Vísir - 21.12.1957, Qupperneq 35

Vísir - 21.12.1957, Qupperneq 35
35 JÓLABLAÐ VÍSIS RISE STEVENS: BEM ÉG HEF FENGfÐ Dag þann, er eg var óham- ingjusömust á allri ævi minni, íékk eg bezta ráð, sem eg nokkru sinni hefi fengið. Eg hafði tapað í samkeppni um stöðu, við Metropolitan-óper- una í New York. Eg sat í litla herberginu mínu og fól andlitið í höndum mér. „Eg hafði í sannleika sagt, vænst þess að þér munduð vinna í samkeppninni,“ hafði forstjóri óperunnar, Edward Johnson, sagt við mig í síma. „En söngkonan, sem sigraði, hefir fengið meiri æfingu en þér“. Eg hafði fengið þúsundir dollara að láni til þess að geta stundað söngnámið. Nú þótti mér allt það fé tapað. Eg var vonsvikin og svartsýn. Anna Schön-Rene — kennslukona mín — var hjá mér. En hún sagði ekkert af því, sem eg þráði að hún segði. Eg vænti þess hún lýsti yfir því; að mín rödd væri betri en söng- konu þeirrar, sem sigurinn bar úr býtum, að eg hefði verið rangindum beitt og stafaði það af því, að eg ætti ekki vini við óperuna. Nei, hún talaði ekki um þetta, heldur það, að eg þyrfti að æfa mig og byrja þegar daginn eftir. Um leið og René fór mælti hún: „Góða mín, það er nauð- synlegt fyrir þig að gera þér ljóst, að betur má ef duga skal. Lærðu sjálfsgagnrýni.“ Mér féllu þessi ummæli henn- ar illa. Það var ekki uppörv- andi fyrir mig að hiusta á því- líkt. Mér leið svo illa að ekki var á bætandi. i Þó urðu þessi orð, sem Anna Schön-René sagði við mig daginn er eg hafði beðið ósig- ur bezta ráðið, sem eg hefi fengið. Eg kenndi afar mikið í brjósti um sjálfa mig. Alla nóttina lá eg vakandi. Eg gat ekki sofnað meðan ég kom ekki auga á, í hverju mér var ábótavant. Eg spurði sjálfa mig: „Hvers vegna tapaðirðu í samkeppninni? Hvernig geturðu sigrað í næsta skipti?“ í fyrsta sinni viður- kenndi ég fyrir sjálfri mér, að rödd minni væri ábótavant. Tónsviðið var ekki nógu yfir- gripsmikið. Eg þurfti einnig að bæta framburð textanna. Eg kunni ekki nógu mörg tónverk. Næstu mánuðina vann eg átta til níu klukkustundir á dag við söngæfingar og hljóm- listarnám. Svo söng eg aðalhlutverkið í Orfeus, sem hljómlistarskóli nokkur „uppfærði“. Edward Johnson var meðal áheyrenda. Á eftir kom hann upp til mín og- bauðzt til að gera samning við mig sem söngkonu við Metropolitan-óperuna. Þótt mér þætti þetta girni- legt tilboð, neitaði eg þó að þiggja það. Mér var ljóst, að eg þurfti að ná meiri þroska. Skuldir mínar voru komnar yfir tíu þúsund dollara. En Anna Schön-René treysti því, að eg mundi sigra, og kostaði Evrópuför mína. Hér um bil í tvö ár var eg við óperuna í Prag. Þar söng eg oft kvöld eftir kvöld ný tónverk. Nokkrir vina minna höfðu sagt við mig að mér mundi aldrei aftur gefast tækifæri til þess að komast að Metropolitan óperunni. En er eg þóttist viss' um að hafa fengið nægan þroska til þess að starfa þar, sótti eg um atvinnu við þessa frægustu óperu heimsins — og fékk hana. í fyrsta sinn er eg söng í Metropolitan-óperunni fékk eg ágætar viðtökur og lofsamlega dóma. Hið góða ráð