Morgunblaðið - 17.04.1957, Page 11

Morgunblaðið - 17.04.1957, Page 11
Míðvlfcuclagtir 17. apríl 1957 monfítJNnr 4»ib 11 tlngverjaland: Uppreisn mennfamanna eftir ungverska ritstjórann Lazlo Hámori HÖFL’NDTJK þessarar greinar er ungverskur, Lazlo Hámori, doktor í lögum og ritstjóri, faeddur 1911 í Búdapest. Hann var pólitískur ritstjóri við sósíalistablaðið „Nepzsava" í Búdapest árin 1945—1947 en flýði land sitt 1948 og hefir verið búsettur i Svíþjóð síðan 1949. Hann er fréttaritari blaðsins „Die Weltwoc,he“ í Zúrich og „The New Leader“ í New York og „Preuves“ í París. Hann hefir m.a. ritað bækurn- ar „Hundrað miiljón fangar" og bók um Júgóslavíu. FYRIR ÁRI bauð sænska félagið „Frjáls menning“ um það bil 50 rithöfundum, prófessorum, upp- eldisfræðingum og blaðamönnum frá hinum þremur Norðurlöndum til fundar í Gautaborg, þar sem eitt af dagskrármálunum var: Á- hrifin á almenningsálitið. Máls- hefjendur og aðrir þátttakendur í 'umræðunum ræddu einkum um þáð, hver áhrif menntamenn þjóðanna hefðu á almennings- álitið í hinum skandinavisku lóndum. Kenndi nokkurrar svartsýni í umræðum þessum. Komust menn m.a. að þeirri niðurstöðu að áhrif menntamannanna með þessum þjóðum, væri alltakmörkuð, og má vera að þetta séu afleiðingar þess, að yngri rithöfundar þess- ara þjóða séu afskiptalausir og svartsýpir. Sauðsvartur almúg- inn er hrifnæmari en gáfumenn- irnir, ef um er að ræða að taka afstöðu til viðburða líðandi stundar. Háskólaæskan hefir misst tökn á fjöldanum. Viðburðimir í Ungverjalandi hafa svarað þessum spurningum og mótmælt öllum vangaveltum þátttakendanna í Gautaborgar- þinginu svo kröftuglega sem hugs azt getur. „FR1»ARRÁ®“ Samtímis þvi að það varð tizka meðal Vestur-Evrópu- þjóðanna ,að menntamennirn- ir sýndu niðurlægjandi og aumkunarlega sjúklegt af- skiptaleysí og hurfu frá öllum tilrannum sinum til að hafa áhrif á almenningsálitið, lögðu komnrúnistar sjálfir æ meira upp úr þvi að hæna að sér viðurkennda andans menn, eins og kemur fram m.a. í því, að sífellt fjölgaði þeim vest- urevrópisku visindamönnum, rithöfundum og listamönnum, sem komust í alls konar „frið- arráð“. Greinilegt var af fregn um frá Moskvu, að nöfn frægra manna, svo sem Joliot Curie, Picasso eða Sartre voru meira virði fyrir braut- argengi kommúnismans en þó þeir fengju þúsundir iðnverka manna í lið með sér. NAFNTOGADIR MENN í Austur-Evrópulöndum voru kommúnistaflokkarnir sólgnir í að hæna að sér alls konar nafn- togaða menn, allt frá styrjald- arlokum, og nota þá til að laða menn að flokki sínum. Því miður bar liðsöflun komm únista góðan árangur meðal menntamanna í Ungverjalandi, Pollandi, Rumeníu, Búlgaríu og Austur-Þýzkalandi, þar sem í- haldsöfl eða hálfgerðar einræðis- stjórnir höfðu haldið um stjórn- artaum. Þá var það bemlinis skylda hvers maims í þessum lönd- um að vera róttækur, ekkl að- eins í Vestur-Evrópu, heldur líka í Austur-Evrópu. Það var ekkl langt bil milli þessarar afstöðu og félagsþátttöku i flokkunum, ekkl sizt á árun- um, meðan kommúnistar í Austur-Evrópu héldu stefnu sinni og fyrirætlunum leynd- um. VÍSAÐ ÚR EANDI Allir þeir rithöfundar, vísinda- menn og listamenn, er létu ekki kjassmælgi kommúnista hafa á- hrif a sig, var vísað úr landi, eða í flestum tilfellum í fangelsi