Morgunblaðið - 26.10.1956, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.10.1956, Blaðsíða 3
Föstucfagur 26. okt. 1956 MORCTJNfíL AÐIÐ 3 Sparifjársöfnun skólabama Öll 7 ára börn fá 10 kr. oð gjöf frá Landsbankanum Blaðinu hefir. borizt eftirfar- andi frá Sparifjársöfnun skóla- barna: SPARIFJÁRSÖFNUN skóla- barna hófst, sem kunnugt er, háustið 1954. Gaf þjóðbankinn þá hverju skólabarni á 7—13 ára aldri 10 krónur í sparisjóðsbók. Yar þá ennfremur hafizt handa um sölu sparimerkja í barnaskól- um kaupstaðanna og nokkrum öðrum skólum utan þeirra. Skyldi þetta starf miða að því, að glæða sparnaðar- og ráðdeild- arhug meðal uppvaxandi æsku. Haustið 1955 gaf þjóðbankinn einnig 10 krónur hverju barni í landinu, sem varð 7 ára á því ári. Og nú í haust gefur hann öllum börnum, sem verða 7 ára á þessu ári, 10 króna gjöf og hafa ávísan- ir á þessar 10 krónur verið send- ar skólunum, og þess óskað að þeir gefi þær út og afhendi þær, eins og áður. Fái börn, fædd 1949, ekki þessar krónur er það vegna þess, að ekki hefur fengizt vitn- eskja um þau, sem þó hefur verið leitað eftir. Er enn tími til þess að senda slíka vitneskju frá þeim stöðum, sem eftir eru, en það væri mjög æskilegt, svo að ekk- ert barn yrði sett hjá. Þar sem seld eru sparimerki eiga 7 ára börnin, auk þess, að fá sparimerkjabók ókeypis, eins og áður. Á sl. skólaári störfuðu 64 skól- ar að sparimerkjasölu og bætast nú nokkrir við. Hafa kennarar sýnt þessu starfi skilning og velvild, yfirleitt, og heimilin tekið því vel. Og þess er fastlega vænzt að börnin hafi af því nokkurn ávinning. í ávarpi til heimilanna nú er m.a. tekið fram: 1. HOLLAR VENJUR ERU BARNI NAUÐSYN Það er vandi að gæta hófs í Isl.-sænska félagið stofnað MÁNUDAGINN 22. október var haldinn í Þjóðleikhúskjalláran- um í Reykjavík stofnfundur fé- lags, sem nefnist íslenzk-sænska félagið. Segir í lögum félagsins, að tilgangur þess sé að efla vin- áttu og samskipti íslendinga og Svía, og vinna að gagnkvæmri kynningu þessara þjóða. Til stofnfundarins var boðað af 25 mönnum úr hópi sænskmennt- aðra Reykvíkinga og annarra Svíþjóðar-vina, en I félagið gengu á stofnfundinum um 80 manns. Fundarstjóri var Árni Tryggva- son hæstaréttardómari. Guðlaug ur Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri, hafði orð fyrir undirbúnings nefnd, skýrði frá aðdraganda og tilgangi þessarar félagsstofnun ar og gat þess m. a., að í Svíþjóð væru nú starfandi þrjú félög á sams konar grundvelli, | Stokk- hólmi, Uppsölum og Gautaborg. Magnús Kjaran, stórkaupmaður, rakti sögu þeirra félaga, sem áður hafa starfað hér á líkum grundvelli of árnaði hinu nýja félagi heilla. Formaður félagsins var kjörinn Guðlaugur Rósin- kranz, en aðrir í stjórn eru: Árni Tryggvason, Halldór Kiljan Lax- ness, Helgi Hjörvar, Jón Magnús son, Sigurður Hafstað og Sig- urður Þórarinsson. Samkvremt lögum félagsins á sænskur lektor við Háskóla Islands sæti á stjórn arfundum þess. Núverandi lek- tor er Bo Almkvist, fil. mag. í