Morgunblaðið - 22.11.1957, Blaðsíða 2
2
WORCVNBL4ÐIÐ
Föstudagur 22. nóv. 1957
Beiziun orkunnar er hafin — „múffu“ komið fyrir, og brátt
stóð gufustrókurinn lárétt út úr henni.
Byrjað að virkja gufugos-
holuna miklu í Hveragerði
1 GÆR voru starfsmenn Hita-
veitu Hveragerðis, sem mun vera
eina hitaveitan hér á landi, þar
sem notuð er gufuhitun, langt
komnir með að virkja gufugos-
lioluna sem byrjaði að gjósa í
fyrradag. Er talið að mikil gufa
komi frá þessari holu.
í gær brugðu sér austur tíð-
indamaður Mbl. og ljósmyndari
þess. Er þeir komu fram á Kamba
brún mátti strax sjá hvar mikla
gufu lagði upp af aðalhverasvæð-
inu í Hveragerði. Gufusúlan var
ekki há, enda strekkingur af
norðri, er fljótt barði gufustrók-
inn niður.
Þegar komið var að holunni,
voru þar nokkrir starfsmenn
Hitaveitu Hveragerðis, að undir-
búa virkjun gufunnar. Voru þeir
að flytja að holunni tengistykki,
sem sett var ofan á hólkinn sem
gufan streymdi upp úr, en frá
þessum hólki verður lagt gufu-
rör að hiturum hitaveitunnar, en
í Hveragerði er gufa notuð til
þess að hita upp vatn i þrem
stórum hiturum.
um yfirstjórn á hinni tæknilegu
hlið málsins. Þegar þessi nýja
borhola byrjaði að gjósa í gær,
hófst samtímis gos í annarri bor-
holu, sem var miklu dýpri. Um
það bil 3 klst. eftir að gufugosið
hófst í holunum, tók það mjög að
hjaðna í eldri borholunni og
hætti síðan með öllu. Þessi hola
kostaði 50—60 þús. kr.
Hin nýja gufugoshola sem að
eins er um 54 m djúp og byrjað
var á á þriðjudaginn í fyrri viku,
vegur verulega upp á móti kostn-
aðinum við hina holuna.
Þegar lokið verður að
virkja þessa miklu gufu, er talið
sennilegt, að hitaveitan muni
ráða yfir nægri gufuorku a. m. k.
í bili. Enn hafa mælingar á gufu
magninu ekki farið fram, en það
sjá allir, sem nærri koma að það
er feikilega mikið og svo
er krafturinn mikill, að væri logn
myndi gufusúlan vafalítið vera
40—50 m há.
Hlutavelta
Við fengum þær upplýsingar,
að nú hefðu flest öll húsin í
„Austurbæ" Hveragerðis, vatn
frá Hitaveitu Hveragerðis, en
hún tók til starfa vorið 1955 og
hefir Sveinn Torfi Sveinsson
verkfræðingur, haft með hönd-
Heim-
dollnr __
ytTTwf
Fufltrúaráðsfundur
Fundur verður í fulltrúaráði
Heimdallar í kvöld kl. 20,30, í
Valhöll. Rætt verður um félags-
starfið í vetur, og er þess vænzt,
að fulltrúar komi réttstundis.
Plötukynning
Hljómplötukynning verður á
vegum Heimdallar í Valhöll á
laugardag kl. 6—7. Leikin verða
eftirtalin verk:
Hornkonsert nr. 1 eftir Mozart
(Denis Brain og Karajan).
Sónata nr. 23 (Appassionata)
eftir Beethoven (Walter Giese-
king).
La Traviata eftir Verdi (kon-
aertversion).
Sjálfstæðisfél.
í Hafnarfirði
HIN ÁRLEGA hlutavelta Sjálf-
stæðisfélaganna í Hafnarfirði
verður haldin þar í Sjálfstæðis-
húsinu n.k. sunnudag og hefst kl.
4. Að vanda verður á boðstól-
um fjöldi ágætra muna. Þá skal
þess og getið, að engin núll verða
og ekkert happdrætti, en það
mun vera orðið mjög sjaldgæft
á hlutaveltum.