öryggislögreglunnar, er vissu- lega gefur til kynna, að komm- únistar hafi engan veginn verið á þeirri skoðun, að menntamenn- irnir væru hættir að hafa áhrif á almenningsálitið í landinu. „LAYOUT“-MENNIRNIR OG HIN NÝJA YFIRSTÉTT Eftir valdatöku kommúnista í Ungverjalandi og öðrum Austur- Evrópulöndum breyttist afstaða menntamannanna gagngert til verkefna þeirra. Frá því að vera skapandi, hugsandi manneskjur urðu þeir eins konar viljalaus verkfæri, er stjórnin heimtaði að ynnu eftir settum reglum. Þeir urðu að vinna í auglýsinga skyni fyrir stjórnina. Forsjónin var kommúnistaflokkurinn og vörurnar, sem auglýsa átti, voru kommúnistahugsjónirnar, fram- leiðsluaukning, fifnm ára áætlan- ir samyi’kjubúa og fleira þess háttar. Hin voldugu ríkisfyrir- tæki pöntuðu mikið af myndum í áróður þennan hjá málurunum, myndhöggvurunum og sefandi tónlist áttu tónskáldin að leggja til. Jafnvel vísindamennirnir voru þvingaðir til, hver á sínu sviði, að færa sönnur á marx- leniu-stalinisk stærðíEræði og marx-lenin-stalinisk grasafræði og allsk. kynja- og töfrabrögð. Allt átti þetta að lita út sem vís- indi, en var í raun réttri ekkert annað en kommúnismi, hreinn og klár. í þessum tiltektum sínum gleymdu kommúnistarnir ekki heldur skólunum og þýðingu þeirra fyrir áróðurinn. í Austur- Evrópu varð marx-lenin-stalin- isminn og rfissneskan meginatrið- ið í því allsherjarkennslustarfi, sem átti að iðka alla leið frá ungbarnaskólunum til háskól- anna. Mikið hlutverk var ætlað lýð- skólum og háskólum í Austur- Evrópulöndunum. Þangað átti hið andlega forystulið að sækja menntun sína, sem átti ekki að starfa eftir fyrirskipunum, en skólana átti að reka af innilegum eldmóði hugsjónamanna, er myndu vera fullfærir um að greina frá grunduðum vísindum kommúnistafræðslunnar. Þess vegna voru háskólarnir og lýð- skólarnir opnaðir fyrir þeim nemendum sem höfðu fengið á- gætiseinkunnir 1 kommúniskum fræðum og tekið þátt í skipu- lagðri vinnu ungkommúnista. ALDREI í HEIMSSÖGUNNI Aldrei i heimssögunni hefir nokkurt ríki, þó með séu talin öll páfaveldi miðaldanna og Þýzkaland Hitlers, haft svo full- komið tæki til múgsefjunar og notað sér af þvi í jafnríkum mæli. Áróður hinna voldugustu sam- taka, er notar milljónir í auglýs- ingaskyni til að kaupa sér „goodwill“, er eins og dropi í hafið samanborið við framkomu kommúnista. Óttinn um það meðal andans manna í Vestur-Evrópu og á Norðurlöndum að kommúnistum tækist að sefja múginn, hefir sýnt sig vera úr lausu lofti gripinn. Slík vélræn áróðursáhrif hafa ekki þau áhrif á fjöldann, er búizt var við. Ahrifin af áróðri nazistanna og bolsjevikkanna í Þýzkalandi og Sovétríkjunum virðast að verulegu leyti koma af því, að menn byggðu á hug- myndaheimi þjóðarinnar sjálfr- ar og venjum og þjóðernistilfinn- ingum. í Ungverjalandi, eins og í öðr- um Austur-Evrópulöndum, hitti kommúnisminn fyrir hugsjóna- kerfi og þjóðfélagsform og meim ingu, sem var honum að öllu leyti andstæð, og hlaut hann því að lúta í lægra haldi, — O — Ungverska þjóðin hefur um fimm alda skeið haldið uppi linnulausri baráttu fyrir þjóð- frelsi sínu. Hefir þjóðin sett stolt sitt í hana, svo að hvorki soldán- unum tyrknesku né Habsborgar- keisurunum hefir tekizt að buga þjóðina. Hún hefir ekki látið und an