Morgunblaðið - 26.05.1957, Blaðsíða 1
20 slðuf
Listkynning Mbl.
Ölafur Túbals
ÞESSA viku er það Ólafur Tú-
bals, listmálari, bóndi og gest-
gjafi að Múlakoti í Fljótshlíð,
sem sýnir verk sín á vegum list-
kynningar blaðsins.
Ólafur Túbals er Rangæingur
að ætt, fæddur og uppalinn i
hinni fögru og sögufrægu Fljóts-
blíð. Verður hann sextugur í sum-
ar. Hann hóf listnám við erfiðar
aðstæður hér heima m.a. hjá Jó-
hannesi Larsen er var danskur
teiknari, er dvaldi um skeið hér
á landi. Með honum ferðaðist Tú-
bals víða um land.
Síðar fór hann utan og lá leið
hans til Kaupmannahafnar eins
og svo margra ungra Islendinga
er siglt hafa til listnáms. Vet-
nrna. 192»—1929 og 1930—1931
stundaði hann nám í Konuglega
listaháskólanum í Höfn. Síðan
kom hann hingað heim og málaði
og hélt sýningar. En upp úr þessu
tekur hann við búi í Múlakoti og
verður. þá þrengra um vik við
listastörf.
Fyrstu málverkasýningu sína
mun Ólafur Túbals hafa haldið
árið 1922. Síðan hefur hann hald-
ið margar sýningar hér heima,
bæði í Reykjavík, á Akureyri og
á Húsavík. Ennfremur hefur hann
átt málverk á samsýningum í
Kaupmannahöfn.
Eistasafn ríkisins hefur keypt af
honum myndir. Hefur hann einn-
ig selt mörgum erlendum ferða-
mönnum er sótt hafa hann heim
málverk sín. Hafa verk hans
einnig verið mikið keypt í byggð-
um Suðurlands. Sérstaklega hafa
vatnslitamyndir hans. verið eftir-
■óttar.
Víðtækar njósnir um NATO
Bonn, 25. maí.
VESTUR-ÞÝZKA gagnnjósnastarfsemin hefur flett ofan af víð-
tækum njósnahring, sem starfað hefur bæði í Vestur-Þýzka-
landi og nágrannaríkjunum. A. m. k. tíu njósnarar hafa verið hand-
teknir, tveir hinir síðustu í Vestur-Berlín fyrir nokkrum dögum.
Yfirvöldin vilja ekki að svo
komnu máli skýra frá þessu í
smóatriðum, en því er haldið
fram, að hér sé um að ræða
„geysistóran njósnahring sem
reynt hefur að afla sér upplýs-
inga um hermál Atlantshafs-
hafsbandalagsins". Samkvæmt
góðum heimildum var starfsem-
inni stjórnað frá Austur-Berlín.
í FANGELSI
Margir af höfuðpaurunum sitja
nú bak við lás og slá í ýmsum
helztu iðnaðarborgum Vestur-
Þýzkalands. Nokkrir þeirra eru
sagðir vera Austur-Þjóðverjar,
sem dvalizt hafa í Vestur-Þýzka-
landi með fölsk skilríki, en
aðrir eru útlendingar.
2 ÁRA EFTIRGRENNSLAN
Þessar uppljóstranir eru ár-
angur tveggja ára látlausra
rannsókna, sem hófust þegar
leyniþjónustan komst á slóð
starfsmanns nokkurs í utan-
ríkisráðuneytinu í Bonn, sem
var grunaður um að gefa út
ólögleg vegabréf. Hann var
handtekinn og játaði síðar, að
hann hefði látið erlenda er-
indreka hafa vegabréf.
FÖLSUÐU VEGABRÉF
OG PENINGA
Annar mikilvægur þáttur í
rannsókninni kom fram í
fyrra, þegar ljóstrað var upp
um verksmiðju í Vestur-Ber-
lín sem framleiddi falska
mynt. Samkvæmt skipun frá
kommúnistum austan við
markalínuna í Berlín prentaði
þessi verksmiðja m. a. vega-
bréf og seðla flestra ríkjanna
í Atlantshafsbandalaginu. Um
tíma var álitið, að njósnar-
arnir að austan fengju skilríki
sín í þessari verksmiðju, en
síðar kom í ljós, að þeir fengu
fölsk vegabréf í utanríkis
ráðuneytinu, eins og fyrr
segir.
