Morgunblaðið - 08.03.1956, Side 16
32
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 8. marz 1956
llúíé og jarðargróði fer vaxandi
j
.... - ■ ->
Margur merkur fróðleiktir er í Hagtiðindum
{NÝÚTKOMNUM Hagtíðindum segir að bæði tala búfjár og jarð-
argróði hafi aukizt á árinu 1954. Fer bæði nautgripum og
sauðfé fjölgandi á árinu og heyfengur eykst. Eru skýrslur þessar
hinar fróðlegustu og getur að líta samanburð allt frá árinu 1950.
Við afhendingu r,HenrÍ6tfu,'-verðlaunanna
SAUÐFÉ
í skýrslunni segir að sauðfé
hafi fjölgað mjög mikið á árinu,
en þó mest þar sem nýlega höfðu
orðið fjárskipti, svo sem í Rang-
árvalla- og Árnessýslum, og
einnig hlutfallslega mikið í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu. Þá fjölg-
aði fé einnig mikið í Mýrasýslu
og Snæfellsnessýslu og öllum
sýslum norðanlands, en mest þar
í Húnavatns- og Skagafjarðar-
sýslum. Fjárskipti áttu sér hvergi
stað en allmikið af lömbum var
flutt inn í ýmsa hreppa og kaup-
staði á Suðvesturlandi. Fjárflesta
sýslan er Húnavatnssýslan með
ÝL.382 kindur, en Akureyri fjár-
flestur af kaupstöðum til með
3.089 kindur, en alls er sauð-
fjáreign landsmanna 635.080 og
heifr fjölgað um 82 þúsund frá
árinu áður.
NAUTGRIPIR
Þá segir og að nautgripum hafi
einnig fjölgað verulega 1954 og
nokkuð jafnt um land allt, þó
fækkaði þeim lítillega í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, sem staf-
áði af því að margt lamba var
kevpt inn í sýsluna um haustið,
én í þremur sýslum er tala þeirra
nærri óbreytt. í öllum öðrum
sýslum landsins var um verulega
fjölgun að ræða. Mestur er fjöldi
nautgripanna í Árnessýslu eða
8.078 gripir og af kaupstöðum til
eru flestir nautgripir á Akureyri
eða 501. Alls eru 47.328 nautgrip-
ir á landinu og hefir þá fjölgað
um rífiega 2 þúsund á árinu 1954.
HF.YFENGUR
Enn segir að heyfengur hafi
orðið nokkru meiri en árið 1953,
sem þó hafði þá verið mestur í
sögu þjóðarinnar. Úthey var 127
þús. hestum minna 1954 en 1953,
en taðan varð hins vegar 219 þús.
hestum meiri. Minnkun úthey-
skapar orsakast af tvennu,
en það er að engi hafi verið óvíða
vel sprottin og heyskaparlok
erfið norðanlands. en þó mest af
því að minna er hirt um heyskap
á engjum, síðan túnrækt efldist.
Hins vegar var góð spretta á tún-
um, enda betur á þau borið en
nokkru sinni fyrr. Langmestur
er töðufengurinn í Árnéssýslu,
351,195 hestar, en útheysverkun
aftur á móti mest í Rangárvalla-
sýslu eða 88.200 hestar. Af kaup-
stöðum er töðufengur mestur á
Akureyri, en útheysverkun mest
í Ólafsfirði. Tekið er fram að í
skýrslunum frá 1954, sé talið með
Akureyri Glerárþorp, sem sam-
einað var bænum í árslok 1954.
GARÐAVEXTIR
Uppskera garðávaxta er aftur
á móti mun minni 1954, en árið
áður, enda Var árið 1953 mesta
uppskeruár á garðávexti í sögu
þjóðarinnar. Af sýslum til er
langmest ræktað af kartöflum í
Rangárvallasýslu, eða 11.395
tunnur og að sjálfsögðu er mesta
kartöflurækt landsins í Reykja-
vík 32.800 tunnur, eða rúmlega
þriðjungur allrar kartöflufram-
leiðslunnar árið 1954, sem var 95
þúsund tunnur yfir allt landið.
ANNAÐ BUFE
Þegar litið er yfir tölur um
annað búfé landsmanna má segja
að allir flokkar þess fari fækk-
andi frá því 1950 að telja. Hross-
um fækkar jafnt og þétt og eru
nú um 37 þús., en voru 42 þús.
1950. Sama er að segja um geitfé.
Nú aðeins 138 geitur. Svín eru
svipuð að fjölda. Hænsni nokkru
færri, en allmikill tröppugangur
virðist á fjölda þeirra frá ári til
árs, voru 1954 um 80 þúsund.
Ennfremur eru endur, gæsir og
refir taldin með, en nú má heita
að hætt sé ræktun refa og ann-
arra loðdýra og eru aðeins talin
18 árið 1954.
MeirapréSsnámskeið
fyrir bílsljéra
á Sauðárkróki
SAUÐÁRKRÓKI, 2. marz. —
Námskeið fyrir meiraprófsbif-
reiðarstjóra var haldið hér á
Sauðárkróki 1.—28. febrúar s. 1.
námskeiðinu veitti forstöðu Berg-
ur Arnbjarnarson bifreiðaeftir-
litsmaður á Akranesi. Auk Bergs
kenndu þeir Vilhjálmur Jónsson
vélstjóri frá Akureyri, sem var
aðalkennari og Geir G. Back-
mann bifreiðaeftirlitsmaður í
Borgarnesi.
