Tíminn - 06.03.1964, Síða 14
Ljósir litir eru vorboðinn
RITSTJ'ÓRI: OLCA AGÚSTSDÓTTIR
1. HI3 ný|a hálsmál Pierre Cardlns á dagkjól úr grófu efni. Kraginn er þrefaldur úr Hvítu donegal. 2 Svartur kocktail kjóll úr organza. Volant í ermum og ne8an á jakka, me8
hlnu nýja V-hál|máli. Model: Christlan Dior. 3. Kragalaus vordragt í hinum nýja bleik-brúna vorlit, með angorablússu í appelsínugulum lit. 4. Hvítur kjóll úr silki-organza me5 brúnum
rósum. Undlr mlttlsslðum jakka meS manséttuermum, er ermalaus kjóll. Um hálsinn er bundin’ slæða úr sama efni. Hatturinn er úr brúnu strái.
Vortízkan á einu bretti
Ilér birtuni vi8 myndir af vortízk-
unni, eftir aS hún hefur farið und
ir skurðarhnífinn hjá fram-
leiðendum og búin undir fram.
leiðslu. Þegar tízkan hefur verið
sýnd í Paris, þurfa framleiðendur
kvenfatnaðar að sverfa af henni
hclztu vankantana og öfgarnar,
í Eturban í Afríku hefur nú
verið stofnaður höfuðverkjar-
klúbbur, og þeir Suður-Afríku-
búar, sem þjást af sífelldum
höfuðverk, hittast þar reglu-
lega og gefa hver öðrum góð
ráð.
svo að hún henti fyrir fatafram-
ieiðslu. Þó eru alltaf framleiddar
módelflíkur, sem eru eftirsóttar
og seldar á hærra verði.
Ein af fallegustu kápum vors-
ins er ljósa kamelhárskápa Béves,
með mjúkum axlasaum, íþræddu
belti úr leðri, og með vösum. —
Kápan cr bæði létt og hlý.
Þessi hvcrsdagskjóll cr úr ull-
ar-jersey, og eitt af liinum vin-
sælu Citymódelum. Hann er með
mjóu belti, sem er hnýtt lauslega
og með gylltum hnöppum. Honum
fylgir klútur, sem er hafður sem
trefill eða höfuðfat.
Dragt úr smáköflóttu tweed, í
brúnum, og livítum lit teiknuð af
Junex. Ermarnar eru út í eitt, með
smá vasalokum og mjóu hnýttu
belti.
Léttur og sléttur er þessi kvöld-
kjóll eftir Ajcos úr hvítu diolen-
cloqué, við hann er borin gróf háls
fcsti.
I
Kvöldkjóll tciknaður af Pcrtex1
úr baðmull með sl,óru mynztri, í lit j
unum svörtu, hvítu og brúnu. í J
rauninni er þetta sítt pils, sem
Parísardömur eru einna
hrifnastár af, og við það er höfð
svört blússa úr tergal-chiffon. I
NÚ SEM STENDUR er enginn
tízkukóngur i París síðan Dior
lézt, heldur margir smáfurstar.
Ber tízkan þess greinileg merki í
hinum furðulegasta klæðnaði. —
Allir eiga þó sameiginlegt að gera
konuna kvenlegri og töfra fram
yndisþokka hennar.
Mildir lítir eru vorboðinn, bleik
rautt .appelsínugult, ljósblátt og
ljósgrænt eru þeir litir, sem mest
ber á. Þó eru engin takmörk sett
t .d. eru dragtirnar bleikrósóttar,
teinóttar, köflóttar eða alveg ein-
litar, í fyrrgreindum lituin.
Sið pils úr stórmynztraðri baðm-
ull eða úr grófu efni, má telja
REKNIR
FYRIR
OFFITU
í Bandaríkjunum gerir her-
inn nú mikla herferð gegn feit-
um hermönnum. 31 árs gamall
officer í flughernum, Harold
Sacana, var t. d. rekinn úr
starfi, þar sem hann sýndi sk'.p
un hersins um að grenna sig
ekki nógu mikla virðingu. Hon
um hafði verið sagt að losa
sig við átta kíló, en þegar
hann mætti í skoðun var hann
enn — einu kílói of þungur og
því rekinn tafarlaust. Það stoð
aði ekki, þó hann ásakaði lækni
sinn fyrir að hafa ekki sýnt
megrunarkúrnum nægilegan
áhuga og héldi því fram, að
hann hefði svelt sig í fjóra
daga, án þess að léttast um
meira en 3/4 úr kílói Sacana
er talinn einhver bezti flug-
maðurinn í sinni deild og
vonandi grennist hann svo af
vonzku, að hann geti sótt um
starfið aftur.
til algerrar nýlundu í samkvæmis-
klæðnaði. Við þau eru hafðar
blússur, með hringlaga kraga, eða
með áföstu slipsi, sem er hnýtt
lauslega að framan. Síðir sam-
kvæmiskjólar ná einungis niður á
ökla, og eru annaðhvort erma-
lausir eða með víðum stórum erm-
um.
Kvöldkjóiarnir eru skreyttir
með perlusaum eða plíseringum
og knipplingum, en rúsínan í pylsu
endanum er að stórrósóttir og
dropóttir kjólar virðast ætla að
slá í gegn og hafa þeir þegar náð
miklum vinsældum á ítalíu.
Það hefur aldeilis hlaupið á snærlð
hjá okkur konum, þvi að frægur
skrúðgarðaarkitekt Robert Burlo
Marx er farlnn að teikna skartgrlpl,
sem þegar njóta mlkilla vinsælda.
Hann er fæddur I Sao Paulo I
Brasilíu og m. a. þekktur þar sem
landslagsmálari, lelrkerasmiður, og
leturgrafari. Skartgripir hans eru
undir japönskum og indverskum á-
hrifum, og sumir segja að þelr lik-
ist grindverkum, og eru elnungls
framleiddir úr eðalsteinum og skíra-
gulli. Eyrnalokkar og þungir skart
gripir eins og armbönd, hálsfestir
cg hringir eiga auknum vinsældum
að fagna. Þeir sem stúlkan sýnlr eru
úr skíra gulli og teiknaðir af Robert
Burle Marx.
14
T í M I N N, föstudagurinn 6. marz 1964.