Vísir - 21.12.1957, Blaðsíða 2

Vísir - 21.12.1957, Blaðsíða 2
2 JÓLABLAÐ VÍSIS imtáÁ vsitlaasla á Engl&fiid EFTIR A. C. MERCER. Svo segir í fornusn, þýzkum sögnum, að Haraldur harðráði hafi tekið Haithabu (Heiðabæ) fyrir norðan Saxelfi árið 1050 með 60 langskipum og eytí bæinn. í Heimskringlu cr einnig sagt frá töku bæjarins. Myndin hér að# ofan var tekin í fyrra, er menn köfuðu í fjörðinn úti fyrir Heiðabæ og fundu margar hauskúpur mcð áverkum og eru þær taldar frá þeim tíma, er víkingar eyddu bæinn. Síðla ágústmánaðar árið 1066 kom mikill floti skrautlegra skipa siglandi fyrir hægum byr „burt frá strönd og ey“ úr lygnum Sognsæ út á grágræna víðáttu Norðursævar. Röndótt seg'l, rauð, græn og blá þönd- ust út, er skipin komu út úr lygnunni og sjórinn þj'rlaðist upp undan háttbundnum ára- togum hundraða ræðara. Hin ^læsta sigling lagði upp frá Sólundaeyju. Flest skipanna voru langskip — hraðskreið en sterklega byggð með fagrar línur og gtafninn skreyttan rauðum og .gullnum drekahöfðum — hin uggvekjandi langskip víking- anna. Á borðstokk skipanna var raðað á víxl hinum gulu og svörtu skjöldum skipverja, er sátu tveir og tveir á þóftunum •og knúðu skipin með árum sín- um, er seglið var ekki uppi. En meðal skipanna voru einnig hin klunnalegri skip kaup- mannanna — kuggar og byrð- ángar — hlaðin varningi, vist- um og vopnum, og einnig smærri skip hlaðin mönnum og vopnum. Alls staðar blikaði á vopn og verjur, því þetta var upphaf mesta og síðasta her- leiðangurs Noregskonungs til að vinna hið mikla herfang, er lá handan við hafið í suðvestri. 250 skipa floti. í þessu skyni hafði Haraldur harðráði, Noregskonungur, safnað að sér helft allra vopn- færra manna í landinu, og þessi tvö hundruð og fimmtíu skip, er lögðu þarna frá landi út á Norðursjóinn fluttu 20.000 vík- inga, er skotið höfðu öllum strandbúum frá Skotlandi til Bospórus skelk í bringu um langt skeið. Haraldur konungur, bjartsýnn og sigurviss, hafðd skilið son sinn, Magnús, eftir í Noregi til að gæta ríkisins í fjarveru sinni, en hafði með sér rússneska drottningu sína, El- ísabetu, tvær dætur þeirra og sextán ára son, Ólaf, ásamt miklum auðæfum, þar með tal- inn gullklump, er var svo þungur, að tólf menn þurfti til að flytja hann úr stað. Bjartsýni konungs var ekki að ástæðulausu. Hann var fæddur hermaður og leiðtogi, og fáir menn í Evrópu voru betur fallnir til að stjórna slík- um leiðangri sem þessum. Og hermenn hans, víkingarnir, stóðu engum að baki í her- mannlegu atgervi. Fimmtán ára gamall hafði Haraldur særzt í orustunni á Stiklastað og flúið á laun til Rússlands. Þar gekk hann í þjónustu Jaro- slavs frá Kænugarði og varð fyrirliði hinna frægu „útlend- ingahersveita“, Væringja — er Grikkir kölluðu „axa-vopnaða siðleysingja“ — í Miklagarði 1034. Hann hafði barizt í Sýr- landi, Armeníu, við Efrat, í Palestínu, Búlgaríu, Afríku og Sikiley, og sem foringi hinna fræknu Væringa hafði hann jafnan haft sigur. í löndum Serkja hafið hann unnið „átta- tíu kastala“. Grímur of ófyrirleitinn. Haraldur var mikill maður vexti — meira en sjö fet á hæð — og hinn föngulegasti, nor- rænn að útliti, ljóshærður með stuttklippt kjálkaskegg, og efrivararskegg. Þessi norræni risi hlýtur að hafa verið tígu- legur maður hvar sem hann var, en einkum hefir hann ver- ið