kenningum Múhameðstrúar- manna eða gerzt handbendi þýzkra. Sömuleiðis hefir ung- verska þjóðin fyllzt þjóðlegum metnaði, er hún hefir getað stað- ið styrk á takmörkum balkan- landanna og eflt þar sína gömlu hreinu menningu ,sem að öllu leyti er ungversk og í eðli sínu með sérkennum Vestur-Evrópu í sínum þjóðlega merg. SÁLFRÆÐILEG UNDIRRÓT U PPREISN ARINN AR Vanhirt og svikul etfnahags- kerfi kommúnista og yfirráða- pólitík þeirra hafa komið því til leiðar, að leppþjóðirnar hafa búið við sífellt versnandi lífs- kjör. Óánægjan og gremjan yfir hlinum ófullnægjandi launa- kjörum setur mark sitt á allt líf Austur-Evrópuþjóðanna. Útilok- að var að menn kæmu nokkrum breytingum í framkvæmd. Ör- yggislögreglan hefur með ár- vekni séð fyrir því að sérhver minnsta óánægjuhreyfing hefir verið kæfð í fæðingunni. í mótsetningu við óeirðirnar i Austur-Berlín og Poznan, hófst frelsisstríð Ungverja ekki upp úr neinni launadeilu, heldur var það háskólaæskan ,sem efndi til hóp- göngu í því skyni að mótmæla skyldunámi í rússnesku og komm úniskum fræðum. Kröfurnar um sjálfstæði og mannréttindi sátu í fyrirrúmi fyrir kröfum um bætt lífskjör. í kröfum verkamanna- ráðsins sem samdi við Kadar- stjórnina, var ekki minnzt á launahækkun eða stytting vinnu tímans, heldur útgáfu sjálf- stæðs og óháðs blaðs, er lyti engri ritskoðun. Þá var komin uppreisn í öllu landinu og fyrsta verk al- mennings var að fjarlægja sovét skjaldarmerkin og setja i staðinn upp gömlu ungversku skjaldar- merkin um allt landið. Þetta til- finningamál og þessi ósjálfráðu viðbrögð eru eins táknræn fyrir frelsisbaráttu Ungverja og orða- lag þjóðsöngsins, en þar er kom- izt svo að orði: „Guð blessi Ung- verja". En þjóðsöngurinn, sem var bannaður á dögum kommún- istastjórnarinnar, var nA aong- ínn við öll tækifæri. SKERFUR MENNTAMANN- ANNA Enda þótt andstaðan gegn kommunismanum væri almenn og viðbjóðurinn á þeim rótgró- inn meöal almennings í landinu og hjá öllum fjöldanum, hefði ekki orðið neitt úr uppreisninni 23. okt. sl. ef menntamenn hefðu ekki haustið 1955 og næstu mán. snúizt öndverðir opinberlega og gefið þjóðinni áþreif- anlegt fordæmi, er væri nægilegt til að vinna eftir. Frelsisstríð Ungverja byrjaði fyrir ári í rit- höfundafélagi þeirra með ávarpi, sem nokkrir rithöfundar sendu flokksstjórninni. Þeir, sem skrif- uðu nöfn sín undir þetta ávarp, fóru fram á, að afnumin yrði öll ritskoðun og horfið frá skyldunni til að halda uppi sósíalrealisman- um. Enda þótt flokksstjórnin vís- aði þessum tilmælum algerlega á bug með venjulegri frekju, kall aði þau „borgaraleg“ og send- enduma andbyltingarsinna, hélt hreyfingin áfram að vaxa óð- fluga gegn flokksstjórninni. PETÖFI-KLÚBBURINN Næsta skrefið í uppreisn menntamannanna var íélagsskap ur er nefndist Petöfi-klúbburinn. Þar voru haldnir margir um- ræðufundir, þar sem andstæðing ar ríkisstjórnarinnar létu til sín heyra. Rithöfundar, blaðam. og prófessorar, er voru andstæðing- ar ríkisstjórnarinnar, leystu frá skjóðunni, við mikinn fögnuð þjóðarinnar. Á fundi Petöf- klúbbsins 28. júní s.L hélt ekkja Lazlo Rajks, þess sem kommún- istar tóku af lífi, ræðu. Samkom- an endaði með háværri kröfu- göngu. Þetta var fyrsta kröfu- gangan, sem hafði verið haldin i 10 ár, sem rikisstjórnin átti