Morgunblaðið - 26.10.1956, Blaðsíða 15
Föstudagur 26. okt. 1956
MORCVTSBLAÐIÐ
15
þessir menn um þetta, að þeir
töldu sér óhætt að taka upp sam-
stöðu með kommúnistum um það,
að segja upp varnarsamningnum
og krefjast þess að herinn færi.
Slíkan smágreiða væri vel hægt
að gera kommúnistum gegn þvi,
að fá kost á samstarfi þeirra við
stj órnarmyndun.
Ég er ekki í minnsta vafa um
það, að þeir íslendingar námu
þúsundum, sem við síðustu Al-
þingiskosningar hugsuðu á þessa
leið og kusu samkvæmt því. —
Ég ætla ekki að fara að meta hér
menningu þess fólks, sem starfar
að stjórnmélum á þessa lund. —
Ekki er að efa að þetta fólk var
hlunnfarið af hinum slyngu
áróðursmönnum kommúnista —
talin trú um að öllu væri óhætt,
þó að það gengi þarna til móts
við kommúnista; enda munu
áróðursmennirnir iðulega hafa
látið í veðri vaka, að jafnvel þeir
kærðu sig alls ekki um að varn-
arliðið færi — enda kæmi það
ekki til mála. — Hitt væri annað
mál, að þeir væru nauðbeygðir
til að fylgja á yfirborðinu sinni
gömlu stefnu.
Bandaríkin eru nú sem óðast
að undirbúa brottför varnarliðs-
ins. Hætt hefur verið við fyrir-
hugaða hafnargerð í Njarðvík og
sömuleiðis við allar framkvæmd-
ir á Keflavíkurflugvellinum, aðr-
ar en þær, sem voru samnings-
bundnar. Þetta eru staðreyndir,
sem tala sínu máli. — Innan
Framsóknar- og Jafnaðarmanna-
flokksins er nú mikill fjöldi leyni
kommúnista, sem fagna þessari
þróun málanna, En innan þess-
ará flokka er líka mikill fjöldi
fólks, sem var við síðustu Al-
þingiskosningar vélað til fylgis
við stefnu kommúnista — sumir
með þeim hætti, sem ég hefi
greint frá hér að ofan, og aðrir
á ennþá sviksamlegri hátt, með
loforðum um það, að ekki kæmi
til nokkurra mála, að þessir
flolckar mynduðu ríkisstjórn með
kommúnistum. — Það er vissu-
lega kominn tími til fyrir þessa
véluðu kjósendur, að fara að láta
forystumenn þessara flokka eitt-
hvað frá sér heyra.
Það er yíirleitt kominn tími til
fyrir alla íslendinga, sem vilja
ekki að ísland komist í tölu
hinna ánauðugu austan-tjalds-
ríkja, að fara að bæra eitthvað á
sér og bindast samtökum. um, að
vinna af alefli gegn þeirri glæfra-
legu stefnu, sem búið er að taka
í utanríkismálum þjóðarinnar.
Það er kominn tími til að hætta
öllu tali um það, að hvað svo sem
íslendingar aðhafist sjálfir, þá sé
samt öllu óhætt vegna landa-
fræðilegrar afstöðu landsins.
Menn verða að gei’a sér ljóst, að
ef Alþingi segir upp varnarsamn-
fylgis við flokkinn. Þjóðin mun
á stuttum tíma verða gerð svo
háð Rússum í viðskiptum, að þeir
menn fá aðstöðu til að skipa fyr-
ir um það, hvaða menn séu hér í
ríkisstjórn. Eftir það mun rás
viðburðanna verða nokkuð áþekk
því, sem gerzt hefur með öðrum
leppþjóðum Rússa -— fjárfletting
þjóðarinnar eftir nótum, stjórn-
málalegar ofsóknir, réttarglæpir
o. fl. af því tagi. — Á yfirborðinu
myndi þetta allt gerast á tiltölu-
lega friðsamlegan hátt, svo að ná-
grannaþjóðir okkar myndu ekki
sjá sér fært að skerast í leikinn.
— Rússar hefðu bara unnið þarna
ennþá einn sigurinn í kalda stríð-
inu, tekizt að hlunnfara fávísa og
andvaralausa smáþjóð og gera
hana ánauðuga. — Þeir hefðu þá
jafnframt náð svo þýðingarmikl-
um áfanga frá hernaðarlegu sjón-
armiði, að hugsanlegt er að þeir
teldu, að úr því væri óhætt fyrir
þá að breyta kalda stríðinu í
heitt stríð. — Allir skilja hvað
blasa myndi við íslenzku þjóð-
inni, ef svo færi.
— Mér dettur ekki í hug að '
gera því á íæturna, að hinir
skammsýnu stjórnmálaleiðtogar
hér á landi, sem eru nú á góðum
vegi með að leiða svona örlög
yfir íslenzku þjóðina, geri sér
ljósa grein fyrir glæpunum í
þeirri pólitísku refskák, sem þeir
hafa verið að leika undanfarið.
Það gerðu leiðtogar bændaflokk-
anna og jafnaðarmanna í löndun-
um, sem nú eru á valdi Rússa,
ekki heldur á sínum tíma. Jafn-
vel leiðtogar fimmtu herdeildar-
innar geta undir svona kringum-
stæðum misreiknað sig. — En það
skiptir litlu afvegaleidda þjóð, eft
ir að hún er búin að glata frelsi
sínu, hvort markmið óhappa-
mannanna, sem stjórnuðu málum
hennar, voru hótinu betri eða
verri. Ef illa fer, verða örlög
íslenzku þjóðarinnar jafnþung-
bær fyrir því, þó að hinir glám-
skyggnu leiðtogar hennar, færu,
þegar allt væri um seinan, að j
dæmi stéttarbræðra sinna í
Tékkóslóvakíu og Eistlandi og !
hlypu út um glugga eða hengdu
sig.
