Tíminn - 06.03.1964, Síða 16
............................................................................................................1
gifeí?:}
I dag er föstudagurinn
6. marz
Gjpltfred
Tungl í hásuðri kl. G,26
Árðegisháflæði kl. 10,36
Heilsugæzla
SlysavarSstofan í HeiLsuveradar-
stSOinni er opln allan sólarhring-
inn. — Nœfurlæknlr kl. 18—8;
sími 21230.
NeySarvakiln: Simi 11510, hvern
vtrkan dag, nema laugardaga
kL 13—17.
Raykjavfk: Næturvarzla vikuna
frá 29. febrúar til 7. marz er í
Reyfcjavíkur Apóteki.
Hafnarftörður.
Næturlæknir frá kl. 17.00 6. marz
til W. 8.00 7. marz er Jósef Ól-
afsson, Ölduslóð 27, sími 51820.
Frá Guöspekifélaginu. Fundur
verður haldinn í Reykjavíkur-
stúlrunni, föstudagskvöld kl. 8.30.
Gr-etar Fells flytur erindi: Sól
og mánl.. Hljómlist. Kaffiveiting
ar.
Flugáætlanir
Loftleiðlr h. f.
Þorflnnur karlsefni er væntan-
legur frá New York kl. 05.30.
Fer til Amsterdam og Glasgo'v
ki. 07.00. Kemur til baka frá
Amsterdam og Glasgow kl. 23.00.
Fter til New York kl. 00.30.
Leifur Eiríksson er væntanleg
ur frá New York kl. 7.30. Fer til
Oslóar, Gautahorgar og Kauo-
mannahafnar kl. 09.00. Éiríkur
ranTB fer til Luxemborgar kl. 09.
00.
Flugfélag íslands h.f.: Skýfaxi
fer til Bergen, Osl'o og Kmh kl.
08,15 í dag. Vélin er væntanleg
aftur til Rvíkur kl. 18,30 á morg
un. Sólfaxi fer til London k.l
09,30 í dag. Vélin er væntanleg
aftur til Rvkur kl. 19,10 í kvölj.
Sólfaxl fer til Glasg. og Kmh.
kl. 08,15 í fyrramálið. — Innan-
landsflug: í dag er áætlaS a3
fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Vestmannaeyja, ísafjarðar, Fag-
urhólsmýrar, Hornafjarðar og
Sauðárkróks. — Á morgun' er
áætlað að fljúga til Akureyrar
(2 ferðir), Húsavxkur, Vestmanna
eyja, ísafjarðar og Egilsstaða.
Siglingar
Sklpadelld S.f.S.
Hvasafell er í Rotterdam. Arn
arfell fer væntanlega í dag frá
Lissabon til San Feliu og Ibiza.
Jökulfell fór frá Camden 3. þ.
m. til íslands. Dísarfell fór í
gær frá Avennmouth til Ant-
werpen og Hull. Litlafell fór í
gær frá Reykjavfk til Breiða-
fjarðar og Vestfjarða. Helgafexl
er í Aabo, fer þaðan væntanlega
á morgun til Fagervik. Hamra-
fell fór 24. f. m. frá Batumi til
íslands. Stapafell fer á morgun
frá Kefl'avík til Kaupmannahafn
ar.
Jöklar h. f.
Drangajökull kom til Reykja
víkur í gær frá Camden. Langjök
ull er í Straslund, fer þaðan til
Hamborgar og London. Vatnajök
uli er á leið til Reykjavíkur frá
Rotterdam.
Skipaútgerð ríkisins h.f.: Hekla
fór frá Rvík í gær austur um
land í hringferð. Esja fer frá
Rvk á morgun vestur um land i
hringferð. Herjólfur fer frá R-
vík kl. 21,00 í kvöld til Vestm,-
eyja. Þyrill er væntanlegur t:l
Rotterdam á morgun. Skjald-
breið er á Norðurlandshöfnum.
Herðubreið er á Austfjörðum á
leið til Kópaskers.
Eimskipafélag íslands h.f.: Bakka
foss kom til Vestmannaeyja 5.3.
fer þaðan til Ardrossan, Mencb.
og London. Brúarfoss íer fjá
Y 5.3. til Rvíkur. Dettifoss fór frá
Vestm.eyjum 5.3. til Grundarfj..
Súgandafjarðar og ísafjarðar og
þaðan til Camden og NY. Fjail-
foss kom til Rvíkur 2.3. frá Ham-
borg. Goðafoss fór frá Rvík 26.
2. til Gloucester, Camden og NY
Gullfoss fer frá Rvík kl. 20,00 c.
3. til Cuxhaven, Bremerhaven,
Hamborgar og Kmh. Lagarfoss
fór frá Hull 4.3. til Norðfjarðar
og Rvíkur. Mánafoss fór frá Gufu
nesi 4.3. til Kópaskers, Raufar-
hafnar, Bakkafjarðar, Vopnafj.,
og Seyðisfjarðar. Reykjafoss
kom til Gautaborgar 4.3., fer það
an til Kmh, Lysekil, Gautaborgar
og Glomfjord. Selfoss kom til
Rotterdam 4.2., fer þaðan t.il
Hamborgar. Tröllafoss fór frá
London 3.3. til Amsterdam og
Bremerhaven. Tungufoss fer frá
Ant. 7.3. til Hull og Rvíkur.
