Morgunblaðið - 17.04.1957, Page 19
Miðvikudagur 17- aprfi 1957
MORCVNBLAÐIÐ
19
Við erum ekki hræddir við
Sundknattleiksflokkur Ármanns. — Aftari röð frá vinstri: Einar
Hjartarson þjálfari, Ólafur Guðmundsson, Pétur Kristjánsson,
Guðjón Sigurbjörnsson, Sólon Sigurðsson, Ingi R. Ilelgason farar-
stjóri. — Fremri röð frá vinstri: Gunnar Júlíusson, Guðjón Ólafs-
son, Stefán Jóhannsson, Sigurjón Guðjónsson fyrirliði og Helgt
Björgvinsson. Á myndina vantar bræðurna Theodór Diðriksson,
sem hittir flokkinn í Kaupmannahöfn og Ólaf Diðriksson.
'if FERÐAÁÆTLUNIN
Þeir sem í þessa för fara eru:
Pétur Kristjánsson, Sigurgeir
Guðjónsson, Guðjón Ólafsson, Ól-
afur Diðriksson, Guðjón Sigur-
björnsson, Gunnar Ólafsson, Sólon
Sigurðsson, Ólafur Guðniundsson,
Stefán Jóhannsson, Helgi Björg-
vinsson, Einar Hjartarson, sem
er þjálfari flokksins og Ingi K.
Helgason, sem verður fararstjóri.
1 Kaupmannahöfn bætist við 13.
maðurinn í hópinn, Theodór Dið-
riksson, en hann stundar verk-
fræðinám í Höfn. Yerið getur að
hann hafi lagt drög að því, að
flokkurinn leiki einn leik í Höfn,
og verður hað þá annað kvöld.
Á fimmtudag verður haldið um
Gædscr með ferju til Warnemiinde
og ekið 1 áætlunarvagni þaðan til
Berlínar og þangað komið að
morgni dags á föstudaginn langa.
Það er oft harður aðgangur þeg-
ar fast er sótt í sundknattleik og
er þá lítt hirt um það þó maður
fari í kaf og súpi eða fái smá
höfuðhögg. Þetta sýnir myndin
gleggst. Ólafur Guðmundsson
(með svarta hettu nr. 5) reynir
að skjóta en Guðjón í markinu
hýr sig undir að verja fast skot.
— Myndirnar tók Ragnar Vignir.
að tíminn til undirbúnings hefði
verið of stuttur, því boðið barst
seint. En æfingar voru þá
hafnar með þátttöku í Norður-
landamótinu fyrir augum. En velja
varð annan tveggja kosta, sagði
UM StÐUSTU helgi minntist íþróttakennarafélag íslands á
veglegan og eftirminnilegan hátt aldarafmælis skólaíþrótta á
íslandi. Fjórar sýningar fjölbreyttar og skemmtilegar, voru að
Hálogalandi á laugardag og sunnudag. Hápunktur hátíðahaldanna
var svo í Þjóðleikhúsinu á mánudagskvöldið, þar sem efnt var til
glæsilegrar hátíðarsýningar.
Sundknattleikur er einhver erfiðasta íþrótt sem hér er iðkuð. Leik-
urinn stendur 2x10 mín. án tafa, og á þeim tíma er um sífellda
sprctti fram og aftur að ræða, auk þess sem oft cr þungt að
berjast við mótherjann, þó að löglega sé að öllu farið. Hér sjást
Ármenningar að æfingu. Það er handagangur í öskjunni og fast
barizt um knöttinn. Það má mikið vera ef dómarinn hefur ekki
dæmt þarna. En til erfiðra leika ganga nú Ármenningar við úr-
valslið orlend.
Vt AÐ HÁLOGALANDI
Sýningarnar að Hálogalandi
voru vel sóttar, en þar var um
skemmtilegan íþróttaviðburð að
ræða. Gunnar Thoroddsen borg-
arstjóri flutti þar setningaræðu
á laugardaginn, en síðan komu
fram á sýningunum fjórum sam-
tals 30 flokkar og sýndu svip-
myndir frá íþróttastarfinu í skól-
unum. Hafi menn fram að þessu
efast um gildi íþróttanna fyrir
nemendur sem sitja á skólabekk,
þá hlýtur allur efi að hafa horfið
Drengjnhlaup
í Keflovík
Á SKÍRDAG fer fram í Kefla-
vík drengjahlaup (víðavangs-
hlaup) og stendur Ungmennafé-
lag Keflavíkur að því. Hefst
hlaupið kl. 2 síðdegis og er búizt
við mikilli þátttöku.
Þetta er í fyrsta sinn sem slík
keppni fer þar fram. Gefnir hafa
verið tveir bikarar til keppn-
innar, annan hlýtur sá er sigrar
í hlaupinu, hinn hlýtur bezta
þriggja manna sveit. Þátttaka er
heimil öllum Suðurnesjamönn-
um. Bikarana gáfu Hörður Guð-
mundsson og Þórhallur Guð-
jónsson.
á þessum sýningum. íþróttirnar
sem á borð voru bornar mæltu
bezt með sér sjálfar, þær sönn-
uðu gildi sitt svo að ekki verður
hrakið. „Ónauðsynleg áreynsla“
hafa þær af sumum verið kallað-
ar, skólaíþróttirnar. Hvílík þröng
sýni! Hvað er ekki ónauðsynlegt,
ef þessar léttu, frjálslegu og
fögru hreyfingar sem miða að
viðhaldi líkamans og stælingu,
eru ónauðsynlegar.