MÁLAFERLIN 1 JÚLf
Ekki er vitað, hvort njósna-
hringnum tókst að afla þeirra
upplýsinga um Atlantshafs-
bandalagið, sem þeir voru á hnot-
skóg eftir. Málaferlin gegn nokkr
um njósnaranna hófust fyrir
luktum dyrum í Dusseldorf um
síðustu helgi, en nú hefur orðið
hlé á þeim. I júlí verður mál
njósnahringsins í heild tekið
fyrir.
Mikil fundahöld í Washingfon
Washington, 25. maí.
EISENHOWER forseti átti annan fund við helztu ráðgjafa sína
í dag og ræddi við þá um síðustu tillögur Rússa um af-
vopnun. Meðal þeirra, sem sátu fundinn, voru Dulles utanríkis-
ráðherra og Stassen fulltrúi Bandaríkjanna í afvopnunarnefnd-
inni, en hann er nú á förum til Lundúna til að sitja fundi nefnd-
arinnar, sem gerði 10 daga hlé á umræðum sínum fyrir síðustu
helgi.
Torleiði
London, 25. maí.
„MAYFLOWER“, eftirmyndin
af hinu fræga skipi „pílagrím-
anna“, sem fyrstir Evrópu-
manna námu land í Norður-
Ameríku, hefur nú verið á
siglingu 34 daga og miðar lítt
áfram. Hefur það borizt mjög
úrleiðis, og veit enginn hve-
nær það nær áfangastað sán-
um í „Nýja Englandi“. Skip-
ið sigldi frá Bretlandi í minn-
ingu hinna frægu eusku „píla-
gríma“, sem héldu 101 talsins
til Norður-Ameríku árið 1620.
Afvopnun og sameining Þýzka-
lands eru nú að fá nýja stefnu,
samkvæmt áreiðanlegum heimild
um í höfuðborginni. Spurningin
um afvopnun er meginástæðan
fyrir þeim viðræðum, sem Aden-
auer kanslari Vestur-Þýzkalands
mun eiga við leiðtogana í Wash-
ington nú um helgina. Það er
skoðun Vestur-Þjóðverja að af-
vopnun, öryggi Evrópu og sam-
eining Þýzkalands séu vandamál,
sem eru svo samtvinnuð, að þau
verði að leysast í sameiningu.
ADENAUER
ÁHYGGJUFULLUR
Hins vegar er það álit sumra,
að Eisenhower hafi komið til hug-
ar að taka þessi vandamál hvert
fyrir sig og leysa þau þannig í
Formósumenn hvattir
fil að sameinast Peking
Taipeh, 25. ma.
STJÓRN kínverskra þjóðernissinna á Formósu hélt sérstakan
fund í dag til að ræða hinar miklu róstur sem urðu þegar
múgur manns í höfuðborginni safnaðist saman fyrir utan banda-
ríska sendiráðið til að mótmæla því, að bandarískur herréttur
hafði sýknað Bandaríkjamann, sem var sakaður um að hafa
drepið Kínverja á Formósu.
von um að komast að einhverju
samkomulagi við Rússa um tak-
mörkun á og eftirlit með víg-
búnaði. Sagt er ,að Adenauer
óttist, að sameining Þýzkalands
muni nú falla í skugga þessa
vandamáls.
Tító árnað heilla úr austri
BELGRAD, 25. maí. — Tító ein-
ræðisherra í Júgóslavíu á 65 ára
afmæli í dag. Hafa honum borizt
heillaóskir frá leiðtogum Sovét-
ríkjana, Póllands, Tékkóslóvakíu,
Austur-Þýzkalandi, Búlgaríu og
Rúmeníu. í orðsendingu frá rúss-
neska kommúnistaflokknum er
látin í ljós von um, að haldast
megi góð og vinsamleg samvinna
milli kommúnistaflokka Rúss-
lands og Júgósiavíu.
í Viðtali sem birtist i einu af
dagblöðunum í Belgrad í gær,
segir Tító, að Rússar hafi nú látið
af hugsjónabaráttu sinni við
Júgóslava. Kvaðst hann reiðubú-
inn að eiga samvinnu við ríkin í
Sovét-blökkinni um öll þau mál,
sem samkomulag næðist um án
þess að Júgóslavar slægju nokk-
«ð af stefnumálum sínum.
Drotfnfng kveður
Höfn, 25. maf.