Önnu Schön- René hjálpaði mér, einnig í hversdagslífinu. Hún hafði kennt mér að gagnrýna sjálfa mig. Úm margra ára skeið hafði eg þjáðst af óróleika í hvert sinn, er gestir komu til mín. Sama máli gegndi, er eg var gestkomandi hjá öðrum. Sjálfstraust það og öryggi, er eg hafði á leiksviðinu, hvarf er eg var innan um annað fólk— að undanskildum fáum vinum mínum. Mér féll þetta afar illa. Þá fór eg að hugsa um ráð Önnu Schön-René, kennslu- konu minnar, og skildi; að eg reyndi að vera eitthvað annað en eg var. Eg vildi- vera áber- andi í einkalífinu eins og eg var á leiksviðinu. Ef einhver sagði eitthvað skemmtilegt, reyndi eg þegar að segja eitt- hvað enn skemmtilegra. Eg gerði mig hlægilega á þennan hátt. Eg lét einnig eins og eg vissi ýmislegt, sem eg bar lítið eða ekkert skynbragð á. Eg komst að þeirri niðurstöðu, eftir að hafa gagnrýnt sjálfa mig, að eg væri hvorki fyndin né mjög gáfuð. Bezt væri að látast ekki vera meiri en mað- ur var. Þegar eg haíði gert mér grein fyrir takmörkunum mínum fór eg að hlusta á mál rnanna og spyrja, er eg var meðal fólks. Eg gerði ekki framar tilraunir til þess að hreykja mér. , Eg komst þegar að því; að eg gat lært margt af öðrum mönnum. Eg hætti að strá gullkornum umhveríis mig og lagði ekki margt til málanna. Eg og vinir mínir og kunningjar urðum samrímdari eftir en áður. Er eg hafði hætt því að láta mikið á mér bera, lærði eg að þekkja sálfa mig og koma eðli- lega fram. Þetta varð mér til ánægju. Eg varð vinsælli eftir að hafa tekið ofan grímuna. Eg varð róleg og mér leið vel. Eg hafði verið of fljótfær. Dómar mínir um menn og mál- efni höfðu verið felldir án milc- illar umhugsunar. Er mér varð ljós þessi veikleiki minn breytti eg um strik. Þessi breyt- ing á mér mun hafa orðið þess valdandi, að eg fékk þann mann, sem eg er nú gift. í fyrsta sinn er eg sá hann, geðjaðist mér ekki sérstaklega vel að honum. En sem betur fór beið eg með að mynda mér ákveðna skoðun á honum þar til eg hafði kynnst honum betur. Flestum er kunnugt um kostS sína, en margir vilja loka aug-* unum fyrir því, sem þeim eri ábótavant. Hið góða ráð, sem Annal Schön-René gaf mér, varð mért j leiðarvísir, og hefir hjálpaðl .mér til þess að viðurkenna'og| leiðrétta ýmsa ágalla í fari. mínu er höfðu valdið mér mik- i illi sorg og óánægju. Eg er vissi um að orð hennar geta hjálpaffi, hverjum þeim, sem hugsar al-< varlega um þau. í veitingahúsi: — Pabbi ég get ekki borðað þessa súpu. — Þjónn komið þér með aðra súpu handa syni mínum. — Pabbi ég get heldur ekki1 borðað þessa súpu. — Þjónn, komið með aðra súpu handa þessum unga manni. — Eg get enn ekki borðað súpuna. 1 — Hvers vegna í fj.... ekki?f — Mig vantar skeið. — Eruð þér þjónninn sem tókuð við pöntun minni? haldið yður vel. Hvernig líður barnabarnabörn- unum? frá A/S TITAN Kaupmannahöfn útvegaSar meS stuttum fyrirvara. GenS tímanlcga aSvart ef varahluti vantar fyríi' næstu síIdarvertíS. VÉLSMiDJAN HÉÐINN H. F. REYKJAVÍK

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.