Tíminn - 06.03.1964, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.03.1964, Blaðsíða 1
: KLAPPAÐ OG GÓLAÐ r sr BIOINU Á MIÐNÆTURHLJÓMLEIKUNUM Imgja varS hann af staðnum. Hér myndir frá hljómleikunum eru á í fyrrakvöld gerðisf líflll Ijóshærður piltur all fyrirferðarmlkill, svo fjar- á myndinnl fyrir ofan sjást dyraverðlr hússlns fjarlægja piltinn. Fleiri 13. síðu. (Ljósm.- TÍMINN-K.J). KJ-Reykjavík, 5 marz. I gærkveldi voru haldnir í Há- skólabíói fyrstu Beatles-tónleik- arnir hériendis Var salur bíósins yfirfullur af fólki á ölluni aldri, en þó var unga kynslóðin greini- lega i meirihiuta; stappaði, klapp- aði og gólaði til að láta i ljósi hrifningu sína á framleiðslu þeirra, er á sviðinu voru hverju sinni. í lok tónleikanna færðist heldur mikið fjör i mannskapinn, og má segja að upphafsmaður þcss fjörs hafi verið einn áhorfenda, lítill og ljóshærður Keflvíkingur. Á dagskrá hljómleikanna var leikur fjögurra hljómsveita, auk Savanna-tríósins, sem skemmti þarna af sinni alkunnu snilld og smekkvísi Fyrsta hljómsveitin. T T., fékk ósköp venjulegar und- irtektir — klappað að öllu sem fram vai borið. Næst á skemmti skránni var hljómsveitin Hljómar úr Keflavík. skipuð tveim gítar- leikurum, rafmagnsbassaleikara trommara og söngvara. Var greini legt, að þeirra var beðið með mikilli eftin'æntingu. og fengu þeir geysigóðar undirtektir. Kefl- víkingarmr klæddust öklaháum leðurstígvélum með nokkurra sentimetra háum hælum, röndótt- um skyrtum og vestum Leikur þeirra var nokkuð tilþrifamikill, en þó var söngvari þeirra helzt til staður. Mikil óp og öskur fylgdu í kjölfar leiks þeirra frá áhorfendum sem óspart klöppuðu saman lófunum. Hárgreiðslan á Hljóma-piltunum var alveg i stíl við hárgreiðslu The Beatles í Eng- Framhald á bls. 19. Eldsumbrot undir Vatnajökli? Hún vex margfalt hraðar en í fyrri hlaupum HF-Reykjavík, 5. marz Mikið hlaup cr koraið í Skaftá í Vestur-Skaftafells- sýslu. Frá því í gærkvöldi til klukkan fjögur í dag hafði hún hækkað um tvo metra. Megn brennisteinsfýla fylgir hlaupinu og er áin orðin kol- mórauð að lit. í gærkvöldi fundu Akureyring- ar megna brennisteinsfýlu leggja fyrir vit sin, og þegar fólk þar vaknaði i morgun, var lyktin svo mikil, að margir héldu rakleiðis ofan í kjallara til að athuga hvort miðstöðin væri biluð. Svo reynd- ist þó ekki, og var því eina úrræð- ið, að hafa alla glugga vendilega lokaða, ef lift átti að vera innan- húss. Lykt bessi hefur magnazt fyrir Ubrðan í allan dag og fannst m. a. á Árnesi i Aðaldal, Grímsstöðum á Fjöllum og í Möðrudal. Fregnir af þessu voru bornar undir dr. Sig I sem Skaftá hefur hlaupið áður urð Þórarinsson, jarðfræðing, og taldi hann strax líklegt, að ein- hver ánna suðvestur af Vatnajökli væri hlaupin. En í þau tvö skipti, I hafa Akureyringar verið fyrstir manna til að finna brennisteins- lyktina . Þá víkur sögunni austur í Skaft- ártungu, en árdegis í dag urðu hjónin á mnsta bænum þar, Skaft árdal, vör við að óeðlilegur vöxt- ur var i Skaftá, hún var korg- Framh. á 7. síðu. VALIARMÁLIÐ: PÓST- FULL- TRÚI INNI! KJ-ReykjaVík. 5. marz Pósthúsmálið svonefnda á Keflavíkurflugvelli, hefur nú verið afhent rannsókn- ardómaranum í Jósafats- málinu Ólafi Þorlákssyni til rannsóknar. Póstmeistarinn Þórður B. Halldórsson er í gæzluvarðhaldi, og hefur verið frá því á föstudaginn síðasta. Pósthúsmálið er sem kunn ugt er, í nánum tengslum við Jósafatsmálið, og því hefur þótt rétt að sami rann sóknardómarinn fjallaði um alla súpuna. Upphæð sú er um i'ar að ræða hjá póst- húsinu nam 2,6 milljónum króna í innstæðulausum ávísunum, og beinist rann- sókn málsins nú að öllum líkindum að því hve lengi þessi viðskipti þeirra Þórðar og Jósafats hafa átt sér stað. Ekki fcefur verið greitt neitt upp í þessar 2,6 milljónir, svo Tíminn viti, en einhver veð boðin fyrir hluta upp- hæðax'innar. Jósaíat Arn- grímsson mun enn vera í gæzluvarðhaldi. „Hiti í jöklinum vestur af Grímsvötnum” KH-Reykjavík, 5. marz Sigurður Þórarinsson, jarð- fræðingur, kvaðst vera farinn að hugsa til hreyfings, þegar blaðið hafði tal af honum i kvöld út af hlaupinu í Skaftá, sagðist vilja reyna að fljúga yfir Vatnajökul og vita, hvað þarna væri á seyði. Sigurjón Rist, vatnamælingamaður, lagði af stað austur í Skaftártungu í kvöld til þess að fylgjasl sjálf ur með hlaupinu, en aðstoðar- menn oans hafa vcrið á svæð- inu og annazt mælingar i Skaft * á undanfarna daga. — Við vitum, að það er hiti í jöklinum vestur af Gríms- vötnum, sagði SigurifSur Þórar- insson ; viðtali við Tímann í kvöld, og það virðast koma þarna eldpos af og til. Árið 1955 geröist sama saga og nú. þá kom hlaup í Skaftá. og Ak- ureyringar kvörtuðu um brenni steinsfýlu, gátu naumast haft glugga sína opna. Sigurjón Rist fór þá með menn sína og kannaði hlaupið í Skaftá, og við Pálmi Hannesson athuguð- um verksummerki á jöklinum. — Mér virðist sem nú sé þetta öllu stórkostlegra, hlaup. ið meira Ætli maður fljúgi ekki yfir jökulinn og líti á um brotin. Síðan 1955 hefur einu sinni komið eitthvað smáhlaup i Skaftá, mig minnir, að það væri árið 1959. Það var lítið rannsakað. — Árið 1910 er ekki ólíklegt, að gosið hafi á Vatnajökli vest an við Grímsvötn. Þar höfum Framhald á bls. 19.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.