Tíminn - 06.03.1964, Side 19
HÉRAÐSMÓT
Framhald af 15. síðu.
ir sé vel nothæfur, sem undaneldis
hestur í reiðhestarækt.
Þá kem ég að stóðhestum með
afkvæmum:
Skjóni frá Skuggahlíð í Norð-
fírði, eigandi: Guðjón Hermanns-
son.
Umsöm: „Afkvæmi stór, föngu-
leg, bráðþroska, nokkuð þung-
byggð, ganggóð og þægilega vilj-
ug. Fallegir góðhestar finnast."
Skjóni var 14 vetra, og það hefði
mátt ætla að það væri hægt að
koma með fimm góða reiðhesta
undan svo gömlum stóðhesti, en
það var öðru nær, því að það mátti
segja að afkvæmin væru að sýna
það hvemig reiðhestar eiga ekki
að vera. Þau eru þungbyggð ekki
sjáanlegur vilji til, eða lipurð.
Enda mun hestinum eðlilegra, sam
kvæmt byggingarlaginu, að fram-
leiða sláturgripi en gæðinga. Eink
unn 7,85.
Annar: Eldur frá Fornustekk-
um, Hornafirði. Eigandi: Friðrik
Sigjónsson. Umsögn um afkvæmi
Elds: „Líkjast honum að bygg-
ingu og ganglagi, fremur klár-
geng með tölti, en lítið um skeið,
um vilja er lítið hægt að segja, á
svo lítið tömdum hrossum, né um
reiðhestakosti í heild. En þau eru
frekar reisuleg og dugnaðarleg.”
Einkunn 7.35.
Þorkell segir að afkvæmi Elds
líkist honum að byggingu, en hann
lýsir ekki hvernig hann er byggð-
ur, hvorki vel eða illa, og þess
vegna fá þeir, sem lesa þessa lýs-
ingu, enga hugmynd um, hvort af-
kvæmin eru vel eða illa byggð,
sem reiðhestar. Eins er um Skjóna.
Þessum hestum, sem koma með
afkvæmi, lýsir ráðunauturinn ekki,
þetta er allt dálítið einkennilegt,
svo ekki sé meira sagt. Afkvæmi
Elds eru: 2 hestar, fjögra vetra
og tvær hryssur 5 vetra, en þær
gengu báðar með folöldum fjögra
vetra, afkvaemin voru því öll tam-
in í vor. Ég var með fimm af-
kvæmi undan honum en eitt þeirra
heltist í ferðinni, svo að ég gat
ekki haft það með á sýningum.
Þetta eru einu afkvæmin, sem
búið er að temja undan honum,
svo að það er ekki úr miklu að
velja, en kannski er það einmitt
mesta að marka, því að þau báru
það með sér að vera hestefni.
Svo ætla ég að láta gamlan
hestamann, sem er búinn að eiga
marga góða hesta, og er nú í fé-
lagi í hestamannafélaginu Fák í
Reykjavík, hafa síðasta orðið um
afkvæmi Elds. Hann sagði: Það
var gaman að sjá hvað þau voru
létt og lipur og báru sig vel og að
er virtist vel tamin. En Þorkell
Bjarnason gat ekki gert sér grein
fyrir hvort þar fóru heldur góð-
hestsefni eða sláturgripir.
Hér skal ekkert fullyrt um það
hvort þeir Eldur og Sleipnir hafi
verið verðugri betri lýsingar eða
dóma en þeir hlutu, en með tilliti
til þess dóms er þeir hestar fengu,
er við þá kepptu, fer ekki milli
mála að mjög var á þá Eld og
Sleipni hallað, munu dómar sýn-
ingargesta tvímælalaust falla á
þann veg.
Dómnefndin, sem á að dæma
hestana á afkvæmasýningunni,hún
er ekki látin sjá afkvæmin,
sem á að dæma hestana eftir,
áður en dómur er upp kveð-
inn. Dóipnefndin sér ekki af-
kvæmin iyrr en áhorfendur, en
þó er hún búin að dæma hestana
náttúrlega þá óséða.áður. Til hvers
er verið að skipa dómnefnd, ef
hún á svo ekki að sjá þau hross,
sem á að dæma stóðhestana eftir
á afkyæmsýningu? Virðist því, að
Þorkell Bjarnason hafi dæmt af-
kvæmi stóðhestanna einn, án þess
að hans meðdómendur gætu nokk-
uð til málanna lagt, eða á niður-
stöðu dómsins.
