Tíminn - 20.06.1964, Qupperneq 3

Tíminn - 20.06.1964, Qupperneq 3
HEIMA OG HEIMAN Var Ófelía kanski dálítið móðursiúk? HIÐ FRÆGA leikrit, Hamlet, gerist á Helsingjaeyri í Danmörku. sem kunnugt er. Hvergi þykir betur við eiga að sýna þennau harmleik, þar sem mikið kemur við sögu hið sorglega ástarævin týri danska prinsins og hinnar ungu Ófelíu, en í Krónborgarkast- ala og hallargarðinum, þessu alda gamla húsi, sem ótal íslendingar þekkja aðeins tilsýndar, siglandi á skipi inn Eyrarsundið eða út. Stundum koma frægir leikflokk ar um langan veg frá öðrum lönd- um og heimsálfum að flytja leik- inn um hinn dularfulla prins og stúlkuna ungu, scm gekk af vitimu Sjálfir setja Danir lei'kritið oft á svið á þessum stað að sumarlagi og þá leggja margir ferðamenn þangað leið sína. En þar sem mörg atriði geiust úti fyrir höll- inni, er það undir veðri komið, hvort af sýningu verður eða ekki. Nú í ár, á 400 ára aftnæli Shake- speares, verður Hamlet auðvitað leikinn í Krónbergarkastala á Hels ingjaeyri, og í þetta sinn með einhverri yngstu leikkonu, sem þar hefur leikið hina ógæfusömu ungu ás'tmey prinsins. Þessi leik- kona er aðeins 1E ára og heitir Ann Mari Max Hansen, og fer hér á eftir úrdráttur úr samtali henn- ar við dönsku blaðakonuna Birgit Rasmussen. (Þese er skemmst að minnast, að í vetur leið var hlut- verk Ófeliu einnig leikið af korn ungri leikkonu hér á sviði Þjóð- leikhússins, Þðrunni Magnúsdótt- ur. Blöðin í Reykjavík birtu þá viðtöl við hana, og gæti sumum þótt forvitrdlegt að sjá, hvað hin unga starfssystir liennar hefur að segja um Hutvcrkið og sitthvað fleira í sambandi við leiksviðið. 5etn hún hefur haft nokkur kynni, af þó að hún sé kölluð yngsta itik kona Danmerkur). Þegar blaðakonan kom á fund leikkonunnar ungu, hefur hinni síð amefndu víst þótt vitfirringaratr- iðið í Krónborgarkastala hreinasti bamaleikur hjá því að lenda í blaðaviðtali, og móðir hennar hef- ur talið tryggara að vera dóttur- inni til trausts og halds, sem var ekki nema 15 ára. Hvaða feril á Ann Mari svo að baki á leiksviðr? Satt að segja er hún orðin langeyg eftir hlur- verki af léttara tagi, því að hingað til hefur hún aðeins fengið hlut- verk sem lýstu átakanlegum fyr- irbærum. Fyrir fjóram áram lck hún blindu telpuna í „Kraftaverk- inu“ (sem 13 ára telpa úr Kópa- vogi, Gunnvör Braga Björasdóttir. á að leika í Þjóðleikhúsinu í haust), því næst lék Ann Ma.ii Önnu Frank í Dagbók Önnu Frank (hlutverkið, sem Kristbjörg Kjeld lék hér i Þjóðlcikhúsinu á sínum tíma og varð fyrst kunn fyrir). Og svo kemur nú Öfelíuhlutverkið, og ekki fær það glaðleg endalok. Blaðakonan byijar að spyrja Ann Mari urn hin fyrri hlutverK hennar. „Hefur það ekki tekið talsvert á taugarnar að hafa frá 11 ára aldri orðjð að sökkva sér ofan í raunaleg örlög Önnu Frank og Helen Keller?*1 „Auðvitað hef ég orðið að hugsa miklu meira um þessi alvarlegu fyrirbæri en ég annars hefði ger*:. Nú ber ég meira skyn á hvað það er að vera fædd blind og geta ANN MARl: „Ekki held ég að ég hefði missi vitið í sporum Ófelíu." ekki skoðað heircmn utan frá. Or í hlutverki Önnu Frank fékk ég tækifæri til að skyggnast inn 1 kjör og örlög Gyðingafjölskyldu á stríðsárunum sícustu. Önnur oörn heyra bara um þetta í mannkyns- sögutímum í skolanum og skilja þetta ekki nógu r.áið.“ „Ertu búin að velta mikið vöng um út af Ófelíu?" „Ég hef lesið leikritið hvað eft- ir annað og meira orð Ófelíu en nokkuð annað, aður en sjálfar æf- ingarnar byrja. Ég verð að segja eins og_ er, sem. mér finnst, að raunir Ófelíu sem ollu því að hún l tr.issti vitið, séu líkar því, sem mörg stúlkan nú a dögum verði líka fyrir, án þcss að þær gangi af vitinu út af s.liku. Ég held það sé varla ástæða til að taka þetta svona nærri sér, stúlkur verða afi sýna af sér dáií'.ið meiri hörúu." „Eða með öðrum orðum: Vai Ófelía þá kannski pínulítið móður sjúk?