Hafskip h. f.
Laxá fór frá Hull 5. 'til Reyk ja
víkur. Rangá er í Hafnarfirði.
Selá fór frá Vestmannaeyjum 4.
til Hull’.
Eimskipafélag Reykjavíkur h. f.
Katla er á leið til Preston.
Askja er á leið til Roquetas.
Fréttatilkynning
Frá Vöruhappdrætti SÍBS. — í
gær var dregið í 3. flokki um
1150 vinninga að fjárhæð kr.
1.640.000,00. Þessi númer hlutu
hæstu vinningana: 200 þús. kr.
nr. 39866, umb. Ólafsfj. 100 þús.
kr. nr 47276, umb. Hafnarfj. 50
þús. kr. nr. 3779, umb. Grettisg.
26. — 10 þús. kr. vinning hlutu:
3076 Grettisgata 26. 5790 Akran.
6090 Grettisg. 26. 23755 Vestur-
ver. 44717 Vesturver. 52886 Pat.-
reksfj. 61190 Vesturver. — 5
þús. kr. hlutu: 88 Vesturver.
11719 Reykjalundur. 12015 Grett-
isgata 26. 14695 Hafnarfj. 19002
Grettisg. 26. 20119 Sauðárkrókur.
20502 Vesturver. 25299 Litll-Ár-
skógur. 30362 Ingjaldsstaðir.
30512 Þórshöfn. 31559 Ólafsfj.
32890 Hafnarfj. 37800 Vesturver.
41891 Grettisgata 26. 50870 Vesb
urver. 55806 Vesturver. 56642
Bræðraborgarstígur 9. 57349
Vesturver. 57615 Vesturver. —
58391 Tiafnarfjörður.
«: (Birt án ábyrgðarjt
Þjóðminjasafnið er opið á þriðju-
dögum, laugardögum og sunn i
dögum kl. 13.30—16.
Lisrasafn íslands er opið á þriðju
dögum, fimmtudögum, laugardög-
um og sunnudögum kl. 13,30-16.
Ásgrmssafn, Bergstaðastræti /4,
er opið sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 1,30—4.
Tæknibókasafn IMSI er opið alla
virka daga frá kl. 13 til 19, nema
laugardaga frá kl. 13 til 15.
Minjasafn Roykjavíkurborgar, —
Skúlatúni 2 opið daglega frá k1.
2—4 e. h. nema mánudaga.
Listasafn Einars Jónssonar er
lokað um óákveðinn tíma.
BORGARBÓKASAFNIÐ. — Aðal
safnið Þingholtsstræti 29A, sxmi
12308. ÍJtlánsdeild opin kl. 2—10
alla virka daga, taugardaga 2—7,
sunnudaga 5—7. Lesstofa 10—10
alla virka daga, laugardaga 10—7,
sunnudaga 2—7. — Útibúið Hólm
garðl 34, opið 5—7 alla virka daga
nema laugardaga. Útibúið Hofs-
vallagötu 16 opið 5—7 alla virka
daga nema laugardaga. — Útibúið
Sólheimum 27 opið f. fullorðna
mánudaga. miðvikudaga og föstu
daga kl. 4—9. þriðjudaga og
fimmtudaga kl 4—7. fyrir börn
er opið kl. 4—7 alla virka daga
nema laugardaga
Bókasafn Kópavogs 1 Félagsheim
ilinu opið á þriðjudögum mið
vikudögum fimmtudögum og
föstudögum kl 4.30—6 fyrir börn
og kl 8,15—10 fyrir fullorðna —
Barnatímar t Kársnesskóla aug-
lýstir þar
Amerlska bókasafnið. Bænda-
höllinni við Hagatorg er opið frá
kl 10—21 á mánudögum mið-
vikudögum og föstudögum. og
frá kl 10—18 á þriðjudögum og
föstudögum
ðókasafn Seltjarnarness: Opið er
20,00—22.00 Miðvlkudaga k!.Fh7
mánudaga kl o,15—7 og 8—10
Miðvikudaga kl 5,15—7 Föstu
daga kl 5.15—7 og 8—10
Minningarspjöld Háteigskirkju
eru afareidd hjá Ágústu Jóhanns-
dóttur, Flókagötu 35. Áslaugu
Svelnsdóttur, Barmahlíð 28, Gróu
Guðjónsdóttur, Stangarholti 3.
Guðrúnu Karlsdóttur, Stigahlíð
4, Sigríði Benónýsdóttur, Barma
hlíð 7, ennfremur í bókabúðinni
Hlíðar, Miklubraut 68.
Minningarspjöld hellsuhælis-
sjóðs Náttúrulækningafélags ís
lands fást hjá Jónt Sigurgeirs-
syni, Hverfisgötu 13 b, Hafnar
firði, simi 50433.