í dómnefnd voru: Egill Jónsson,
ráðanautur, fyrir Búnaðarsamband
A.-Skaft., Páll Sigurbjörnsson,
T ‘í M I N N, föstudagurinn 6. m
ráðanautur fyrir Búnaðarsamband
Austurlands og hrossaræktarráðu-
nautur Þorkell Bjamason. Þessir
þrír dómnefndarmenn hafa allir
sömu menntun frá Bændaskólan-
um á Hvanneyri (Framhaldsdeild-
inni). En stendur Þorkeli þeim svo
miklu framar að eigin áliti, að
honum þætti það óþarfa tíma-
eyðsla, að þeir fengju að sjá af-
ikvæmi hestanna, sem átti að dæma
þá eftir?
íslenzkir hestamenn. Hvað hald-
ið þið að Theódór Arnbjamarson,
hrossaræktarráðunautur, annar
eins hesta- og lærdómsmaður í
hestarækt eins og hann var, og að
sama skapi glöggur á byggingu og
afkastagetu þeirra til gangs, hefði
sagt, um slíka dóma, sem þama
voru dæmdir?
Eftir því, sem við Hornfirðingar
þekktum hans dóma á kynbóta-
hestum, hefði han talið Skjóna frá
Norðfirði óhæfan kynbótahest til
reiðhestaræktunar.
Gunnari Bjarnasyni ráðunaut,
eigum við hestamenn að þakka
þann mikla áhuga, sem nú er
vaknaður um land allt, fyrir
hans framúrskarandi túlkun bæði
í ræðu og riti.um íslenzka hestinn,
og þær yndisstundir, sem hestur-
inn veitir hverjum þéim, karli eða
konu, sem með alúð og umhyggju
gera hann að tryggum förunaut.
Þess vegna er það óbætanlegt tjón
fyrir íslenzka hestarækt, ef við
eigum ekki að fá að njóta hans
miklu reynslu og þekkngar til að
skapa íslenzka reiðhestinn. Ekki
má heldur gleyma því, hvað Gunn
ar Bjarnason hefur gert til að
kynna íslenzka hestinn erlendis,
með þeim góða árangri að á næstu
áram, getum við gert ráð fyrir að
flytja út tamda hesta fyrir gott
verð.Það getur einmitt orðið mjög
mikið atriði fyrir okkar hestarækt,
því að markaður innanlands er
ekki það mikill, að hann fullnægi
þeírri framleiðslu, sem hrossa-
bændur þarfnast. Og um leið skap-
ar það-erlendan gjaldeyri. .....
Skrifað á gamlársdag 1963.
Friðrik Sigjónsson,
Fornustekkum,
Homafirði.
HVAÐ HEYRI ÉG
(Fxamhald af 15. síðu).
andi með æru og öllu, eins og
íhald og kommar stefna að með
okkur, þá er af nógu að taka, án
þess að brýna brand ósanninda, og
þó Heimdellingar séu að sjálf-
sögðu hættir að knékrjúpa fasista-
fánum, fermdir og ófermdir hætt-
ir að kyssa hakakrossa, eins og á
árunum fyrir hertöku fslads.
En ég hata rógburð. Hann er
fyrirlitlegasta vopn, sem hægt er
að bera að nokkurri sál. Ég ann
hverjum einasta manni þess sóma
er hann getur áunnið sér á mann-
sæmandi hátt og skoða yfirleitt
náunga minn frá betri hlið meðan
stætt er. Ef stjórn S.A.K, hefði
fyrir ári, þegar hið mikla
F.U.F. var stofnað í Norðurlandi,
beint óþekku máli til löggjafar-
valdsins í leit að lögbindingu um
lágmarksaldur í flokksfélögum,
hefði mátt ætla að hún í umboði
kvenféiaganna á Austurlandi værir
að bera sálarheiil æskufólks okk-
ar Framsóknarnianna fyrir brjósti.
Jón M. Kjerúlf.
Frá Alisin^i
6. gr. Námsslcírteini
Að námskeiðum loknum fá
regiulegir nemendur skírteini um
þátttöku sína, og er það ritað á
sérstakt eyðublað og undirritað af
forstöðumanni og minnst einum
kennara, verkstjóra eða leiðbein-
anda.