fundarlok kvaddi ambassador Svía, Sten von Euler-Chelpin, sér hljóðs og lýsti ánægju sinni yfir stofnun þessa félags. viðskiptum við börn. Þau' heimta oft mikið, og því meira, sem meira er eftir þeim látið. Þess vegna þarf að festa hollar venjur, sem barninu eru skiljanlegar og ekki er í sífellu hopað frá. Það þykir. t.d. rétt, að börn fái snemma einhverja smáupphæð til ákveðins tíma, t.d. viku, sem þau mega verja að vild, en séu þó látin gera grein fyrir hvernig notuð var í vikulokin. Þessara „vasapeninga“ mega þau gjarna afla sér fyrir ákveðna vinnu í heimilinu, og gildi þá á- kveðinn taxti fyrir ákveðið starf. Venjast þau þá síður á að fá pen- inga fyrir ekki neitt. En mikil- verðast er, að þau geti lagt fyrir af þessu fé, og þá gjarnan í ein- hverjum ákveðnum tilgangi. — En upphæð þess fjár, sem börn fá þannig til ráðstöfunar, verður að miðast við aldur og aðstæður. — En umfram allt er það brýn nauð syn, að foreldrar gæti þess, að börn þeirra hafi aldrei mikla fjár muni með höndum, sem þau mega fara með að vild. 2. RÁÐDEILD ER ÞJÓÐAR- __NAUÐSYN Öruggasta ráð til að hindra verðfall gjaldmiðils er almenn ráðdeild. Og að því er börn snertir má það víst telja, að aur- ar þeirra, er kynnu að safnast, myndu annars hafa farið í ein- hvern óþarfa, sem væri þeim ó- hollur, og hefði ekkert varanlegt eftir skilið, en hins vegar ýtt und- ir ýmsar varhugaverðar eyðslu- venjur, sem flestum reynist síðar meir erfitt að losna við, og marg- an hafa leitt á glapstigu. 3. HIÐ UPPELDISLEGA GILDI ER AÐALATRIÐH) Það er staðreynd, að sá sem stöðugt eyðir meiru en hann afl- ar, hvort sem um einstakling er að ræða eða þjóð, getur ekki til lengdar séð sér farborða. Hann þarf því að temja sér þá reglu, að lifa ekki um efni fram. Það starf, sem hér er hafið, er því fyrst og fremst uppeldis- legs eðlis, sem telja verður að einstaklingi og þjóð sé mikil þörf á að unnið sé að af skilningi og festu. Heitum vér því á alla góða menn til samstarfs. Þann 22. þ. m. hófu Loftleiðir reglubundnar flugferðir til Bretlands. Mynd þessi er tekin á leið til flugstöðvarínnar frá millilandaflugvélinni Sögu á Renfrew-flugvelli hinn 22. þ. m. Fremstir ganga Kristján Guðlaugsson formaður stjórnar Loftleiða og Allan McLean borgarstjóri í Paisley, en hann var einn þeirra, sem tók á móti flugvélinni í þessari fyrstu ferð hennar. NATO veiiir náms- og frœðimönnum styrki NORÐUR-ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ (NATO) veitir í apríl á næsta ári nokkra styrki til náms- og fræðimanna. Tilgangur NATO-styrkjanna er að stuðla að auknu námi og rann- sóknum á sögu aðildarríkjanna, stjórnmálum þeirra, stjórnarskrá, lögum, félagsmálum, menningar- málum, tungu, efnahagsmálum, vísinda- og varnarmálum þeirra, einkum með tilliti til sameigin- legra erfða og sögulegrar reynslu Norður-Atlantshafsríkjanna sem samfélags og athugana á núver- andi þörfum þess og samstöðu aðildarríkjanna í framtíðinni. Styrkirnir eru tvenns konar, auk ókeypis ferðakostnaðar. 