Tíminn - 06.03.1964, Qupperneq 20
f
Föstudagur 6. marz 1964
Kuldi ríkir víðast hvar í
Evrópu nema á íslandi
BÚNAÐARÞINGI var slitlð í gaer. MYNDIN var tekln, er þlngfulltrúar
► . K> '
55. tbl.
48. árg.
ÁRSHÁTÍÐ
Framsóknarfélögin í Reykjavík
halda árshátið sína að Hótel Borg,
í kvöld og hefst hún klukkan 9.
Ávarp: Einar Ágústsson, alþing-
lamaður. Einsöngur: Inga María
Eyjólfsdótlir. Leikfimisýning
stúlkna úr Ármanni og glímumenn
úr Ármanni sýna foma leiki. —
Savannatríóið. — Aðgöngumiðar á
aðeins 100 kr. verða afgreiddir í
Framsóknarmenn
á Akranesi!
Framsóknarfélag Akraness held
or skemmtisamkomu með Fram-
sóknarvist og kvikmyndasýningu ,
í félagsheimili sínu, Sunpubraut
21, sunnudagskvöldið 8. marz kl.
8,30. Öllum heimill aðgangur.
Tjarnargötu 26, símar 1-55-64
1-60-66. Matur er framreiddúr
kl. 7 fyrir þá, sem vilja.
frá
FB-Reykjavík. 5. marz
Vcðurspáin fyrir allt landið
á morgun hljóðaði upp á góð-
viðri klukkan 14 i dag, en þá
var 6—8 stiga hiti alls staðar
á landinu. Síðdegis í dag var
aftur á nióti orðið heldur nap-
urt í Evrópu, t. d. var komið
17 stiga frost í Helsingfors.
í fyrradag var meðalhitinn í
17 borgum Evrópu 3,1 stig, og
þá var 3 sliga hiti í Re.vkjavík
en það var næstmesti hiti í
þessum borgurn, aftur á móti
var einu stigj heitara í Genf,
Zurich og Madrid.
í dag er tniklu kaldara á meg
inlandinu, hitinn kominn nið-
ur undir eða að frostmarki. í
Helsingfors er nú komið 17
stiga frost, í Stokkhólmi er 5
stiga frost, og í London var
um 6 leytið í kvöld a. stlga hiti
en éljagangur. Á meðan þessu
fer fram úti í heitni er blíð-
viðri hér um allt land og flestii
vegir færii.
Allir vegir eru færir á Aust-
urlandi. nema ef vera skyldu
Möðrudafsöræfin. Vegir fyrir
austan eru orðnir nokkuð blaut
ir, og hefur orðið að loka
Franih^lH í Ms. 19.
Um Keflavík til Pólsins
KH-Reykjavík, 5. marz
Klukkan hálf átta að kvöldi
2. marz s.l. lenti norsk flugvél
á Keflavikurflugvelli með
nokkra unga og hreystilega
Norðmenn innan borðs. Við-
dvöl þeirra varð þó ekki löng,
enda var Keflavíkurflugvöllur
aðeins fyrsti áfangi á langri
lcið — þvert yfir Norðurheim-
skautið. Og þeirra för er ekki
á enda, fyrr cn þeir hafa tekið
land á Svalbarða eða cinhvers
staðar á Rússlandsströndum.
Það var lítið um að vera við
komu kappanna til Keflavíkur-
flugvallar, en því meira gekk á
við brottför þeirra af Forne-
buflugvelli í Noregi. Þar voru
hundruð manna samankom-
in, vimr, ættingjar og aðrir,
sem þangað söfnuðust af for-
vitni. Norsku piltarnir ellefu,
sem lögðu upp i þessa löngu
— og langt frá því hættulausu
för á mánudaginn var — eru
allir á aldrinum 19—31 árs.
Leiðangursstjórinn er 25 ára
piltur frá Osló, Björn Staib, og
tvítugur bróðir hans, Terje
Staib, tekur einnig þátt í för-
inni. Leiðangurinn er farinn á
vegum norsku pólrannsóknar-
stofnunarinnar, en kostnaður
að verulegu leyti greiddur af
Alþjóðlega landfræðingafélag-
inu í Washington.
Frá Keflavíkurflugvelli lá
leið kappanna til Thule í Græn
landi, og þar mnnu þeir hafast
við til laugardagsins 7. marz.