Óheimilt er forstöðumanni eða
öðrum starfsmönnum að gefa
nemendum nokkur önnur vottorð.
Ef nemandi hverfur frá skólan-
um, áður en námstíma lýkur, fær
hann ekki námsskírteini.
irz 1964. —
7. gr. Tala nemenda
Á námskeið I og II eru teknir
allt að 15 nemendur, sem fá ó-
keypis kennslu, fæði og húsnæði.
Á sémámskeið fyrir lýsis-
vinnslu eru teknir alit að 4 fastir
nemendur, sem einnig fá ókeypis
kennslu, fæði og húsnæði.
Á námskeiðin fyrir „eldri“
fiskiðnaðarsmenn eru nemendur
teknir eftir því sem rúm leyfir,
og er kennsla ókeypis, en þeir
verða sjálfir að greiða dvalar- og
fæðiskostnað.
8- gr. Inntökuskilyrði
1. Sá, sem óskar að verða reglu-
legur nemandi, verður:
a) Að verða orðinn 18 ára og
ekki eldri en 35 ára. Stjórn fisk-
iðnaðarskólans (lærebrak) getur
þá, eftir ábendingu skólastjóra,
veitt undanþágur.
b) Að senda eiginhandar um-
sókn til forstöðumannsins um, að
hann æski inngöngu í skól'ann.
c) Að senda vottorð um hegð-
un sína. Vottorðið verður að vera
undirritað af „lénsmanni", presti
eða iækni.
d) Að senda vottorð frá sjúkra-
samlagslækni um, að umsækjandi
sé heilsugóður og gangi ekki með
smitandi sjúkdóma. Vottorðin skal
rita á þar til gerð eyðublöð, sem
skólinn lætur í té.
e) Að senda vottorð trúverð-
ugra manna um, að umsækjandi
hafi unnið við fiskverkun eða
fiskveiði í a. m. k. 12 mánuði.
Vottorðið skal áritað af „léns-
manni“, presti eða lækni.
f) Að senda vottorð um, að um-
sækjandi hafi öðlazt góða mennt-
un í barnaskóla (folkeskolen).
2. Sá, sem óskar að verða ó-
reglulegur nemandi, verður:
a) Að verða orðinn 18 ára, en
veita má undanþágu frá því á-
kvæði.
b) c), d), e) og f) sbr. ofan-
ritað.
VEIÐIFÉLAG ^ffrrrrr;
Framhald af bls. 20.
stórborgir, og þar reynt að gera
aðbúnað almennings sem beztan.
Þangað gæti fólk komið, setið úti
í sólskini og haft með sér bita,
en þeir, sem vildu gætu síð-
an dundað við að veiða.
Elliðavatn hefur verið ágætis-
veiðivatn, og lax mundi ganga í
það, en þó þyrfti að opna
honum leið að einhverju leyti í
gegnum stíflu Rafveitunnar. Þá
þyrfti einnig að setja seiði í vatn-
ið, og kæmi til greina að fá þau
úr ejdistöð Rafveitunnar þarna
skammt frá, en að sjálfsögðu
mætti einnig fá þau annars stað-
ar frá. Það þarf töluvert af seið-
um til þess að halda við veiðinni
í vatninu svo að ekki verði þar um
ofveiði að ræða.
Reykvíkingar geta nú ef til vill
horft fram til þess dags, þegar
kominn verður skemmtigarður
upp við Vatnsepda, þangað sem
þeir geta brugðið sér á góðviðris-
dögum til þess að sigla um Elliða-
vatn, eða veiða sér til ánægju
og að lokum fá sér einhverja hress
ingu á útiveitingastöðum.
UM KEFLAVÍK
Framliald af bls. 20.
ursmenn munu hafa sína aðal-
bækistöð. Tíu þeirra munu svo
leggja þaðan út yfir ísflæmið.
Tore Gjelsvik, forstöðumað-
ur norsku pólrannsóknar-
stofnunarinnar, kvaddi leiðang-
ursmenn á Fornebuflugvelli, og
sagði, að ef þessi för heppnað-
ist til fullnustu, mundi allur
Noregur fagna með þeim. Hins
vegar brýndi hann fyrir þeim
að tefla ekki um of í tvísýnu,
þeir skyldu vera minnugir orð-
anna: Það er líka mikils virði
að tapa með sæmd. Svo óskaði
Gjelsvik þeim góðs veðurs og
góðs íss. Og með óskir hans og
állra annarra lögðu kapparnir
af stað í heimsskautaförina.
