Morgunblaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 23
ÞJOÐHATIÐARBLAÐ 17. júní 1944 23 FRAMTÍÐ LANDBÚNAÐARINS Eftir Jón Sigurðsson, alþingism. Reynistað i. ÞEGAR ritstjórar Morgunblaðsins fóru þess á leit við mig í tilefni af þeim merkilegu tímamótum, er nú standa fyrir dyrum, að jeg skrifaði greinarkorn um framtíð íslensks landbúnaðar, tók jeg því fálega. Þeg- ar vordagarnir koma, eru helstu verkefni okkar bændanna atð hlúa að nýgræðingnum og nýju lífi; merkilegt starf, sem of fáir kunna að meta eins og vert er. Það eru störf, sem taka bóndann allan, ef hann ber það heiti meir en að nafni. Skriftir og ritsmíðar verða þá hvimleið viðfangsefni, sem flestir óska horfin út í hafsauga. Þetta verðúr að vera afsökun mín fyrir því, að til þessarar greinar er ekki svo vandað sem jeg hefði kosið og efnið verðskuldar. — Það skal tekið fram, að í einum þætti þessarar greinar er stuðst mjög við athuganir, er gerðar hafa verið og fram koma í sámkepnisrit- gerð, sem send var B.fjel. íslands. II. ÞVÍ MIÐUR verð bæði jeg og aðr- ir að taka undir með skáldinu: „Lítið vitum aftur' en ekki fram, skyggir Skuld fyrir sjón“. Þetta gildir jafn- vel framar venju nú, meðan alt er í óvissu um, hvað ofan á verður hjá stórþjóðunum, t. d. í verslunar- og tollmálum o. m. fl., er íslenskan land búnað varðar miklu. Jeg geri þó fastlega ráð fyrir, að hlutverk íslensks landbúnaðar og bændastjettar haldist óbreytt eins og það hefir verið á liðnum öldum frá upphafi Islands bygðar, en það er: 1. að sjá þjóðinni fyrir hollri og kjarnmikilli fæðu; r. 2. að leggja þjóðinni til efni til iðnaðar, t. d. ull í hlýjaij, klæðnað og skinnavöru ýmiskonar. 3. að framleiða gjaldeyrisvöru til útflutnings • að því leyti, sem fram- leiðsla landbúnaðarvara er meiri en innanlandsþörfin krefur á hverjum tíma. 4. að ala upp tápmikið og heilbrigt fólk bæði á líkama og sál. 5. að varðveita tungu þjóðarinnar og íslenska bændamenningu. Jeg er sannfærður um, að framtíð- arheill þjóðarinnar veltur meðal ann ars mjög á því, hvort íslensk bænda- stjett verður þess megnug að leysa þessi verkefni vel af hendi. III. ÁÐUR EN jeg ræði frekar um framtíðina vil jeg þó fyrst staldra við. Síðan um síðustu aldamót hef- ir fólki fækkað í sveitum, þar með talin kauptún með færri en 300 íbúa, úr 62919 manns ofan í 46984 manns árið 1940. En sveitirnar hafa ekki að eins mist rúmlega V\ af mannafla sínum og vinnuorku, sem hefir flutst til kauptúna og sjávarþorpa. Með þessu fólki hafa einnig flutst miklar fjárhæðir á mælikvarða okkar bænd- anna. Þetta hefir ekki verið rann- sakað, en er þó vissulega rannsókn- arefni. Grunur minn er, að hjer sje um marga miljónatugi að ræða, mið- að við núgildandi verðlag peninga. Þrátt fyrir þessa blóðtöku hafa þeir sem eftir sátu orkað því að al- sljetta mörg tún og hefja mikla tún- útgræðslu og engjarækt, byggja víðs- vegar bæði íbúðar- og útihús úr var- anlegu efni, gera girðingar, sem ná yfir afar miklar vegalengdir og ótal önnur mannvirki. Á sama tíma hefir búpeningi bænda