Þangað fóru líka nokkrir að-
stoðarmenn og fréttamenn frá
blöðum og sjónvarpi, sem
munu fylgjast með leiðangrin-
um frá Thule. Sfðasti áfanga-
staðurinn, áður en leiðangurinn
hefst í raun og veru, er eyjan
Ward Hunt, sem er nyrzti hluti
Ellesmerelands. Þar stendur
mannlaus kanadísk veðurað-
vörunarstöð, þar sem leiðang-
Framhald á bls. 19.
Fyrirliði Norðurhcimsskauts.
leiðangursins er aðeins 25 ára
að aldri, Björn Staib að nafni.
Hann er fyrir miðju á mynd-
inni, cn með honum er móðir
hans og tvílugur bróðir, Terje
Staib, sem einnig tekur þátt
í leiðangrinum.
drukku kaffi síðdegis. Mála sem hlutu afgreiðslu á þinglnu í gaer sg
fyrradag, verður getlð hér í blaðinu á naestunni. (Ljósm.: TÍMINN-GE).
Gjafa-
hluta-
bréf
FB-Reykjavík, 5. marz
Eins og skýrt hefur verið frá,
íefur biskupinn valið 15. marz til
»ess að vcrða minningardagur
lallgrims Péturssonar í tilcfni
»css, að nú cru liðin 350 ár frá
æðingu hans.
í því sambandi hefur einnig ver
ð minnt á minningarkirkju hans,
:em verið er að reisa, og hefur að
Framhald á bls. 19.
) ÞETTA er hin prentaða mynd
á annarri síðu bréfslns af llsta-
verkinu Hallgrlmur Pétursson eft-
lr Einar Jónsson myndhöggvare,
með áletruðu versinu: „Gef þú
að móðurmálið mlss".
Miðstjórnarfundur
Aðalfundur miðstjórnar Frara-
sóknarflokksins verður settur í
dag kl. 3 í félagsheimili Fram.
sóknarmanna, Tjarnargötu 26.
Störf fundarins hefjast með
yfirlistsræðu formanns flokksins,
Veiðifélag um Eliiðavatn og nágrenni
FB-Reykjavík, 5. marz
Á döfinni er stofnun veiðifé-
lags, sem ná á yfir vatnasvæði
Elliðavatns með Vatnscndavatni,
Hólmsár upp að fossi ncðan við
Selvatn og Suðurár í Nátthaga-
vatn. Þór Guðjónsson veiðimála-
■tjóri scgir, að þarna sé gott veiði
vatn, sem gæti orðið skemmtilegt,
ef eftirlit yrði haft með veiðinni,
sciði látin í Elliðavatn, og jafn-
vel bættur aðbúnaður þarna í
kring fyrir þá, sem kæmu til þess
að vciða.
Borgarráö samþykkti nýlega á
fundi sínum, að taka þátt í stofn-
un þessa veiðifélags, enda taki
allir jarðeigendur á svæðinu þátt
í félagsstofnuninni. Þeir, sem eiga
land að þessum vötnum og ám eru
Vatnsendi, Elliðavatn, sem er í
eigu borgarinnar, Hólmur, Gunn-
arshólmur, Lækjarbotnar og Ell-
iðakot, en fleiri muni eiga rétt á
veiði á valnasvæðinu.
Veiðimálastjóri kvað mikið hafa
borið á því að menn hefðu veitt í
leyfisleysi á þessum slóðum, og
umgengni því ekki ætíð verið sem
skyldi. Ræddi hann um, að viða
erlendis væru veiðivötn í eða við
Framhald á 19. slöu.
Eysteins Jónssonar. Að hcnni lok
inni flytur ritari flokksins, Helgi
Bergs, skýrslu sína um innan-
flokksmálin. Þá mun gjaldkeri
flokksins, Sigurjón Guðmundsson,
flytja skýrslu sína um fjárhaginn
og framkvæmdastjóri Tímans,
Tómas Árnason, gefa yfirlit um
afkomu Timans. Þessu næst verða
almennar umræður um skýrslurn-
ar.
Um kvöldið verður árshátíð
Framsóknarmanna i Reykjavík að
Hótel Borg.
Á laugardaginn kl. 10—12 f.h.
er gert ráð fyrir að nefndir starfi,
en kl. 2 e.h. hefjist afgreiðsla
mála.
Gert er ráð fyrir því, að fund-
inum ljúki síðari hluta dags á
sunnudag.