Morgunblaðið - 26.05.1957, Side 17

Morgunblaðið - 26.05.1957, Side 17
Sunnudagur 26. maí 1957 MORCUNBLAÐIÐ 17 Gullhringur með úbínstein hefur tapazt. Finnandi vinsamlega geri aðvart af Njálsgötu 108. Rösk og ábyggileg \ slúlka oskast í kjöt & nýlenduvöruverzlun. — Tilboð sendist á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir fimmtudagskvöld, merkt „Vön — 5152“. Skrifstofustúlka vön enskri hraðritun og bréfaskriftum óskast nú þegar eða fljótlega. Hálfsdagsvinna kæmi til greina. Umsóknir leggist inn á afgr. MbL merkt: Ensk hraðritun — 5150. v Léreft Hvítt, óbleyjað 80 — 90 140 cm. — Hálfhör — Poplin — Cambridge, mis- litt, 6 litir. — Fiðurhelt — Hvítt, d'ékkblátt. — Dún- helt — Hvítt, rautt, 90 cm. 140 cm. - Glasgowluíðin Freyjugötu 1 Sími 2902 AIASKA grúðrastöðin tilkynnir Fyrir skrúðgarðinn: Ga rðy rk j u verkf æri Trjáplönlur Skrautrunnar Blómplönlur Grasfræ Áburður Varnaríyf Ennfremur alls konar þjónusta Garðbygging Hirðing tJðun Skrúðgarðateikning Til híbýlaprýði: Pottaplöntur Afskorin blóm B ló maáburður Pottamót VarnarVf Pottar Fyrir matjurtagarðinn: Garðyrkjuverkfæri Spíraðar útsæðiskartöflur Kálplöntur Matjurtafræ Garðáburður Tröllamjöl Varnarlyf gegn Sníglum Kálmaðki Myglu 'tU (f3ldci fdcmdi inu unum AA-samtökin hafa um þessar mundir starfað í þrjú ár hér á landi. Markmið þessa félagsskapar er að hjálpa þeim, konum og körlum, sem við drykkjuskap eiga að stríða til að losna undan valdi þessa eyðileggingarsjúkdóms, ef þeir af fúsum vilja, óska að reyna þær leiðir til þess, sem félagsskapur- inn aðhyllist, og ennfremur að reyna að leysa hin sameiginlegu vandamál, sem fólk þetta á ævinlega við að stríða, meðan það er að sigrast á sjúkdómi sínum. Á þessum þremur árum hafa gengið í AA-samtökin um 400 manns, og fyrir atbeina þeirra samtaka var stofnað Hjúkrunar- og dvalarheimilið Bláa Bandið, sem starfað hefur nú í hálft annað ár að Flókagötu 29, og nýtur nú þegar almennrar viðurkenningar fyrir starfsemi sína. AA-samtökin leggja engin félagsgjöld á meðlimi sína en leita hins vegar samskota meðal þeirra og annarra einu sinni á ári, og hefur stjórn samtakanna ákveðið að gera það árlega á tímabilinu frá 16. apríl, sem er stofndagur sam- taka þessara á íslandi, til 1. júní. Á 'þeim tíma munum vér því nú og framvegis leita til almennings um fjárframlög og verður skrá yfir allar gjafir til félagsskaparins birtar í árbók Bláa Bandsins og AA-samtakanna, sem nú er verið að undirbúa útgáfu á. Vér hyggjum ekki á merkjasölu eða happdrætti eins og nú eru algengastar fjáröflunaraðferðir til styrktar menn- ingar- og líknarfélagsskap hér á landi, en vér væntum þess að þeir, sem skilja þýðingu starfsemi vorrar, vilji leggja af mörkum fjárhæð, sem þeir sjálfir ákveða, og vér getum vitjað til þeirra á þeim tíma, er þeir sjálfir tiltaka. Fjár- söfnun vorri verður að þessu sinni hagað þannig, að vér munum símleiðis eða á annan hátt leita eftir framlögum hjá fyrirtækjum og einstaklingum, sem vér náum til og starfsmaður vor mun síðan nálgast það fé, sem lofað hefur verið. Það eru einnig vinsamleg tilmæli vor til þeirra, sem vér ekki náum til með þessum hætti, en vilja styrkja samtök vor, að þeir hafi samband við skrifstofu AA-samtakanna í síma 7328 kl. 5.15—7.15 hvern virkan dag eða bréflega í póst- hólf 1149, eða komi framlagi sínu með einhverjum hætti til skrifstofunnar eða fyrirsvarsmanna samtakanna. Hjúkrunar- og dvalarheimili Bláa Bandsins að Flókagötu 29 er fyrst og fremst ætlað karlmönnum, en þörfin fyrir svipað heimili handa konum er mjög brýn. Vér höfum þvi ákveðið að festa kaup á hentugu húsi, þar sem starfrækja mætti slíkt heimili. f»ví fé, sem nú safnast, verður fyrst og fremst varið til þess að koma slíku heirnili á fót. En þó hjúkrunar- og dvalarheimili fyrir drykkfelldar konur sé nsesta viðfangsefni vort, eru óleyst tvö önnur þýðingarmikil mál á þessum vettvangi, sem litla bið þola. Er þar átt við framhaldsdvalarheimili fyrir þá, sem dvöl á Bláa Bandinu nægir ekki, og hjálparstöð fyrir athvarfslaust fólk, sem nokkuð er af, sérstaklega í Reykjavík. Að þessum málum báðum vinnum vér einnig nú og munum reyna að leysa þau sem fyrst. Um leið og vér þökkum öllum þeim, sem þátt tóku í söfnun vorri 1956, væntum vér þess enn, að margir gerist til þess að rétta oss hjálparhönd, bæði einstakir menn, félög og fyrirtæki, og það fé, sem lagt er í raunhæfa baráttu gegn áfengisbölinu, skilar sér aftur margfalt til þjóðarheildarinnar. Hið mikla böl, þjáningu og sorg, sem oftast leiðir af áf enginu, þekkja allir af eigin raun með einhverjum hætti, — einnig þeir, sem ekki eru sjálfir ofurseldir þeim bölvaldi. Vér trúum því, að Guð sé í verki vneð oss, og þess vegna fylgi því blessun að rétta oss hjálparhönd, hvort sem styrktarframlagið er stórt eða smátt. — Oss er þörf fjárins sem allra fyrst. Dragið því ekki að tilkynna framlag yðar á skrifstofu Bláa Bandsins að Flókagötu 29 eða til AA-samtakanna í Mjóstræti 3, uppi. Skrifstofutími þar er frá kl. 5.15—7.15alla virka daga. Sími beggja er 7328. Jónas Guðmundsson form. AA-samtakanna á íslandi og Bláa Bandsins. Guðmundur Jóhannsson Vilhjálmur Heiðdal forstöðumaður Bláa Bandsins. form. Reykjavíkuideildar AA-samtakanna. Tékkneskir kvensumarskór Úr striga- og ruskini. Svartir, rauðir, bláir og gráir. Aðalstræt! 8 — Laugavegi 20 — Laugavegi 38 — Snorrabraut 38 — Garðastræti 6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.