ekki upptökin að, og leiddi hún til þess, að hinn hataði einvaldur Ungverja, Mathias Rakozi, fór írá völdum. Þessi fyrsti mikli sigur há- skólaæskunnar styrkti hana i andstöðu hennar við kommún- ista. Hinn 19. okt. héldu stúdentam- ir í Búdapest-háskólanum fund í aðaláheyrendasal háskólans, þar sem þeir kröfðust að hinn opinberi kommúnistafélagsskap- ur stúdenta yrði leystur upp. Samhliða létu þeir í ljós samúð sína með uppreisninni í Póllandi gegn rússneska hershöfðingjan- um Rokossovsky og stalinistum. Hinn 20. okt. ákváðu stúdent- arnir í Szeqed í einu hljóði að segja sig úr félagsskap stúdenta- sambands kommúnista. Næsta dag mynduðu 3000 stúdentar frá háskólum landsins og öðrum kennslustofnunum óháð stúdenta samband og kröfðust þess að skyldukennslan í rússnesku væri afnumin. Á sama fundi var ákveð ið að haldinn skyldi opinber fundur 23. október og ætti hann að gangast fyrir því að blóm- sveigar yrðu lagðir að minnis- merkjum frelsishetjanna frá 1848, og skyldi landsstjórninni afhent skjal, þar sem skráðar yrðu þær kröfur, sem stúdent- arnir færu fram á. Þúsundir stúdenta fylktu liði á götum Búdapest þennan dag en þeim útifundi bættist aragrúi iðnverkamanna, sem streymdu út úr verksmiðjum sínum. Á torg- inu fyrir framan ríkisþingsbygg- inguna, þar sem ríkisstjórnin hafði aðsetur sitt, biðu hundruð þúsund manns í ofvæni eftir að heyra undirtektir rikisstjórnar- innar. Svarið kom á þann hátt, að öryggislögreglan hóf skothríð á mannfjöldann. HINIR V ONSVIKNU Allir rithöfundar, listamenn og blaðamenn, sem urðu þess vald- andi að uppreisn menntamann- anna brauzt út, og eru enn skoðaðir, sem leiðtogar henn- ar, hafa verið sannfærðir komm- únistar. Sumir þeirra hafa vegna sannfæringar sinnar setið árum saman í fangelsum eða verið í útlegð af sömu ástæðum. En allir hafa þeir af lífi og sál tekið þátt í „sósíalistískri endurreisn", eft- ir seinni ófriðinn. Samstarfs- menn þeirra hafa ausið á þá ýmiss konar heiðursmerkjum o.s, frv. Enginn gat með góðu móti haldið því fram að framgirni réði gjörðum þeirra eða eigin- girni hafi ráðið, þegar þeir tóku þær ákvarðanir að segja skilið við kommúnista. Ungverskir menntamenn hafa ekki gert uppreisn gegn marx- ismanum eða hugmyndakerfi hans, en uppreisn þeirra hefur beinzt gegn því, hvernig hann er framkvæmdur í verki ðg hvaða aðferðir hann notar. í stuttu máli: Menntamenn Ungverjalands hafa snúizt gegn sóvét-imperialismannm, gegn ágengni Sovétríkjanna, gegn rit- skoðun þeirra, gegn hinum sósíal- istiska realisma. í einu orði sagt, gegn Sovétríkjunum. Það gefúr auga leið að hvorki rithöfundar, er í nóvember 1955 settu skrið- una af stað með ávarpi sínu sem að ofan getur eða hinir, sem léðu þeim fylgi sitt ætluðust til að andspyrna þeirra leiddi til vopn- aðs frelsisstríðs. Þá fóru rithöf- undarnir fram á, að málfrelsi yrði lögleitt af nýju. Eins og þeir orðuðu það sjálfir, höfðu þeir verið sviptir andlegu frelsi, sam- bandi sínu og áhrifum á fjöld- ann. Þegar rithöfundar og mennta- menn komast að raun um að þeir eru orðnir áhrifalausir meðal þjóðar sinnar, glata þeir sköp- unarþrótti sínum og rithöfund- arhæfileikum. I byrjun uppreisnarinnar gekk ungverski alþýðherinn í lið með þjóðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.