Tíminn - 11.01.1964, Blaðsíða 24
700 KG. AF VATNI í DEKKJUNUM
Verksmiðja
reist í sumar
FB-Reykjavík, 10. janúar
Segja má, að það hafi ekki ver-
fð fyrr en seint í dag, að ráðið
hafði verið niðurlögum eldsins í
tunnuverksmiðjunni á Siglufirði.
Veggir liússins stóðu enn uppi,
enda er þetta stálgrindahús, en
þakið hafði fa '.ið niður. Talið
miin fullvíst, að ný tunnuverk-
smiðja verði rr-ist á Siglufirði
næsta sumar, og á hún að geta
tckið til starfa næsta haust.
í dag hringdum við í Egil Stef-
ánsson slökkviiiðsstjóra á Siglu-
firði og spurðum hann um slökkvi
starfið, og hvort þetta væri ekki
mesti eldur, sem hann hefði kom-
izt í kast við í starfi sínu.
- Ekki held ég það, sagði Eg-
ill, við erum vanir að brenna
tunnuverksmiðjur hémá á Siglu-
firði. Eg vann við slökkvistarfið
þegar síðasta verksmiðjan brann
fviir einum tuttugu til þrjátíu ár
um, og þá logaði í tvo sólarhringa.
Fgill sagðist halda, að kviknað
hefði í út frá kynditækjum verk
smiðjunnar, þau hefðu að öllum
likindum ofhitnað, vegna þess að
verksmiðjan hefði framleitt meira
að undanförnu en venja hefði ver
ið t’l, og því verið meira af af-
göngum að brenna. Sagði hann, að
allt hefði bent til þess að slökkvi
liPið hefði ráðið niðurlögum elds-
ins um klukkan ellefu í fyrra-
kvöid. Allt hafði verið rifið, sem
eldur var í og hvergi virtist loga.
En síðan kom eins og sprenging í
botnaefnisstafla og eldurinn
brauzt út aftur.
iandarísk bókasýning
FB-Reykjavík, 10. janúar.
UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA
Bandaríkjanna efnir til bókasýn-
ingar í Bogasal Þjóðminjasafns-
ins, verður sýningin opnuð al-
menningi kl. 16 á morgun. Þama
verða sýndar um 400 bækur, sem
skiptast í þrjá flokka, auk 103
bóka, sem Hvíta húsið í Washing-
ton hefur gefið forseta fslands,
og nokkurra bóka úr bókasafni
upplýsingaþjónustunnar.
Bókasýning þessi, sem er nokk-
urs konar farana ;ýning, og kemur
Hver eru
stærstu
hús hér
í borg?
KJ-Reykjavík, 10. janúar.
Ntr, ÞEGAR menn hafa,
séð líkan væntanlegs ráð-
húss, er von, að þeir velti
fyrir sér þeirri spurningu,
hvort það verði nú stærsta
hús bæjarins.
Svo er ekki, og eru að
minnsta kosti 6 hús, sem em
stærri en væntanlegt ráð-
hús. Stærsta húsið í Reykja
vík og jafnframt það hæsta
er Borgarsjúkrahúsið í Foss-
vogi, sem er 55.343 rúmmetr
ar, þ. e. sá hluti þess, sem
nú; sr risinn. Borgarsjúkra-
húsið er 14 hæðir hæst, eða
turninn þar sem hann er
hæstur. Næsta hús að rúm-
metrastærð er Landspítal-
inn, þá Bændahöllin, Hafnar
húsið og Þjóðleikhúsið. En
þrátt fyrir það, að ráðhusið
verður ekki stærsta hús bæj
arins, er ekki að efa að það
|J verður glæsilegt hús og
■ borginni til mikils sóma.
<0'una'Æ-'-Ma.qiiii iim ...
hingað frá Helsinki og fer héðan
til Oslo, mun standa yfir frá 12.
til 21. janúar. Bækurnar sem sýnd
ar em skiptast í þrjá höfuðflokka.
Fjallar einn um listir, annar um
byggingalist og sá þriðji um ýmis
atriði í amerísku þjóðlífi, t. d.
menntamél, efnahagstnál, stjómar-
far og stjórnarkerfi, svo og ýmsa
þætti skemmtanalífs.
Auk þess eru þarna 103 bækur,
sem Hvíta húsið hefur fært Ásgeir
Ásgeirssyni, forseta íslands að
gjöf, en þetta er úrval bandarískra
bóka síðasta árs. Sýningin verður
opin daglega frá kl. 14 til 22,30. Á
meðan sýningin stendur yfir verð-
ur bókasafn upplýsingaþjónustunn
ar lokað eftir kl. 18.
A STOÐUGUM FUNDUM
UM FARÚJALDAMÁUN
KH-Reykjavík, 10. janúar.
Stjómendur Loftleiða hafa um
nóg að hugsa þessa dagana, þeir
sitja stöðugt á stjórnarfundum
og nmdum með flugmálastjóra,
þeir bíða eftir fréttum af IATA-
ráðstefnunni í Montreal, þeir bíða
eftir fréttum af því, hvemig flug-
ráð tekur omsókn þeirra um lækk
un á fargjöldun til Luxemborgar,
ng þeir sitja fundi með fulltrúum
Flugfélagsins og fulltrúa ríkisins,
þai sem ræddir em möguleikar á
sameiningu flugfélaganna tveggja.
Og j að er varia ofsögum sagt, að
þjóðín bíði í ofvæni eftir fréttum
af þessu öllu saman.