KLAPPAÐ OG . • .
Framhald af 1. slðu.
landi, og svo var einnig allt þeirra
háttalag. Á eftir Hljómum kom
Savannatríóið fram, og voru áhorf
endur fyrst í stað ekkert hrifnir,
en áður en yfirlauk, „áttu“ þeir
allan salinn, og ætlaði fagnaðar-
látunum aldrei að linna að l'okn-
um leik þeirra.
Eftir hlé kom fram hljómsveit-
in Tónar, og var leikur þeirra all-
þokkalegur. Á eftir þeim komu svo
Hljómar aftur fram, og fór þá að
færast ókyrrð í áhorfendur, sem
risu úr sætum sínum, hrópuðu,
öskraðu og klöppuðu saman lóf-
unum. Litli, ljóshærði Keflvíking-
urinn gerði þá víðreist um salinn,
og smitaði lífsfjör hans svo frá
sér, að bókstafl'ega allur salurinn
var á iði á tímabili. Dyraverðir
hússins komu nú til skjalanna og
ætluðu að stöðva göngu piltsins
um húsið, sem vildi hvergi fara.
Lauk svo um síðir, að hann hafð-
ist út með hljálp áhorfenda. En
skömmu seinna var hann aftur
kominn á stjá innan veggja Há-
skólabíós, og þá máti víða sjá
unga fólkið, þar sem það stóð og
klappaði og æpti og vaggaði sér
eftir hljómfallinu. Sumir piltanna
voru á skyrtunum einum saman.
Tveir lögreglumenn voru fengn-
ir til að fjarlægja þann litla, Ijós-
hærða, á meðan síðasta hljóm-
sveitin Sóló, barði sínar bumbur
og strengi, sem mest hún mátti.
Engin ærsl eða ólæti urðu í
lokin, unglingarnir hrópuðu að
vísu á meiri hávaða af sviðinu, en
er hann fékkst ekki, héldu allir
út, og sumir þegjandi hásir eftir
öll ópin.
Engar skemmdir munu hafa
orðið á húsinu, enda ólætin
ekki það óskapleg. Aðeins nokk-
ur hundruð unglingar í ævintýra-
leit.
HITI í JÖKLINUM
Framhaíd af 1. síðu.
* við bara ekki við annað að
styðjast en lauslegar blaða-
fregnir frá þeim tímum. Er
sagt frá því, að eldur hafi sézt
á Vatnajökli úr Skaftafellssýslu
þetta ár. Sagnir af fleiri um-
brotum hef ég nú ekki.
KULDI í EVRÓPU
Framliald af bls. 20.
Stöðvarfjarðarvegi af þeim sök
um fyrir allri umferð nema
jeppa. Af Vestfjörðum er
það að segja, að þar eru allar
heiðar færar nema Breiðadals-
heiði, en nokkur snjór er einn-
ig á Þingmannaheiði, og hún
þungfær. Vegir á Norðurlandi
eru að verða töluvert blautir
og erfiðir yfirferðar, en hér
sunnan lands eru vegir í góðu
lagi.
íþróttfr
stjóri. Aðrar framkvæmdir
mótsins annast Skíðafélögin
sameiginlega.
Skíðaráð Reykjavíkur lætur
þess getið, að fært er jeppum
alla leið að mótstað, en aðrir
bílar komast að KR-skálanum.
Iþréftir
ið íslandsmeistarar. í þeirra
röðum var Þórólfur Beck, sem
nú gerir garðinn frægan á öðr-
um stað. Frjálsíþróttamenn fé-
lagsins eru eins og knattspyrnu
mennirnir í fremstu röð. Hand
knattleikur hefur risið og hnig
ið á víxl, í þeirri grein hefur
KR hlotið íslandsmeistaratign
bæði í karla - og kvennaflokki.
