Morgunblaðið - 26.10.1956, Page 7
Föstudagur 26. okt. 1956
MORGVXBLAÐ1Ð
7
Hvab er í frétfum?
H V A Ð er í fréttum? spyrja
menn. Ekki neitt, blessaður eða'
blessuð vertu. Ekkert nema grár j
hversdagsleikinn dag eftir dag.
Jú, víst er hægt að segja eitt-
hvað í fréttum hvern einasta
dag og hressa með því upp á
þennan gráa hversdagsleika.
I»að er ekki langt síðan ég
mætti gömlum manni í strætis-
vagni, það er nú raunar ekkert
nýtt að mæta gömlum manni,
en þessi öldungur bar með sér
hressandi ferskan blæ, hann ólg-
aði af lifi og fjöri. Það vaknaði
hjá mér áhugi á því að fá að
heyra hann segja frá því sem
einu sinni var, heyra hann gera
samanburð á fortíðinni og nútíð-
inni, en í strætisvagni er hvorki
staður eða stund til þess. Ég ætl-
aði að grípa næsta tækifæri, og
það kom nokkrum dögum seinna.
Ég mætti honum í búðinni, þar
sem ég verzla, hann kom þangað
lika í sömu erindagjörðum. Við
urðum samferða út.
„Mér þykir vænt um gömlu
mennina“, sagði ég.
„Ha, vænt um þá gömlu. Það
er gaman að heyra. Ég er áttatíu
og sex“,
Ég spurði hann hvort hann
vildi ekki koma heim með mér
og spjalla svolítið við mig.
„Þakka þér fyrir; ég held nú
að ég þiggi það, en ekki i dag,
heldur á morgun eða hinn dag-
inn“, svaraði hann. Svo hvarf
hann fyrir húshornið keikur í
spori. Hann kom aftur að nokkr-
um dögum iiðnum.
„Mig langar til þess að biðja
þig að segja mér eitthvað af
sjálfum þér og ævi þinni“, sagði
ég, því að „oft er það gott sem
gamlir kveða“.“
„Já, þið segið það. Jú, við höf-
um meiri reynslu að baki en þið
sem yngri eruð. Jæja, hvað á ég
þá að segja?“
„Fyrst langar mig til þess að
vita hvað þú heitir".
„Já, auðvitað. Nafn mitt er
Magnús, bara Magnús, og Guð-
mundsson er ég. Fæddur i
Lambadal í Dýrafirði, en alinn
upp í Önundarfirði, kominn út
af Lofti ríka á Möðruvöllum,
Birni Jórsalafara og Grundar-
Helgu, þú kannast við hana, þá
höfðingskonu úr sögunni. Ég hef
aldrei verið neitt, bara svona
miðlungsmaður, tvikvæntur, alið
upp stjúpbörn, fyrir utan mín
eigin börn, en þau voru sex. Son-
ur minn drukknaði af ísborginni
frá ísafirði hér um árið, það var
fjarska sorglegt, hann átti konu
og börn, svo missti ég dóttur og
stjúpdóttur, þær voru báðar
elskulegar og góðar“.
„Attu svo ekki heilan hóp af
afkomendum?“
„Jú, jú, mikil ósköp, hér getur
þú séð myndir af barnabörnun-
um, þau eru öll efnileg ojá. Þetta
er nú gangur lífsins".
„Varstu við búskap þarna fyr-
ir vestan?“
„Nei, ég hef aldrei verið bóndi,
þó átti ég kú og kindur rétt fyrir
heimilið, ég var alltaf til sjós,
mátti heita að staðaldri i fimm-
tíu ár. Fyrst kom ég hingað til
Reykjavíkur sem snöggvast á
skipi 1897. Það hét „Fönix“. Við
komum til þess að fá síld. Þá var
bærinn lítili, tómir torfbæir i!
holtunum, eða svo mátti víst
heita. Þá náði vegurinn bara suð-
ur að Öskjuhlíð, það er nú meiri
munurinn á öJlu, það er tæplega
hægt að trúa því, en staðreyndin
segir satt. Já, það má nú segja
að þá var öldin önnur“.