1) Námsstyrkir til ungra náms- manna að upphæð 500 þúsund franskir frankar fyrir skólaárið 1957—58 eða jafngildi þeirrar upphæðar innan annars aðildar- ríkis í Evrópu eða 2000 dollarar fyrir sama tímabil í Bandaríkjum Ameríku eða Kanada. 2) Rannsóknarstyrkir fyrir fræðimenn að upphæð 200 þús. franskir frankar á mánuði i 2—4 mánuði eða jafngildi þeirrar upp hæðar innan annars aðildarríkis í Evrópu. Styrkþegar til vísindarann- sókna verða valdir með tilliti til rannsóknarefnis og hæfileika. Stúdentar verða váldir eftir námsafrekum, eftir því hvar þeir vilja stunda nám og hvert náms- efnið er. Barnakennarar í Skapf. ræða útgáfu námsbúka SAUÐÁRKRÓKI, 21. okt.: — Barnakennarafélag Skagfirðinga hélt aðalfund sinn að Sauðár- króki laugardaginn 20. okt. Voru þar rædd ýmis félags- og menn- ingarmál, m.a. um mót Sambands norðlenzkra kennara, sem verð- ur haldið í Skagafirði næsta vor. Námsstjóri Norðurlands, Stef- án Jónsson, var mættur á fund- inum, ræddi við kennara um störf vetrarins, og flutti erindi um kennslu og uppeldi. Á fundinum voru m.a. sam- þykktar eftirfarandi tillögur: „Aðalfundur Kennarafélags Skagfirðinga 1956 fagnar því að skólafróður maður skuli hafa val- izt til að veita Ríkisútgáfu náms- bóka forstöðu, og að skólavöru- verzlun skuli fyrirhuguð í sam- bandi við afgreiðslu útgáfunnar". Jafnframt skorar fundurinn á Ríkisútgáfu námsbóka: 1. Að gefa út litprentaða landa- bréfabók, eins fljótt og tök eru á. 2. Að við næstu endurprentun Skólaljóða, verði þau gefin út með skýringum, eins og upp- haflega var gert. 3. Að nú þegar verði hafizt handa um útgáfu nýrrar Islandssögu, eða að minnsta kosti viðbót við núverandi sögu er nái fram til ársins 1944. 4. Þar sem nú á að gera meiri kröfur um betri meðferð á námsbókum, þá verði þær eft- irleiðis gefnar út í heppilegu bandi. Stjórn félagsins var endur- kjörin, en hana skipa: Björn Daníelsson, Sauðárkróki, Magnús Bjarnason, Sauðárkróki, Garðar Jónsson, Hofsósi og Guðjón Ingi- mundarson, Sauðárkróki. — jón. SjóUstæðismenn Styrkþegum ber að gefa skýrslu um rannsóknir sínar eða nám á ensku eða frönsku og afhenda Norður-Atlantshafsbandalaginu eigi síðar en þrem mánuðum eftir að stýrktíma lýkur. Umsóknar- frestur er til 1. janúar 1957. Styrkir þessir eru veitt- ir með hliðsjón af 2. grein Norð- ur-Atlantshafssamningsins frá 1949, er hljóðar svo: „Aðilar munu stuðla að frekari þróun friðsamlegra og vinsam- legra milliríkjaviðskipta, með því að styrkja frjálsar þjóðfélags- stofnanir sínar, með því að koma á auknum skilningi á meginregl- um þeim, sem þær stofnanir eru reistar á, og með því að auka mögúleika jafnvægis og velmeg- unar. Þeir munu gera sér far um að komast hjá árekstrum í efna- hagslegum milliríkjaviðskiptum sínum og hvetja til efnahagssam- vinnu sín á milli, hvort heldur er við einstaka samningsaðila eða alla.