Vísir - 21.12.1957, Qupperneq 1
-JóIaMiið
1957
SIRA JAKOB JONSSON:
Jörðin á tilveru sína undir
trú mannanna.
JólaliugleiBing þessi er ekki í prédikunarformi,
heldur skráð sem venjuleg hlaðagrein. En les-
andinn er beðinn að lesa eða rifja upp fyrir sér
söguna um fœðingu frelsarans, sem skrifuð
stendur í Lúkasarguðspjalli 2. kap., og einnig
upphaf Jóhannesarguðspjalls, fram að 19. versi
hins 1. kapítula.
Tilraunadýriö.
Hvernig svo sem á er litið, er eitthvað óhugnan-
legt við það, að senda lifandi kvikindi í gerfitungli
út í geiminn. Óskandi væri, að vísindamennirnir, sem
þetta gerðu, hafi einnig séð fyrir því, að vesalings
hundurinn hafi fengið að deyja sársaukalaust. —
Annað er þó enn ægilegra tilhugsunar. Vísindamenn
hafa, samkvæmt boði stjórnarvaldanna í fleiri en einu
landi, starfað að því undanfarin ár, að hafa allt mann-
kynið að tilraunadýrum. Ekki þarf nema lítils háttar
slys, óhapp eða glappaskot fákunnandi manna til þess,
að líf og velferð alls mannkyns sé í veði. Það er ekki
svo gott, að menn megi búast við allsherjar lífláti
allra í einu vetfangi, heldur gæti svo farið, að menn-
irnir á jörðinni dæju út smám saman sem vanskapn-
ingar og andlegir aumingjar.
Óttinn.
Óttinn grefur um sig meðal mannkynsins. Sumir
reyna að byrgja hann inni, sef ja sjálfa sig, sumir með
æ háværara skemmtanalífi, þar sem söngurinn er
orðinn að skrækjum, aðrir með nautn áfengis og
deyfilyfja, og enn aðrir hugsa sér að sitja meðan
sætt er, út frá hinu forna orðtaki: „Etum og drekk-
um, því á morgun deyjum vér“.
Trú og trúarbragöastriö.
Eins og fyrri daginn fæst vonin fyrir trú, en kjarni
allrar trúar er traust. En hverjir eru þeir guðir, sem
heimurinn setur traust sitt á? Hverjir eru þeir, sem
hafa valdið í hendi sér? Það eru hinir pólitísku vaid-
hafar, stjórnendur stórveldanna í austri og vestri.
Þeir eru guðirnir í dag. Og þá kemur spurningin: Get-
um vér treyst þeim? Einn trúir á miskunnsemi og
vizku þess, sem í vestrinu býr, annar á hinn, sem er
í austri. Og orðin „austur“ og „vestur“ eru orðin að
trúarjátningum tveggja andstæðra flokka, sem heyja
trúarbragðastríð sín á milli, — pólitískt trúarbragða-
stríð um pólitíska guði. Trúin á þessa guði er boðuð
með öllum áróðurstækjum aldarinnar, og fleiri eða
færri hátíðir eru haldnar ár hvert í þeirra nafni.
Fullnœgja hin pólitísku trúarbrögö?
Segjum, að annað hvort austrið eða vestrið vinni
sigur yfir hinu. Gerum ráð fyrir, að sá sigur fengist,
án þess að stórveldin gerðust algerir mannkynsmorð-
ingjar. Þá myndi samt sem áður koma í ljós, að mann-
kynið fyndi sig ekki algerlega öruggt. Hinn pólitíski
Drottinn væri ekki annað en maður, einn í margn-
um og öðrum líkur. Dýrkun hans væri manndýrkun.
Hann gæti orðið óður af ótta, eins og aðrir menn,
— hann gæti fyllzt grimmd og djöfulæði, — hann gæti
gert hræðileg glappaskot. Honum gæti komið til hug-
ar að hafa milljónir manna fyrir tilraunadýr, engu
síður en þeim valdhöfum, sem nú stjórna. — Af þessu
leiðir, að honum væri aldrei fullkomlega treystandi.
í hans eigin sál yrði barátta milli góðs og ills, milli
Ijóss og myrkurs.
Lífið er ekki eingöngu pólitík.
Lífsþarfir og lífsbarátta mannsins er margþætt.
Valdhafar þjóðanna hafa ekki umráð yfir sumum
þáttum mannlífsins. Jafnvel sá stjórnandi, sem væri
fús til að þyrma mannkyninu við vítisvélum og tund-
ursprengjum, væri samt máttvana gagnvart hinum
margvíslega vanda og hættum, sem að mannssálinni
geta steðjað. Hann hefði hvorki vizku né mátt til að
fylgjast með í sálarstríði þeirra, sem berjast við
freistingar og lágar hvatir, og hann gæti ekki veitt
manninum þá öryggiskennd, er hann þarf að eiga
gagnvart lífi og dauða á jörðinni. — Einhvern tíma
kemur sú stund, að hver maður þarf að stíga það
spor, er mannlegur máttur megnar einskis. f dauð-
anum gilda engar pólitískar línur. — Og meðan vér
lifum á jörðinni og sjáum ekki lengra en vér sjáum,
hlýtur ein spurning að snerta hjarta hvers hugsandi
manns: „Hvers eðlis er það afl, sem þeytti — ekki
gerfitunglinu — heldur jörðinni sjálfri út í geim-
inn? Er alvaldur tilverunnar eins og kaldrifjaður
rannsóknarmaður, sem hefir allt mannkynið, og hina
pólitísku guði líka, að tilraunadýrum á þessari furðu-
legu kúlu? Erum vér og allt vort líf háð einhverjum
dutlungum, tilviljun, á hrapandi tungli, sem enginn
Framhald á nœstu síðu.
pl
Éj
íSJ
sx.1
@?,
©?.
®4'
$
i
m
1
í
É;
<3?,
H;
É
É
É
(sjj
Hi
@?i
Éi
É
&
É
©?,
£§já!
(§»'
®?j
SS.
@?j
eí?;
ftj
m