Morgunblaðið - 26.10.1956, Page 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
Fostudagur 26. okt. 1956
Merkisafmæli heiðurshjóna
Frú Jónína Ólafsdóttir og Jón Fálmason, alþm., á Akri.
Á ÞESSU ári eiga hjónin að
Akri í Austur-Húnavatnssýslu,
frú Jónína Ólafsdóttir, og Jón-
Pálmason, fyrrverandi ráðherra
og Alþingisforseti, tvö merkileg
afmæli. Frú Jónína varð sjötug
Sl. marz sl. og sótti hana og heim-
íli hennar þá heim mikill fjöldi
vina og kunningja úr héraðinu.
. f dag, 26. október, eiga þau
hjón svo 40 ára hjúskaparafmæli.
Loks stendur í dag brúðkaup
yngri sonar þeirra, Pálma, og
heitkonu hans, Helgu Sigfús-
dóttur frá Breiðavaði í Langa-
dal. Mun séra Þorsteinn Jónsson,
prófastur Húnvetninga, gefa
brúðhjónin saman heima á Akri.
Margar hlýjar óskir munu því
berast í dag heim að Akri til
hinna merku heiðurshjóna og
héraðshöf ðing j a.
Jónína Ólafsdóttir og Jón
Pálmason vöru gefin saman í
hjónaband að Mörk í Laxárdal
26. október árið 1916. Þaðan
fluttu þau að Ytri-Löngumýri í
Elöndudal árið 1917. Að Akri í
Þingi fluttu þau árið 1923 og hafa
búið þar síðan. Á þessu tímabili
hafa þau stórbætt jörð sína, bæði
að ræktun og húsum. Allt tún er
þar nú slétt og véltækt og ræktar
lönd víð og fögur.
Arið 1948 reisti Jón bóndi nýtt
fjós og hlöðu. Tveimur árum síð-
ar byggði hann nýtt og myndar-
legt íbúðarhús úr steinsteypu.
Hjónin á Akri eiga fimm mann
vænleg börn, tvo syni þá Eggert
lögfræðing, framkvæmdastjóra
Landssambands iðnaðarmanna og
Pálma, búfræðing, sem býr félags
búi með foreldrum sínum á Akri,
og þrjár dætur, Ingibjörgu, Mar-
gréti og Salome.
Frú Jónína, sem átti sjötugsaf-
mæli 31. marz sl. er ættuð úr
Bolungarvík við ísafjarðardjúp,
af ágætu og vel gefnu fólki kom-
in. Kom hún ung norður í Húna-
vatnssýslu. og tókust kynni með
henni og Jóni Pálmasyni á Ytri-
Löngumýri. Var það árið 1914.
En eins og fyrr segir giftust þau
árið 1916. _
Jónína Ólafsdóttir er ágætlega
greind kona. I framkomu er hún
hæglát og hlédræg. Hún fylgist
vel með því, sem gerist og kánn
góð skil á mönnum og málefnum.
Meðal allra er kynnast henni nýt-
ur þessi hógláta, greinda kona
trausts og virðingar. Sjálf er hún
trygglynd og vinföst.
Jónína Ólafsdóttir hefur verið
manni sínum mikil stoð og stytta
í umsvifamiklu starfi hans sem
bónda, stjórnmálamanns og hér-
aðshöfðingja. Vinir hennar og
manns hennar óska henni til ham
ingju með sjötugsafmælið og
þeim hjónum báðum með 40 ára
hjúskaparafmæli og sonarbrúð-
kaup.
Yngri kynslóðin er að taka við
á Akri í Þingi. En hin eldri stend-
ur þó ennþá mitt í starfinu og
finnst lítt bilbugur á henni. Það
má vera frú Jónínu og Jóni á
Akri mikið fagnaðarefni að sjá
afkomendur sína taka við óðali
þeirra hjóna' betra og fegurra en
það var, er þau hófu búskap sinn
fyrir 33 árum.
ASL. HAUSTI gerðu þeir Jó-
hann Sigfússon og Kjartan
Friðbjarnarson, Vestmannaeyj-
um, tilraunir til síldveiða við
Suð-Vesturland, með danskri
í dag er fagnaðar- og merkis-
dagur í lífi fjölskyldunnar að
Akri. Þar er í senn litið yfir far-
inn veg athafna og mikilvægra
lífsstarfa, og horft fram á við
móti nýjum tíma, sem miklu lof-
flotvörpu, Larsen-vörpu, og
fengu hingað tvo danska skip-
stjóra til þess að stjórna tilraun-
unum og kenna íslenzkum sjó-
mönnum meðferð þessa veiðar-
færis.
Þrátt fyrir ýmsa örðugleika
gengu tilraunir þessar vel, og
sýnt var að í Larsen-vörpuna
var hægt að fá síld á öllu dýpi,
frá 90 föðmum upp í 10 faðma.
Síldin hélt sig sl. haust aðallega
á mjög takmörkuðu svæði, sem
allt var þakið af reknetjabátum
og netjum þeirra á næturnar,
þegar síldin var uppi í sjó, og
urðu því tilraunirnar aðallega að
fara fram á daginn, þegar síldin
hefur fært sig niður á 80 til 90
faðma dýpi. Þó tilraunirnar síð-
astliðið haust, hafi sýnt að hægt
var að veiða síld á svo miklu
dýpi, var dráttur vörpunnar
mjög erfiður, vegna þess að bát-
arnir höfðu ekki mjög kraft-
miklar vélar, og vörpurnar höfðu
verið valdar heldur stórar.
Nú hafa þeir Jóhann Sigfússon
og Kjartan Friðbjarnarson ráðizt
í það að leigja tvo báta með
kraftmiklum vélum og fengið
tvær nýjar minni vörpur, og haf-
ið tilraunir þessar að nýju. Nú,
eins og í fyrra, hafa bátarnir að-
eins getað veitt á daginn og nið-
ur á 85 faðma. Fengu þeir fyrsta
daginn 93 tunnur en annan dag-
inn sem reynt var eða í gær, 175
tunnur.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið og
Fiskimálanefnd styrktu tilraun-
ir þessar síðastliðið haust, og
hafa einnig heitið stuðningi við
þær tilraunir, sem fara nú fram.
Akur í Þingi.
„Það er ekki um að villasf,
Johnson & Kaaber kaffi
bragðast betur“
0. Johnson & Kaaber h.f,
S. Bj.
r
Aframhaldandi tilraunir
með Larsenvörpuna
NÝKOMNAR
KARLMAMMASKÓR
Svartar og brúnar mokkasíur Mikið úrval af KARLMANNAINNISKÓM
Leöuimniskór kr. 125,00 — Leðurtöflur kr. 118.00 — Flókaskór kr. 49,50.
Verzlið þar sem úrvalið er mest