“ Umsóknir ber að senda til ut- anríkisráðuneytisins, sem lætur umsóknareyðublöð í té og veitir allar nánari upplýsingar. (Frá utanríkisráðuneytinu) . Skilyrði Bandaríkjanna fyrir viðskiptum við Kína TNNANRÍKISRÁÐUNEYTI Bandaríkjanna lét nýlega svo um- mælt, að ekki kæmi til greina, að Bandaríkin léttu viðskipta- banni sínu af Kína, á meðan leiðtogarnir í Peking neita að hætta valdbeitingu gegn Formosu. Skýrsla sú, sem innanríkisráðuneytið gaf út, var svar við tillögu þeirri, er fulltrúar kínversku kommúnistastjórnarinnar báru fram í Genf nýlega þess efnis að Bandaríkin léttu viðskiptabanni sínu á Kína. EFTIR 5 dagu verður dregið í bifreiðahappdrætti Sjálf- stæðisflokksins. Vinsamlegast gerið skil á heitnsendum happ- drættismiðum sem fyrst. — Skrifstofa Sjálfstæðisflokks- ins er opin í dag frá kl. 9 f. h. til kl. 7 e. h. EKKERT SAMKOMULAG Hér fer á eftir útdráttur úr skýrslunni: „í rúmlega 13 mánuði hafa Bandaríkin átt viðræður við full- trúa kínversku kommúnistastjórn arinnar í Genf með það fyrir augum að fá leysta úr haldi bandaríska þegna í Kína, og fá kínverska kommúnista til þess að samþykkja það, að valdbeitingu gegn Formósu verði hætt. Ekkert samkomulag hefur enn þá náðst í þessum málum. SKÝRSLA KÍNVERJA Hinn 21. september s.l. gaf kínverska kommúnistastjórnin út skýrslu, þar sem skýrt var frá því, að hún hefði borið fram til- lögu á fundunum í Genf, þar sem mælzt var til þess að viðræður yrðu teknar upp við Bandaríkin um að þau léttu viðskiptabanni sínu af Kína, en að Bandaríkin hefðu í raun og veru neitað því. HALDA PÓLITÍSKUM GISLUM Bandaríkin eru ekki reiðubú- in að taka upp viðræður við Rauða-Kína um afléttingu við^ skiptabannsins, á sama tíma og Kínverjar neita að hætta vald- beitingu sinni gegn Formósu og halda bandarískum þegnum í haldi sem pólitískum gislum, þrátt fyrir það loforð, er þeir gáfu 10. september árið 1955, um að leyfa þeim að halda heimleiðis tafarlaust. Við höfum tílkynnt kínverzku kommúnistunum þetta í Genf. Það er ekki hægt að búast við því, að Bandaríkin vilji taka upp viðræður um að aflétta viðskipta- banninu á Kína, þar sem slíkt myndi aðeins verða til þess að styrkja leppríki, sem neitar að hætta valdbeitmgu gegn okkur.“ 101 lágu í valnum LONDON: — Á dögunum fóru fram í London helztu veð- reiðar ársins í Bretlandi. Var geysilega mikill mannfjöldi viðstaddur — og var þar m. a. Bretadrottning. Er hlaupinu var nær lokið, kom fyrir at- vik, sem koin allmörgum úr jafnvægi. Er einn reiðskjótinn stökk yfir hindrun — and- spænis sæti drottningar — féll knapinn af baki — og hreyfði síðan hvorki legg né lið. Virt- iát hann með öllu meðvitund- arlaus og var borinn út af leikvanginum. En það voru fleiri, sem bornir voru út, því að atvik þetta örkaði svo mjög á áhorfendur, að um 100 manns féllu í yfirlið — og voru bornir út. Drottning sýndi engin skapbrigði, en bað strax um að fá fregnir af líð- an knapans. Innan stundar fékk hún að heyra það, að hann væri nú raknaður úr rotinu, en hefði fengið heila- hristing — svo að nauðsynlegt var að aka honum í sjúkrahús.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.