tilkomumikill í herklæðum og á vígvelli. Þótt hann væri grimmur og ófyrirleitinn við andstæðinga, og sæktist eftir auði og metorðum, gat hann verið gjafmildur og göfugur ekki aðeins við vini sína, held- ur einnig á stundum við óvini sína. Hann var reyndur og úr- ^ræðagóður bardagamaður, sem aldrei varð ráðfátt og gat sam- ^ einað fífldirfsku, hugrekki, ; kænsku og slægð. Haraldur konungur var metnaðargjarn og ósvífinn og greip oft til launmorða til að losna við ihættulega andstæðinga, svo j sem ganvart Einari Þambar- skelfi, er var honum óþægur „ljár í þúfu“. Haraldur átti hjá- konu, Þóru að nafni, er fætt hafði honum synina báða, Ólaf og Magnús.*) Snemma á þessu örlagaríka sumri hafði Tósti jarí, bróðir Haralds Englakon- ungs, komið til hirðar Haralds Noregskonungs og beðizt styrktar og fulltingis gegn þegnum sínum, er höfðu hrakið *) Fjölkvæni var þá algent í Noregi. hann frá jarldæmi sínu í Norð- imbralandi í ársbyrjun vegnæ óánægju með stjórn hans. TótL jarl hafði í reiði sinni leitað- fyrst suður yfir Ermarsund, tit Flandurs og Normandí til að afla sér liðstyrks og hjálpar til að vinna aftur völd sín og. landsvæði. Vilhjálmur krefst Englands. Vilhjálmur hertogi af Nor- mandí, er áður hafði gert kröf— ur til konungdóms í Englandi,. var ekki fráhverfur því að nota. Tósta sem verkfæri og fékk honum skip og menn, sem Tósti jarl notaði til að ráðast á suður- og austurströnd Eng- lands. Sú herför misheppnaðist, því Eaðvin, jarl í Merciu við Humru, sigraði Tósta, og komst undan til Skotlands með nokk- ur skip. Nokkuð er á huldu um, hvað hann tók sér fyrir hendur næst, en svo virðist sem hann hafi: haldið til Danmerkur, þar sem hann reyndi árangurslaust að fá Svein konung til að veita sér lið í annarri árás á England. Sveinn konungur hafnaði þessu áhættusama ævintýri, en bauð Tósta í þess stað jarlstign í Danmörku. Þeir skildu síðan „sáttir að kalla“. Predik ■veit, hvar lendir að lokum? Er tilveran með öðrum orðum ekkert annað en ein vitfirring frá upphafi til enda? Og hvar ■er þá von? Hvar er öryggi? Hvar er tilgangur? Trúarbrögð jólanna. Eg sagði áðan, að maðurinn þarfnaðist trúar, — þarfnaðist guðs, og hvar er þá guðs að leita, úr því að hinir pólitísku guðir duga ekki? Hvar er sá guð, sem elskar mennina, ber umhyggju fyrir þeim, styrkir hið góða og leiðir það til sig- urs? Þann guð boða jólin. Og vér þurfum ekki út fyrir mannheiminn til að sjá hann, því að hann hefir sjálfur birt gæzku sína og kraft í sínum elskaða syni, — manninum, sem fæddist í litlum fjárhús- kofa suður í Betlehem. Honum geta allir treyst, því að elska hans er ótakmörlu.ö, umhyggja hans óendanleg. Jesús opinber- ar alvald himins og jarðar sem ástríkan föður, og enginn faðir hefir börnin sín fyrir tilrauna- töýr í tilverunni, heldur hlýtur un — tilgangur lífsins, hver sem hann kann annars að vera, að miðast við elsku guðs til mann- anna, barnanna sinna. Hann elskar hvert einasta mannsbarn eins heitt og hann elskar son sinn, sem fæddist á jólunum. Honum getum vér treyst í lífi og dauða. Stríð milli Ijóss og myrkurs. í mannheiminum er stríð milli ljóss og myrkurs. Meira að segja guðssonurinn, sem varð maður, fór ekki varhluta af þeirri reynslu. Myrkrið beindi ekki að honum vetnis- sprengju eða banvænni eld- flaug, heldur negldi hann á