Spilakvöld Stefnis
hefsl kl. 8,30
HAFNARFIRÐI. — Önnur kvöld
vaka Stefnis, fél. ungra Sjálfstæð
ismanna, verður í Sjálfstæðishús-
inu í kvöld og hefst kl. 8,30 með
því að spiluð verður félagsvist,
en að henni lokinni verður dans-
að til klukkan eitt.
Fyrri kvöldvakan var mjög
fjölsótt, og ættu því þeir, sem
hyggja á þátitöku, að mæta stund
víslega.
Hefir þessi þáttur í starfsemi
Stefnis mælzt vel fyrir meðal
æskufólks hér í hænum en í ráði
ar að halda henni áfram öðru
hverju a.m.k. fram til nýjárs.
Verða þá veitt heildarverðlaun í
spilunum, en þau eru miðar á
áramótafagnað Stefnis. — G.E.
Bæjarstjúm Beykjavíknr sameÍB-
ast um að skera ó Alþiagi að
þreíalda framlag til ótrýmingar
heilsnspillandi hósnæðis
Á FUNDI bæjarstjórnar Reykja-
víkur í gær komu til 2. umræðu
hinar ýtarlegu tillögur hæjarfull-
trúa Sjálfstæðismanna um bygg-
ingarmál. Hefur tillögunum áður
verið lýst hér í blaðinu.
Fyrsta tillagan fjallaði um
byggingaráætlunina til útrýming-
ar heilsuspillandi húsnæðis. Skv.
henni skal byggja 200 íbúðir auk
þeirra 600, sem ákveðið var 1955,
að byggðar skyldu. í þessu sam-
bandi var og lagt til, að teknar
yrðu ýmsar ákvarðanir um bygg-
ingarframkvæmdirnar, m. a. um
fjölbýlishús við Eiliðavog og
um úthlutun hinna 120 íbúða við
Gnoðarvog.
Á bæjarstjórnarfundinum í
gær voru tillögur fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins samþykktar með
viðauka, sem þeir lögðu sjálfir
fram tillögu um, er tillögurnar
voru til 1. umræðu. Segir þar,
að þeir, sem fá íbúðir við Gnoð-
arvog og sérstök lán í því sam-
bandi, eigi að áliti bæjarstjórn-
ar líka að fá fullkomin A og B-
lán úr hinu almenna veðlána-
kerfi.
Einnig var samþykkt önnur
viðaukatillaga frá Sjálfstæðis-
mönnum um að framkvæmd
byggingaráætlunarinnar skyldi
hraðað.
Önnur tillaga Sjálfstæðis-
manna fjallaði um stofnun Bygg-
ingarsjóðs Reykjavíkurbæjar i
því skyni að greiða fyrir bygg-
ingu íbúða til þess að útrýma
heilsuspillandi íbúðarhúsnæði i
bænum. Þessi tillaga var sam-
þykkt óbreytt.
Hækkun ríkisframlags.
Þriðja tillagan var um breyt-
ingar á lögunum um húsnæðis-
málastjórn. — Jóhann Hafstein,
Guðmundur Vigfússon, Gunnar
Thoroddsen, Alfreð Gíslason,
Magnús Ástmarsson og Þórður
Björnsson höfðu komizt að sam-
komulagi um að orða þessa til-
lögu þannig:
„Bæjarstjórnin skorar á
þingmenn Reykvíkinga að
beita sér fyrir því, í samvinnu
við aðra fulltrúa sveiarfélaga,
er sæti eiga á Alþingi, að
Peru-innfluíning-
urinn
Blaðinu barst í gær eftirfar-
andi yfirlýsing frá Félagi ísl.
stór kaupmanna:
í tilefni blaðaskrifa varðandi
verð á perum, sem birzt hafa í
dagblöðum í Reykjavík, vill Fé-
lag ísl. stórkaupmanna taka fram
eftirfarandi:
Perur þær, sem nýlega voru
fluttar til landsins frá Banda-
ríkjunum og seldar hafa verið í
verzlunum nú að undanförnu,
eru ekki fluttar inn af meðlimum
Félags ísl. stórkaupmanna, held-
ur af Samkaupum hf., sem eru
samtök nokkurra matvörukaup-
manna í Reykjavík.