“ „Við komums* ekki svo að orði nú á dögum. Á nútícnamáli heit- ir það víst taugaveiklun eða því líkt,“ skaut móðirin inn í. „Ertu ekki kvíðin fyrir vitfirr- ingaratriðinu?" „Eg held að Helen Keller-hlut verkið verði mér þar til hjálpar. því að hún vav lika öll úr jatn. vægi, nærri eins og villidýr. „Gætirðu ekul hugsað þér að leika stúlkur, sem bera ekki svona þungar byrðar eins og í þessutn hlutverkum? Eða ætlarðu kannshi að verða tragísk leikkona?" — Mig langar mikið til að ieika í söngleik eða óperettu, einna mest dreymir mig um að leika fröken Nitouche x óperettunni með sama nafni. Þar eru falleg lög, sem ég kann upp á tíu fingur, því að ég hef séð pabba leika í þeirri óperettu xr.argsinnis. Og þeg ar hann var kominn heim, settist hann við píanóið og spilaði og svo sungum við saman lögin úr Nitouche.“ Hér grípur fruin inn í og seg ir: „Maðurinn minn byrjaði líka kornungur að koma fram á teik- sviði. Hann var svo stuttur, að hann stóð varla út úr hnefa, þeg- ar han var suður i Miinchen tóif ára gamall. Þar kom hann fram í svokölluðum kabarett eða skemmtidagskrá og söng fullum hálsi. Og það secn hann fékk í laun fyrir frammistöouna, sem /ak:i mikla skemmtun, var gúllas og buxnatala, sem átti víst að vera peningur. Þessa sögu hefur hann sagt mér oftar en einu sinni.“ „Gengur þú erm í skóla, An.n Marj?“ „Ég hætti í öðrum bekk í gagn- fræðaskóla, þegar ég fór í ieik- ferðalag með leikritið Önr.i Frank“. — Fannst þér þú ekki fórna miklu með því aö gera það? — Ne-ei, sagði Ann Mari og dró við sig svarið og brosti á ská og skakk. Eg hef nú aldrei getað melt reikning eða stærðfræði, en tungumál og bokmenntasögu ge: ég lært á eigin spýtur. Eg hef ein sett mér að læia exns mörg tungu mál og ég mögulega get, því að ég álít það mjög mikilvægt. Og þar sem aíiir spyrja unglinga þeirrar spurningar á þessum síð ustu og verstu 1imum, hvort haim eða hún sé aðdáandi bítlanna, þá læt ég ekki hjá líða að leggja líka þá spurningu fyrir Ann Mari. Og hún svarar ósköp blátt áfram að það sé hún ekki, og hún liti heldur ekki niður á þá. Hún seg- ist ósköp vel getað hlustað á dæg urlög í útvarpinu. en hins vegar elski hún klassiska músík og óper ettur. í tómstundum lesi hún bæk ur og spili plötur. Líka hafi hún gaman af að fa; a í útreiðarferðir og á skíði og skauta, en það verði hún ajð neita sér um, þegar hún sé á samningi við leikhúsin. Það sé ekki hægt að bjóða upp á það, að mæta einn góðan veðurdag fótbrotin eða eitthvað þaðan af verra. Það séu peningar í veði, og þvorki gúllas eða buxnatölur, segir hún og brosir stríðnislega. Svo ætla ég að biðja þig, þegar þú skrifar þetta ' blaðið, að segia ekki þú við mig. A FÖRNUM VEGI ÞAÐ mun hafa verið haustiS 1938 e8a 1939, ef ég man rétt, sem tekin var upp sú nýbreytni að seinka klukkunni um eina klukkustund, um fyrstu vetrarheigi. Síðan hefur þetta verið gert haust hvert, og honni $vo flýtt aftur um fyrstu heigi f apríl. Þetta hefur yfirlebt verið mönnum til ama og óþurftar, en engum til gagns. Alveg sérstaklega mun þetta vera hvlmleitt sveitafólkinu, sem hef'i- skepnuhirðingu, og vinnur marg- háttuð útistörf. Meira að segja blessaðar skepnurnar kunna þessu illa. Þær eru vanafastar og kunna því bezt að fá gjöf, og aðra þjón- ustu, á sama tima. Á haustin, þe-v ar klukkunni er seinkað, sem eins og fyrr segir, er um veturnætur, e' undireins eins og komið sé blá skammdegi, myrkrið er skollið a fyrr en varir, til mikils óhagræðis öllum þeim, sem úti vinna, en á þeim tíma eru unnin margháttuð útistörf, ef tíð leyfir, svo sem við byggingar, jarðabætur, koma á- burði á tún og í flög, við girðingar o. fl. að ógleymdri skepnuhirðing- unni, en I sambandi við hana gei'- ur oft verið mikilsvirði að taka dag Inn snemma, og þó