kross. En krossinn varð honum sigurtákn, en ekki ósigurs, því að hann reis upp frá dauðum, hvarf inn í himininn, og er í anda sínum og krafti nálægur hverju mannsbarni, einnig þeim, sem ekki trúa á hann. Hann er með oss alla daga, ekl i sem áhorfandi að þrautum mannkynsins, heldur þátttak- andi í styrjöldinni milli Ijóss og myrkíirs. Það stríð er ekki háð neinum jarðneskum landa- merkjum, hvorki stórveldanna né annarra. Þar gildir hvorki austur né vestur, né neinar jarðneskar áttir. Og ríki Krists er „hvorki hér eða þar“, heldur hið innra í mönnunum. Heilög jól. Baráttan fyrir ríki Krists á jörðinni er ekki háð með vopn- um og ekki heldur með haturs- fullum árásum á andstæðing- ana. Þegar fylgendur hans hafa freistazt til að nota slíkar bar- áttuaðferðir, hefir það jafnan gert málstað hans skaða og tjón. Hin eina aðferð, sem kærleik- urinn getur notað til að efla vald sitt á jörðinni, er sú, að vekja góðar hugsanir, sem af spretti góð verk. Kirkjunni hefir Drottinn falið að gangast fyrir þessu verki, en hún á sér hjálpendur langt út fyrir sín eigin takmörk, jafnvel í heiðnum löndum, bæði í austri og vestri, hvervetna þar, sem maðurinn þorir að trúa á sigur hins góða. Ein af aðferðum kirkjunnar til að flytja boðskap Krists og styrkja trúna á' hans guðsdómsvald, er að halda há- tíðir, ekki aðeins jólin, heldur einnig páska og hvítasunhú, og auk þess helgar hún einn dag í viku hverri trúnni á kærleik- ans drottin. — Hin pólitísku trúarbrögð nútímans hafa einnig sínar hátíðir og „helgi- daga“, og sumstaðar hverfa há- tíðir Krists í skuggann fyrir þeim. Jafnvel jólin eru að vefða hornreka. Þó er mikið eftir af þeim enn, og ég vona, að þeir, sem þessar línur lesa finni það einnig á þessum jólum, að trú- in á guð jólanna lifir í hjarta þeirra, þrátt fyrir allt. En jólin eru ekki til orðin til þess eins að vekja hugljúfa stemningu, heldur til að styrkja mennina í trúnni á kærleikans drottin, trúnni á ljósið, og hervæða huga þeirra gegn myrkrinu, hvar sem það smeygir sér inn. Verði trúin á Krist nógu sterk í hugum mannanna, stafar eng- um hætta af gerfitunglum, kjarnorkutilraunum né öðru, sem oss nú stendur beygur af. Hrifnmg hins unga menntamanns. Nýlega sá ég bréf frá ungum student, sem leggur stund á eina af hinum hagnýtu gremum náttúruvísindanna. Hann ræðir þar um gerfitunglið rússneska. Hann á varla orð til'.að lýsa hrifningu sinni. Hann sér í anda hinn dásamlega stjörnu- himin, sem hvelfist yfir höfð þess manns, sem komist gæti yfir á tunglið, þar sem engin. ský eru til að skyggja á Ijóma himinhvolfsins. Hann sér opn- ast fyrir sér nýjar víðáttur, horfir á jörðina tilsýndar, cins og sjómaðurinn sér ljós í gl'igg- anum heima, utan af sjónum. — Þannig er hin barns'lega gleði ungra vísindamanna t'.m allan heim, glímuskjálftinn á undan stórkostlegustu atrenn- unni í baráttu raunvísindanna, sem vér enn þekkjum til. Eigi þessi gleði ekki að snúast í sorg, og glíman að enda með dauða, verður maðurinn, — einnig þú. sjálfur — að öðlast sterkari trú en vér ennþá eigum á kærleiK- ans guð. En verði mennirn'r Kristi trúir, munu þeir áður en lýkur sjá meira af skapa.ar.s dýrð en nokkur kynslóð nefir séð frá því sögur hófust. Jörð- in sjálf á tilveru sína undir tnV mannanna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.