Nemendur voru 24, allir úr
Skagafirði, að undanteknum ein-
um, sem var frá Eyjafirði. Má
það teljast allmerkilegt, að svo
margir úr sömu sýslu skyldu taka
þátt í námskeiði þessu. Nám-
skeiðinu lauk með sameiginlegri
kaffidrykkju að Hótel Tindastóli.
Voru margar ræður fluttar. —
nemendur þökkuðu kennurum
mikla og góða kennslu og ágætt
samstarf.
Árið 1949 var sams konar nám-
skeið haldið á Sauðárkróki. Voru
nemendur þá 36 víðs vegar að af
landínu.
Fjárhðgsáællun SiglufjarSar samþykkt
Tekjur af áfengissölu 225 þúsund
Rekstrarhalli bæjarins 580 þúsund
Siglufirði, 1. marz.
GÆR, á óvenjulegum
IGÆR, á óvenju rólegum eldhúsdegi í bæjarstjórn Siglufjarðar,
voru samþykktar fjárhagsáætlanir bæjarsjóðs, hafnarsjóðs og
Rafveitu Siglufjarðar 1956. Niðurstöðutölur fjárhagsáætlunar bæj-
arsjóðs voru 5.570 þús.
Það eru ekki cinungis „Oscar' -verðlaun, sem veict e/u íioliywood-kvikmyiidaleikurunum fyrir góðan
leik, því að hér birtum við mynd frá afhendingu á „HsnneíliG-verðlaununum, sem veitt eru árlega
samkvæmt tillögum erlendra blaðamanna í kvik nyndaborginni. Að þessu sinni hlutu verðlaunin
Marlon Brando, Jean Simons og Grace Kelly. Hér eru þær á myndinni — Jean til hægri. Af ein-
hverjum ástæðum er Marlon Brando ekki með á myndinni, en í hans stað höfum við kvikmynda-
leikarann Gregory Peck, sem kynnti kvenmennina fyrir blaðamönnunum við afhendingu verðlauna-
gripanna.
Höfundur bókarinnar
„Lygn streymir Boa
gagnrýiidiir
u
HINN KUNNI rússneski rithöf-
undur, Mikhail Sjolokhov, sem
skrifaði m. a. bókina „Lygn
streymir Don“, deildi harðlega
á rússneska rithöfunda á flokks-
þinginu í Moskvu á dögunum.
Skömmu síðar birtist grein í rúss
neska blaðinu „Literaturnaya
Gazeta“, þar sem harðlega var
ráðizt á Sjolokhov — og hann
sakaður um lýðskrum.
Á flokksþinginu kvað Sjolok-
hov rússnesku rithöíundasam-
tókin vera samtök dauðra sálna.
í tilefni þessara ummæla ritaði
formaður kommúnistaflokksins í
leppríkinu Tadzjikisan, B. Gaf-1
urov, opið bréf, sem birtist í fyrr
greindu blaði Segir þar, að Sjo-
lokhov hafi í ræðu sinni ekki sýnt
vott af sjálfsgagnrýni — og ræð-
an hafi verið eintómt lýðskrum.
Er honum ráðlagt að ganga sömu
götu og aðrir rithöfundar — og
gerast fyrirmynd æsRunnar „í
staðinn fyrir að koma fram, sem 1
lögregluþjónn meðal rússneskra
rithöfunda" í bréfinu er Sjo-
lokhov einnig brugðið um það,
að hann sé allt of seinn að full-
gera bækur sínar — og slái um
of slöku við starfið. Einnig er
hann sakaður um að vera áhuga-
laus á alþjóðamálefnum — og
á forystu rithöfundasamtakanna.
Skipastól landsins bætast nýir bátar á hverju ári. — Myndin
hér að ofan er af nýjum bát, sem kom til Neskaupstaðar snemma
í febrúar. — Það er Iluginn NK 110.
TEKJUR
Helztu liðir tekjumegin eru:
Aðalniðurjöfnun útsvara 3.705
þús. eða 30% hækkun frá s.I. ári,
umsetningargjald verksmiðja 165
þús. og tekjur af Áfengisverzlun
ríkisins 225 þúsund, fasteigna-
gjöld 450 þús., ýmsir skattar 60
þús., ýmsar tekjur 200 þús., leigu-
tekjur fasteigna 85 þús., afborg-
anir og vextir 100 þúsund og
rekstrarhalli áætlaður 580 þús.
GJÖLD
Gjaldamegin eru stjórn kaup-
staðarins Og Önnur lögboðin fram
lög, framfærslumál, frarrilag
til bæjarútgerðar o. fl. óhjá-
kvæmilegir liðir að upphæð sám-
tals 5.570 þús. — Stefán.
AKUREYRI, 27. febrúar: — Kl.
um 3 í nótt, var slökkviliðið á
Akureyri kvatt að Þórunnar-
stræti 122, en þar hafði kviknað
í þaki. Húsið sem er byggt af
steini, er íbúðarkjallari og hæð,
er innréttað úr timbri og steini
og með timburlofti.
Slökkviliðið slökkti eldinn á
svipstundu og urðu litlar skemmd
ir af eldinum en þó nokkrar af
vatni. Eigandi hússins er Hjörtur
Gíslason. — Jónas.
Miklar deilur hefur það vakið í Danmörku undanfarna mántfði,
að prestlærð kona, Helga Jensen að nafni, sótti um að fá prest-
vígslu. Lengi síóð í þófi við yfirvöld kirkjunnar, en að því kom
þó að konan fékk máli sínu framgengt — og var hún vígð fyrir
nokkrum dögum af Erik Jensen biskupi í Álaborg. Tóku 30 prestar
þátt í athöfninni. Hér sést hinn nývígði prcstur ásamt Álaborgar-
biskupinum.