fjölgað. Töðufallið meir cn tvöfaldast. Útheysfengurinn aukist nolckuð, og ef tekið er tillit til aukinna afurða búfjárins á hvern einstalding, má telja, að á síðustu 43 árum hafi fram’eiðsla landbúnaðar- ins aukist um nálægt 50%. Á síðari árum hafa auk þessa mörg hjeruð og sveitir lagt á sig stór gjöld til vegagerðar innanhjeraðs. Þetta, á- samt fjárframlögum rikisins, hefir orkað því, að árlega fjölgar þeim býlum, sem fá akfæran veg heim til sín, svo fjarlægðirnar hverfa nú óð- um. Allar þessar framkvæmdir og auk- in afköst eru hvað sem hver segir Grettistak, sem íslenskir bændur hafa lyft, þrátt fyrir mikinn missi bæði manna og fjármuna. Þetta sýnir ljóslega orku íslenskra bænda, en það er atriði, sem ekki er hægt að ganga framhjá, þegar rætt er um framtíðina, og hvers vænta má af bændastjettinni, ef það tekst, sem jeg vona, að búa henni þau starfsskilyrði, að hún geti meytt að fullu krafta sinna. IV. TIL ÞESS að íslenskir bændur geti valdið þeim verkefnum nú og fram- veg'is, er vikið var að hjer að fram- an, verða bændur að fá framleiðslu- verð fyrir vörur sínar. Margir draga í efa, að bændur geti að stríðinu loknu selt vörur sínar erlendis fyr- ir framleiðsluverð. Þeir gera því ráð fyrir, að framvegis verði bændur að framleiða eingöngu fyrir innlendan markað. Ef hrakspár þessar rætt- ust, væri loku skotið fyrir allan vöxt ■* v landbúnaðarins um langt skeið. Alt tal manna um nýbýli, samvinnubygð ir og margt fleira, væri þá óvitahjal. Þeir sem trúlausastir eru á framtíð ísl. landbúnaðar, fengju þá að sjá drauma sína rætast, er nær hálft landið legðist í eyði. Hjer er því eins og sakir standa um mjög þýðingarmikið atriði að ræða fyrir framtíð landbúnaðarins, og verður þess vegna ekki hjá því komist að athuga það sjerstaklega. V. ÍSLAND er af búfróðum mönnum talið vel fallið til landbúnaðar, þótt framleiðslan geti ekki orðið fjöl- breytt. Jarðvegurinn er mjög vel fallinn til ræktunar. Veðráttan veld- ur bændum að vísu örðugleikum, en ýms ráð eru nú fyrir hendi til að bæta úr því, sem áður þektist ekki, og þeim hjálparráðum fer vafalaust fjölgandi. Bændur í öðrum löndum hafa einnig við margvíslega örðug- leika að stríða af völdum náttúrunn- ar, þótt þeir búi sunnar á hnettinum. Skilyrði eru hjer góð til grasræktar bæði að því er snertir uppskerumagn og gæði hennar, en á grasræktinni byggist ísl. landbúnaðurinn. Búpen- ingurinn er lítt ræktaður, en kyn- góður og stendur til mikilla bóta. Loks er hjer gnægð ræktunarlands, víðlend og grösug heiðarlönd til sumarbeitar og lengur, ef samtök væru um að notfæra sjer þau á rjett- an hátt> og ódýrt jarðnæði, saman borið við nágrannalöndin. Við höfum því frá náttúrunnar hendi skilyrði til að keppa við aðrar þjóðir um sölu búfjárafurða, ef ann- að brysti ekki. Framh. á bls. 25. SÁMSSTAÐIR í FLJÓTSHLÍÐ. Eitt mesta fyrirmyndarbú á landinu í nýtísku stíl, í höndum Kleménsar Kristjánssonar tilrauna-stjóra. Húskapurinn þar bendir á margt um fr amtíð íslensks landbúnaðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.