„Það er ekki nema eðlilegt að
ykkur verði á að gera saman-
burð á því sem var og er, en
hvernig hefur þér svo líkað líf-
ið?“
„Alveg ljómandi vel. Aldrei
neinar búksorgir. Það er vitlaust
að vera að syrgja nokkurn skap-
aðan hlut, það er bara heimska,
maður eyðileggur sjálfan sig með
því og aðra líka. Maður á bara
að treysta guði og biðja hann um
hjálp, við höfum ekki lífið á
milli handanna, það er annar sem
stjórnar því, og það er gott.
Sumir eru svo heimskir að vilja
ekki trúa því að guð hafi sjálfur
komið í Jesú Kristi, en ég er
sannfærður um að það var nú
samt þannig, og hann kom i
ákveðnum tilgangi til jarðarinn-
ar. Þetta er allt mikill leyndar-
dómur. Við þurfum bara að
trúa, trúa eins og börn. Það er
allt sem við þurfum að gera. Það
er sorglegt hvað margir eru van-
trúaðir, þess vegna er allt eins
og það er.------En ekki meira
um það.---------Sástu myndina
af mér, þessa sem kom í Morgun-
blaðinu. Hún var slæm. Ég er'
langelztur hjá blaðinu, nú er ég
hættur að bera það út, konan
mín gerir það, en ég innheimti þó
ennþá“.
„Jæja, svo að þú vinnur hjá
Morgunblaðinu. Jú, ég man ein-
mitt eftir myndinni og sérstak-
lega vegna þess að ég veitti þvi
athygli að einn var langelztur af
öllum hópnum. Jæja, svo að það
varst þú sem varst aldurforset-
inn, þú ferð nú líklega að þreyt-
ast á þessum spurningum. Má
ekki bjóða þér kaffisopa?“
„Jú, þakka þér fyrir, ef ég má
koma í eldhúsið, þar kann ég
bezt við mig, það er alltaf gam
an að vera þar sem kvenfólkið
er, það er líka svo notalegt þar
og heimilislegt. Þú ættir ekki að
skrifa mikið um mig, eins og ég
sagði áðan hef ég aldrei verið
nema bara svona miðlungsmað-
ur og tæplega það, og nú er ég
orðinn gleyminn. Ég fékk áfall
á dögúnum, það ber ekki mikið
á því, en ég finn það bezt sjálf-
1 ur. Ef þú hefðir náð til mín fyrr,
hefði ég getað sagt mikið meira.
' Þú manst að skrifa ekki mikið
um mig, það er ástæðulaust".
| Svo kvaddi hann þessi 86 ára
gamli, fjörlegi, broshýri maður,
ég horfði á eftir honum, þar sem
hann hljóp við fót eins og smala-
drengur. Það færi vei, ef þeir
sem ná því að verða gamlir,
! bæru aldurinn jafnvel og hann,
t en ekki er öllum gefið það
j sama.
F. K.
Blámasa'an
Sólvallagötu 9
Afskorin blóm og pottablóm í úrvali.
Blámasa'an
SÓLVALLAGÖTU 9
Sími: 3537.
Stúlka
óskast við aðgöngumiðasölu við kvikmyndahús, nú
þegar. Umsóknir ásamt mynd og meðmælum, sendist
afgr. Mbl. fyrir 29. þ. m. merkt: „Bíó —3054“.
Oss vantar nú þegar
1—2ja herb. íhúð
.F.
alþjóðleg ferðaskrifstofa,
Sími 82265.
PEYSUFÖT
tekin í saum. — Upplýsing-
ar í síma 5134.
Gób stúlka
ógkast í vist, hálfan daginn.
Hátt kaup. Upplýsingar í
sínia 81278.
Allskonar fjrirgreiðsla
og vörisúlveganir.
Fyrirgreibslu-
skrifstofan
Pósthólf 807.
Reykjavík.
RÁÐSKONA
Kona á uldrinum 35—45 ára
óskasc sem ráðskona hjá
eldri konu. Gott kaup. Tilb.
merkt: „Ráðskona", sendist
£ Pósthólf 536 fyrir 29. þ.m.