Skíðadeild er vel starfandi og
hefur reist: myndarlegan skála
í Skálafelli, þar sem skíðalyftu
hefur verið komið fyrir. Körfu
knattleiksdeild er í mjög örum
vexti. Fimleikar eru ágætlega
iðkaðir hjá félaginu. f sundinu
á KR margt efnisfólk. Glímu-
deild hefur nýlega verið endur-
vakin og starfar vel. Badminton
deild var stofnuð á síðasta ári
og stendur starfsemi hennar
nú með miklum blóma. — Nú
er svo komið, að KR verður
enn að færa út kvíamar. Hin
mikla starfsemi félagsins hefur
sprengt íþróttamannvirkin við
Kaplaskjólsvegi utan af sér, og
hyggja KR-ingar á stórfram-
kvæmdir í byggingamálum á
næstu árum.
Þegar litið er yfir farinn
veg, geta KR-ingar sannarlega
verið ánægðir yfir unnum af-
rekum. Og hvað er það nú, sem
hefur gert KR svona sterkt? —
Það er liiklaust hin mikla sam-
heldni jafnt inn á við sem út á
við, hinn sanni félagsandi —
Vesturbæjarandinn, sem fylgt
hefur félaginu frá fyrstu tíð.
______________________— alf,
GJAFAHLUTABRÉF
Framhald af bls. 20.
undanförnu verið undirbúin út-
gáfa á svokölluðum gjafahluta
bréfum Hallgrímskirkju.
Bréfin eiga að vera kvittanir
fyrir frjálsum framlögum til minn
ingar kirkjunnar, eru þau í mis-
munaniji litum eftir upphæðum
þeirra, sem eru 100 kr., 300 kr.,
500 kr„ 1000 kr„ og 5000 kr.
Hallgrímskirkju-bréfin hafa ver-
ið send öllum sóknarprestum í
landinu og verða þau fáanleg að
loknum minningarguðsþjónustum
í kirkjum um allt land sunnudag-
inn 15. marz og síðan áfram fyrst
um sinn hjá sóknarprestum. Öðr-
um vinum Hallgrímskirkju úti um
land, verða send þessi bréf tij
fyrirgreiðslu og mun síðar verða
skýrt frá hverjir þeir eru. í
Reykjavík °ru bréfin fáanleg hjá
prestum og kirkjuvörðum.
Sjöfugur
Framhald at 2. síðu.
hefur það verjð gert að nokkru
af frú Guðrúnu Björnsdóttur frá
Kornsá.
Á bezta aldri, eða 26 ára gam-
all, flytur Skafti til Siglúfjarðár, t
fullur af áhuga hins unga athafna
manns, en ríkur af reynslu áranna
að Nöf.
Eins og fyrr segir, urðu útgerð
og fiskkaup vettvangur Skafta
Stefánssonar.
Það væri synd að segja að alltaf
hafi vel gengið, nei oft olli afla-
leysi, illt veðurfar og óáran óhöpp
um og tapi, en Skaft.i missti aldrei
kjarkinn og bar höfuðið jafnan
hátt. — Hann stillti líka gleði
sinni í hóf þegar vel gekk og mik-
ill afli barst að landi. —
Skafti Stefánsson hefur aldrei
öfgamaður verið.
í félagsmálum hefur hann stutt
Framsóknarflokkinn og samvinnu
hreyfinguna
Hann var einn af stofnendum
Kaupfélags Siglfirðinga og verið
einlægur stuðningsmaður þess um
áratugi, og hefur átt sæti í stjórn
þess.
í bæjarstjórn Siglufjarðar hef-
ur Skafti átt sæti, svo og hafnar-
nefnd o. fl. nefndum.
Skafti hefur í þessum störfum
sínum sem öðrum, sýnt trú-
mennsku og dugnað, sem í dag
ber að þakka.
Það er von mín, og ég veit allra
þeirra, sem bezt þekkja Skafta og
frú Helgu, að Skafti eigi eftir enn
að lifa mörg ár, og að síldin veið-
ist á ný fyrir Norðurlandi, ekki
eina viku eða svo, heldur sumar-
langt, það sem eftir er af þessari
öld og miklu iengur.
Þá veit ég að Skafti mun una
sér í Siglufirði ef annir verða
nógar, og þá mun framtíð Siglu-
fjarðar einnig vera borgið, en
hana hefur Skafti jafnan borið
fyrir brjósti.
Samferðamenn Skafta, vinir
hans og kunningjar, senda hop-
um sjötugum og fjölskyldu hans,
innilegustu árnaðaróskir, ’ og
þakka samveru og ’ samstarf lið-
inna ára.
M Jón Kjartansson.
19