Vísir - 21.12.1957, Blaðsíða 11

Vísir - 21.12.1957, Blaðsíða 11
J ÓLABLAÐ VÍSIS II \JeniuL enjittecja p^nr SAL\HJR, allar stær&ír \ *■ riií - t* IJTIH|JBÐIR IMMIHIJRÐIR GLLGGAEFMI LISTAR, alls konar THUBilR sftc' ■ ÞILPLÖTIJR, harðar og mjúkar KROSSVIÐilR ÞAKPAPPI ^JJaffótœtt É TInibnrverzlMfiin VÍ)i_UfypUR h.f. uer m m m Klapparstíg, 1! Síml 18430 hrSSuðu scr til klefa sinna til að hafa plögg sin, vegabref, gjaldeyris- og tollskýrslur o,1 þ. 1, tiltækiiegt um leið og beir stigu á land. Þeir vissu nú, að ( ferðiiini var að verða lokið )g allt hafði gengið vel. Lehmann skipherra, sem hafði verið ■ að gera að gamni 'sínu við farþegana fór nú niður i stjórnklefann og fylgdist mcð störfum Pruss skipherra, sem | var við stjórn. Lchmann var ‘einskonar heiðursgestur þarnaj um borð og bar ekki ábyrgð á stjórn skipsins — sú ábyrgð !á nú í höndum Pruss skipherra — en þessi gamla hetja loíisins gat ekki látið hjá líða að fylgjast með öllu og ósjálfrátt fannst honum hahn vera ábyrgur, nú sem endranær, fyrir öryggi skips og íaþega. Hann ætlaði að ræða við for- 1 leggjarana Green & Company um útgáfu bókarinnar „Zeppe- lin“. Það var líka mikið undir1 því komið að lendingin og öll afgreiðs’a gengi nú greiðlega úr þessu, því loftfarið átti að leggja af stað aftur austur um haf á miðr.ætti og 45 farþegar, \ sem ætluðu að vera við krýn- ingu Georgs VI. í London í, næstu viku, biðu ferðbúnir í New Ycrk og mátti því engu, ' skeika — hingao til höfðu Þjóð- ^ verjarnir lagt allan sinri metn- 1 að í þao. að loftfarið færi stund- ! visíega af stað í hverja ferð. Ekki fréttnæmt framar! Nú birti upp. Skýjahæðin var orðin um 800 metrar og aðeins tveggja hnúta vindhraði við jörð. Myndatökumennirnir stóðu reiðubúnir með vclarnar sínar og allt var reiðubúið til að taka á móti risanum, sem var að nálgast. Myndatökumaðurinn Jack Snyder frá Philadelphia Record setti nýja filmu í vélina sína — hún var númer 13. — Þrettán, sagði hann, það verður eitthvað ekki í lagi með þessa filrnu, ef að vanda lætur! Og það voru þarna fleiri fréttamenn og þeir vonuðú að Lehmann skipherra gæti sagt þeim eitthvað athyglisvert og fréttnæmt til þess að lífga upp á frásagnir þeirra, því þetta var eiginlega orðið svo vanalegur hlutur, að risinn kæmi og færi, að það var varla orðið í frásög- ur færandi lengur. Stundum voru þó að minnsta lcosti fræg- ir menn meðal farþega, eins og Douglas Fairbanks og frú hans, Lady Ashley, Max Sehmeling og Lady Grace Drummond Hay — en í dag! — nei, það var ekki einu sinni svo vel, að um neina verulega fræga menn væri að ræða, sem fengur væri i fyrir blaðaménn. Inni í loftskeytastöðinni sat Nehlsen og bölvaði truflunun- um sem voru á talsambandinu og merkjunum í sambandi við lendingarfyrirskipanirnar og hann reyndi að laga þetta eftir mætti. Eckener var ckki í vandræðum. Vio lendingarmastrið. og á- fyllingartækin fyrir olíuna. er loítfarið átti að taka. stóðu nokkrir menn og óttuðust að skipið mundi ekki ná ems krappri beygju, og nauð- synlegt vgr, til ao koma rétt að mastrinu. Öðrum fannst Þjóð- verjarnir vera nokkuð djarfir í ;að snúa þessu stóra ferlíki — en enn aðrir dácust að snilli þeirra við stjórn risans og töldu að þeir væru að sýna getu sína. Á stjórnpalli skipsins stóðu Pruss og aðstoðarmenn hans og léku listir sínar. K1 7,19 var gasi hleypt út og vatni, og skip- ið nálgaðist jörðina. Þegar það var í 200 feta hæð stýrði skip- ið upp í vindinn. Þegar um 700 fet voru eftir að mastrinu gaf skipherrann fyrirskipanir til vélamannanna og