfn árið 1927. Hann réðst
verkfræðingur hjá vita- og hafnar-
málastjórninni og vann að hafn-
argerðum víðs vegar um landið á
árunum 1928—1931. Það ár hætti
hann störfum hjá vitamálastjórn-
inni og gerðist fyrstur íslenzkra
verkfræðinga sjálfstæður verkfræð
ingur með eigin verkfræðiskrif-
stofu. Fram að þeim tíma unnu
verkfræðingar allir í annarra þjón-
ustu og flestir sem starfsménn
ríkis og bæjar.
Síðar gerðist Sigurður hreinn
okkar þann tíma, er við unnum, verkfræðilegur ráðunautur í sam-
saman hjá SÍS, hin ánægjuleg ræmi við bær reglur og kröfur, |
ustu fyrir mig á allan hátt. sem um þá eru gerðar á alþjóð-
Leiðir okkar lágu þó enn frek ; legum vettvangi. En þeir mega
ar saman eftir að hann gerðist ekki vera verktakar né hafa verzl-
framkvæmdastjóri Fulltrúaráðs unarumboð og stunda annað, sem
Framsóknarfélaganna í Reykjavík. getur gert þá hagsmunalega
árið 1958, en ég var þá formaður bundna öðrum og hamlað því, að
Framsóknarfélags Reykjavíkur. I þeir séu algerlega óháðir í fram- í
Eg kynntist Jóhannesi Jörunds-
syni fyrst f ársbyrjun 1957, er ég
byrjaði að starfa hjá Sambandi
íslenzkra samvinnuféiaga, en
hann var þá starfsmaður þar. Tók
ég strax eftir þessum unga
manni, enda gat ekki hjá því
farið, að Jóhannes heitinn vekti
eftirtekt manna, hvar sem hann
fór. Hann var stór maður og karl-
mannlegur, ljóshærður og bjart-
ur yfirlitum og bauð af sér sér-
lega góðan þokka. Voru kynni
kvæmd ráðunautsstarfsemi sinn-
ar. Sigurður er einnig fyrstur hér
á landi til að ge ast þannig hreinn
verkfræðilegur ráðunautur.
Verkfræðistofa Sigurðar hefur
starfað með miklum blóma A
henni hefur, auk Sigurðar, jafnan
verið starfandi nokkur hópur fast-
ráðinna verkfræðinga. Hún hefur
til þessa verið hin stærsta og þekkt
,asta hér af sínu tagi, þótt nú hafi
| a síðustu árum mjög fjölgað sjálf-
stæðum verkfræðilegum ráðunaut-
um.
Það væri langt mái að telja upp
i öll þau verk, sem Sigurður og
verkfræðistofa hans hafa tekið að
sér, uppdrætti, áætlanir og verk-
fræðilega umsjón með hinni marg-
víslegustu mannvirkjagerð. Þar er
um að ræða skipakvíar og hafnir,
hafskipabryggjur, hafnargarðar,
dráttarbrautir; holræsakerfi, vatns
veitur, hitaveitur; vatnsgeyma, olíu
geyma; brýr og önnur byggingar-
mannvirki stór og smá af ýmsu
tagi; fjöldann allan af vatnsafls-
vírkjunum og byggingarmannvirkj
um annarra raforkuvera víða um
land; uppdrætti af hitalögnum
svo skiptir möégum hundruðúm og
burðarþolsuppdrætti og útreikm-
inga sennilega í þúsundatali. Þau
eru því orðin æði mörg mannvirk-
in í þessu íandi. sem Sigurður
Thoroddsen hefur átt hlut að.
| Starfsemi Sigurðar á öðrum svið
: um en í verkfræðinni hefur þó
emnig verið mikii og margvísleg.
Framan af stundaði hann kennslu-
Framhald á 15. síðu.
T í M I N N, þriðjudagurinn 24. júlí 1962. —
9