★ ★ ★
Mannheimurinn skiptist nú að
mestu í tvö þjóðabandalög, sem
hafa stundum verið kölluð
Vestrið og Austrið, stundúm: hin-
ar frjálsu þjóðir og hinar undir-
okuðu þjóðir. Þessi þjóðabanda-
lög standa hvert andspænis öðru,
með andstæð lífsviðhorf, búin til
átaka, sem munu reynast hin
örlagaríkustu, er hafa farið fram
á jörðinni. Forystumenn Vesturs-
ins starfa á grundvelli kristilegr-
ar lífsskoðunar, berjast fyrir
mannhelgi einstaklingsins og
sjálfsákvörðunarrétti allra þjóða,
ingnum við Bandaríkin, mun
varnarliðið ábyggilega hverfa
burt. Eftir að það er íarið, mun
fimmta herdeildin, með Rússa
að bakhjarli, fyrir alvöru fara
að vaða hér uppi. Farið verður í
vaxandi mæli að hræða menn til
hvort sem þær eru stórar eðí
smáar. Forystumenn Austursin;
líta aftur á móti á einstaklingE
þjóðfélagsins sem réttlaus peð
valdaskák þeirra, sem fara me!
ríkisvaldið, og um afstöðu þeirr:
til þjóðarréttar, nægir að vitni
Hafnarfjörður Hafnarf jörður
B azar
Slysavarnadeildin Hraunprýði heldur sinn árlega baz-
ar laugardaginn 27. okt. kl. 5 í Góðtemplarahúsinu. Kon-
ur eru beðnar að skila munum á bazarinn á sama stað
frá kl. 1—3 samdægurs.
Nefndin.
I
34 tierb. íbúðarhæð óskast
Höfum kaupanda að 3ja—4ra herb. nýtizku búðarhæð,
helzt alveg sér á góðum stað uænum. Utb. kr. 270 þús.
íbúðin þarf að vera laus.
Nýja fasteienasalan,
Bankastræti 7, sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e. h. 81546.
Atburðirnir í Auslur-Evrópu liafa nú leyst Súcz-deiluna af hólmi sem aðalfréttaefni hcimsblaS-
anna. Þessi mynd var tekin í París af forsætis- og utanríkisráðherrum Breta og Frakka, er þeir
ræddu Súez. Talið frá vinstri: Pineau, Sir Anthony Eden, Mollet og Selwyn Lloyd.
í ummæli Mólotovs, sem komst
fyrir ekki alllöngu svo að orði í
ræðu, að sjálfstæðar smáþjóðir
ættu ekki að vera til. — Umheim-
urinn hefur nú um hríð horft
undrandi á það, að smæsta sjálf-
stæða þjóðin sem er til, skuli nú
sem óðast vera að búa sig til að
slíta tengsíin við Vestrið og felá
sig forsjá forystumanna Austurs-
ins. — Ennþá hefir loka-ákvörð-
un ekki verið tekin í því máli,
sem mun skera úr um það, hvoru
megin íslenzka þjóðin lendir. Sú
ákvörðun verður tekin á Alþingi
eftir fáa mánuði. — Umheimur-
inn bíður í mikilli eftirvæntingu.
Forystumenn Vestursins _ vilja
ennþá ekki trúa því, að fslend-
ingar muni bregðast algerlega
málstað hinna frjálsu þjóða og
jafnframt ofurselja sig austrænni
kúgun og áþján. Það er skiljan-
legt að þeir eigi erfitt með að
trúa því. — Með ummæli Móló-
tovs í baksýn, studd af reynslu
hinna kúguðu ríkja austan-tjalds,
ætti ekki að vera erfitt fyrir þjóð,-
sem stærir sig af því að hafa
lesið Hávamál í hundruð ára, að
skynja hvorum^in henni henti
betur að vera.
— Hvort sem hér fer líklega
eða ólíklega þá er eitt víst.
Ákvörðun Alþingis um varnar-
málið mun skera úr um það,
hvort íslendingar hafa menn-
ingu til að vera áfram sjálfstæð
þjóð. Hvað það snertir, munu
þeir einungis kjósa það hlutskipti
sem þeim hæfir.
Vallanesi, 24. september.
hún þeytir
hrærir og hnoðar
hún hakkar
hún saxar
og malar
stykkja og hvimleiðra tengidrifa.
Með KENWOOD CHEF
verður maf reiðslan leikur einn
Nýjar uppskriftir, áður ill-framkvæmanlegar
sér KENWOOD CHEF um á stuttum tíma.
KENWOOD CHEF er traustbyggð, einföld í notkun og um fram allt: afkastamikil
og fjölhæf. — Verð með hjálpartækjum kr. 2.700.00. — Afborgunarskilmálar. —
Gjörið svo vel
að líta inn
Jfekla
Austurstræti 14
sími 1687
P.tOO
hrærivélin
ER ALLT ANNAÐ
OG MIKLU MEIRA
EN VENJULEG
HRÆRIVÉL
HRÆRIR? — Vissulega hrærir hún frá
einni brún tii annarar og nær til alls þess,
sem í skálinni er. En athugið ennfremur
hvað KENWOOD CHEF gerir meira, —
kynnið yður þau hjálpartæki, sem henni
fylgja og tengd eru beint á vélina án milli-