allir fjórir díseJhreyflarnir tóku aftur á bak. Skipið staðriæmdist í loft- inu. „Þetta er ekki eins og hjá Hugo gamla,“ ságði einn mað- urinn sem stóð við lendingar- mastrið. Annar tók undir þetta og sagði, að Eckerier — sá gamli snillingur — hefði svo sannar- lega ekki verið i vandræðum, þótt hann ætti að lenda á íí- eyringi. Þegar mótorarnir tóku aftur á bak, hvein i þeim eins og heml- um á bíl, sem staðnæmist ofsa- lega og skipið stóð þarna kyrrt í loftinu, eins og það væri bundið við mastur. Lendingunni lokið! En Rosendahl vallarstjóri vissi, að vindurinn við jörð blés úr suðaustri, en í þeirri hæð, sem loftfarið var, var Jiann aust an, og honum fannst þetta vel af sér vikið hjá skipherranum. Kl. 7,21 var íyrsti kaðallinn látinn síga niður. Hann var um 400 fet á léngd og tveggja þumlunga gildur. Svo kom sá næsti og þeir voru báðir bundn- ir í vagnana, sem runnu ef.tir brautinni. Vindhviða sneri skipinu ofurlítið á stjórnborða og það hertist á balcborðskaðl- inum. Rétt þarna hjá var Morri- son fréttamaður og hann rauk nú í simann og tilkynnti, að Ilindenburg hefði einmitt í þessu verið að lenda hgilu og liöldnu. Það var næturvörslu- stjórinn hjá Standard News Association sem fékk þessa til- kynningu og samtímis var hon- um tilkynntur tíminn upp á sekúndu. . S.umir farþegarnir teygðu sig út að gluggai’úðunum til að' reyna að sjá vini sína og fjöl- skyldur, sem væri þarna niðri til að taka á móti þeim. Flestir voru þó inni í aoalsalnum stjórnborðsmegin og höfðu raðað sér þar upp með tilliti til tollskoðunarinnar, sem brátt mundi hefjast. Beint undir loftfarinu stóð Pat Dowling, tilbúinn að af- henda 35 pund af ís, sem láta skyldi í matvælageymslur skipsins. Og þar rétt hjá stóðu tollverðir og fulltrúar vega- bréfaeftirlitsins í röðum. Eldurinn gýs upp. Nú biðu allir í eftirvæntingu og það heyrðist ekkert nema suðio í hreyflunum, sem mjök- uðu risanum hægt og hægt nær mastrinu. „Það er rétt svo að vélarnar halda honum frá-----------“ Það var Morrison, fréttamaðurinn í símanum, sem talaði, en nú þagnaði hann skyndilega í miðri setningunni. Þá var klukkan 7.25 e h. Allt í einu gaus upp eldsúla, ofan til á skipinu aftast, rétt. við efri uggann. Hann greip andann á Ioftir „Það stendur í ljósum loga! Það- brennur — brennur — það- brennur ægilega!“ Frú Spah, kona fimleika- mannsins, sem beið þarna niði’i. til að talca á móti honum, hélfc- fyrst að þetta væru flugeldar. Hún hafði aldrei séð loftfar lenda fyrr og hún hélt að þetta væri gert til hátíðabrigða vegna tafanna, sem ox-ðið höfðu á komu loftfarsins. Starfsliðið á vellinum sá allt- í einu eldhafið yfir höfði sér og; hver og einn tók til fótanna, sem mest hann mátti til að- forða sér áður en logandi risinn félli niður yfir hann. Svo kváðu við sprengingar — hver á eftir annari — og þá nötraði allt — byggingarnar á. Ivellinum — turninn — allt- ' Það barst eins og þrumugnýr- I um loftið, langt út fyrir vallar- I svæðið og menn héldu að dóms- dagur væri nærri. Við Tom. River — 15 km. í burtu — jheyðum þrumuna og það var (eins og himininn stæði í ljósum. loga. Sumir urðu ekki varir við neitt. En Herbert O’Laughlin, kaup« sýslumaður frá Chicago, sem var í klefa sínum í loftfarinu,. heyrði ekkert. Hann fann aðeinsu ofurlítinn kipp fara um skipið,. en svo heyrði hann að menn !voru á hlaupum í ganginum og: þá gekk hann út úr klefanum.' 'og út á skemmtigöngubrúna. til' þess að sjá, livað um væri að* vera. Framh. á bls. 27. , á

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.