Tregur afli hjá Sauð-
árkróksbáfunum
SAUÐÁRKRÓKI 21. nóv. Und-
anfarið hefur afli bátanna tregð-
ast allmjög. Einnig hefur
verið ógæftasamt síðustu dagana.
Tveir aðkomubátar, þeir Víðir
frá Eskifirði og Helgi Flóvents-
son frá Húsavík eru þegar hætt-
ir veiðum. Þrír aðkomubátar eru
þó hér ennþá, en tveir þeirra
Frigg og Pipp úr Reykjavík,
munu hætta í þessari viku. —
Heimabátarnir hafa róið öðru
hverju. —jón.
framlag ríkissjóðs til að út-
rýma heilsuspillandi húsnæði,
sbr. 16. gr. laga 42/1957, verði
hækkað tli samræmis við það,
sem ætla má, að frámlag
sveitarfélaga í þessu skyni
muni verða.
Telur bæjarstjórnin, að til
þess þurfi ríkissjóðsframlagið
á fjárlögum 1958 að nema
um 12 millj. kr.“
Þess má geta, að ríkissjóðs-
framlagið var 4 millj. kr. á þessu
ári. —
Bæjarstjórnin samþykkti ein-
róma tillöguna þannig orðaða.
Lántaka erlendis
Þá var samþykkt að skora á
húsnæðismálastjórn að leggja til
við byggingarsjóð ríkisins og
veðdeild Landsbankans, að þess-
ir aðilar noti lagaheimild til að
taka lán erlendis, einkum til að
ljúka þeim byggingum, sem nú
er unnið að.
Tillaga þessi var frá Jóhanni
Hafstein, og benti hann á, að
fengjust eðlileg framlög frá rík-
issjóði og veðlánakerfinu, myndi
handbært lánsfé á næsta ári
verða um 30 millj. kr., en það var
á þessu ári um 17 millj. kr.
Bréf frá Húsnæðismálastjórn
Borgarstjóri las á bæjarstjórn-
arfundinum bréf frá húsnæðis-
málastjórn. Telur húsnæðismála-
stjórn eðlilegt, að lán út á hverja
íbúð skv. IV kafla laga 42/1957
(um útrýmingu heilsuspillandi
húsnæðis) verði 50.000 kr. ( +
jafnmikið frá bænum), en telur
sig ekki geta borgað lánsféð út
fyrr en 1958 og 1959 nema að-
stæður breytist.
Þá telur húsnæðismálastjórn
eðlilegt, að auk lána skv. IV kafla
laga 42/1957 komi A og B-lán
„eftir því sem fjárhagpr og út-
hlutunarreglur leyfa“. Þá telur
hún, að ekki verði hjá því kom-
izt, að bæjarsjóður veiti bráða-
birgðalán, þar eð hugsanlegt sé
að veiting A og B-lána dragist.
ASalfuntíur Óðins
á Selfossi
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ Óðinn,
á Selfossi hélt aðalfund sinn mið
vikudaginn 20. þ.m. í Selfossbiói.
í fundarbyrjun var lesin upp
inntökubeiðnir frá 19 manns sem
samþykktar voru með lófataki.
í stjórn félagsins voru kosnir
til næsta aðalfundar: Þorsteinn
Sigurðsson, Einar Sigurjónsson
og Páll Sigurðsson.
í varastjórn: Sigurður E. Ás-
björnsson og Sigurður Guðmunds
son.
í fulltrúaráð: Einar Pálsson,
Jón Pálsson og Matthías Sveins-
son.
Þá flutti Sigurður Ó. Ólafsson,
oddviti, ræðu. Talaði hann um
hreppsmál og síðan um væntan-
legar hreppsnefndarkosningar og
undirbúning þeirra.
Eftir fjörugar umræður, var
kosin uppstillingarnefnd og fram
kvæmdanefnd, sem hafa skyldu
með allan undirbúning kosning-
anna að gera.
Er nú sóknarhugur mikill í
Sjálfstæðismönnum á Selfossi, að
láta ekki sitt eftir liggja í næstu
hreppsnefndarkosningum.
DALVÍK, 21. nóv. — Góðar gæft-
ir hafa verið hér undanfarið. —
Bátar hafa róið að staðaldri og
afli verið 6—10 skippund í róðri.