Barátta stóra flugfélaganna á
AtlantShafsleiðunum gegn Loft-
leiðum hefur sífellt farið harðn-
andi. SAS hóf baráttuna með lækk
uðum fargjöldum ,með skrúfuvél-
um„ sem raunar gekk ekki of vel,
en nú hafa fleiri farið að þeirra
fordæmi. Á ráðstefnu IATA sem
stendur yfir í Montreal þessa dag
ana, samþykktu nýlega þau 18
flugfélög, sem fljúga á Atlants
hafsleiðunum, að lækka fargjöld
sín með þotunum um 20% þann
1. apríl n.k . eins og Tíminn skýrði
þá frá. Það eina, sem þessi 18
flugfélög eru ekki enn þá sam-
mála um, er, hversu lengi þessi
UNGLINGAKLUBBUR F.U.F.
Skemmtikvöld einkum fyrir eldri
meðlimi Unglingaklúbbs F.Ö.F.
í kvöld laugardaginn 11. janúar að
Tjarnargötu 26 kl. 8. Dansað og
fieira til skemir.tunar.
Skemmtikvöld fyrir yngri með-
limi klúbbsins verður annað kvöld
sunnud. 12. jan. að Tjarnargötu 26,
kl 3 00. Spiluð télagsvist og dans-
að.
læKKun skuli i gildi, vilja sum
miða við eitt ár, önnur við tvö
ár.
Eitt þessara flugfélaga, Pan
American, hefur millilendingu
hér á íslandi, og eins og lesend-
um Tímans mun kunnugt, hef-
ur bað félag nú sótt til flugráðs
ís’ands um leyfi til lækkunar á
fargjöldum sínum milli fslands og
Ampríku. Flugráð tekur að líkind-
um skvörðun u;n það mál á þriðju
dagfrn kemur, en lítil líkindi eru
til annars en Pan American fái
jákvætt svar við beiðni sinni.
Fyrir flugráði hefur einnig leg-
ið síðan í haust umsókn frá Loft-
leiðr.m um levfi til lækkunar á
fargjöldum milli Reykjavíkur og
Luxemborgar, en sú leið er nú
aðal flugleið L ítleiða til Evrópu.
Engin ákvórðun hefur verið tek-
in um það mái enn þá, og óvíst
rvenær það verður.
Framhald á bls. 23.
KJ-Reykjavík, 10. jan.
Þessi stóra og mikla jarðýta,
sem þið sjáið hér á myndinni,
er að störfum í holræsinu
mikla í Fossvogi, sem nú er
unnið við að kappi. Sjálf er ýt-
an 35 tonn og dekkin undir
henni, takið eftir að þar eru
dekk en ekki belti, hafa inni
að halda 700 kg af vatni, 300
af kalsium chlorid en aðeins
20 pund af lofti. Þetta era eng
m smáræðis dekk eins og sjá
má, enda kostar hvert þeirra
nærri 80 þus. kr. Ýtustjóri
þama er Sigurður Sigurðsson
en annars skiptast þeir tveir á
um að stjóma henni frá 7 á
morgnana til 12 á kvðldin. Hol
ræsið er mjlið mannvirki, og
má glöggt marka stærð þess
með því að bera saman við
það stærð ýutnnar sem er rúm-
’éga tveggja mannhæða. —
Stórvirkar vélar og sprengiefni
eru aðallega notuð við fram-
kvæmd verksins, sem er i hðnd
am Véltækni h.f. (Ljósmynd
Tíminn K.J.L
UMRÆÐUR
UM LEIK-
GAGNRÝNI
SÍÐDEGIS á sunnudaginn verð-
ur efnt til umræðna um leikgagn-
rýni á vegum Leikfélags Reykja-
víkur í Iðnó.
Ekki alls fyrir löngu fóra fram
umræður um leikgagnrýni í brezka
útvarpinu, sem vöktu mikla at-
hygli. Tóku þátt í þeim nokkrir
kunnir brezkir leikhúsmenn og
gagnrýnendur, Martin Esslin, Pet-
er Brook, Bamber Gascogne, Milt-
on Schulman og fleiri. Halldór Þor
steinsson hefur snúið á íslenzku
því, sem þessir menn höfðu til
málanna að leggja og verða þess-
ar umræður fluttar á sunnudaginn
af nokkram leikurum Leikfélags-
ins, Þorsteini Ö. Stephensen,
Helga Skúlasyni, Eriingi Gíslasyni
og Steindóri Hjörleifssyni. Á eft-
ir er ætlast til að verði frjálsar
umræður á grundvelli brezku við-
ræðnanna frá sjónarhóli íslenzkra
leikhúsmanna og gagnrýnenda. —
Aðgangur er frjáls öllum leikhús-
mönnum, gagnrýnendum og öðru
áhugafólki utn leiklist. Umræðurn
ar hefjast kl. 15.
(Frá Leikfélaginu).
SURTUR GYS
GUFU, EN
SURTLA ÞEGIR
FB-Reykjavík, 10. janúar.
GOSIÐ í Surtsey var með
minnsta móti í dag, aðeins smá
gufustrókur annað slagið.
Ekki varð vart við jarðskjálfta-
kippi í Vestmannaeyjum í dag, og
ekkert sást til Surtlu, sem ekki
hefur látið á sér kræla í nokkra
daga.
Samkvæmt upplýsingum veður-
stofunnar hafa komið fram á mæl-
um hennar 16 jarðskjálftakippir
frá því að morgni þriðjudags þar
til kl. 5,40 og eiga þeir allir ræt-
ur sínar að rekja til' Surtseyjar.
Þá fannst jarðskjálftakippur á
Siglufirði í nótt kl. 3,10, en hann
kotn ekki fram á mælunum í
Reykjavík.
u »