Keflvikingar
Vantar herbergi. -— Upplýs
ingar í síma 459.
HERBERGI
Danskur maður óskar eftir
litlu herbergi, helzt við
Kleppsveg. Tilboð sendist
afgr. MbL sem fyrst, merkt
„Herbergi — 3002“.
Mæðgur með barn á öðru
ári, óska eftir
ÍBÚÐ
Komið gæti til greina að önn
ur tæki að sér lítið heimili.
Uppl. á Vesturvallagötu 3.
Sími 82578.
Ungur, einhleypur maður
óskar eftir
HERBERGI
með litlu eldhúsi eða eldun-
arkrók. Fyrirframgreiðsla,
ef óskað er. Vinsamlegast
hringið í síma 4732.
Rólegt starf
Stúlka, unglingur eða eldri
kona óskast. Sér herbergi og
hátt kaup. Þrennt í heimili.
Uppl. í síma 9806 kl. 8 e.h.
í dag og á morgun.
Barnlaus hjón óska eftir
3ja herb. ibúb
Bamagæzla getur komið til
greina. Tilboð sendist fyrir
þriðjudag, merkt: „Bant-
laus — 3058“.
Vil taka bilskúr
á leigu, helzt í Hlíðunum. —
Uppl. í síma 3657.
Málarar
geta bætt við síg vinnu. —
Upplýsingar í sima "-82407.
Fyrsta flokks
Pússningasandur
til sölu. — Upplýsingar
í síma 7536.
ÍBÚÐ
2—3 herb. íbúð óskast til
leigu nú þegar fyrir tvær
einhleypar stúlkur. — Stiga
þvottur eða bamagæzla get
ur komið til greina. Uppl. í
síma 3552 frá kl. 12—7.
TIL SÖLU
mjög fallegur eftirferming-
arkjóll, ljósblár og pels nr.
44 (Bísan). Grá vetrarkápa
með persian slcinni nr. 44,
og nýr ballkjóll nr. 44 og 2
jakkakjólar nr. 44. Ennfrem
ur dragt á 14—15 ára og
kjólar. Amerískir skór nr.
38. Uppl. í síma 7392.
Atvinna
Óska eftir starfi í Hafnar-
firði eða Reykjavík. — Alls
konar létt störf koma til
greina, svo sem iðnaður,
innheimtustörf, akstur o. fl.
Hefi sendibíl, ef með þarf.
Haukur Magnússon
Sími 9416.
KEFLAVÍK
j Dönsk-amerísk hjón óska
eftir herbergi og eldhúsi,
helzt með húsgögnum. Eru
með 5 mán. gamalt barn. —
Uppl. í síma 354.
SÉÐogI
LIFAÐl
LÍfSRlYMStt ■ MAHNR4UNI
iNóveniber-blaSið er komið
út, með úrslitum í verðlauna
samkeppninni um beztu frá-
sagnirnar.
F P I UNIVERSAL, 8 mm kvikmynda- og sýning-
arvélar eru gjörbylting.
Ekkert tjald, vélarnar eru eins og sjónvarp og hægt
að sýna myndir í björtu sem myrkri, — eru til-
valdar fyrir fræðslu- og skemmtimyndir.
FPE UNIVERAL sýningarvélin er til sýnis og sölu
hjá
Verzlun HANS PETERSEN H.F.
BANKASTRÆTI 4 — SÍMI: 3213.
Bifrei&ar til sölu
Chevi-olet sendifeiðabíll, ó-
skráður ’55 model. Skoda
’55, 5 manna lítið keyrður.
Landbúnaðar-jeppi ’47.
Bílasala Guðmundar
Klapparstíg 37, sími 82032.
Nýr, amerískur Muscrat
Miuk
PELS
til sölu. Til sýnis milli kl. 1
og 6 á Grenimel 36.
Höfum garðyrkjumenn fyr-
ir yður allt árið. Nú leggj-
um við lauka, sem við höf-
um ódýrari en fást annars
staðar. —
Gróðrastöðin við Miklatorg.
Sími 82775.