alveg sérstaklega meðan fé liggur úti, ef veðurbreyf- ing fer í hönd. Ekki er vitað að neina nauðsyn beri til að vera með þessa tilfærslu á klukkunnl, og væri efalaust hagkvæmast og heppileg- ast að hafa hana alltaf á sama tíma, og virðist þá sjálfsagt að hafa hana alltaf á svokölluðum „sumartíma" þ. e. einum klukkutíma á undan sól. Það er nú svo nú til dags, að menn eru meira háðir klukkunni en áður var, og getur ekki hver og einn farið þar eftir sínum geðþótta, þar sem svo margt sameiginlegt er við hana bundið, sími, útvarp, áætl- unarferðir margs konar o. s. frv. Menn fara á fætur eftir klukkunni hvort sem hún er fljót eða sein, og haga störfum í samræmi við hana. Af því leiðir að menn sofa meira og minna fram á bjartan dag, bæði eftlr að klukkunni hefur verlð seinkað á haustin, og eins eftir að (Framhald á 11. síðu). Á VÍÐAVANGI . Kollhnís Ef nokkur stjórn hefur steypt sér kollhinís og farið í hring þá er það núverandi rík isstjótn á íslandi. Mönn-um er enn í fersku minni skrif og iræður núverandi forsætisráð- herra 1958 er hami hæddist að Hermanni Jónassyrd þáverandi forsætisráðherra, fyrir að leggja áherzlu á að vandann, sem þá var vtð að eiga í efna- hagsmálum, yrði að leysa í sam ráði og samvinnu við verkalýðs hreyfinguna Kallaði Bjam'i för Hermanins á Alþýðusambands- þing hina mestu óvirðingu við Alþingi og sagði að efnahags- málin ætti að leysa á Alþingi en ekki á „skirílsamkomum“. Það er kominn annar tótnn í belginn þann núna og talað af hógværð til verkalýðshreyfing arinnar og lögð á það áherzla að ríkisvaldið verði að letita samstarfs við verkalýðshreyf- inguna. Að vísu vitum við, að ríkissljórnin var knúin t!il samn iniga og varð að láta undan, en fagna ber þessari hugarfars- breytingu, þótt hún kuinni að rista grunnt og nái ekki langt inn fyrir varirnar. Þá var öldin önnur í samningum sínum féllst ríkisstjórniin á verðtryggingn kaupgjalds. Þegar hún kom til valda var það eitt meginatriðið í stefnu hennar að banna alla verðtryggingu kaupgjalds. Þessu til staðfestingar skulu hér á eftir birtar nokkrar orð- réttar tilvitnanir í Morgun- Maðið frá 1960: „f því skyni er lagt til að óheimilt sé að m!iða kauipgjald við breytingar á vísitölu . . . .telur ríkisstjórn in að það eigi að vera hlutverk samtaka launþega og atvinnu- rekenda að semja um kaup o>g kjör.‘ „Samtök atvinnuirek- enda og lauoþega beri ábyrgð á samr.ingum um kaup og kjör“ „Ríkisstjórnin verður ekki aðili að vinnudeilum.“ — „Einn megin þátcur hinnar nýju lýð- ræðislegu stjónnairstefnu er sá, að ríkið afsalar sér miklu valdi og áhrifum, sem það hefur að unda.iförnu haft á hina ýmsu þætti atvinnuhfsins og stendur framvcgis utan víð hagsmuna- átök stéttann-a.“ (Mbl. 6. febr. 20. marz og 27. marz 1960) Þetta var nú hiin yfirlýsta stefna þá. Það tók þá 4 ár að vitkast svolítið. Stefnubreytlng Það skal engin halda að ríkis- stjórnin hafi breytt um mark- mið þótt hún hafi nú látið und an. Barátunini verður að halda áfiram og knýja fram algera stefnubreytingu í efnahagsmál- um. f ara jákvæðu leiðina í stað þeirra neikvæðu, sem nú er farin. Beina fjármagniinu, sem til ráðstöfunar er til fram- leiðsluaukningar og taka tlilllt til, þegar valið er milli fjár- festingarmöguleika, hvor leiðir ti'I mestrar firamleiðniaukning- ar. Koma upp fullkomnum neyt endaiðnaði á grundve'lli sjávair- útvegs og landbúnaðar, hefja skipulega markaðsleit og fram leiðslutilraunir með aðstoð ríkisvaldsins. Stjórniaus verð- bólgufjárfesting eins og hér hefur verið leiðir ekki áð þessu marki heldur verður eingöngu til að gera dýrtiðina óviðiráðan legri. Vextiina verður að lækka og verðtryggja spariféð. Við verðum að temja okkur nýtízko Framhald á bls. 11 T í M I N N, laugardaginn 20. júní 1964 — 3

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.