K
I
D
D
I
D
R
E
K
I
— Einn . . . tvelr . . . iyftið! Steinninn veltur niður með dunum og — Snúið við, strax! Komlð ykkur í skjól!
dynkjum.
— Þú varst lögfræðingur, áður en þú
gekkst I frumskógasveitina, Riggs. Athug
aðu, hvernlg þessu er varið með Hunda
eyjuna.
Á meðan í Týndu skógum. — Enginn
hefur búið á Hundaeyjunni — þessi risa-
rödd hlýtur að vera frá hátalara og
„brunagirðingin" rafmagnsgirðing.
— En hver er með þessi umsvif á eyj-
unni — og hvers vegna?
MINNING
Framhald af 9 síðu.
ili sínu þann 11. september s. 1.
84 ára að aldri.
Þóranna var fædd 2. maí árið
1879, að Kambi í Deildardal. For-
eldrar hennar voru hjónin Þorgils
Þórðarson bóndi á Kambi, Sigurðs
sonar á Ingveldarstöðum í Hjalta-
dal, Jónssonar, kunnur dugnaðar-
og framfaramaður, þrekmenni hið
mesta svo sagnir fóru af, og Stein-
unn Árnadóttir, Ixónda á Grundar-
landi, Ásmundssonar, bónda á
Bjamarstöðum í Unadal, Jónsson-
ar, en henni er lýst sem glæsi-
legri mannkostakonu.
Þóranna ólst upp í foreldrahús-
um á Kambi og vandist öllum
venjulegum sveitastörfum frá
fyrstu bernsku. Eins og áður er
sagt, stóðu sterkir skagfirzkir
stofnar að henni, sem áttu rætur
sínar bundnar í Skagafirði mann
fram af manni. Voru þeir frænd-
ur margir framfaramenn mlkliir,
fjármenn og ræktunarmenn góðir.
Hlaut hún því í vöggugjöf, dugnað
og búforsjálni, er entust henni alla
ævi. í janúar 1903, gekk Þóranna
að eiga frænda sinn Þórð Hjálm-
arsson frá Stafni í Deildardal, er
lifir konu sína og býr á Háleggs-
stöðum ásamt sonum sínum tveim.
Hófu þau búskap að Kambi og
bjuggu þar um 14 ára skeið eða
til ársins 1916, er þau flytja að
Háleggsstöðum, þar sem hún bjó
til hinztu stundar.
Þegar er þau hófu búskap á
Háleggsstöðum, hófust þau handa,
um framkvæmdir, kom þá brátt
í ljós dugnaður og framsýni Þór-
önnu. Var heimili þeirra jafnan
þekkt rausnar- og myndarheimili
um austurbyggðir Skagafjarðar.
Bjuggu þau hjón síðustu árin í
félagsbúi við syni sína tvo. Eign-
uðust þau þrjá syni er á legg kom-
ust: Þorgils, bónda á Stafshóli í
Deildardal, Trausta og Stéinar er
búa á Haieggsstöðum. Son sinn
Hjálmar misstu þau, hinn mesta
efnispilt. Auk þess ólu þau upp
tvær fósturdætur Sigríði Jóhanns-
dóttur .húsfreyju á Skuggabjörg-
um í Deildardal og Þórönnu frænd
konu, þerra, sem búsett er í Hnífs
dal. Síðustu æviár sín átti Þóranna
við langvarandi vanheilsu að
stríða og iá siðustu árin rúmföst
að mestu.
Eins og áður er sagt var Þór-
anna á Háleggsstöðum mikil mann
kostakona, gædd beztu kostum
hinnar íslenzku húsfreyju óg verð
ugur fulltrúi þeirrar bændakyn-
slóðar, sem átti þátt í uppbygg-
ingu landsins. Þóranna var mikill
persónuleiki, fríð sýnum og glæsi
leg, eins og þau fleiri systkini. —
Höfðingleg í framkomu og hóg-
vær.
Háleggsstaðir er innsti bær ■ í
Deildardal, að sunnanverðu. Inn-
ar í dalnum eru upprekstrarlönd
Hofshrepps, gistu því gangnamenn
jafnan áður fyrr að Háleggsstöð-
um, úr Óslandshlíð og víðar. —
Minnast þeir ætíð með þakklæti
einstakrar gestrisni og alúðar hús-
ráðenda, en heimili þeirra stóð
jafnan opið þeim er að garði bar.
Lífsstarf Þórönnu á Háleggsstöð
um var bundið dalnum, þar sem
rætur hennar lágu og hún unni
af alhug. Og þar var óskaland henn
ar, þar sem henni auðnaðist að
sjá börn sín og annað frændalið
vaxa til sjálfsbjargar og dáða, hið
nýja ísland, sem taka á við braut-
ryðjendastarfinu og ávaxta það til
betra og fullkomnara lífs.
Þess vegna mun ætíð verða
bjart yfir þessu dalabarni skag-
firzkrar byggðar. Eftirlifandi eig-
inmanni, bömum og öðru frænd-
fólki skal vottuð samúð og óskir
um bjarta framtíð.
Guð blessi minningu hennar.
A.S.
16
T í M I N N, föstudagurlnn 6. mart 1964.