ELÍZABET Bretadrottning og
Filippus maður hennar eyddu
síðasta degi sínum í Danmörku
í dag. f kvöld áttu þau að fara
um borð í skip sitt „Britannia“
hjá Helsingör, þar sem hinn frægl
kastali Hamlets stendur enn. Það-
an sigla þau til Skotlands.
Nosser sendi Hussein heillnóskir
Ólafur Túbals hefur skreytt
Hlíðarendakirkju og samkomu-
búsið á Hellu.
Hann sýnir nú 7 málverk á veg
um listkynningar Morgunblaðs-
ins og eru þau öll til sölu hjá af-
greiðslu blaðsins.
A-BERLÍN — Heimsfriðarráðið
svonefnda, sem er eitt af áróðurs-
fyrirtækjum alheimskommún-
ismans, mun í næsta mánuði
halda þing á Ceylon. Sá orðróm-
ur berst út, að á þingi þessu sé
í ráði að hefja nýja „undirskrifta-
herferð“ í líkingu við Stokk-
hólmsávarpið fræga. Á það að
nefnast „Colomboávarpið" og
bera fram kröfu um bann við
tilraunum með kjarnorkuvopn,
Forsætisráðherra þjóðernis-
sinna tilkynnti ,að stjórnin hefði
gert ráðstafanir til að koma aft-
ur á lögum og reglu í borginni.
Hersveitir standa nú vörð við
heimili allra bandarískra borg-
ara, sem og við sendiráðið, er
var að miklu leyti eyðilagt í
en kommúnistar hafa reynt að
hræða fólk mjög vegna tilrauna
Breta og Bandaríkjamanna með
þessi vopn. Hins vegar sprengdu
Rússar fyrir skömmu margar
kjarnorkusprengjur með fárra
daga millibili. Málaleitan Japana
um að tilraununum yrði hætt
svöruðu Rússar á þá leið, að
„þetta kæmi engum við nema
þeim sjálfum“.
óeirðunum í gær. Margir starfs-
mannanna við sendiráðið hlutu
áverka, en nokkrir árásarmanna
voru handteknir og fangelsaðir.
MÓTMÆLI
Þegar múgurinn reyndi að
leysa fangana úr haldi kom
enn til átaka ,og létu nokkrir
menn lífið. Bandaríska stjórn-
in hefur sent stjórninni á
Formósu harðorð mótmæli og
krafizt skaðabóta.
PEKING VILL „FRELSA“
FORMÓSU
Eitt af blöðum kommúnista í
Peking lét svo ummælt í dag,
að óeirðirnar í Taipeh sýndu það
Ijóslega, að Kínverjar á eyjunni
þyldu nú ekki lengur hina
grimmilegu árásarstefifu Banda-
ríkjanna. Skorar það á þá að
taka höndum saman við Kínverja
á meginlandinu og „frelsa“
eyjuna.
AMMAN 25. maí. — f dag heldur
Jórdanía hátíðlegt 11 ára afmæli
sjálfstæðis síns. í útvarpi til þjóð-
arinnar bar forsætisráðherrann,
Ibrahim Hashim, lof á Hussein
konung og hét á þjóðina að berj-
ast gegn hvers konar erlendri
undirróðursstarfsemi. Hann lagði
áherzlu á, að sviksamur óvinur
LONDON 25. maí. — í gær
kvöldi fannst kona stungin til
bana í neðanjarðarbrautarstöð í
London. Það hefur nú komið í
ljós, að hún var pólsk greifaynja,
Theresa Lubyenska, og var for-
maður samtaka fyrrverandi póli-
tískra fanga í Þýzkalandi Hitlers.
Hún hafði verið stungin með rýt-
ingi í brjóstið og lézt í sjúkra-
lægi reiðubúinn til árása á landa-
mærum Jórdaníu.
Samkvæmt fréttastofufregnum
frá Kaíró sendi Nasser einra-ðis-
herra Egyptalands simskeyti til
Husseins konungs þar sem hann
lét í ljós árnaðaróskir til „bræðra
þjóðarinnar í Jórdaníu".
húsi skömmu eftir að hún fannst
á brautarpallinum í neðanjarðar-
stöðinni.
Greifafrúin var 72 ára gömul
ekkja, sem verið hafði í þýzkum
þrælabúðum í stríðinu. f London
kom hún á fót samtökum til að
hjálpa þeim samlöndum hennar,
sem höfðu verið hnepptir í þræl-
dóm af nazistum.
IMýtt „Stokkhólmsúvíirp"
Pólsk greifafrú myrt