★ EFTIRMINNILEGUR
LOKAÞÁTTUR
Hátíðasýningin á mánudags-
kvöldið í Þjóðleikhúsinu tókst
með afbrigðum vel og var eftir-
minnilegur lokaþáttur í þessum
hátíðahöldum íþróttakennaranna.
Stjórnandi hátíðarinnar var Stef-
án Kristjánsson, form. íþrótta-
kennarafélagsins. Ræður fluttu
Þorsteinn Einarsson íþróttafull-
trúi, er setti hátíðina og minnt-
ist fortíðarinnar og áfanga í sögu
skólaíþrótta, Gylfi Þ. Gíslason
menntamálaráðherra, sem ræddi
um uppeldislegt gildi íþróttanna,
og áhrif þeirra á ísl. þjóðlíf fyrr
og síðar, og Björn Jakobsson
fyrrv. skólastjóri, er talaði um
skólaíþróttir. Ræðum þeirra var
vel tekið, þó sumum fyndist
harður dómur Björns Jakobsson-
ar, er hann mælti að banna ætti
öllum börnum að starfa innan i-
þróttafélaganna. Þykir það und-
arlegt að menn sem varið hafa
æfistarfi sínu til þess að hvetja
til íþróttaiðkana og líkamsmennt-
ar skuli vilja banna snaran þáti
af öllu því starfi sem innt er at
hendi í þá sömu átt
Á GÓÐAR SÝNINGAR
Síðan komu flokkar fraaa
hver af öðrum, frá ýmsum skól-
um. Menntaskólanemendur fluMH
ásamt leikurum sögusýningu wn
„Bændaglímuna", kvæði Grima
Thomsen. 8 ára drenghnokkar úr
Melaskólanum sýndu ýmislegt af
því sem fram fer í leikfimistim-
um þeirra, flokkur Menntaskóla-
stúlkna, vel þjálfaður, sýndi und-
urfagra leikfimi, svo og náms-
meyjar íþróttakennaraskólans
að Laugarvatni. Kennaraskóla-
nemar sýndu fjölbreytta þjóð-
dansa, stúlkur úr Laugarnesskól-
anum, blandaður flokkur,
átti skemmtilegan þátt í sýning-
unni. Sama er að segja um flokk
pilta í Menntaskólanum á Laug-
arvatni. f upphafi og í lokin lék
lúðrasveit barna og unglinga-
skóla Austurbæjar.
í heild var sýningin sem fyrr
segir mjög vel heppnuð. Frjáls-
leg og glöð kom æskan fram og
sýndi líkamsmennt sína. Hver
flokkurinn af öðrum kom fram
og „sagði sína endursögn". Allir
frá hinum yngstu til hinna elztu,
brosandi og glaðir yfir því starfi
sem innt er af höndum af gleði
og til aukinnar ánægju fyrir
sjálfa sig og aðra. Hafi allir er
fram komu og að unnu þökk fyr-
ir þessar ágætu sýningar.
— A. St
>
—.,
Um 18000
hafa gengið
LOKAÞÁTTUR Skíöalandsgönp-
unnar er nú að hefjast og stend-
ur yfir páskana. Göngunni lýkur
30. þ.m. Nú hefur verið gengið
á nær 80 stöðum á landinu m.a.
í Grínxsey. Þátttakendur £ göng-
unni munu nú vera nær 18000
talsins.
MEÐAL farþega með flugvél
Flugfélags íslands til Kaup-
mannaliafnar á morgun eru 12
sundknattleiksmenn Ármanns.
Sú flugferS er upphaf keppnis-
ferðalags þeirra til Berlínar, en
i þá ferS fara þeir í boði þyzks
félags. Þeir eru vænlanlegir
heim aftur 28. þ. m. Margir
mundu kalla þetta góða páska-
ferð, en framundan hjá þess-
um piltum er erfið -teppni við
úrvalslið, og undanfari ferðar-
innar eru þrotlausar æfingar,
sem ekki hafa verið neinn
barnaleikur.
að fara 13 saman
— segja sundknattleiksmenn er
halda til Berlínar
A laugardag hefst keppnin en
það er sundknattleiksmót milli
úrvalsliðs frá Prag, úrvalsliðs
belgiskrar borgar, þriggja liða frá
3 þýzkum borgum og svo Ár-
manns.
Ármannsliðið leikur 2 leiki á
laugardag, 2 leiki á páskadag og
1 á annan í páskum. Heim kemur
flokkurinn frá Hamborg 28. apríl
með flugvél.
GOTT ClTHALD
Einar Hjartarson þjálfari, sagði
Einar, — að leggja aðaláherzlu
á úthaldsþjálfun eða á leikinn. Ég
valdi úthaldsþjálfunina og ég tel
að úthald muni piltana ekki
skorta. Tækni í leik þeirra
mætti aftur sálfsagt vera betri.
Þessi för gefur dýrmæta reynslu
fyrir Norðurlandamótið.
— Þið eruð ekki hræddir við
að halda 13 af stað frá Höfn.
— Nei, við höfum enga ótrú
á tölunni 13. Við fáum að sjá
hvar við stöndum, og njótum von
andi skemmtilegrar ferðar.
ÍR íslandsmeistarí í körfu-
knattleik 1957
A MÁNUDAG var körfu-
knattleiksmótinu fram haldið
•g léku þá Gosar og ÍR. IR
sigraði með 34 stigum gegn
33. Hafa þá ÍR ingar unnið
alla sína leiki í meistaraflokki
karla og þar með unnið titil-
inn íslandsmeistarar í körfu-
knattleik 1957. Nánar um
þetta i blaðinu á morgun.
Fra cinni syningunni að Háiogalandi.
100 ára afmælis skólaíþrótta,
minnzt d eftirminnilegan hátt