Tveir litlir þilfarsbátar hafa
verið að gera tilraunir með ýsu
net hér í firðinum, en þær hafa
ekki borið verulegan árangur.
Einn bátur héðan hefur stund-
að síldveiðar í Inn-Eyjafirði, en
hann hefur aflað sáralítið.
Síldin
AKRANESI, 21. nóv. — Þrír
reknetjabátar fóru á veiðar í gær.
Höfrungur fékk 87 tunnur og
Keilir 86 tunnur. Hjá þriðja bátn
um Ólafi Magnússyni bilaði
dýptarmælirinn og fór hann með
hann til Reykjavíkur.
17 bátar fóru til veiða í dag.
Fiskur er tregur hjá trillubát-
unum 6—700 kg. — Oddur.
— Nato-samskot
Frh. af bls 1.
verið á tvöfeldni hennar í ut-
anríkismálunum og niðurlæg-
inguna gagnvart erlendum
lánveitendum.
Samskotabeiðni „út úr neyð“
í lok október kvartaði Tíminn
yfir því, að „ástandið á alþjóð-
legum lánamarkaði“ hafi nú
versnað svo mjög að „ódýrt láns-
fé er víst hvergi fyrir hendi“.
Þetta sagði blaðið í framhaldi
af kvörtunum fjármálaráðherr-
ans um hve erfitt væri að fá lán.
Það er augljós staðreynd að
núverandi ríkisstjórn hefur
gefizt upp við að fá lán eftir
venjulegum leiðum en afleið-
ing þess er svo það, sem fram
er komið, að ríkisstjórnin leit-
aði eftir samskotalántöku hjá
þjóðum Atlantshafsbanda-
lagsins.
Eftir er svo að sjá, hver árang-
urinn verður, en á það má benda
að Þjóðviljinn segir að völ muni
vera á „smærri lánum í Vestur-
Þýzkalandi og Bandaríkjunum".
Þetta sýnist ekki alveg ólíkt því
þegar gengið er með lista á
milli manna og sumir „skrifa
upp á“, en aðrir ekki.
Það, sem þagað er um.
Stjórnarblöðin hafa ekki vikið
einu orði að því, sem Mbl. sagði
í sambandi við þetta mál um
tvöfeldni ríkisstjórnarinnar. A
sama tíma og leitað er samskot-
anna hjá þjóðunum í Atlantshafs-
bandalaginu hampar stærsti
stjórnarflokkurinn því, að nóg og
ódýrt lánsfé sé hægt að fá „fyrir
austan". Á þeim sama tíma og
utanríkisráðherrann gengur bón-
arveg til búða Atlantshafsbanda-
lagsins, fer svo annar ráðherra,
forseti Neðri deildar og velþekkt-
ur Tímamaður í afmælisferð til
Moskvu!!
Hver er stefnan í utanrík^.-
málunum?
Stjórnarblöðin gera heldur
ekki minnstu tilraun í þá átt að
skýra fyrir almenningi, hver sé
hin raunverulega stefna ríkis-
stjórnarinnar í utanríkismálum.
Það er ekki nema eitt og hálft
ár síðan að allir stjórnarflokk-
arnir höfðu það efst á stefnu-
skrá sinni að reka varnarliðið,
sem hér er í samræmi við At-
lantshafssáttmálann, burt úr
ár síðan allir stjórnarflokk-
urinn heldur því enn fram, að
sú yfirlýsing, sem samþykkt var
af þessum flokkum á Alþingi um
brottvikninguna, sé í fullu gildi.
Stjórnarhlöðunum væri
nær að upplýsa almenning
um hver aðstaða þjóðarinnar
er í þessum málum og skýra
blekkingalaust frá því sem
er að gerast í lánsfjármálum,
heldur en ráðast með æsingi
að Morgunblaðinu fyrir að
skýra frá því, sem þau verða
þó að viðurkenna að sé raun-
verulega rétt.
Dagskrá Alþingis
EFRI DEILD, kl. 1% 22. nóv.
Umferðarlög, frv. — Frh. 3.
umr.
Neðri deild, kl. 1% 22. nóv.
Fræðsla barna, frv. — 1. umr.